þriðjudagur, desember 19, 2006
mánudagur, desember 04, 2006
Jæja...
Annars er desember hingað til búinn að vera ljúfur. Þórunn mín varð 13 ára á föstudaginn ( til hamingju elskan mín ), það er hægt að opna bílskúrinn og ég aðeins farin að jólavesenast. Svona loksins þegar ég komst í jólaskrautið mitt... Sko málið var að ég var á audi-inum síðasta þriðjudag því að Gummi var heima með Kristínu sem var aðeins slöpp eftir tannlækna"aðgerðina" á mánudeginum. Þegar ég er búin að ná bílnum út úr bílskúrnum set ég fjarstýringuna á milli sætanna í lítið hólf. Það opnast með því að maður ýtir á það og þá fer lokið ofan í pínulitla rauf. Nema hvað að einhvern veginn fór fjarstýringin með lokinu ofan í raufina og var þar föst og ekki nokkur leið að ná henni með einhverri lítillri fyrirhöfn. Ég reyndi alls konar trix en ekkert gekk. Svo að það var ekki hægt að opna bílskúrinn. En klári kallinn minn var nú með svona varaopnara. Nema hvað að hann virkaði heldur ekki svo að plan B var farið út um gluggann. Þannig að á endanum var farið með blessaðan bílinn niður í Heklu á laugardaginn og hann tekinn í sundur ( ekkert smá mál ) af 2ur bifvélavirkjum sem voru tæpa 2 tíma að klára verkið. Og ná í fjarstýringuna. Svo að voila, málinu var reddað...og það besta var að við þurftum ekkert að borga fyrir greiðann, Knútur forstjóri ætlaði eitthvað að melda þetta á milli hans og bifvélavirkjanna. Svo að lokum komst ég í jólaskrautið og ekki seinna að vænna, alveg orðin einum degi of sein að byrja að skreyta !!
Svo á sunnudeginum fór Gummi til Bretlands í vinnuferð. Og hann var ekki fyrr farinn úr húsi en ég var byrjuð að baka. Og gerði sko 3 sortir + sörur ( í fyrsta skipti og ómægod, ég er djínjus ) Hann kemur ekki heim fyrr en á fimmtudagskvöld svo ég ætla að nýta tímann vel þangað til, skreyta húsið eins og ég eigi lífið að leysa því ég sagði við hann að það myndi lýsa upp allan Mosfellsbæ ;)
Svo er framundan jólahlaðborð ( á reyndar eftir að skrá okkur en býst 90% við að mæta ). Og svo 2falt barnaafmæli á sunnudaginn fyrir nánustu vini og ættingja. Og svo bekkjarafmæli..og svo og svo verða bara næstum því komin jól. Og mér finnst ég nýbúin að taka niður skrautið :s
well, farin að föndra aðeins...bara pínupons ;)
julen, julen, julen kommer snart...
c",)
þriðjudagur, nóvember 14, 2006
miðvikudagur, nóvember 08, 2006
Sko...
föstudagur, október 27, 2006
Does your name tell anything about you ?
A: Likes to drink.
B: Likes people
C: Is wild and crazy.
D: Has one of the best personalities ever.
E: A damn good kisser.
F: People adore you.
G: Never let people tell you what to do.
H: Have a very good personality and looks.
I: Loves everyone.
J: Lives life for fun.
K: Really silly.
L: Loved by everyone
M: Makes dating fun
N: Dead sexy.
O: Best in bed.
P: Popular with all types of people.
Q: A hypocrite.
R: Fuckin Crazy
S: Easy to fall in love with
T: Loyal to those you love.
U: Really like to chill.
V: Not judgemental.
W: Very broad minded.
X: Never let people tell you what to do.
Y: One of the best damn bf/gf ne one could ask for.
Z: Always ready.
So here goes ;)
B: Likes people
O: Best in bed
G: Never let people tell you what to do.
G: Never let people tell you what to do.
A: Likes to drink.
líkar við fólk , stundum og stundum ekki, er auðvitað best í bólinu, tek ekki skipunum og finnst ekkert leiðinlegt að fá mér í tánna ;) held að þetta sé bara nokkuð lagi
Ég get líka farið lengri leiðina...
S: Easy to fall in love with ( löngu vitað )
I: Loves everyone. ( eða næstum því )
G: Never let people tell you what to do. ( jebb )
U: Really like to chill. ( ójá )
R: Fuckin Crazy ( staðreynd )
B: Likes people ( já já )
O: Best in bed. ( hokkalega )
R: Fuckin Crazy (staðreynd )
G: Never let people tell you what to do. ( jebb )
Það eina sem mér sýnist vanta er auðvitað dead sexy ( N ), þarf að bæta enninu einhver veginn við nafnið mitt ;)
c",)
þriðjudagur, október 10, 2006
Drunken ladies know it's time to go home when...
1. You fail to notice that the toilet lid's down when you sit on it.
2. You decide to audition for 'Star Search' via the security cameras.
3. You begin to find a deeper side to the office nerd.
4. You sound like Jessie Ventura from the 60 cigarettes you've smoked.
5. The man you're flirting with used to be your 5th grade teacher.
6. You had to ask a stranger to help you pull your pants up in the ladies room.
7. The urge to take all your clothes off, stand on a table and sing "Hopelessly Devoted To You" becomes strangely overwhelming.
8. You have absolutely no idea where your shoes are.
9. You show your friends that girls can pee standing up if they really want to.
10. You drop your 3:00 a.m. burger on the floor, pick it up and carry on eating.
c",)
þriðjudagur, október 03, 2006
ehemm...
Margt og mikið hefur gerst síðan síðast, fullt af afmælum ( 4 í einni viku ), partý, tónleikar, böll og fleira. Og utanlandsferð plönuð. Jaháts, tjellingin búin að vera duglegri á öðrum sviðum en blogginu undanfarið.
Fyrst má nefna afmælin. Óskar vinur okkar ( og varamaðurinn minn ) varð 32 um daginn. Áður en við fórum í afmælið til hans var okkur boðið í kokteil hjá OR og á tónleikana með Bo Hall. Ég get svo svarið það að ég fékk gæsahúð við fyrsta lag og tár í augun. Og í enda giggsins var ég farin að syngja manna hæst, mest og best ( yeah right ). Svo var haldið til Óskars þar sem vinakjarninn var, Óskar og Dorota, Snorri einsamall, við og Alli og Nong. Það var mikið um fljótandi í boði og ekkert slakað á fyrr en um miðja nótt þegar ég var eiginlega komin með nóg. Svo ekki sé minnst á Dorotu. Hún gapti bara. Málið var að Snorri var alltaf eitthvað að pirrast og nuddast út í Gumma, gefa honum óumbeðið nudd ( sem var ansi harkalegt ) og fleira. Í stuttu máli sagt þá endaði kvöldið þannig að Gummi snéri Snorra niður í sófann og lá á bringunni á honum og bað hann að hætta. Sem hann gerði en var helaumur á eftir. Hann hringdi svo í Gumma í dag og þá er komið í ljós að hann er með brákað bringubein eftir lætin. Læknirinn sagði honum að skipta um vini. Eins og það gerist...
Næsta afmæli var svo hjá henni Sissu minni. Hún varð 33 ára um daginn en lítur út eins og þegar við vorum litlar. Ég er sko búin að þekkja hana í 27 ár ( held ég ) og það er nú bara alveg slatti. Ég gaf henni forláta lopapeysu í afmælisgjöf, svo henni verði ekki kalt í skólanum í vetur. Næstur á afmælislistanum var svo tengdapabbi minn en hann varð 55 ára. Hann / þau buðu okkur í mat og við skáluðum í nokkrum bjórum bara svona í tilefni dagsins. Við gáfum honum voðalega flott úr.
Og svo kom að afa hans Gumma. Hann varð áttræður um daginn og bauð í kvöldmat og með því í sal vestur í bæ. Það var vel mætt, maturinn æðislegur og bara gaman að eyða kvöldstund með ættingjunum. Við laumuðum að honum smá aur en hann vildi í raun ekkert í gjöf, bara að sjá liðið sitt. Og þá er ég búin að telja upp þau 4 afmæli sem ég fór í á 5 dögum. Geri aðrir betur.
Og svo, síðast en ekki síst...á Gummi afmæli á morgun, 4. október. Hann verður þá loksins jafngamall mér, glæsilegt hjá mér að ná mér í yngri mann en ég er sjálf ;) tjellingin kewl...
Annað sem ég hef afrekað undanfarið er að panta mér flug til usa, nánar tiltekið til Boston 11. október næstkomandi.Þangað ætla ég að fara með henni Distu minni ( stjúpu ) og Gillu stjúpsystur. Doddi hennar Distu á heima rétt fyrir utan Boston og þar ætlum við að eyða nokkrum dögum í afslappelsi og shop till u drop. Og heilsa upp á nýjustu frænkuna, hana Lou Distu. Það er löngu ákveðið að þetta verður sko ekki menningarferð. Svo nú leita ég mér að STÓRRI ferðatösku sem á að vera eins létt og hægt er, svo ég komi nú miklu í hana án þess að borga yfirvikt.
Svo...er ég búin að vera heima síðustu 2 daga með einhverja kviðverki og leiðindi. Ég er búin að fara í prufur og tékk og ekkert er búið að sjást eða finnast. Ég er einmitt í augnablikinu alveg að drepast :s svo ég ætti kannski bara að hætta þessu pikki ???
þangað til næst....
c".)
mánudagur, september 04, 2006
Helgin...
