laugardagur, desember 18, 2004

Mygluð að morgni dags :s

Góðan og blessaðan daginn. Hef varla sofnað, kom svo seint heim af djamminu. Já, gamla ég ;) skelltum okkur á djammið með vinafólki í gær og ómægod hvað þetta var nú gaman. Það er nú alltaf svo undarlegt með mig að ég get ekkert sofið eftir slíkt. Vakna eldhress en nokkuð bókað að ég sofna mjög snemma í kveld í staðinn. Það er nú allt í lagi svona af og til. Það er að taka hressilega á því.

Það hefur nú gengið svo mikið á undanfarið að blogg hefur farið fyrir ofan garð og neðan, aðallega neðan. Helst að frétta er auðvitað það að við erum búin að kaupa okkur íbúð. Glæsilega neðri hæð í tvíbýli í mosó. Svo að við erum að verða mosfellingar með vorinu. Eða múslingar. Þetta tók nú alveg ágætan tíma og við erum búin að skoða flest allt það sem var í boði. Alla veganna það sem okkur leist á. Svo er nú ekkert sérlega mikið í boði fyrir svona stórar fjölskyldur, ekki nema einbýlishús á nokkrar millur. Við ætlum nú ekki bara að borga af steypu það sem eftir er svo að þetta er fínt. Það verður æðislegt að flytja, verðum búin að koma okkur fyrir í vor og erum strax farin að raða niður innflutningspartýum. Þau verða nefnilega allnokkur sýnist mér. Við verðum gestgjafar langt fram á sumarið. Eða haustið...kemur í ljós.

Ég er bara að vona að næstu mánuðir verði fljótir að líða, fljótari en venjulega. Það eru nú miklar líkur á því miðað við hvernig síðustu mánuðir hafa verið. Það er gott að hafa nóg að gera í vinnunni, alla veganna þangað til að orkan er algjörlega búin. Það er mjög lítið eftir af henni þetta árið svo að ég brosi allan hringinn þegar ég hugsa til þess að það eru bara 4 vinnudagar eftir af þessu ári. Ég var nefnilega svo dugleg þarna í haust og er búin að vinna mér inn frí alla dagana milli jóla og nýárs svo að ég verð í náttfötum í total 10 daga. Megaljúft ;)

Ji, ekki má ég gleyma því að ég á sko 2 afmælisstelpur í desember. Meira að segja varð Kristín Fríða 4 ára í gær. Ekkert smá ánægð með það, búin að bíða alveg heillengi. Og Þórunn varð svo 11 ára 1. desember. Við héldum svaka veislur ( já alveg 2 ) um síðustu helgi með og án frænku sem að átti líka afmæli í gær. Svo að því er lokið .Enda hefði ég ekki komist upp með að halda afmæli þessa helgina þegar fólk er almennt að tapa sér í jólastressinu. Á meðan ég sit heima ð blogga ÞVÍ AÐ ÉG/ VIÐ ERUM BÚIN AÐ ÖLLU ( nema skrifa jólakortin ). Þannig að ef að þau koma seint þá verður nú bara að hafa það því að við vorum nú að kaupa okkur íbúð júnó ;)

Svo er ég búin að redda jólaklippingunni minni. Alli, þessi elska ætlar að skvísa mér inn á milli í vikunni svo að ég verð überljóska fyrir jólin. Yndislegt :)

Og svo síðast en ekki síst er hún Sigga mín að koma frá Amsterdam seinna í dag. Það verður svooooooooooooooooooooo gott að fá að knúsa hana aðeins yfir jólin. Ég hef svo margt að segja henni að hún verður helst að gista í nokkra daga hjá mér ;)

c",)

föstudagur, desember 17, 2004

og svo allir syngja með...

Nú getum við öll komist í jólaskapið rétta ( syngja lagið við skín í rauða skotthúfu )

Skín í væna vínflösku
Og huggulega bjóra
jólaglögg og eplasnafs
allt það ætl'að þjóra.
Dufla og daðra og leika mér
látum ill'í desember
burt með sokk og skó
hér af vín'er nóg.
Ó hvað ég elska jólin
von'ég hitt'á stólinn.

þriðjudagur, nóvember 16, 2004

ég bara verð...

að skjóta þessum inn ;) sem ég var að fá sendan frá Siggu dammara...

THIS is today's life motto.
Today is International Very Good Looking Damn Smart Woman's Day, so please read the following and observe closely:

Life should NOT be a journey to the grave with the intention of arriving safely in an attractive and well preserved body,...but rather to skid in sideways, chocolate in one hand, martini in the other, body thoroughly used up, totally worn out and screaming "WOO HOO what a ride !!

Þetta er svona skot í anda Bridget Jones..hehehe

c",)

fimmtudagur, nóvember 11, 2004

Jei...

ég fékk að sofa í ró og friði síðustu nótt. Síðustu nætur hefur nefnilega Kristín verið á fullu rölti um íbúðina í hálfgerðu rænuleysi en lét það vera í nótt. Það stóð reyndar tæpt því hún var komin á fullt upp úr 11 í gær en ég náði að dobbla hana aftur upp í rúm. Sem betur fer...

Ég fór barasta út að borða síðasta þriðjudag. Meira að segja eftir kvöldmatinn sem Gummi eldaði. Einn af hópunum sem ég tilheyri í vinnunni skellti sér á Sjávarkjallarann og mig hafði langað svo lengi að fara þangað svo ég bara dreif mig. Og sá ekki eftir því. Er reyndar ennþá södd...en það er nú bara vitni um góðan mat. Ég fékk mér túnfisksteik sem var svoooooooooooooooooooooooo góð að hún bráðnaði upp í mér. Við vorum svo hugrökk að panta okkur líka eftir mat og þá var borinn á borðið súkkulaðieftirréttur dauðans enda var sagt fyrir fram að hann væri fyrir chocaholics. Og stóð undir nafni. Sjávarkjallarinn fær toppmeðmæli frá mér ;)

Svo er ég að fara á annað skrall á morgun með öðrum hóp sem ég tilheyri. Við byrjum snemma, ætlum að fara í sund upp úr hádegi, fara svo í billjard og darts og svo heim til yfirmannsins að borða indverskt. Mér var svo tilkynnt hátíðlega í dag að ég ætti að fara niður í bæ seinna um kvöldið. Það kemur nú í ljós en ég reyni að gera mitt besta.

