mánudagur, apríl 09, 2007

Páskarnir...

alveg að verða búnir. 10 daga fríið mitt líka :( sem er eiginlega soldið súrt og fúlt.
Og svo er líka fermingin hennar Þórunnar Önnu aflokið. Sem er mjög ljúft. Hún fermdist á fimmtudaginn, á skírdag. Ég var búin að vera í fríi dagana á undan svona til að undirbúa, baka og taka til. Sissa kom svo og hjálpaði til á miðvikudeginum, við náðum í yndislegar rósir upp í dal og bollastellið niður í vinnu. Á miðvikudagskvöldið var eiginlega allt tilbúið og hjónarúmið okkar komið út í bílskúr og búið að gera setustofu í herberginu okkar. Já, heimilinu var eiginlega snúið við þessa daga. Svo vöknuðum við bara snemma á fimmtudeginum og gerðum Þórunni fína, skelltum nokkrum liðum í hárið á henni og klæddum hana upp í hennar fínasta.
Messan var alveg í lengra lagi, enda voru 17 börn að fermast þennan dag. Það var frekar fyndið að þegar fyrstu börn fóru að altarinu þá tæmdist kirkjan. Ég er alveg handviss um að nokkrir í kirkjunni fóru oftar upp en einu sinni, einhverjir sem finnst púrtarinn góður. Þórunn Anna var síðust upp að altari og ég og Gummi, mamma hans og Gerður og Kristín fórum upp með henni. Messan kláraðist loksins, 1 og hálfum tíma eftir að hún byrjaði. Þá stormuðum við heim með fermt barnið og fórum að gera klárt fyrir kaffiboðið. Gilla og Gerður voru mér innan handar að skera niður brauðið í ofninn og hella á könnuna. Við vorum búin að ákveða að vera með opið hús milli 2 og 5 og það var sko bara orðið troðið hérna hjá okkur kl.2. Það komu eiginlega allir á sama tíma og sem betur fer komumst við öll fyrir. Og ekki einu sinni setið þröngt. Þetta rann allt saman mjög ljúft áfram án nokkurra hnökra. Og barnið fékk mikið af gjöfum, hún var búin að fá rúm frá okkur og náttúrulega spánarferð ( bara 68 dagar þangað til ), fékk sæng og kodda frá tengdó, 2 hálsmen frá Gautaborgar ættingjum og Kiddý, hestamynd, teiknigræjur og svo fullt af peningum. Takk allir saman fyrir þetta allt saman :)
Um klukkan 5 birtist burðardýrið okkar, Óskar. Hann hjálpaði Gumma að bera út sófann sem við höfðum fengið frá nágrönnunum og rúmið okkar aftur inn og við gengum bara frá flest öllu og opnuðum nokkra bjóra á meðan á þessu gekk. Nágrannarnir voru hérna líka til að skemmta sér og öðrum og þetta entist alveg til 2 um nóttina. Ég var reyndar alveg komin með nóg um miðnætti og skreið upp í en Óskar, Gummi og Tommi nágranni sátu að til 2 um nóttina. Og það gekk aðeins betur á veitingarnar og það eina sem stóð eftir var heil súkkulaðikaka sem fór bara í frystikistuna og verður tekin upp einhvern tímann við tækifæri.
Í heildina var þetta yndislegur dagur, rann vel áfram og skildi bara góðar minningar eftir sig.
Annars hafa páskarnir bara verið ljúfir. Við grilluðum á föstudaginn langa og fórum svo aðeins yfir til nágrannana eftir matinn og vorum hjá þeim þangað til einhvern tímann um nóttina. Þetta var svaka stuð þó að byrjunin hafi verið róleg. Ég held að irish coffee-inu sé um að kenna sem við drukkum um miðnætti, það gaf öllum aukabúst inn í nóttina.
Laugardagurinn var svo alveg uber rólegur, enda komið gott í bili. Og í gær á páskadag var okkur boðið í mat til tengdó. Hamborgarhryggurinn rann ljúft niður með tilheyrandi veitingum. Og eftir síðustu talningu þá eru til 3 heil páskaegg á heimilinu. Það síðasta sem mig langar í í augnablikinu er meira súkkulaði. Samt fékk ég bara bita hér og þar í gær. Þetta er sko alveg too much fyrir minn smekk :s
Svo er bara vinnudagur á morgun. Samkvæmt því sem ég hef heyrt á meðan ég var í fríi þá er brjálað að gera framundan. Sem er bara gott því að þá líða dagarnir hraðar og þá styttist í næsta frí. Sem verður æðislegt.
Jæja, hætt að bulla í bili, komið gott :)

c",)