Á meðan hann var í Færeyjum þá skellti ég mér hérna út í hringleikahús með nágrönnunum í umræður og nokkra öllara. Föstudagskvöldið var bara mjög rólegt og þægilegt, yndislegt veður btw. Á laugardeginum skelltu börnin sér til feðra sinna ( já, skítur skeður ) svo við vorum orðin barnlaus seinni partinn. Við skelltum okkur í bíltúr til Sissu og Bjarna og borðuðum með þeim ( takk fyrir okkur ) og þau fengu sér nokkra öllara en ég var bara þæg og góð og keyrði audi-inn ( það var sko þess virði ). Svo auðvitað heillaði Sálarballið hérna í sveitinni, nánar tiltekið í Hlégarði. Svo ég keyrði hingað upp eftir um 11 leitið og við kíktum aðeins niður í Hlégarð í miðasöluna. Röðin var bara svo löng svo við ákváðum bara að skella okkur heim og fara svo á ballið um 1 leitið. Sem við gerðum en vorum farin að heyra útundan okkur í partýinu hérna við hliðina á okkur að það væri orðið uppselt. Við létum sem við heyrðum þetta ekki en komumst svo að því að þetta var satt. Nú voru góð ráð dýr, engir miðar og fullt af fólki fyrir utan að reyna að komast inn. Gummi hringdi í grannann sem var kominn inn og viti menn, hann gat skellt 2ur á gestalistann sinn. Svo þetta endaði á því að ég og Sissa skelltum okkur á ballið á meðan strákarnir héldu í bæinn.
Ballið var æðislegt, reyndar var varla hægt að komast á dansgólfið og hvað þá barinn en við brutum okkur leið og keyptum bara kippu af bjór á barnum til að þurfa ekki að standa í röð eftir öllaranum. Svo sungum við aðeins og dönsuðum með Mosfellingum og akp ( aðkomupakki ) sem var sko margmennt þetta kvöldið. Ég sá meðal annars vinkonu mína frá Hafnarfirði og svo eitthvað norðanlandspakk.
Eftir ballið þótti mér svaka sniðugt að fara úr heimabænum ( korter frá my place ) og niður í miðbæ RVK til að hitta Gumma minn. Svo við fengum far niður í bæ, hittum strákana og fórum heim. Enda var komið gott í þetta sinn. Ég er bara mjög sátt við helgina, skemmti mér konunglega og gat líka náð að slappa aðeins af. Reyndar svo mikið að ég festist í hálsinum og bryð verkjatöflur eins og smartís...bara svona til að þrauka vinnudaginn af. Vonandi verð ég betri á morgun...
c",)
föstudagur, september 01, 2006
Hugleiðingar...og fleira
Þegar neyðin er stærst er hjálpin fjærst.
Eitt sinn skal hver fæðast.
Sjaldan fara sköllóttir í hár saman.
Oft eru bílstjórar útkeyrðir.
Flestar gleðikonur hafa í sig og á.
Betri eru kynórar en tenórar.
Betra er að sofa hjá en sitja hjá.
Til þess eru vítin að skora úr þeim.
Auðveldara er að fá leigt í miðbænum en guðanna bænum.
Oft fara hommar á bak við menn.
Oft eru dáin hjón lík.
Hagstæðara er að borga með glöðu geði en peningum.
Betra er að fara á kostum en taugum.
Margri nunnu er "ábótavant".
Oft hrekkur bruggarinn í kút.
Margur bridsspilarinn lætur slag standa.
Oft eru bílstjórar vel á veg komnir.
Oft fara bændur út um þúfur.
Víða er þvottur brotinn.
Oft fer presturinn út í aðra sálma.
Margur bóndinn dregur dilk á eftir sér
Góða helgi c",)
fimmtudagur, ágúst 24, 2006
"Fyrsti"
Svo nú er stelpan mín orðin stór, alveg að byrja í skóla. Skrýtið að vera búin með allt þetta leikskólavesen...
c",)
þriðjudagur, ágúst 22, 2006
Og enn einu sinni...
Nú er orðið ansi stutt í að þau byrji öll í skólanum. Á morgun er skólasetning hjá þeim eldri og Kristín fer svo á fimmtudaginn að hitta kennarann sinn og fær þá stundatöfluna. Svo byrjar ballið á föstudaginn þegar fyrsti skóladagurinn hennar rennur upp. Þá er litla stelpan mín orðin stór allt í einu. Það verður fróðlegt að sjá hvernig þetta þróast allt saman.
Við vorum bara í rólegheitunum heima um síðustu helgi og létum menninguna í nágrannasveitafélaginu alveg fara framhjá okkur. Reyndar sáum við flugeldana í garðinum hérna heima svo við þurftum ekki að fara langt. Svo er sko menningarhátíð Mosó um næstu helgi með tilheyrandi húllumhæi og þá lætur maður kannski aðeins sjá sig. Og meira um menninguna því að helgina á eftir verður sko Sálarball í Hlégarði og ég held að það sé bara skyldumæting. Beta og Haukur verða með partý hérna á móti og voru að leggja til að við héldum bara líka partý svo við gætum bara haft opið á milli íbúðanna. Það getur vel verið að það fari svo. Enda ekki oft sem að það er svona flott ball í sveitinni. Kemur allt í ljós. Ég er alla veganna búin að bjóða nokkrum í innlit þetta kvöld.
Annars lítið að frétta, stutt síðan ég var síðast í sumarfríi og ég gæti alveg hugsað mér að vinna bara aðra hverja viku eða svo ;) verst að maður verður víst að fá pening til að lifa af. Svo ég mæti galvösk í næstu viku, hrikalega endurnærð ( yeah right ) og tilbúin í næstu orrustur.
c",)
þriðjudagur, júlí 25, 2006
Pssssssssssstttttttttttttttt !!
Annars bara lítið að frétta, Gummi farinn í vinnuna ( reyndar bara í dag ) svo að við erum að slæpast hérna heima við. Þórunn Anna er á reiðnámskeiði fyrir hádegi þessa vikuna svo hún þarf að vakna snemma. En ekki við hin og þess er notið til hins ýtrasta. Enda er gott að kúra.
Veðrið er auðvitað orðið ansi íslenskt í dag, hljóp út á pallinn áðan og bjargaði sessunum úr stólunum okkar því það var byrjað að rigna. En það er hlýtt úti svo það er kannski ekkert hægt að kvarta mikið. Ég vona bara að veðrið verði orðið súpergott á föstudaginn þegar við skellum okkur í sumarbústaðinn ;)
Jæja, farin að sinna tannlausa greyinu...
c",)
mánudagur, júlí 24, 2006
Sumarfrí...
Annars bara ljúft að vera í fríi. Kíki á vinnupóstinn minn af og til og blammerast aðeins, bara smá. Við erum sko búin að afreka margt í sumarfríinu þó það séu ekki margir dagar búnir af því. Ég er búin að taka til í geymslunni, mála alla gluggana hérna heima við að utan og svo þrífa fína bílinn minn hátt og lágt. Svo erum við nú líka búin að fara í útilegu. Sem varð reyndar styttri en hún átti að vera vegna veðurs. Á fimmtudaginn síðasta skelltum við okkur í Skaftafell, sem alltaf er svo ljúft að heimsækja. Veðrið var fínt, var þó betra í bænum. En það skipti ekki öllu því að nágrannarnir biðu okkar á staðnum. Við skelltum upp tjöldunum með krökkunum og komum okkur fyrir í fellihýsinu hjá grönnunum. Svo var sest niður og nokkrum öllurum var slátrað ásamt einhverju öðru. Veðrið var ennþá fínt á þessum tíma og við sáum meira að segja Hvannadalshnjúkinn í allri sinni dýrð og á einum tímapunkti var tekið af mér loforð um að ég myndi skella mér þangað upp á næsta vori. Sjáum nú til með það ;) Eníveis, við fórum bara að sofa en svo um morguninn þegar við vöknuðum voru monsúnrigningarnar enn einu sinni teknar við. Rosaleg demba sem var bara yfir okkur og fullt af fólki búið að flýja staðinn. Ekki af því að við sungum neitt rosalega hátt þarna um nóttina... Svo við fórum bara í það að taka niður allt draslið í þessu yndislega veðri og voila, urðum rennandi blaut inn að beini. Svo vorum við í símasambandi við grannana á leiðinni í bæinn og ætluðum að planta okkur einhvers staðar þar sem væri þurrt og sæmilega hlýtt til að þurrka tjöld og mannskapinn. En það færi gafst ekki svo við enduðum í Hjallahlíðinni með allt klabbið. Ég fór í það að grilla pylsur ofan í mannskapinn og svo skriðum við bara í ból, örþreytt eftir barninginn.
Svo að helgin var bara róleg, við grilluðum saman aftur á laugardaginn, mér taldist til að það væru 12 manns í mat það kvöldið. Mjög vel heppnað og kjúllinn algjört lostæti. Ég ákvað að það væri komið gott bara um hálfellefu og skellti mér í bólið. Enda var ég ekkert smá hress í gær og byrjaði og kláraði að mála gluggana :) dugleg stelpa sko ;)
Jæja, er farin að horfa á ræmuna sem að Gummi náði í í gærkvöldi. Sofnaði yfir henni, ég ætti kannski að fara og láta athuga hvort ég sé komin með svefnsýki.
Hafið það gott í dag og vonandi lætur sólin sjá sig. Það er alla veganna ágætlega hlýtt á klakanum.
c",)
þriðjudagur, júlí 11, 2006
Ble, ble, ble
Er bara heima í dag, fór snemma úr vinnunni í gær því mér leið eiginlega ömurlega. Kannski borgaði sig ekki að sitja svona lengi úti aðfaranótt sunnudags með nágrönnunum. Hmmm, held að það sé að koma í bakið á mér. Þórunn er líka veik svo við slæpumst bara hérna mæðgurnar. Kristín er komin í sumarfrí og nýtur þess í ræmur,sofnar seint og vaknar seint. Er eiginlega úti alla daga að leika við Árna, hund nágrannans eða Yrsu Björt vinkonu sína. Svo að lífið er yndislegt, væri miklu yndislegra ef að veðrið væri eins og það væri sumar en ekki miður september. Ömurlegt sumar búið að vera :s
Jæja, farin að sinna skvísunum mínum...
lasarusakveðjur úr Músó
c",)
miðvikudagur, júlí 05, 2006
WORK !!!