Smá truflun, fékk koss og knús frá Kristínu eðalljósku. Alveg yndisleg, þessi elska. Hún þjáist sem betur fer ekki af gelgjuveiki eins og sumir hérna. Þórunn svarar mér með BARA við öllu sem ég spyr hana að og nennir ekki neinu. Ef mér tekst að drífa hana eitthvað áfram er hún með fýlusvip dauðans og hnussar út í loftið. Eitthvað skessugen í henni þessari. Svo borgar sig ekki að tala um líkamslykt þessa dagana því systkinin eru í stöðugri samkeppni um hvort þeirra lyktar verr. Þorvarður hefur oftast vinninginn en Þórunni tekst, af mikilli elju, stundum að slaga í fýluna. Og hún er ólýsanleg, svo sterk...algjör viðbjóður. Ekkert skrýtið að hitaveitureikningurinn sé að hækka við tíðari baðferðir þeirra.

Svo fer nú að koma að því að ég geti farið að telja niður til jóla( þeir sem vilja tékka á stöðunni geta tékkað á www.jol.is ). Er búin að bóka okkur á jólahlaðborð eftir viku og hlakka til, síðast var svoooooo vel veitt að ég var södd í marga daga á eftir ;)

c",)

þriðjudagur, nóvember 09, 2004

Stundum...

ætti ég ekkert að vera að tjá mig um góða heilsu fjölskyldunnar. Því að hér sit ég með Kristínu í fanginu með hita og sjúkheit. Gummi var að koma heim með sjúkheitabirgðir handa henni ; græna frostpinna, kókijólk ( kókómjólk ), piparkökur og eitthvað fleira. Svo hún syngur núna...

Annars er mér hnykkt reglulega, í morgun tók hann hnén fyrir og það var nú eitthvað sem ég óttaðist mjög. En það heyrðist ekkert enda gat hann svo sem ekki haggað öðru hnénu. Svo ég fór í apóbikkið og keypti mér fleiri kæligelpoka. Frystirinn er fullur af glærum pokum með einhverju grænu, ógeðslegu slími :S frekar grós. Svo ég leggst svona af og til og frysti mig í orðsins fyllstu merkingu. Ég er helköld lengi vel á eftir svo að ég á mér uppáhaldsflík þessa dagana = flíspeysu...

Svo eru blessuð börnin náttúrulega komin aftur í verkfall. Það var svo sem gefið mál fyrirfram. Þetta verður nú vonandi aðeins skemmra en síðasta holl, annars verður komið árið 2005 þegar börnin geta lært eitthvað af viti. Það má alla veganna alltaf reyna, þ.e. að kenna þessum greyjum eitthvað. Það sem er verst við þetta er það að þau eru sífellt að mæta eftir eitthvað frí og komast ekkert í gang með eitt né neitt. Greyið Þorvarður ætti að vera búinn í samræmdu prófunum sínum en í staðinn þá hangir það yfir okkur eins og einhver draugur. Asskotans...

Jæja, nú er Gummi að elda matinn ofan í okkur. Er nokkur annar maður svona yndislegur ?? held ekki ;)

farin að spísa...


c",)

fimmtudagur, nóvember 04, 2004

múhahha

little old minime ;)

það er orðið svo langt síðan síðast að ég var ekki viss á lykilorðinu, þá er það orðið slæmt því að ég er með 98% af heilanum upptekið í gagnslausar upplýsingar eins og símanúmer og aðgangsorð. En þjáist auðvitað af alzheimer dæet...áunninn sjúkdómur að miklu leiti.

Hvað hefur svo drifið á daga mína ? hmmmmmmm síðan síðast þá erum við búin að umbreyta íbúðinni hjá okkur og snúa við öllum herbergjum. Uppskeran ? við erum komin í sérherbergi og stelpurnar saman, miklu sniðugra þannig en að við höfum litla dýrið inni á okkur og allt hennar hafurtask. Svo að nú er íbúðin eins og vel skipulagður IKEA bæklingur, segja sumir. Alla veganna er röð og regla á öllu sem ekki var áður. Skipulagt kaos sjáið til. Ekki hefur enn komið upp ágreiningur vegna endurskipulagningar og ég nýt þessa svo mikið að ég tek allt plássið í rúminu hjá okkur og Gummi lafir hálfur út úr rúminu allar nætur. Við ákváðum að skipta um hlið í gær og ég held að það hafi virkað ágætlega.

Svo var auðvitað haldið upp á frændsystkina afmæli í október þegar Sigurborg og Hjalti áttu afmæli. Við hlógum mikið og átum meira, bara svona venjulegt gettúgeðer í ættinni stóru.

Svo verður nú tilefni í annað gettúgeðer seinna í mánuðinum þegar hin indæla Þórunn Kristín Gautaborgarbúi lætur sjá sig á klakanum. Get ekki beðið eftir að fá að knúsa hana, þessa elsku. Er búin að bjóða henni gistingu enda verða eldri börnin varla heima ef að það er rétt sem að þau eru að bera heim frá kennurunum. Svo það verður nú lítið mál að koma henni fyrir.
Alveg rétt, þessa dagana eru blessuð börnin tímabundið í skólanum með ekkert heimanám því að kennarar komast ekki yfir það sem þau áttu að læra á meðan verkfallinu stóð og búast svo ekkert við því að sjá framan í þau eftir helgina. Alveg fáranlegt, skil ekki af hverju þetta þarf að vera svona !!

Ahhhhhh, svo erum við auðvitað búin að kaupa okkur sjónvarp. Það hlaut að enda þannig. Nú er altari heimilisins bara orðið stærra og meira en það var áður og ég kvarta ekkert. Sérstaklega ekki núna þegar ég er heima við vegna bakmeiðsla. Nema það að það vantar helminginn af stöðvunum :s vegna þess að það er að koma eitthvað stafrænt sjónvarp... en ég ætti svo sem ekkert að vera að glápa á imbann heldur kæla á mér hrygginn og það vel og lengi. Ég er nefnilega farin að fara til hnykkjara til að láta laga á mér bakið. Í myndatöku kom í ljós að ég er með 3 hryggjarliði úr lagi ( = hryggskekkju í ofanálag auk þess að mjaðmirnar eru eins snúnar og hægt er án þess að fæturnir á mér snúi aftur... ) sem er samt hægt að laga svo að núna er mér hnykkt og rykkt í von um bata. Þess á milli á ég að kæla á mér hrygginn, ligg undir sæng fullklædd á meðan bakið á mér nálgast frostmark :s , svo fæ ég að skjálfa í hálftíma/ klukkutíma þess á milli og svo skal frysta aftur. Eftir allt þetta verða sjóböð minnsta málið...hehehehe

Jæja, er farin að stirðna við skriftir. Verð að kíkja hérna aftur inn fljótlega þegar minnið er komið aftur...eins og það gerist, jeræt ;)

c",)


sunnudagur, október 10, 2004

jæja...