This virus is called Work-Overload-Recreational-Killer (WORK). If you
receive WORK from any of your colleagues, your boss or anyone else via
any means DO NOT TOUCH IT.
This virus will wipe out your private life completely. If you should
come into contact with WORK put your jacket on and take two good
friends to the nearest bar. Purchase the antidote known as
Work-Isolator-Neutralizer-Extractor (WINE) or
Bothersome-Employer-Eliminator-Rebooter (BEER).Take the antidote
repeatedly until WORK has been completely eliminated from your system.
föstudagur, júní 30, 2006
TGIF...
Elskulegur nágranni okkar, hann Haukur, hringdi áðan í Gumma...hló soldið þegar Gummi sagðist vera í fríi eftir hádegi í vinnunni því að á því augnabliki var hann mættur út á völl í Berlín í 27.röð að horfa á leikinn live. Með einhverja kúnna í eftirdragi, bömmer skilurru !!! Voðalega leiðinlegt að vera þarna á staðnum. Þegar hann mætti voru bara komnir 10.000 manns á völlinn en hávaðinn var orðinn óbærilegur...hvað þá núna.
Annars bara ljúf helgi framundan. Ekkert planað annað en að horfa á HM. Ég er að vonast til að Ítalir detti út í kvöld og Englendingar á morgun og þá er ég sátt. Og svo mega brassarnir alveg valta yfir frakkalöfin annað kvöld ;) bara svona fyrir mig. Leikurinn sem stendur núna ? Auddað taka Þjóðverjar þetta, enginn sóknarmaður eftir hjá Argentínu og hvernig ætla þeir þá að taka vítaspyrnukeppnina sem allt stefnir í ? spurning...góð spurning ;)
Jæja, farin að undirbúa mig andlega undir vítaspyrnukeppnina. Vefja um mig þýska treflinum sem við fengum að gjöf í gær og veifa þýska fánanum sem lafir í logninu á pallinum hérna fyrir utan.
Áfram Þýskaland !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
c",)
laugardagur, júní 17, 2006
Hæ, hó, jibbí jei og jibbí jei !!!
Eníveis, ljúfur 17. júní að baki. Komumst áfram á HM í handboltanum, mjög svo stolt af strákunum. Var farin að hoppa hérna um gólf af spenningi. Sit núna og horfi á mjög rauðan leik milli USA og Ítala. Mikið um brot og rauð spjöld. Ítalarnir áttu auðvitað að taka USA í nefið en það lítur ekki út fyrir það. Aular, ekkert annað...
Kristín liggur núna uppi í rúmi að horfa á Incredibles, Gummi dottar yfir þessum leiðindaleik á meðan ég pikka aðeins. Stefnir í rólegt kvöld heima við, svona eins og þau gerast best. Ekkert planað á morgun annað en að horfa áfram á HM. Kannski baka ég aðeins fyrir mánudaginn en þá verður Þorvarður, þessi elska, 14 ára gamall. Jibbí jei !!!
Jæja, farin að bjarga kjúllanum úr ofninum. Eitthvað til að narta í yfir imbanum í kveld.
Hafið það gott, farið rólega inn í hátíðarhöldin í kveld... svona eins og ég ; )
c",)
miðvikudagur, júní 14, 2006
Ég og varamaðurinn...
Jæja, annars bara lítið að frétta. Verð í fríi á morgun, jarðarför á Selfossi eftir hádegið og eiginlega brönsj hérna hjá mér fyrir hádegi þar sem safnað verður í sætaferðina austur. Svo horfum við Óskar væntanlega á 7 leikinn annað kvöld þar sem Svíþjóð og Paragvæ mætast. Eins gott fyrir Svíana að taka þetta á morgun annars fara þeir bara heim með skottið á milli lappanna. Eða taglið. Þeir eru enn með þessa hallærislegu klippingu sem var í tísku þarna í kringum 1990. Sítt að aftan...jakk edí jakk.
Well, farin að hita upp fiðrildið...hinn varamanninn minn þessa dagana...hehehehe
c",)
mánudagur, júní 12, 2006
Why man are happier...
Men Are Just Happier People-- What do you expect from such simple creatures?
- Your last name stays put.
- The garage is all yours.
- Wedding plans take care of themselves.
- Chocolate is just another snack.
- You can be President.
- You can never be pregnant.
- You can wear a white T-shirt to a water park.
- You can wear NO shirt to a water park.
- Car mechanics tell you the truth.
- The world is your urinal.
- You never have to drive to another gas station restroom because this one is just too icky.
- You don't have to stop and think of which way to turn a nut on a bolt.
- Same work, more pay.
- Wrinkles add character.
- Wedding dress $5000. Tux rental-$100.
- People never stare at your chest when you're talking to them.
- The occasional well-rendered belch is practically expected.
- New shoes don't cut, blister, or mangle your feet.
- One mood all the time.
- Phone conversations are over in 30 seconds flat.
- You know stuff about tanks.
- A five-day vacation requires only one suitcase.
- You can open all your own jars.
- You get extra credit for the slightest act of thoughtfulness.
- If someone forgets to invite you, he or she can still be your friend.
- Your underwear is $8.95 for a three-pack.
- Three pairs of shoes are more than enough.
- You almost never have strap problems in public.
- You are unable to see wrinkles in your clothes.
Everything on your face stays its original color. - The same hairstyle lasts for years, maybe decades.
- You only have to shave your face and neck.
- You can play with toys all your life.
- Your belly usually hides your big hips.
- One wallet and one pair of shoes one color for all seasons.
- You can wear shorts no matter how your legs look.
- You can "do" your nails with a pocket knife.
- You have freedom of choice concerning growing a mustache.
- You can do Christmas shopping for 25 relatives on December 24
in 25 minutes. - No wonder men are happier.
Þetta sendi einn vinnufélaginn mér...auddað karlkyns !!!
c",)
laugardagur, júní 10, 2006
Þunnur...
Annars bara stutt vinnuvika að baki. Hvítasunnuhelgin var sko busy, busy. Sérstaklega laugardagurinn. Ég byrjaði að skála við grannana um 4 leitið, nokkrir bjórar runnu niður áður en ég fór til Fanneyjar í grillpartý. Algjört gúmmelaði sem hún galdraði á borðið og lifir lengi í minningunni. Svo skelltum við okkur í kveðjupartý til Róberts sem er núna farinn til USA að meika það. Ég stoppaði reyndar mjög stutt, 1 bjór og smá sígó og þá var Gummi mættur til að koma mér í næsta partý. Sem var sko útskriftarpartý hjá Gillu stepsister í Borgarnesi. Það var eiginlega rólegasta partýið af öllum sem ég fór í á laugardaginn. Ég gerði misheppnaða tilraun að gera mojito úr stroh, ekki gott. Það var bara ekkert annað romm í húsinu. Dista mín skellti í sig öllum bríserum í húsinu eða reyndi það alla veganna. Þegar henni var keyrt loksins í bústaðinn til pabba þá gengum við um og söfnuðum öllu hálfu bríserunum eftir hana sem lágu út um allt. Svo þegar nóg var komið þá keyrði Gummi okkur á hótel Hamar sem er rétt utan við Borgarnes þar sem við sofnuðum í yndislegu rúmi ( skeiðvelli ) og sváfum eins og ungabörn fram á sunnudag. Þá lá leiðin í bústaðinn til pabba og Distu að ná í Kristínu og Írisi sem voru búnar að vera þar í góðu yfirlæti að leika sér í barbie og pony út í eitt. Svo var ekkert lítið yndislegt að koma heim aftur og fatta að það var meira að segja einn frídagur eftir. Geðveikt, kom sér mjög vel. Ég myndi alveg vilja hafa það á tilfinningunni í dag þar sem ég er búin að lofa Siggu nokkrum mojitoum hjá mér í kveld. Sjáum nú hvernig það fer...
Svo bara aftur stutt vinnuvika held ég. Ég er að fara í jarðarför á fimmtudaginn á Selfossi svo ég vinn stutt þann daginn. Svo er Sælukot að fara í Húsdýragarðinn á föstudaginn svo ég er að gæla við að fara með þeim og ná nokkrum myndum af Kristínu og vinkonum hennar áður en leiðir skilja þar sem þær eru að fara í skóla í haust. Ji hvað hún er orðin stór og fullorðin... :s
Jæja, farin að horfa á næsta leik á HM. Trinidad-Svíþjóð. Held auddað með frændum vorum, ekki spurning. Var mest skúffuð yfir því að Paragvæjar næðu ekki að jafna á móti Englendingum því þeir áttu engan veginn skilið að vinna leikinn. Leiðinlegur leikur þar á ferð.... Opnunarleikurinn var snilld, vil að Þýskaland komist áfram úr riðlakeppninni svo það sjóði ekki upp úr þarna í Germaníunni. Það væri leiðinlegt...
Jæja, hætt að bulla í bili !!!
c",)
föstudagur, maí 26, 2006
1 5aur...
A man scanned the guests at a party and spotted an attractive woman standing
alone.
He approached her and asked her name.
"My name is Carmen," she told him.
"That's beautiful," he said. "Is it a family name?"
"No," she replied, "I gave it to myself. It reflects the things I like most
- cars and men. What's your name?" she asked.