þá er viðburðaríkri helgi lokið, svona næstum því. Líkamlegt ástand mitt er svona þokkalegt þrátt fyrir mikla áreynslu í skemmtanalífinu síðustu 2 daga.

Á föstudaginn var óvissuferð í vinnunni. Ég ákvað að skella mér á síðustu stundu því að það var víst svo skemmtilegt í fyrra þegar ég var í Amsterdam á sama tíma. Klukkan 3 tímanlega var okkur ekið frá ÍE í 4 rútum og höfðum ekki hugmynd hvert við vorum að fara. Þetta var nú ekki langur akstur því að við fórum alla leið upp í heiðmörk. Þar voru allt í allt 4 stöðvar með hinum ýmsustu þrautum og hópefli. Okkur var skipt niður í 8 hópa og ég tilheyrði köttunum. Við stóðum okkur ekkert smá vel enda kom það í ljós þegar leið á kvöldið að við urðum í 2. sæti, aðeins 5 stigum á eftir vinningsliðinu. Þrautirnar voru miserfiðar og misskemmtilegar. Okkur var afhent örlítið alkóhól en við vorum nú svo heppin að það var í upphafi ferðarinnar í heiðmörk og þeirri ferð lauk ekki fyrr en um hálfátta. Svo að eftir síðustu þraut þá vorum við orðin ansi óþolinmóð. Við höfðum svo sem enga hugmynd um hvar kvöldið myndi halda áfram og áfangastaðurinn kom mjög á óvart. Vissulega vorum við skítug en að velja reiðhöllina í Víðidal til að hýsa okkur var kannski full gróft. Þar var fimbulkuldi því að húsið var galopið í báða enda og vindtrekkurinn stóð í gegn. Ekki nóg með það því að það voru ekki einu sinni sæti og stólar fyrir alla sem að mættu ( hefði nú alveg mátt áætla hvað við yrðum mörg því að það var nauðsynlegt að skrá sig ) . Svo að ég setti bara upp húfuna mína og vettlinga og renndi upp dúnúlpunni. Baldur kokkur tók sig vel út við grillið og steikti fyrir okkur svínalundir eins og honum einum er lagið. Ég settist með minn disk upp í stúku þar sem ég borðaði með diskinn á hnjánum og brotin plasthnífapör. Ógleymanleg sjón enda margar myndir teknar af okkur sem að vorum þarna að hvetja mann og annan ;) Eftir það þá stóð ég mig vel við drykkju á misáfengum veigum. Aaahhhhhh ekki má gleyma því að ég fór aðeins að dansa, svona til að ná hita í kroppinn og það tókst ekki betur en svo að ég missteig mig. Þá þurfti ég meira alkóhól til að finna ekki nístandi verkinn sem að skreið upp legginn á mér. Svona gekk kvöldið, annaðhvort að dansa sér til hita eða syngja sig hásan með misslæmum árangri. Það skýrir kannski misbrestina í röddinni núna ;)
Þegar við vorum komin með alveg nóg þá dobbluðum við eina rútu takk fyrir til að keyra okkur nokkur á players. Ekki málið. Þar hélt samkunda okkar áfram, við alveg rosalega flott í djammfötunum okkar sem að samanstóðu aðallega af flíspeysum og gönguskóm. Ég lenti á trúnó eiginlega allt kvöldið og það hélt áfram á players. Svo loksins skreið minn kæri inn úr dyrunum tæplega 3 og vissi ekki hvað hann hét. Ætti kannski að deila því með þeim sem ekki vita að minn kæri heitir Guðmundur, kominn tími til að ljóstra því upp ;) Ég ákvað að koma kallinum heim enda beið okkar annað djamm daginn eftir.

Á laugardeginum var engin leið að vakna fyrr en seint og um síðir. Þegar ég steig í löppina þá hélt ég að dagurinn væri úti. Þvílíkur sársauki. Sem betur fer lagaðist það eftir því sem ég brúkaði löppina meira. Ég elska laus liðbönd...NB ;) alla veganna þegar ég loksins hafði mig á fætur eftir að hafa fengið smá aðstoð frá Gumma og KFC þá náði ég að dobbla hana Ragnheiði aðeins með mér í þvagrás kapitalismans. Þar eyddum við nokkrum krónum í föt, eins og okkur einum er lagið. Og ég keypti afmælisgjöf því um kvöldið var okkur boðið í þrítugsafmæli hjá Óskari og Dóroteu konunni hans uppi í músó. Stelpurnar fengu að gista hjá tengdó meðan við héldum sem sagt áfram frá því kvöldið áður. Við vorum nú ekki fyrst á staðinn heldur voru mætt þar Snorri og Nína, frænka hans Gumma. Við vorum nú búin að heyra að Snorri hefði byrjað í öllaranum fyrr um daginn í barnaafmæli. Það stóðst líka því þar sat hann og ljómaði eins og sól í heiði. Alli og Nong konan hans bættust í hópinn og svo Bjössi frændi. Sem sagt 9 alls sem að slógumst um allt bús í húsinu. Óskar veitti vel og bollan smakkaðist bara vel, þrátt fyrir landablandið og sólarhringslegnu ávextina sem að í hana fóru líka. Úthaldið var nú ekkert spes og þegar klukkan var farin að ganga 2 ákváðum við að nú væri komið gott. Þannig að þetta kvöld varð aðeins styttra en það fyrra. Ragnheiður deildi með mér töfralausn í gær í sambandi við timburmenn. Það er að taka eina teskeið af salti með vatni áður en ég færi að sofa, sem ég gerði. Og vaknaði bara svo hress í morgun. Nú erum við búin að endurheimta börnin öll saman og þessari helgi lokið, svona næstum því. Morgundagurinn verður örugglega erfiðari en dagurinn í dag, það er alltaf svoleiðis. Svo að ég verð viðbúin...drekk nóg af sterku tei og reyni að þrauka hann ;)

c",)

miðvikudagur, október 06, 2004

Hann glaður...

ber minn hring ;)