"Beerfuck," he replied.
c",)
þriðjudagur, maí 23, 2006
Úff
Aftur að Amsterdam. Við nutum þess svo að sitja á hinum og þessum torgunum og torguðum nokkrum bjórum og fleiru og skoðuðum mannlífið. Við eigum okkur uppáhalds pöbb í Neuwmarkt hverfinu sem er alveg í jaðrinum á rauða hverfinu. Þar er hægt að fylgjast með þeim stelpum sem eru að fara á vakt, þeim sem voru að koma af vakt og öllum ógeðslegu köllunum sem streymdu þangað inn í leit að ævintýrum. Við röltum aðeins í gegnum rauða hverfið á föstudeginum og aftur á laugardeginum að loknum góðum málsverðum á steikarhúsi og ítölskum stað. Hverfið er nú soldið spes svo ekki sé meira sagt. En það er ekki hægt að sleppa því að rölta þarna í gegn.
Ferðin var í alla staði mjög vel heppnuð en líka yndislegt að koma heim í gjóluna og bjórleysið. Ég var orðin svo þanin af drykkju svo það var ljúft að eiga nokkra daga án alkóhóls...
Svo var bara vinna og meiri vinna í síðustu viku og bið eftir eurovision. Fanney skellti sér út að berja Silvíu augum í forkeppninni og njóta veðursins þarna suður frá. Alla veganna naut hún varla gestrisni grikkjana því þeir eru bara dónar eins og alþjóð veit. Leiðinlegir leigubílstjórar og fleiri kúkalabbar. Eníveis...allir vita hvernig helv forkeppnin fór, hvort að Silvía hafi fengið það sem hún átti skilið eður ei ætla ég ekkert að segja um, hún stóð sig eins og hetja þarna í púunum og ég var bara svo stolt af henni. Yndisleg... Við fórum svo í partý á laugardagskvöld til Nínu og Snorra í árbænum ásamt fleirum. Nutum þess í ræmur að sjá Finnana taka þetta í nös, nasir, trýni eða hvað sem þeir notuðu til að anda með í öllu latexinu. Algjör snilld, spurning að skella sér til Finnlands á næsta ári í maí ?? Svo skelltum við stelpurnar okkur niður í bæ á NASA í eurovision partý Páls Óskars og ég lofa því að mæta aftur og aftur og aftur... Þvílík gleði og tjútt. Skelli inn mynd ( eða reyni það alla veganna ) af okkur stúlkunum sem sýnir aðeins hvað við skemmtum okkur vel...

Svo var dúllan hún Alicia Ósk skírð um helgina í Norska sjömanskyrkan í Gautaborg. Gísli frændi sendi okkur hérna á klakanum myndir úr veislunni og ég get svarið það að hún er fallegasta barn sem ég veit um. Augun hennar, ég get horft á þau klukkutímunum saman, allt við hana er bara ótrúlega fallegt...hún hefur svo sem ekki langt að sækja sætleikann.....þessi elska...http://barnaland.mbl.is/barn/28630 hér getið þið kíkt á krúttið !!
Svo er bara vinna á morgun og útskriftarveisla annað kvöld hjá Oddu frænku hans Gumma. Við ætlum aðeins að fá okkur í aðra tánna eða upp í hnéskél, fer eftir aðstæðum. Yndislegt þegar vinnuvikurnar eru slitnar svona í sundur, reyndar hef ég alltof mikið að gera þessa dagana en verð bara að halda aftur af mér og reyna að slappa af. Svo bara vinna á föstudaginn og svo kosningar. Hef lítinn áhuga á málunum hérna í sveitinni en er spenntari yfir RVK, vona mjög heitt að Bingi komist ekki inn og þá losnum við bara kannski við ríkisstjórnina líka, ekki lélegur díll það.
Jæja, mér er gefið illt auga hérna fyrir pikkið. Gummi var að skella einhverri strákamynd í tækið sem þarfnast fullrar athygli, bæði hans og mín ( hehehe, sofna bara kannski eftir korter.... )
ciao bellas c",)
þriðjudagur, maí 09, 2006
Á morgun...
Veðrið er bara búið að vera æðislegt síðustu daga. Við sátum meira að segja úti í vinnunni í dag í hádeginu og borðuðum grillmat. Þetta hefur aldrei gerst í maí, að við séum í sumargrillveislu. Ekki einu sinni hálfnaður maí. Luvlí. Vonandi verður þetta áfram svona í sumar, gott að venjast þessum hita...
Þrátt fyrir hitann og svitann undanfarna daga þá skellti ég mér í smá brúnku í dag. Svona hentugt þegar strollað verður úti í damminu, get verið í pilsi án þess að fólk í kringum mig fái ofbirtu í augun. Verð sem sagt brún og sæt þegar Gummi sér mig næst. Honum finnst það ekkert leiðinlegt ;)
Jæja, farin að kúra með Kristínu í síðasta sinn í bili. Svo notalegt...
c",)
laugardagur, maí 06, 2006
Týpískt
Annars skellti ég mér á MI III á fimmtudaginn með Sissu. Þórunn Anna bættist óvart í hópinn en af því að salurinn var troðinn þá sat hún ekki með okkur. Sýningin byrjaði og þá kom í ljós að það var enginn íslenskur texti á myndinni. Frekar fyndið, fara á forsýningu með engum texta. Það var allt í lagi fyrir mig og flesta held ég sem voru þarna. Myndin er alveg ágæt, erfitt að horfa á Tomma geðveika en þegar ég náði að horfa framhjá geðveilu hans í daglega lífinu þá skemmti ég mér ágætlega.
Svo fórum við hópurinn upp á Skaga í gær eftir vinnu í mat til Shyamali. Indverskt of course. Hrikalega gott, ætlum að dobbla hana til að kenna okkur hinum taktana sína. Eftir matinn kom hún með litla skál með alls konar litlum fræjum og sagði að þetta væri breath fresheners. Þetta bragðaðist frekar eins og sápa og ilmkerti og aðeins þau huguðust fengu sér í lófann. Þar á meðal undirrituð. Gott kvöld og vel heppnað.
Svo skellti Gummi sér út í nótt, flaug til London og þaðan er víst ferðinni heitið til Birmingham. Þannig að ég vaknaði með honum í nótt og kvaddi hann vel og mikið því ég fæ ekki að sjá hann aftur fyrr en á fimmtudaginn á Schipol í Amsterdam. Skellti mér í bikkið í morgun ( ekkert smá stolt af sjálfri mér ) og Orri náði í stelpurnar eftir það. Kvöldið í kvöld er sko planað, er að fara í heimsókn til ömmusystur minnar að hitta nokkrar frænkur og kjafta doldið og svo ætlum við Sigga, Sissa ( og vonandi fleiri ) að mála bæinn rauðan undir morgunn. Luvlí, enda er komið sumar...skv. hitamælinum á pallinum hjá mér ;)
Jæja, farin að versla eitthvað gúmmelaði fyrir Þorvarð svo hann hafi eitthvað að nasla í hérna í kvöld...
c",)
miðvikudagur, maí 03, 2006
ÆL...
Annars lítið títt. Er að fara til Amsterdam eftir 8 daga, gisti hjá Sissu eftir viku áður en við skellum okkur í morgunflug til Schipol að hitta Bjarna og Gumma. Í augnablikinu er 21 gráðu hiti þar og heiðskírt, ekki leiðinlegt...
Komin á "nýjan" frúarbíl, Gummi fékk nýja bílinn okkar í gær og Sigga keypti græna gittið. Nýji bíllinn er bara fab, hrikalega flottur og geðveikur í akstri. Enda keyrðum við hann rúma 100 km í gær, sýna tengdó og Sissu og Bjarna. Stoltir eigendur þarna á ferð ;) Svo að núna krúsa ég á mösdunni og finnst það ekkert slæm skipti ;) algjör gella sko...
Jæja, farin að sinna snúllunni minni. Gefa henni ristað brauð og eitthvað stemmandi. Ætti líka að fá mér eitthvað í gogginn því að maginn á mér er búinn að veltast um nokkrum sinnum í morgun :s má nú ekki við því að verða veik núna...
c",)
mánudagur, maí 01, 2006
1. maí
Gummi fann reyndar eina ræningjabúllu opna þar sem staffið fær ekkert bættari kjör með því að þramma niður laugaveginn eða eitthvað því um líkt. 10-11...standa fyrir sínu. Við getum sem sagt keypt gamalt lambakjöt á grillið þar fyrir 50.197 krónur...kostakjör !!! nammi, namm. Held að ég fái mér bara fermingarmat sem kostaði mig minna, bara blóð, svita og tár ;)
c",)
sunnudagur, apríl 30, 2006
JEI...
Það reyndist þrusuvel að hafa sjónvarp í einu horninu. Þar héngu allir krakkarnir og horfðu á imbann og laumuðust fram af og til að ná sér í nammi og rice krispies kökur. Veitingarnar létu á sjá og við þurftum ekki að bera mikið heim. Tæpa eina brauðtertu og nokkrar rúllur. Það var meira eftir af kökunum ( sem staðfestir að það er meira borðað af brauðmeti í svona veislum ) sem Guðni og co tóku með sér heim.
Svo brunuðum við hingað heim og tókum upp pakkana. Eða réttara sagt umslögin því Þorvarður fékk í heildina 3 pakka og þó nokkuð fleiri umslög. Í heildina fékk hann rúman 150.000 kjell, Moby dick, skrifborðsstól og úr. Hann á eftir að fá frá pabba sínum en það eru miklar líkur á að það verði utanlandsferð í sumar. Hann getur þá notað eitthvað smáræði af peningunum í gjaldeyri en restin fer inn á læsta bók fram til 18 ára aldurs.
Þorvarður er bara ánægður með daginn, hann var svo myndarlegur í teinóttu jakkafötunum sínum að margir höfðu orð á því hvað hann væri flottur. Ég er sjálf mjög fegin að þessu er lokið, ekkert nema góðar minningar sitja eftir þennan dag. Svo nú er bara ár í næstu fermingu. Það er nú gott að hafa fengið smá reynslu þetta árið, við erum eiginlega sammála um að kaupa veitingar í sal á næsta ári því að kostnaðurinn virðist vera mjög svipaður. Fyrir utan vinnuna sem ég hef lagt í allt stússið. En því var vel varið í góðan dag :)
Og já, btw...Til hamingju með afmælið í gær Fanney mín. Mikið langaði mig í þó nokkra kokteila með ykkur í gær en það bíður betri tíma ;) mojito-grillpartý í sumar, ekki spurning.
Jæja, er farin að kúra mér undir teppi undir einhverju leiðinlegu í imbanum.
c",)
föstudagur, apríl 28, 2006
TGIF
Við mæðgurnar erum bara einar heima í kvöld, Gummi flaug til Egilsstaða í hádeginu og er í augnablikinu að knúsa kúnnana fyrir austan. Verður eflaust mikið stuð hjá þeim í kvöld. Þorvarður fór til pabba síns í dag og kemur heim á morgun með jakkafötin sín og sálmabókina og Þórunn ætlar að gista í Stórateig í kvöld hjá tengdó, borða nammi og eitthvað fleira fínerí. Svo ég og Kristín ætlum bara að kúra saman í kvöld. Ég ætla bara að njóta þess að slappa af í kvöld, geri ekki mikið af því á morgun, stefnir ekki í afslöppun fyrr en eftir 4 á sunnudaginn þegar veislan verður búin.
Við afrekuðum að kaupa okkur nýjan bíl í vikunni. Fyrir valinu varð audi 6, voðalega fallegur kaggi beint úr kassanum sem ég fæ væntanlega ekki að snerta mikið á næstunni. Nú er bara spurning hvaða bíll verður frúarbíllinn, við erum komin með kaupanda að gittinu en ætlum að auglýsa mösduna um helgina og sjá hvort einhver hafi áhuga. Það kemur bara allt í ljós með tíð og tíma...
Ég sat aðeins með Fanneyju og Kollu í mat í gær. Upp spratt skemmtileg umræða um kynlíf og stellingar. Fanney var að segja okkur af einni sem var verið að segja frá í saumaklúbb hjá henni fyrr í vikunni. Við sáum auðvitað húmorinn í þessu öllu og grenjuðum af hlátri og ég held að það hafi ekkert farið framhjá fólki hvað við vorum að tala um. Stellingin er sem sagt þannig að konan er á maganum og stendur eiginlega á höndum á gólfinu en fæturnar eru í rúminu. Svo þetta er svona aftan að stelling. Við sáum auðvitað að það er þá orðið hættulegt að missa bók eða fjarstýringu í gólfið og eiga í hættu að fá makann aftan að sér í ham.
Svo sagði Fanney okkur aðra sögu af pari sem var spurt úti á götu hvenær þau höfðu haft mök síðast. Kallinn var kotroskinn og sagði að það hefði verið í morgun. Hvar var spurt og þá kom upp úr dúrnum að það hafði verið í eldhúsinu. Svo þegar konan var spurð sömu spurningar þá sagði hún að það hefði verið um morguninn og þegar hún var spurð hvar þá kom smá hik á hana. Henni var sagt að kallinn væri búinn að segja og hún þyrfti eiginlega að svara. Hún hikaði enn en að lokum svaraði hún. " Hvar ? Í rassinn !!!" sem voru kannski full miklar upplýsingar. Og auddað kom húmorinn fram í okkur, hvaða lúbrikant ætli þau hafi notað ? Nú auðvitað smjerið, svo handhægt þegar það er á morgunverðarborðinu. Svo urðum við eiginlega sammála um það að ef að bók eða fjarstýring dettur fram úr rúminu þá er um að gera að leyfa henni bara að liggja þar áfram. Og ekkert vera að halla sér yfir morgunverðarborðið...nema makinn sitji andspænis manni og engin hætta á svona aftanáuppákomu ;)
Eftir 13 daga verð ég þessum tíma væntanlega stödd á argentísku steikarhúsi að drekka margarítur í könnuvís og snæða guðdómlega nautasteik með hvítlaukssósu. Vonandi verður nú veðrið betra í Amsterdam en það er í augnablikinu, ég held að það sé heitara hér á klakanum en þar í augnablikinu. Hugsa sér að það er 20 stiga hiti á Egilsstöðum í dag. Ótrúlegt, svo ekki sé meira sagt...
Jæja, farin að sinna sætabollunni minni. Hafið það gott í kvöld, njótið þess að knúsa eins og ég ætla að gera. Og skiljið bókina eftir á gólfinu !!!
c",)
miðvikudagur, apríl 26, 2006
Kleprrrrrrrrr
Árshátíð ÍE var um síðustu helgi. Við buðum í fyrirpartý hérna heima áður sem var bara vel mætt í, sá aðeins á alkóhólskápnum eftir það en ekki mikill skaði skeður. Mín var auddað búin að skella sér í brúnkumeðferð og í klippingu svo ég var eiginlega bara megagella ;) hvað annað. Borðhaldið var soldið skondið. Við sátum á blönduðu borði ( með nokkrum úr öðrum hópum ) og þar á meðal skálus maximus ( Hreinn, sem bauð í fyrirpartý heim til sín sem var vel veitt í ), hann skálaði við minnsta tilefni svo við vorum alltaf að lyfta glösum. En það er ekki allt. Ég kynnti auðvitað Gumma fyrir vinnufélögunum og það kom eitthvað skrýtinn svipur á einn þeirra. Hann var nebbla sá sem að klessti aftan á Gumma fyrir um mánuði síðan svo það er hægt að segja að þeir hafi hist ( hehehe ) áður. Eða réttara sagt klesst áður !!!
Maturinn var annars fínn. Sigga át rækjurnar í forréttinum með hala og alles, skildi ekkert í því hvað þetta var eitthvað krönsjí. Enda var soldið dimmt í salnum. Við vorum eiginlega komnar með nóg eftir aðalréttinn ( fasanbringuna ) og vorum komnar fram á bar þegar eftirrétturinn var borinn á borð. Andrew var svo góður að ná í hann inn fyrir okkur svo við sátum frammi og drukkum ópalkokteil og átum súkkulaðiköku með bestu lyst. Skemmtiatriðin voru eiginlega engin, happdrættið var vel lukkað enda vann ég gjafakörfu með smá snyrtivörum. Svo spiluðu Paparnir undir dansi ( frekar hoppum ) fram til 2 um nóttina. Ég og Gummi fórum bara heim eftir þetta en Sigga og Fanney fóru niður í bæ og héldu út þar til að öllum stöðum bæjarins hafði verið lokað. Enda var Sigga "mjög" hress á sunnudeginum þegar ég hitti hana...
Svo átti þetta að vera vinnuvika í styttra laginu. Samskip verður með kúnnaboð fyrir austan á föstudaginn og áttu stjórnendur að bjóða mökum með. Við vorum víst bara 2 sem að ætluðum að skella okkur og svo þegar hin beilaði í dag þá eru minni líkur en engar að ég skelli mér með. Svo ég vinn bara á föstudaginn enda nóg að gera þar og meira að gera við að undirbúa sunnudaginn..
Á meðan skemmtir Gummi sér væntanlega vel fyrir austan. Og verður mjög gagnlegur á laugardeginum...
Annars er allt bara eðlilegt hér. Gummi situr við tölvuna sína að reikna cash flow fram á sumar 2007 ( excel að gera sig ) og ákveða hvort hann ætli að fá sér nýjan audi 6 á morgun. Hann kom á einum niður í vinnu til mín í dag og mér leist bara ágætlega á gripinni. Ekki annað hægt svo sem. Svo það lítur út fyrir að mazdan verði frúarbíllinn minn, ef okkur tekst ekki að losna við hann ( ætti svo sem ekki að verða mikið mál ). Alla veganna verður væntanlega annar bíllinn settur á sölu um eða eftir helgi. Gott mál, alltaf gaman að fá nýjan bíl. Og hér pikka ég og horfi á 6atc með öðru auganu. Sem þær eiga eiginlega ekki skilið svo ég ætti kannski að veita þeim mína 100 % athygli ( eða því sem næst.... )
c",)
miðvikudagur, apríl 19, 2006
Í dag...
Annars bara luvlí að vera í fríi, nú er ég á 7. degi frís og fer ekki að vinna fyrr en á mánudaginn. Í millitíðinni fer ég í klippingu og brúnkumeðferð ( je beibí...) og á árshátíð og í eina fermingu. Það er nú ekki hægt að segja að ég sitji auðum höndum í fríinu. Tuttlast alveg heilan helling og meira en það ef út í það er farið ;) Svo að þetta líður hraðar en það átti að gera en samt búið að vera alveg yndislegt.
Ég tók mig til um daginn og horfði á einhverja 6 þætti af sex and the city, kom mér aðeins framúr því sem er verið að sýna á skjá einum þessa dagana. Hvað gerir maður svo þegar skjárinn er búinn að sýna 6. og síðustu seríuna ? Byrjar aftur, því það er hægt að horfa á þessar elskur aftur og aftur og aftur. Ég verð örugglega á Hrafnistu eftir nokkra áratugi að horfa á þær ennþá og hlæ jafn mikið að þeim. Reyndar læðast tárin líka inn á milli, best að vera tilbúin með nokkur handklæði áður en kemur að síðasta þættinum til dæmis. Þegar hr. Rumur....segi ekki meir...
Jæja, farin að frítuttlast ! Hafið það gott, gæskurnar og Gleðilegt sumar ( brrrrrrrrr ) á morgun ;)
c",)
sunnudagur, apríl 16, 2006
Gleðilega...