Ég lét verða af því um helgina að biðja mér manns. Minn kæri er sá er um ræðir. Ég var búin að ákveða fyrir rúmum mánuði að ræna honum á föstudegi eftir vinnu og fara með hann út á land í sumarbústað og það er einmitt það sem ég gerði á föstudaginn. Minn maður var kominn með öllara í hönd rúmlega hálffimm eftir erfiðan vinnudag og leiddist það ekki. Ég var þá búin að kaupa í matinn og kíkja við í ákveðinni ríkisverslun og var hreinlega með fullt skottið af alls kyns góðgæti. Ég var líka búin að afreka að fara í klippingu þar sem Alli ákvað að gera mig að svona semiljósku, er með svona dökkt inn á milli...voðalega flott ;) allt um það !! Við keyrðum sem leið lá í Hvalfjörðinn, nánar tiltekið að Bjarteyjarsandi. Þar er decode með alveg hreint æðislegan bústað til leigu fyrir okkur vinnualkana. Vel nýttur, by the way. Við vorum búin að fá okkur að borða og hann vissi alveg að ég ætlaði að gefa honum gjöf um kvöldið þó hann ætti ekki afmæli fyrr en á mánudeginum. Við gátum ekki beðið lengur en til 8 og þá vatt ég mér á fætur, náði í hringana og spurði hann hvort hann vildi ganga að eiga mig ? og auðvitað svaraði hann játandi. Hvað annað !!! ( ég er nú svo yndisleg sko ;) ) Svo skáluðum við og áttum bara svo notalega kvöldstund saman.

Á laugardeginum komu svo tengdó og systur hans og pabbi mætti svo í kvöldmat. Við grilluðum læri og vorum með allt viðeigandi meðlæti með. Svo fengum við okkur aðeins í tánna ( svona upp að hné ) og vorum komin í pottinn frekar snemma og entumst þar í 3 tíma þar sem tengdamamma var dugleg að bera í okkur drykki. Eftir alla þessa pottveru vorum við yngra liðið frekar syfjað en tengdó héldu aðeins áfram. Pabbi hafði nú bara skellt sér í bæinn fyrr um kvöldið enda var spáin fyrir sunnudeginum ekkert sérlega spennandi. Sem reyndin varð því að það var vitlaust rok í hvalfirðinum þegar við fórum á fætur.

Í heildina var þetta yndisleg helgi, ég var alla veganna úthvíld og hafði ekki mætt í vinnu og var þetta fyrsta helgin í LANGAN tíma sem það hafði ekki gerst.
Nú spásserum við um allt og sýnum hringana okkar. Þeir eru æðislegir, þó ég segi sjálf frá. Handsmíðaðir og ekkert annað par til á landinu sem er eins . Við erum bara í skýjunum og enn meira ástfangin en áður þó ég héldi nú að það væri ekki hægt.

Svo er bara puðið tekið við. Ég er svona að ákveða hvorn daginn ég ætla að vinna um helgina. Báðir koma mjög illa til greina því ég lét tilleiðast í dag og skráði mig í óvissuferð á föstudaginn með vinnunni. Farið verður af stað um 3 og komið aftur í bæinn um miðnætti svo að ástandið á mér verður kannski ekkert spes á laugardeginum. Nema hvað að á laugardagskvöldið erum við boðin í þrítugsafmæli í mosó svo að sunnudagurinn verður líklega miklu verri heilsulega séð. Hér með held ég að það sé skást að klára þetta af á laugardeginum. Það er nú seinni tíma problem.

Jæja, er farin að gefa liðinu mínu að eta...

c",)

fimmtudagur, september 30, 2004

Jæja...

þá styttist í helgina. Langþráð helgi því að í fyrsta skipti verð ég ekki að vinna um helgi og það hefur ekki gerst undanfarna 2 mánuði. Svo að þetta er svona svipað og jólafrí fyrir mér. Ætla að slökkva á öllum klukkum og vekjaraklukkum og vera alveg tímalaus. Þannig nýt ég þess að vera í fríi. Þetta er reyndar skammgóður vermir því að ég fer að fá næsta skammt af frumum sem ég þarf svo að sinna kannski í mánuð og þá aftur um helgar :s það eina góða við þetta er fríið sem ég er nú þegar búin að vinna mér inn og á eftir að bæta við. Er búin að dekka dagana milli jóla og nýárs svo að ég get verið tímalaus aftur þá. Gott að hafa eitthvað að hlakka til.

Síðasta helgi var reyndar mjög fín..mér tókst að finna 3 afmælisgjafir á stuttum tíma og koma þeim líka til skila. Með dyggri aðstoð hobbýhórunnar minnar :) Við kíktum aðeins til Sissu sem átti afmæli á laugardeginum og þar rann niður fyrsta tertusneið helgarinnar ásamt góðum kaffibolla. Svo fór ég heim og bakaði hverja hnallþóruna á eftir annarri fyrir ættarkaffið á sunnudeginum. Það tókst allt saman vel, borðið var dekkað með alls kyns kræsingum og eins og venjulega fór héðan södd ætt. Eftir það fórum við í enn eitt kaffiboðið því að tengdapabbi átti svo afmæli á sunnudeginum. Vegna ofneyslu átti ég erfitt með að fá mér nokkuð en reyndi vegna mikillar kurteisi og fékk mér bara litlar sneiðar. Það þarf ekkert að taka það fram að hér hefur ekki verið eldað neitt af viti alla þessa viku eftir þetta át. Þessu var svo sem ekki lokið því að ég átti svo að mæta með köku í vinnuna á þriðjudeginum. Ég er komin með ógeð á kökum...

Nú, börnin eru enn heima vegna verkfalls. Reyndar gerðumst við algjör kvikindi eitthvað kvöldið og vistuðum heimasíðu www.mbl.is og breyttum henni aðeins og sögðum að verkfallið væri leyst, það ætti að vera skóli klukkutíma lengur hvern dag og ætti að kenna á laugardögum fram að jólum. Þorvarður hoppaði um eins og óður væri og Þórunn lagðist í gólfið og grét. Við héldum aftur af okkur í smá tíma og grétum af hlátri en leiðréttum þetta svo. Þau voru ekkert smá fegin, það var eins og það væru komin jólin. En svipurinn á þeim þegar þau lásu þetta, algjörlega óborganlegur :)

Við erum farin að halda að tiltekið morgunkorn hafi verið framleitt í massavís í Bretlandi í sumar þegar prósakkið var í neysluvatninu. Kristín fær sér núna einn disk af Lucky Charms og þegar hún er búin er ;

1. mjólkin gulgræn á litinn og barnið líka

2. hún syngur og trallar einhvern Lucky Charms söng sem enginn botnar í

3. hún ljómar af gleði yfir því hvað lífið er yndislegt og það var svo sem ekki bætandi á það
ástand hjá henni því að hún er legally blond !!! og hefur alveg hrikalega gaman af lífinu í öllu sínu veldi.