Hér sit ég með labbann í kjöltunni og ligg á meltunni, eftir vel heppnaða máltíð þar sem við borðuðum öll yfir okkur. Páskaeggið sem við hjónakornin eigum uppi í skáp fær væntanlega að vera þar í friði í kvöld, ekki bætandi á vömbina. Alveg spurning að mæta í ræktina í fyrramálið, svona samviskunnar vegna.
Annars er páskafríið hingað til búið að vera ljúft, ég og Sigga skruppum til Kollu á Selfoss á föstudaginn síðasta og ætluðum að skreppa á hestbak. En veðrið var bara viðbjóðslegt svo við sátum bara og spjölluðum og hlógum þess meira. Sérstaklega að skírn minni. Skrýtið, ekki satt ? hehehehe
Svo sentumst við um bæinn í gær og reyndum að finna hamborgarhrygg frá Hagkaupum. Og það tókst í 3ju búðinni sem við fórum í. Guð, nú er Gummi að teygja sig í ísinn, ótrúlegt að hann ætli að bæta því á sig. Jæja, verði honum að góðu. Ég held bara áfram að sötra rauðvínið sem ég er með í glasinu.
Svo er það bara imbinn í kveld sem ræður för. 4 brúðkaup og jarðarför byrjuð ( yndisleg ), Bridget Jones á eftir og svo lokaþátturinn af Rome. Gott plan, sötra rauðvín og horfa á kellingamyndir ( að mestu ).
Þorvarður er að horfa á eitthvað í imbanum inni hjá sér og hlær eins og vitleysingur. Hann borðaði svo mikið áðan að ég hélt að hann myndi vera sofnaður núna...ótrúlegt úthald hjá honum.
Hafið það gott í kvöld, gæskurnar allar saman, farin að einbeita mér að brúðkaupi nr.2 ;)
c",)
fimmtudagur, apríl 13, 2006
Bleeeeh...
Við náðum í Sissu og Bjarna á Nordica hótel rétt fyrir 9 í gær og fórum niður á enricos. Geðveikur maturinn þar, ég fékk mér forréttaþrennu í forrétt og túnfisksteik í aðalrétt. Algjört æði, bragðsterkt og fínt. Gummi og Bjarni fengu bragðdaufa humarsúpu í forrétt, vantaði algjörlega kryddið í hana, eins og þær geta verið vel lukkaðar. Eftir það fórum við svo niður í bæ á pöbbarölt, Vínbarinn og Dubliners urðu fyrir valinu. Ég var alveg komin með nóg þarna og komin í vatnið en hin 3 teiguðu ölið af miklum krafti. Svo héldum við heim til Sissu og Bjarna í pottpartý, yndislegt að liggja eins og skata í kuldanum við kertaljós og notalegheit. Sissa var alveg komin með nóg þarna og ég sauð fljótt og vel svo við skelltum okkur upp úr og leyfðum köllunum að eiga góðar stundir í hitanum. Sissa fór bara upp í rúm og ég lagðist í sófann með teppi ofan á mér og vissi ekki af mér fyrr en klukkutíma seinna þegar strákarnir skriðu inn, rennblautir og æðislegir. Svo við hringdum bara á taxa og drifum okkur heim í ból. Sem ég er svo nýskriðin upp úr og langar jafnvel aftur upp í. Orkubúntið ég, alveg ótrúleg.
Við vorum að heyra í fréttunum að við fáum endurgreiðslu á fasteignasköttum frá Mosfellsbæ af því að það var svo mikill rekstrarafgangur fyrir síðasta ár. Kemur sér ágætlega en það er nú ósköp mikil kosningaskítafýla af þessu. Það er víst von á öllu næstu vikurnar þangað til að við höfum kosið yfir okkur einhverja andskotans aulana og allt fellur í sama farið aftur. Um að gera að njóta þess að þeir séu að friða samviskuna eða eitthvað næstu vikur. Greyin...það er örugglega af nógu að taka þar.
Jæja, best að drífa sig út á leigu og sjá hvað er í boði, móka yfir einhverju í kvöld...
c",)
miðvikudagur, apríl 12, 2006
Fyrsti...
Fórum í fyrstu fermingu vorsins síðasta sunnudag. Söfnuðum hugmyndum á meðan við sátum undir góðum veitingum á Kaffi Reykjavík. Soldið fyndið að koma þar inn í björtu, hef aldrei gert það áður. Fermingarbarnið Alexandra fékk haug af gjöfum og peningurinn telst víst á 4. hundrað þúsunda króna. Sem er nú bara eiginlega sjokkerandi upphæð. Ef að Þorvarður kemst í hálfkvisti við þetta þá veit ég vel að það fer meira og minna allt inn á bók til betri tíma. Hann er soddan aurasál, þessi elska...
Sit hérna heima með Led Zeppelin á fóninum, búin að dressa mig upp og á leiðinni út að borða með Sissu og Bjarna ( afmælisbarni ). Ætlum að skella okkur á Enrico's, ég afrekaði að fá innleggsnótu þar frá www.femin.is sem verður gjörnýtt í kvöld í bús og góðan mat ( vonandi ). Við erum líka eiginlega að fagna skírn minni, já í dag ( og héðan af ) geng ég á vegum guðs ( hehehe ) og sonur minn líka. Þetta var bráðnauðsynlegt í tilefni þess að blessað barnið ætlar að láta ferma sig eftir rúmar 2 vikur. Ji hvað er orðið stutt í þetta. Skírnin gekk bara fljótt fyrir sig og pabbi gaf mér skírnargjöf. Voðalega sætur, alltaf gaman þegar hann kemur mér á óvart.
Annars bara voðalega lítið að frétta, bara afslöppun framundan og smá fermingarundirbúningur. Nenni ekki að stressa mig yfir þessu, þetta gengur vonandi allt vel og smurt. Salurinn er reyndar minni en mig minnti svo við sitjum bara aðeins þrengra en við héldum. Sem er í lagi, man ekki eftir því að það séu einhverjar krísur í fjölskyldunum sem saman koma. Þetta verður bara gaman og best þegar þessu verður lokið ;)
Jæja, farin að sletta úr klaufunum....
c".)
föstudagur, apríl 07, 2006
TGIF
Vikan er búin að vera svo fljót að líða, búið að vera brjálað að gera í vinnunni og dagarnir fljótir að líða. Var í starfsmannaviðtali um daginn hjá Adam og það eina sem vantaði var að hann myndi kyssa á mér tærnar. Ég held bara að hann sé nokkuð ánægður með mig. Enda telst ég vera hópur. Hvernig svo sem hann fær það út.
Ég varð fyrir kúltúrsjokki hérna í sófanum eitt kvöldið í vikunni þegar Gummi var að sörfa á milli rása í sjónvarpinu. Haldið þið ekki að hann hafi dottið inn á Túttukeppni Íslands 2006 ???? Ég hélt að það væri ekki hægt að leggjast svona lágt en viti menn. Það er hægt. Afgömul silikonjúlla frá Dalvík og einhverjar smástelpur í keppni um að verða eitthvað bíkínímódel. Æðislegt ? held ekki, þvílíkur metnaður. Ótrúlegt að einhver vilji taka þátt í svona fíflagangi. Ég held að ég reyni að forðast það umfram allt að stilla aftur á þetta.
Jæja ædolið byrjað :)
c",)
mánudagur, mars 27, 2006
Þá...
Í dag hefði mamma orðið 58 ára gömul, blessunin. Ég fór nú ekki í kirkjugarðinn, það hefði hvort eð er ekki logað á kerti í þessu roki. Ég kveiki bara á kerti hérna heima við, svona til að ylja mér við. Skrýtið að hugsa til þess ef hún væri enn hérna á meðal okkar. En það þýðir víst lítið að spá í það. Hún er nú kannski að fylgjast með okkur þarna uppi einhvers staðar. Með kisunum okkar öllum, eins og Kristín heldur fram. Sé hana í anda sitja í kisufaðmi, þær voru nú ekki ófáar um tíðina.
Er að losna við strengina síðan á fimmtudaginn. Við funduðum í dag og settum saman 2 lið í vinnunni sem að keppa á laugardaginn í fyrirtækjamóti ÍSÍ. Þetta verður bara stuð. Ég sagði Kristínu að hún gæti komið með mér og verið með Sollu stirðu á meðan ég væri að keppa en hún vill það alls ekki. Kemur á óvart en hún vill ekki hitta Glanna Glæp og ekki séns að segja henni að hann komi ekki. Hún tekur sko ekki svoleiðis sénsa. Svo hún verður væntanlega heima á meðan ég sprikla...
Jæja, farin að kúra með kellunni...hafið það gott í kvöld sem endranær
c",)
föstudagur, mars 24, 2006
Dream team deCode
Kristín er búin að ná sér, hóstar aðeins ennþá en það er annað mál með mig. Ég er hætt að telja hvað ég er búin að hnerra oft í dag, er alveg að kafna úr kvefi og með strengi eftir gærkvöldið. Þess vegna get ég sagt með mikilli innlifun ;"Guði sé lof að það er kominn föstudagur ". Eða TGIF á okkar ylhýru ensku.
Plan um helgina ? Kannski að kíkja í bústað við Laugarvatn, bíllinn okkar er enn í viðgerð og Gummi búinn að gefast upp á fáknum sem hann er búinn að vera með á meðan svo hann ætlar að skila honum á eftir. Skrýtið ? NOT...hrikaleg drusla sem kemst ekkert áfram. Kannski erum við bara svona góðu vön...
c",)
FLOTTASTA
http://b2.is/?sida=tengill&id=155751
verðið að vera með quick time player til að hlusta og sjá... vel þess virði...
c",)
miðvikudagur, mars 22, 2006
3. dagurinn heima...
Svo við erum bara að finna okkur eitthvað að gera, hún er í Barbie leik í augnablikinu og ég að þvo þvotta, alltaf nóg að gera þar. Og svo er ég auðvitað að undirbúa mig fyrir æfingu í kvöld. Er að fara að keppa á morgun í langstökki og kúluvarpi og finnst skynsamlegra að æfa aðeins hand og fótatökin fyrir átökin á morgun. Þetta er nú meira til gamans gert en spurning hvort að keppnisskapið birtist í öllu sínu veldi þegar á hólminn verður komið.
Annars bara orðið stutt í helgina, á að vera pabbahelgi svo vonandi verður henni eytt í afslöppun og kúr. Tengdó eru að fara í sumarbústað við Laugarvatn svo við kíkjum kannski til þeirra. Svo tel ég bara dagana þangað til ég kemst til útlanda.... í dag eru bara 50 dagar í flugtak ( soldið mikið en verður nú fljótt að líða )
c",)
mánudagur, mars 20, 2006
Jæja..
Ljúf helgi að baki, var með kaffiboð á laugardaginn fyrir ættingja í tilefni afmælisins. Og um kvöldið bauð ég nokkrum vinum í lingó partý sem var hrikalega gaman. Ragnheiður var fyrst til að mæta, svo komu Sissa og Bjarni og svo Sigga og fruntlið með henni. Og síðast en ekki síst mætti Gilla stepsister og Stefán. Það var mikið drukkið, hlegið og sungið. Við þau hörðustu entumst til 3 ( ég og Ragnheiður ) en aðrir skemur. Gummi varð allt í einu voða þreyttur, þessi elska og lagðist bara upp í rúm og aðrir fóru heim þegar nóg var komið. Í heildina snilldarkvöld.
Ég fékk nú nokkra pakka ;
gemsa og blómvönd frá Gumma
g strengi frá Ragnheiði
fótsnyrtingu og hvítvín frá Sissu og Bjarna
sængurver frá tengdó
líkjörsglös frá Önnu Jónu
dekurkörfu frá Þórunni Önnu
púður og fleira frá Distu og pabba
Queen disk frá Gillu frænku og co.
Bara ekkert smáræði, mjög lukkuleg með þetta allt saman og get sagt að allt er komið í gagnið, nema hvítvínið ( geymi það til betri tíma )
Svo kláruðum við í gær að panta okkur ferð til Amsterdam í maí. Við ætlum að skella okkur með Sissu og Bjarna og eiga góða helgi saman í vonandi góðu veðri. Gummi og Bjarni verða hvort eð er úti á þessum tíma svo þeir hitta bara mig og Sissu á Schipol þegar þar að kemur. Verður yndislegt að fá smá pásu frá þessu daglega. Svo er þetta líka stuttu eftir að frumburðurinn fermist svo ég á þetta örugglega inni fyrir allt puðið í kringum það allt saman...ekki satt ?
Ég hélt það líka...hehehehe
Jæja, ætla að hleypa Kristínu á www.barbie.com
c",)
fimmtudagur, mars 16, 2006
þriðjudagur, mars 14, 2006
flottur...
http://www.mojoflix.com/Video/Evgeni-Plushenko-Sex-Bomb.html
horfist til enda...
c",)
mánudagur, mars 13, 2006
Jæja..
Þorvarður stóð sig svo vel um helgina, fór í bæinn með pabba sínum og foreldrum hans og fann sér jakkaföt, skyrtu og bindi fyrir ferminguna í vor. Sá verður nú glæsilegu þann 30. apríl. Verður gaman að sjá hann svona hávaxinn og myndarlegan í jakkafötum.
Og svo þegar við hjónakornin erum farin að skoða bíla ( bara skoða ) þá vill ekki betur til en svo að Gummi lendir í árekstri. Jebb, hann var á gulu ljósi í hádeginu í dag þegar annar bíll kom og klessti aftan á hann. Masdan styttist víst um einhverja 10 cm og það gapir afturhlerinn svo það er ekkert sérlega sniðugt að vera á bílnum í rigningu á næstunni. Það er verið að athuga með verkstæði fyrir hann, greyið. Kannski verðum við bara komin á nýjan bíl fyrr en við ætluðum okkur, hver veit.
Nú vappar Baltasar Kormákur og cast um ganga Decode þessa stundina að ákveða tökustað fyrir Mýrina, kannski enda ég bara í bíó ;) ( NOT )
Svo er bara bakstur framundan í þessari viku, ég á að vera með 2 kökur hérna í vinnunni í þessari viku fyrir utan það að undirrituð á víst afmæli á fimmtudaginn svo ég verð nú að hafa eitthvað djúsí fyrir heimilismeðlimi þann daginn. Aldur er nú svo afstæður en ég nálgast víst fertugsaldurinn ( alla veganna er fólk svo vinsamlegt að benda mér á það ). Ég er nú nær þrítugu ennþá sko !!!!
c",)
föstudagur, mars 03, 2006
Hún Kristín mín.
Yndislegt að það sé kominn föstudagur ( flöskudagur ). Var hérna í vinnunni á miðnætti í gær ( jebb, orðin eins og eðalnörd ) svo ég nennti ekki framúr í morgun, snúsaði í klukkutíma.
Svo er bara að vakna snemma á morgun og fara með Þórunni Önnu á hundasýninguna sem hún er búin að vera að æfa sig fyrir. Jei…æðislegt að geta ekki sofið út á morgun. Yndislegt !!!Annars stefnir í rólega helgi, afslöppun og jafnvel fermingaskreytingarúnt. Verð víst að fara að skoða þetta og ákveða hvað ég vilji hafa á borðunum hjá frumburðinum 30.
c",)
fimmtudagur, febrúar 23, 2006
God...
Hún var að spyrja Gumma í gær áður en hann fór til Rotterdam hvað hann væri að fara að gera ? Hann sagði henni það og þá fór hún að spá í hvar hann myndi vera spurði hann hvort hann ætlaði að tjalda ? Svo þegar hann neitaði því og sagði henni að hann ætlaði að vera á hóteli þá hváði hún og spurði hvað það væri eiginlega ? Svo stór hluti af kvöldinu fór í útskýringar á því hvað hótel væri !!!
Svo í dag á leiðinni heim þá barst talið að dauðanum, oft sem endra nær. Hún hefur mikið verið að spá í þetta undanfarið og vill alls ekki deyja á undan mér og ég á helst ekki að deyja á undan henni. Henni finnst tilvalið að við deyjum öll í einu. Nema hvað, þá fór hún að spá í hver ætti að bera allar kisturnar ? Svo að við megum víst fara eitt í einu eftir allt saman, svona þegar okkar tími kemur. Í dag fór hún svo að spyrja mig um mömmu. Hún spurði mig hvað hún héti og ég sagði henni að hún hafði heitið Þórunn Sigríður. Seríos ? spurði hún þá tilbaka og fannst nafnið Þórunn Seríos ansi flott. Þvílíkar pælingar hjá henni og stundum misskilningur svona inn á milli.
Svo er hún sko búin að panta það að sofa hjá mér á meðan Gummi er úti. Ætlar sko að passa plássið hans á meðan hann er í burtu. Sem er sko fínt að mínu mati, notalegt að hafa hana við hliðina á mér og horfa á sætabolluna mína sofa...
Annars bara stutt í helgina, verð kannski bara barnlaus ( kemur í ljós á morgun ) og þá ætla ég sko að slappa af, sofa vel og mikið og ná í Gumma minn á laugardaginn út á flugvöll. Yndislegt ;)
c",)
þriðjudagur, febrúar 21, 2006
Bestu...
Litla fjölskyldan í Gautaborg verður sameinuð í næstu viku þegar Andrew fær loksins að snúa aftur heim. Þeir sem þekkja til vita að það er sko kominn tími til fyrir löngu síðan. Svo að nú er sko hægt að gleðjast yfir einhverju.
Annars er slappleiki helgarinnar ennþá að leika mig grátt, ég finn fyrir nettum drop/dead einkennum allan daginn :s æðislegt eða hittó. Þetta er líka með eindæmum þægilegt...NOT
Og svo já eitt í viðbót, Nanna eignaðist lítinn strák á sunnudaginn síðasta. Ég hef heyrt að hann sé voðalega fallegur drengurinn enda hefur hann nú ekki langt að sækja það. Ljóshærður og yndislegur bolti. Til lukku elskurnar...
Jæja, farin á morgunfundinn...
c",)
sunnudagur, febrúar 19, 2006
Jæja...
Þetta byrjaði í raun aðfaranótt fimmtudags þegar Kristín vakti okkur með því að æla yfir allt rúmið sitt. Eftir hálftíma þrif á henni kom hún upp í rúm til okkar að kúra og hljóp fram á hálftíma fresti til að kúgast. Þannig að þá nótt svaf ég ekki dúr. Hún var orðin þokkaleg á fimmtudag en var með hita svo hún var bara heima á föstudeginum líka. Svo skellti ég mér til Siggu á föstudagskvöld þar sem við fengum okkur smá rauðvín og g & t. Um miðnætti skelltum við okkur í bæinn en um leið og við fórum inn á Sirkus þá fann ég að drop-dead væri handan við hornið svo ég fór bara út aftur, hringdi í Gumma og bað hann um að ná í mig. Svo í bílnum kastaði ég 3ar upp og komst að því að Þorvarður og Þórunn hefðu verið að æla allt kvöldið. Ég komst heim að lokum og hélt bara áfram að æla og svo um nóttina byrjaði Gummi líka. Svo að við vorum orðin 4 að keppast um að komast á klósettið til að skila af okkur næringu föstudagsins. Ógeðslegt. Svo í gær gat ég ekki gengið, mér var óglatt og með hausverk og hita. Leið bara alveg hrikalega. Ég gat ekkert borðað og það eina sem fór inn um varir mínar var grænn frostpinni og blár powerade. Æðislegt eða hittó.