Við ætlum aldrei að hætta að kaupa fyrrnefnt morgunkorn því að hún er öllu viðráðanlegri í sykursjokkinu. Og hana nú ;)

c",)



laugardagur, september 25, 2004

Og 3ur vikum seinna...

enn vinnualki. Er núna í vinnunni og það er enn nótt úti og ógeðslegt veður. Ég er sem sagt algjör hetja að hafa rifið mig upp á rassinum og út um miðja nótt til að vinna. Aldrei hefði ég trúað því ef mér hefði verið sagt að ég myndi vinna alla laugardaga og jafnvel líka sunnudaga í september. En ég er víst búin að því... :( og er komin með atvinnutitilinn " multitasker and workaholic "

En hvað hefur svo sem á daga mína drifið síðan síðast, svona fyrir utan sjúklega vinnu ? Ahhhhhhhh við skelltum okkur á stuðmannaball um daginn, nánar tiltekið fyrir 2 vikum síðan nákvæmlega með Sissu og Bjarna. Ballið var á players = grandma-takeaway staðnum í kópvogi. Minn kæri var mörgum sinnum búinn að segja mér að þegar kk fara þarna þá þyrpast að þeim konur í eldri kantinum í von um greiða...hehehe og svo er sagt að greitt sé í pönnsum daginn eftir. Alla veganna þá hélt ég nú að þetta væru ýkjur en annað kom í ljós. Ég er vön svona mygluðum korter í 3 gæjum sem að biðla til manns ekki sjáandi lengur...en þarna snerist dæmið við. Klukkan korter í 3 nákvæmlega þá voru þeir svo óheppnir að sitja einir við borð og allt í einu var ekki hægt að snúa sér vegna þess að þeir vorum umsetnir svona konum í eldri kantinum sem gripu í hendurnar á þeim og tékkuðu á því hvort að þeir væru fráteknir, með hring á hendi. Svo illa vill til að minn kæri hefur ekki enn fengið hring á fingur svo að þær kættust mjög og blikkuðu hann svo mikið að hárið þyrlaðist á hausnum á honum vegna vindkviðanna sem að frá þeim mynduðust. Mætti athuga að virkja augnhárablikk. Alla veganna stóðu þeir upp og hlupu til okkar þar sem við vorum á dansgólfinu að dansa við stuðmenn. Skelfingin skein úr augnaráði þeirra svo að við tókum þá og hugguðum og sýndum að þeir voru fráteknir og út undan okkur heyrðum við svekkelsisstunurnar. Reyndar þá var ekki einungis kvenfólkið á eftir þeim þetta kvöldið því að rétt eftir að við komum inn á staðinn gekk að þeim sveittur karl með svona kámug glasbotnagleraugu og sagði þeim hvað þeir væru sætir og myndarlegir piltar, NB með okkur stelpurnar við hliðina á. Ég sá gæsahúðina á mínum kæra þegar þessi tiltekni maður reyndi svo að strjúka honum um bakið...eugh !!!
Þetta kvöld endaði vel þrátt fyrir mikla viðreynslu hjá strákunum. Við fengum svona þokkalega að vera í friði, aðeins klipið í rass af og til en voðalega saklaust.

Hvað annað hefur gerst ? Tja, lítið og ómerkilegt væntanlega því að minniskubburinn er tómur. Alzheimer dæet herjar á mig og ágerist bara ef eitthvað er. Ég verð að skrifa niður hvað ég er að gera á daginn svo að ég geti fyllt inn samviskulega í tímatalið hérna í vinnunni. Venjulega þá er ég nú ekki að blogga svona á óguðlegum tímum og hvað þá þegar ég ætti að vera að gefa frumunum mínum en ég var ekkert vöknuð þegar ég kom hingað í nótt og sá ekki að það var slökkt á hitabaðinu mínu og ekki get ég gefið greyjunum ískalt æti ?? Það eru svo miklar dillur í kringum þessa vitleysinga að það hálfa væri nóg. Alla veganna þá hef ég nóg annað að gera en að hanga hér í allan dag. Verð að finna 3 afmælisgjafir og undirbúa brönsj fyrir ættingja sem að koma til mín á morgun. Það verður nú lítið mál. Um að gera að ljúka því sem fyrst svo að ég geti notið þess að vera heima með fullt af kertum og að kúra með Kristínu minni... gerist ekki öllu betra ;)

well, farin að tékka á ætinu...

c",)

laugardagur, september 04, 2004

Vinnualkinn hér...

þetta er ekkert eðlilegt lengur. Ég skilaði af mér alveg ógeðslega mörgum tímum í þessari viku, ekki gott fyrir mannorðið. Ég hef það á tilfinningunni að ég yfirgefi ekkert sturlugötu lengur og þá er þetta orðið slæmt. Ég ætti að plana smá frí svona fyrir sjálfa mig, þá kannski myndi þessi tilfinning hverfa. Fyrir utan það að bakið á mér mótmælir þessu öllu saman. Ég held að ég sé að fá kryppu án gríns. Ég get ekki rétt almennilega úr mér og alls ekki horft upp í loft, eins gott að halda sig frá flugeldum næstu daga. Svo er líka erfitt að neita eða játa sem getur verið mjög slæmt þegar maður er multitasker eins og ég ( NB yfirmaður minn fann þetta orð á mig þegar hann sá mig á öllum hæðum sturlugötu einn daginn, þetta er ekki komið frá mér... )

Minn kæri er nú staddur í sól og sumaryl í Hollandi. Það er alveg hrikalega skemmtilegt að fá símtöl þar sem að fólk dæsir yfir hita ?!?!?! og sól á meðan við hérna á klakanum tínum fram vetrarfötin okkar. En hann kemur nú heim í dag og veruleikaskynið kemst aftur á norm stigið. Kannski lagast bakið á mér við að fá hann til mín, sef eitthvað undarlega þegar hann vantar. Kristín gerir bara ekki sama gagn enda ekki alveg af sömu stærðargráðu þó að yndisleikinn bætir það nú upp. Ekkert smá ljúft að vakna upp við það að manni er strokið varlega og bent vinsamlega á að koma sér á fætur því að það sé nú kominn dagur. Hún fylgist vel með þessu öllu.