Svo vaknaði ég í morgun eftir að hafa sofið í 11 klst og er skárri, ennþá soldið biluð í hausnum en lystin er svona að koma tilbaka. Sem betur fer...buxurnar flaksandi utan á mér :s voðalega lekkert.
Annars er bara lítið að frétta, Alli strípaði mig soldið á fimmtudaginn svo ég er orðin algjör skutla. Ég er að fara í myndatöku í þessari viku út af hnjánum á mér. Hnykkjarinn vill komast að því hvernig lærleggurinn er að lenda á hnéliðamótunum því mér er alltaf illt. Vakna við sársauka á næturnar. Kannski fæ ég smá upphækkun, vinstri fóturinn á mér er víst 1 cm styttri en sá hægri. Stórgölluð sem ég er...
Svo í gær var kosið hvaða lag ætti að fara út til Aþenu í vor á Evróvisjón. Sylvía rústaði þessu..ekkert smá stolt af henni. Atriðið verður bara að vera lítið breytt úti, ideal að hún strippi og sé með Homma og Namma allsbera á sviðinu með sér. Algjört show.
http://media.putfile.com/Silvia-nott---til-hamingju-island
Jæja, farin undir teppi að morkna aðeins meira þessa helgina...
c",)
miðvikudagur, febrúar 01, 2006
Allt getur gerst...
Nauðsynlegt að hafa hljóð og sýna þolinmæði og þegar þar að kemur að þú springur er bráðnauðsynlegt að vera með vatnsheldan maskara !! algjört möst
enjoy
http://www.kvikmynd.is/indexdetail.asp?id=1764
c",)
Í tilefni af...
Njótið vel...
http://handbolti.blogspot.com/
c",)
sunnudagur, janúar 22, 2006
Jæja....
Annars skellti ég mér út fyrir hús í gær með Gumma í smá bíltúr. Þeir sem þekkja okkur vita vel að bíltúrar okkar um helgar geta oft orðið ansi dýrir og þessi bíltúr var ekkert frábrugðinn. Í stofunni er kominn flatskjár og ég er að pikka á glænýja tölvu sem þeysist um netið á ljóshraða. Ekki örvænta, við fengum tölvuna með í kaupbæti. Og jú, svo keyptum við líka eitt lítið hornborð í IKEA og kertastjaka. Aldrei hægt að fá nóg af kertum. Svo að leitin að fullkomna flatskjánum er lokið og ómægod hvað ég er fegin.
Og jú, svo sáum við baðinnréttingu sem við erum sátt við og skellum okkur á í næsta helgarbíltúr...sem þarf ekkert endilega að vera um næstu helgi sko...
Annars er vikan búin að vera viðburðarlítil, hef bara verið heima að morkna úr verkjum. Vonandi fer þetta nú að taka enda, alveg komið nóg í bili. Svo ég ætti að eiga fulla vinnuviku framundan.
Jæja, farin að fá mér eitthvað í morgunmat ( eins og litlu börnin )
Hafið það gott í dag elskurnar allar saman, best að kíkja á nýja tv-ið...
c",)
þriðjudagur, janúar 17, 2006
Á...
Svo ég bara reyni að ganga um og sitja aðeins og frysti svo á mér hrygginn þegar ég er alveg að drepast. Yndislegt eða hittó. Vona bara að ég fái að sofa í nótt, er frekar mygluð og með eindæmum skapgóð...je læt ; )
jæja, farin að rölta aðeins um...
c",)
mánudagur, janúar 16, 2006
Dramadrottningin...
Enn ein ljúf helgin er að baki. Við fórum í útskrift til Heiðu frænku hans Gumma á laugardaginn og sátum þar drykklanga stund þar til ég var örugglega búin með heila freyðivínsflösku. Og snitturnar...algjört nammi namm. Svo fórum við bara heim og ég eyddi svo kvöldinu fyrir framan imbann en Gummi skellti sér til Snorra með Óskari og skreið heim um 7 leitið á sunnudagsmorgni. Það rann nú ekki af honum fyrr en seinni partinn í gær, alltaf svo gaman hjá þeim strákunum þegar þeir hittast.
Svo er bara enn ein vinnuvikar byrjuð. Hún verður reyndar kannski eitthvað undarleg hjá mér því að ég er föst í bakinu ( enn einu sinni ) og efast um að ég geti setið fyrir framan smásjánna allan daginn á morgun eins og planið er. Kannski er betra að ég verði bara heima og kæli á mér helv hrygginn. Hlýði hnykkjaranum mínum. Ég á nú líka inneign í nuddi hérna í mosó, væri ekki vitlaust að ég skellti mér á morgun og léti losa aðeins um hryggjarliðinn.
Jæja, er farin að kæla mig aðeins...get víst ekki tekið fleiri verkjatöflur í kvöld, búin með skammtinn.
cya
c",)
sunnudagur, janúar 08, 2006
M M M
Við buðum Sissu og Bjarna í mat í gær, áttum nautalund í frystinum sem ég hanteraði eins og mér einni er lagið. Og ég gerði líka geðveikan forrétt, setti höfðingja ( ostinn ) í parma skinku og hitaði í ofni og hafði melónu með. Ómægod, hvað þetta var gott. Svo þegar við vorum búin að eta nautið vorum við alveg bakk. Eftir að við vorum búin að liggja á meltunni þá skelltum við okkur í Trivial pursuit spil, stelpur á móti strákum. Við vorum nú svo góðar að leyfa strákunum að vinna, enda hefur það tekið ansi langan tíma að fá Bjarna að spilaborðinu. Svo að kannski sest hann aftur niður með okkur og tekur annað geim. Svo enduðum við á því að horfa á brúðkaupið hans Óskars, alltaf hægt að hlægja að því.
Við skelltum okkur í Kringluna í dag, ég...Sigga og Sissa að skoða útsölurnar. Ég keypti mér 2 toppa í ræktina og svo aðeins á Kristínu, sem vantaði svooo buxur...lítur alltaf út eins og hún sé að bíða eftir næsta flóði. Ótrúlegt hvað hún stækkar hratt og mikið. Sigga var nú duglegri en ég, keypti sér 2 galladýr og einn jakka og Sissa keypti sér 2 peysur og aðeins á hann Sindra sinn. Svo settumst við niður og fengum okkur góðan kaffibolla og ræddum um New York ferðina okkar sem við stefnum á að fara á þessu ári. Erum sem sagt orðnar 4 sem ætlum að taka gott kúludjamm á Manhattan og tuttlast aðeins og auðvitað skella okkur í sex in the city tourinn, algjört möst.
Svo er sko bara tjill í kvöld, Gummi skellti sér með Óskari í skvass. Þeir eru búnir að taka einhverja 50 leiki og staðan síðast þegar ég vissi var 48-2, fyrir Gumma. Duglegur strákurinn minn. Best að fara í bólið snemma svo ég verði súper, dúper hress á morgun...tilbúin í hvað sem er ;)
c",)
mánudagur, janúar 02, 2006
GLEÐILEGT NÝTT ÁR...
Nú er síðasti frídagurinn minn runninn upp, búið að vera yndislegt jólafrí. Ég er búin að njóta þess í ræmur að vera bara í nýju náttfötunum mínum ( jóli hlustaði á mig ;), lesa og bara tjilla almennt. Hef nú mætt í ræktina inn á milli, voðalega dugleg. Það var uppskeruhátíð í síðustu viku og ég missti flest kíló, 10.7 alls. Ansi lukkuleg með það enda komin í kjörþyngdina mína, sem var nú markmiðið. Nú er bara að halda áfram...
Til hamingju með afmælið í gær, elsku Gilla mín og takk fyrir síðast. Hún bauð okkur nokkrum vinkonunum út að borða í gær á Galileó, algjörlega meiriháttar. Við sátum þar til hálfeitt þegar staffið eiginlega rak okkur út, alveg komið með nóg af okkur. Ég, Gilla og Ylfa fórum aðeins á röltið með Stefáni og Hannesi og enduðum á Apótekinu. Feikna fjör, Buffið var að spila og þeir eru náttúrulega algjör snilld. Í næsta húsi ( Borginni ) var Sálin með ball og Hannes gerði sér lítið fyrir og reddaði okkur miðum inn. Gilla var reyndar komin með nóg, búin að drekka nokkra cosmo ( mjög góðir á Apótekinu ) og nokkra mojito fyrir utan fullnægingarnar á barnum. Svo að Stefán fór bara með hana heim á hótelið meðan ég, Ylfa, Hannes og fleiri skelltum okkur á Sálina með hinum snobburunum. Geðveikt, eins og alltaf. Þeir standa sko fyrir sínu. Soldið fyndið að sjá jet tímið á essinu... vægast sagt. Hitti nokkra góða vini síðan í den, m.a. Adda reddara. Hef ekki séð kappann í örugglega 3 ár. Alltaf gaman að hitta hann og vera kölluð sykurpúði. Enda er ég soddan gella júnó ;)
Svo þegar Sálin lauk sér af þá ákvað ég að þetta væri orðið gott og smessaði á elskuna mína sem var ekki sofnaður. Svo hann sótti mig og við komum við á lélegt og keyptum gúmmelaði til að reyna að koma í veg fyrir þynnku dauðans. Og það virkaði, er eiturhress í dag og er bara að spá í hvort ég ætli í ræktina hálfsex, hálfsjö eða bara í 2faldan tíma. Kemur í ljós á eftir...
Jæja, er farin undir teppi að lesa aðeins....
c",)