Ji, ekki má ég gleyma mánudeginum síðasta en þá varð pabbi minn 65. Allt í einu. Frekar fyndið. Í tilefni dagsins fórum við út að borða á Hereford steikhúsi, ég og minn kæri, pabbi og dista og svo gilla og stefán úr borgarnesi. Þetta var svo skemmtilegt kvöld að það verður erfitt að lýsa því. Og maturinn, þessi staður er alveg æðislegur. Ég er eiginlega enn södd síðan á mánudeginum svo að það segir nú sitt. Enda fengum við okkur 3réttað og gátum varla klárað. En það tókst. Allir skemmtu sér konunglega og voru ánægðir með kvöldið, ekki síst afmælisbarnið. Þegar við kvöddumst þá flugu þau orð að við ættum að gera þetta oftar. Vonandi verður af því :)

Svo leið vikan bara í vinnu og meiri vinnu. Það verður bara enn ljúfara að taka sér frí út á alla tímana sem ég er búin að vinna mér inn. Jæja, ætli ég reyni ekki að stumra hérna yfir tiltekt í smá stund svo að ég geti notið dagsins og mannsins míns þegar hann kemur heim á eftir :) Get varla beðið...


c",)

sunnudagur, ágúst 29, 2004

Glætan...

var búin að blogga heilmikið og með einhverjum aulagangi þá þurrkaði ég það allt út !!!

Well, byrja þá bara aftur. Langt síðan síðast. Gott að blogga með svona löngu bili því þá er ekki séns að muna allt sem á dagana hefur drifið. Alzheimer dæet herjar á mig, geri mér alveg fullkomlega grein fyrir því. Gott að geta áttað sig á göllunum í sambandi við mann sjálfan.

Alla veganna þá hefur svona eitt og annað gerst síðan síðast. Við fórum í brúðkaup núna í ágúst, akkúrat þegar það reið heilmikil hitabylgja yfir landið. Mjög þægilegt eða hittó. Við sátum og svitnuðum í kirkjunni á meðan að frændi míns kæra gekk að eiga konuna sína. Svo héldum við í veislusalinn á meðan að þau létu mynda sig í bak og fyrir. Hann var á 3ju hæð og það var ekki hægt að kveikja á viftunum því að þá slokknaði á kertunum. Þar af leiðandi héldu flestir sig í anddyrinu meiri partinn af veislunni. Segja má að hún hafi endað á gangstéttinni í Skeifunni. En hún var ótrúlega skemmtileg og mikið hlegið. Við eigum eftir að rifja þetta upp aftur og aftur í ellinni ;)

Hvað annað ?? Já, auðvitað. Mín kæra Sigga var á klakanum og ég eyddi smá tíma með henni. Við meira að segja skelltum okkur á djammið kvöldið fyrir menningarnótt. Skemmtum okkur konunglega með þeim örfáu sem að voru úti á lífinu þetta kvöld, þar á meðal var minn kæri sem við hittum seinna um kvöldið til að tryggja að hann gæti komist heim. Eða svo að segja. Við 3 enduðum á Dubliners þar sem minn kæri var að henda burtu einhverjum köllum sem að fannst ég álitlegur kostur á 10unda glasi það kvöldið. Sigga var nú á bömmer yfir því að ekki væri reynt við hana á þessum stað. Þetta var bara fyndið.

Menningarnótttin fór nú ekki alveg framhjá okkur þó að við höfðum ekki heilsu til þáttöku fyrr en um kvöldmatarleiti. En við skelltum okkur nú í bæinn og höfðum gaman af. Nema hvað að kvöldmaturinn var ekki góður. Mæli engan veginn með einhverjum taco take away stað í Lækjargötunni. Alveg skelfilega vondur matur. Tónleikarnir niðri á hafnarbakka voru æðislegir og ekki síst þar sem við nutum þeirra um borð í hvalaskoðunarskipi í hafnarmynninu. Flugeldasýningin var ótrúlega flott og við erum enn með hálsrýg. Kristín var ekki alveg að fíla þetta í byrjun og lokaði bara augunum en í lokin öskraði hún manna hæst yfir þessum látum og ljósum. Hún var svo með smá sjóriðu eftir þessa stuttu siglingu sem endaði eins og hjá svo mörgum þetta kvöld að kvöldmaturinn kom öfugur upp úr henni þegar við komum heim. Hægt að skella skuldinni á kvöldmatinn.

Og svo síðast en ekki síst vil ég fá að óska henni Þórunni Kristínu Gautaborgarbúa til hamingju með trúlofunina en hún lét verða af því sama dag og menningarnóttin var hér á klakanum.

Svo snýst lífið bara um vinnuna þessa dagana. Er orðin vinnualki og er ekkert sérlega stolt af því. Núna er það ég sem að vinn frameftir og um helgar og minn kæri sér um heimilishaldið á meðan. Þetta verður nú ekki svona til frambúðar...vona ég ;)

jæja, best að fara að skella sér í sturtu svo að hárgreiðslan verði alveg pörfekt í morgunsárið. Það er svo flott þegar ég sofna með hárið blautt...hehehe

svo kúl að geta sett inn svona marga liti, þetta verður eins og eðaldiskótek...


c",)


miðvikudagur, júlí 28, 2004

og spíder man...

líka, búin að sjá hann. Alveg ágæt ræma, náttla bara gervileg og á ekkert að vera öðruvísi. Bara spurning hvenær spíder man 3 kemur...

Annars var ég að koma heim, við afrekuðum að fara hringinn á 3 dögum :s barnlaus og alles ;) lögðum af stað seinni partinn á sunnudeginum og ókum sem leið lá á Akureyri. Vorum snögg að því enda öll umferðin á leiðinni í bæinn, skemmtilegt að vera svona öðruvísi en aðrir. Keyrðum svo í Vaglaskóg þar sem við hittum Gillu, Stefán og þeirra börn. Það var voðalega skemmtilegt. Við komum tjaldinu upp og settumst svo niður og fögnuðum 7 ára samveruafmæli þeirra með smá hjálp frá Corona Cerveza. Mjög fínt. Fórum í svefnpokana ekkert svo voðalega seint, eitthvað um miðnætti. Þegar við vöknuðum um morguninn var hitinn óbærilegur í tjaldinu enda skein sólin mjög bjart fyrir utan sem skilaði sér í hitastigi þarna einhvers staðar um 20 gráður. Við vorum nú ekki búin að vera lengi úti við þegar ég var farin að roðna allískyggilega á bringunni. Ég jóðlaði nú samt á mig vörn en það dugði ekki til. Ég ber enn vott um roðann en þetta er nú allt að koma. Er bara komin með þennan fína, hraustlega lit...trúið því bara. Auðvitað tolldum við ekki lengi við í blíðunni enda var spáin niður á við þarna á svæðinu. Svo að við ákváðum að keyra austur og fórum í Hallormstaðaskóg við Egilsstaði. Þá áttuðum við okkur reyndar á því að þetta var að verða að svona skógarþema... frekar fyndið. Þar var blíðan ekkert minni, reyndar var svona rykmistur frá hálendinu aðeins fyrir sólinni og það var nú ekki búið. Eftir að við höfðum kannað menninguna í kaupfélaginu á Héraði og búin að gæða okkur á  pizzu frá '67 þá fórum við að tjalda ( enn einu sinni ). NB tjaldið var svona hústjald frá 70 og eitthvað með rósagluggatjöldum og alles. Sem betur fer hafði minn kæri tjaldað því nokkrum sinnum, annars hefðum við sofið úti við allan tímann. Náðum að tjalda í smá skjóli frá sólinni svo að ég gat borið á mig after sun af miklum móð. Það var nú aðeins kaldara þarna en fyrir norðan og mínum kæra var bara kalt um nóttina. En þegar við vöknuðum um morguninn ( í gær )  þá var sko komin sól og heiður himin en samt ekkert svakalega heitt, eitthvað um 16 gráður...svona verður maður þegar maður er í góðu veðri, allt fyrir neðan 20 er prump !!! Við ákváðum eftir að hafa fengið okkur morgunmat að þræða suðurfirðina rólega og skoða okkur vel um. Svo ætluðum við að hvíla okkur yfir nótt einhvers staðar á leiðinni. Það breyttist aðeins. Við þræddum firðina í góðu veðri og fengum okkur sveittan hammara á Djúpavogi ásamt mjög svo sjúskuðum manni í stuttbuxum og með gulan sólhatt sem að var á krúsinu í leigubíl...mí dónt nó háv hí kúd dú ðat !! en allt er hægt svo sem.  Þegar við vorum svo búin að fara skriðurnar, þar sem meðal annars í einni þeirra var nýbúið að hrynja aðeins á veginn þá komumst við á Hornafjörð.  Gáfum bílnum aðeins að drekka og ákváðum svo að halda bara áfram, vorum ekki alveg komin með nóg af keyrslunni...hehehe. Spáin var líka eitthvað lélég í dag, meira rok á söndunum svo að við höfðum alveg afsökun. Þarna fyrir austan var ekkert skyggni, slíkt var mistrið ofan af hálendinu. Þegar við keyrðum framhjá Vatnajökli, sem er nú ekkert lítill...þá sáum við hann eiginlega aldrei heldur þurftum að ímynda okkur að hann væri þarna einhvers staðar í rykinu, rykfallinn...
Í stuttu máli vorum við komin í bæinn einhvern tímann um 11 í gær og það var svo ljúft, ég fór næstum því í skónum í sturtu. Það var svo ljúft, fengum okkur svo aðeins að eta og skriðum svo í ból. Er ég búin að segja hvað ég elska mikið rúmið mitt ? Held að það sé stutt síðan en ég bara laggó, elska rúmið mitt og manninn sem liggur þar með mér ;)
Þá erum við búin að fara hringinn. Eftir á sagði minn kæri að hann fengi svona fiðring einu sinni á sumrin og þá dugði honum að fara í svona 2 nætur í tjald og þá væri hann læknaður. Sem sagt næst þegar hann er illa þjáður af tjaldfiðring þá fær hann að fara einn á rúntinn, hehehehe ;)
Svo náðum við í stelpurnar í morgun og Kristín var nú fegin að sjá okkur, þessi elska. Alveg bleik eins og alltaf og bara langsætust. Það var soldið skrýtið að vera svona alveg barnlaus, verður örugglega langt þangað til að það gerist aftur. Gott að vera komnar með þær heim, þessar elskur :)

c",)

 

föstudagur, júlí 23, 2004

Artúr...

var ansi flottur í gær. Alltaf gaman að fara í bíó, seint og um síðir og enginn í bíó. Fín mynd, soldið frjálslega farið með söguna en það er nú bara hollywood stællinn þessa dagana. Gaman að sjá leikara sem eru ekki hollywood framleiddir og sem eru augnayndi líka...ekki slæmt það :)

Svo er bara stutt í helgi, á reyndar 2 deit í dag. Byrja í IKEA með Distu sem aldrei finnur sér neitt en þarf að finna það = hefur samband við mig, hverja aðra... Og svo hitti ég hobbýhóruna mína og við gerum eitthvað skemmtilegt á laugaveginum. Kannski fer ég bara út að borða í kvöld, hver veit. Stefnir í barnleysi um helgina og við vitum bara ekki hvað við eigum að gera af okkur. Dekrum örugglega við hvort annað eins og við erum vön að gera :)

Well, farin að klæða eðalgellu heimilisins í kjól, helst bleikan og með blómum...

 
c",)

fimmtudagur, júlí 22, 2004

Múhahaha...

hvað það er gott að vera í sumarfríi. Alveg hreint yndislegt. Erum búin að vera í Húsafelli síðustu daga í brakandi brælu í byrjun en svo umvafin skýjum. Þegar við vorum komin með nóg af vondu rúmunum ákváðum við að kýla á það og halda í bæinn og sjáum ekki eftir því. Get ekki lýst því hvað það var gott að leggjast í bólið í gær, elska rúmið mitt og manninn sem liggur með mér í því lon og don ;)

Minn kæri er nú líka í fríi þó að ég finni ekki mikið fyrir því. Um leið og við komum í bæinn þá byrjaði síminn og hefur ekki stoppað. Hann " neyddist " til að kíkja í vinnuna í dag... ( yeah right ), er nýkominn heim og er enn í símanum. Svo þarf hann alveg endilega að kíkja aftur við á morgun.Svona er að eiga vinnusjúkling fyrir mann...

Annars er þetta bara ljúft, kann ekkert að vera í fríi og veit ekkert hvað ég á af mér að gera. Er að þvo þvott ( þó hann sé mikill endist það mér ekki út allt fríið ) og hvað ég geri svo veit ég ei. Finn mér eitthvað skemmtilegt að gera... held ég.

Stefni í bæinn með hobbýhórunni minni á morgun. Hún er að fara að kaupa sér hring og ég þarf að finna mér kjól eða eitthvað fínt fyrir bryllup sem er að fara að skella á. Hefði svo sem alveg farið niður í bæ þó ég hefði ekki haft mission en það er alltaf skemmtilegra að hafa einhverja afsökun fyrir bæjarröltinu. Í versta falli þá setjumst við niður og fáum okkur góðan kaffibolla...

Well, er farin að versla eitthvað gúmmelaði í matinn ;)

c",)

föstudagur, júlí 09, 2004

Kagginn...

er svo flottur, er búin að vera voðalega dugleg að keyra síðan á miðvikudaginn og það er svo sem ástæða fyrir því. Og ekkert sérlega skemmtileg. Við náðum í hann á miðvikudeginum og fórum svo um kvöldið og sýndum tengdó gripinn. Minn kæri var farinn að finna fyrir einhverjum kláða og þegar við komum heim seinna um kvöldið sáum við að hann var að steypast allur út í útbrotum. Ég dreif hann niður á slysó um miðnætti og þar var dælt í hann sterum og ofnæmislyfjum því að í ljós kom að hann er með pensilín ofnæmi. Við fengum að fara heim um 3 leitið aðfaranótt fimmtudags svo að við fengum alveg að sofa í heila 4 tíma þá nóttina. Þeir sem þekkja mig vita að það er sko langt frá því að vera nóg. Alla veganna þá fórum við bara í vinnu í gær en um hádegi er minn orðinn slæmur aftur og við fórum svo aftur á slysó seinni partinn í gær, aftur í stera og júmmelaðikokkteilinn. Þegar hann braggaðist aftur vorum við send heim og vorum sko fegin því ;) Svo í dag þá hefur hann verið svona lala, en ekkert líkur því sem hann hefur verið síðustu daga. Guði sé lof. En málið er að hann er á svo sterkum lyfjum að hann má ekki keyra bílinn svo að míns er sko búin að fá að prufukeyra hann og vel það. Og hann er bara æðislegur, hef aldrei fyrr né síðar keyrt annan eins bíl. Ég er farin að eyða meiri tíma í bílnum en heima hjá mér ;)

Þrátt fyrir veikindi síðustu daga þá skellti ég mér á stælinn með líffræðingunum mínum í gærkvöldi. Það var ekkert smá gaman að hitta þetta lið aftur eftir langan tíma. Það var nú ekkert sérstök mæting en þó alveg nóg til að við skemmtum okkur. Ég skreið svo heim fyrir 10 og steinsofnaði, algjörlega búin á því. Og er enn þreytt, fer sko snemma í bólið í kveld.

Plan um helgina ? Tjill og notalegheit, ekkert annað. Þarf reyndar að halda upp á afmæli á sunnudaginn en ég er nú svo myndarleg að það verður ekki mikið mál ;)

c",)

miðvikudagur, júlí 07, 2004

Margt og mikið hefur...

drifið á dagana síðan síðast.

Við drifum okkur í sumarbústað um helgina með allan skarann. Það sem að gerði ferðina þolanlega var að við höfðum fengið tölvuspil lánað svo að þau skiptust á að spila alla leiðina. Himneskt en auðvitað þegar við fórum í göngin þá var ekki hægt að spila og auðvitað rifist um hvort að tíminn í göngunum yrði talinn með eður ei...hægt að rífast um allt á mínu heimili. Alla veganna komumst við á leiðarenda. Við borðuðum svo góðan mat um kvöldið og fengum okkur aðeins í tánna og spiluðum svo trivial pursuit. Ég er hætt að spila við minn kæra því að hann vinnur alltaf með svindlum eður ei og nuddar því svo framan í mann eftir á = óþolandi !!Alla veganna þá keypti hann mig í spilið og díllinn var að við yrðum komin á nýjan bíl fyrir fríið okkar núna seinna í júlí. Kem að þessum mikilvæga punkti seinna. Svo fórum við snemma að sofa, eftir að vera gjörsigruð í spili af mínum kæra.

Sunnudagurinn var bara ljúfur, við lögðum frekar snemma af stað í bæinn því að við þurftum að stoppa á mörgum stöðum, að skoða ný hýbíli Gillu og Stefáns í Borgarnesi og auðvitað koma við hjá tengdó á leiðinnni heim. Leyfðum okkur reyndar að skoða stað á leiðinni sem er svo fallegur. Paradísarlaut. Algjör paradís, ekkert skrýtið hvernig nafnið hefur komið til. Við náðum að lokum heim rétt fyrir leikinn. Grikkir evrópumeistarar...er ennþá að ná þessu ;)

Jæja, á mánudeginum fórum við að rúnta milli bílaumboða og viti menn,erum að fá nýja bílinn okkar í dag :) Við prófuðum einhverja 3 kagga og enduðum á mösdu 6, hlaðbak. Kagginn er steingrár, ógeðslega flottur og bara gahhhhhhhhhhhhhhhhhhhh hlakka svo til að fá hann seinna í dag ;)

Svo í gær þá fór ég til tannsa og fékk að vita að ég er með ofnæmi fyrir sjálfri mér. Og það í tannholdinu :s Ekkert alvarlegt en ég verð að hætta að borða sterkan mat í bili ( enginn zinger fyrir mig :( ) og taka því rólega...vonandi gengur þetta yfir fyrr en seinna.

Og svo bara orðið stutt í sumarfrí, jibbí jei. Einungis 7 vinnudagar eftir og þá er komið að 3 vikna fríi. Get varla beðið...

c",)

fimmtudagur, júlí 01, 2004

Skakkir hælar...

og fleira skemmtilegt hefur komið upp á síðustu daga. Kristín var í göngugreiningu í dag og í ljós kom að tátiplið orsakast af skökkum hælum svo að hún er að fara að fá innlegg og nýja skó, nokkuð mörg pör því að innleggin verða að vera í öllum skóm. Svo að það er eins gott að ég fékk launahækkun um daginn til að dekka þetta ;)

Þegar ég náði í hana í dag sat hún úti á nærbuxunum og stuttermabol enda var algjör bongóblíða úti fram eftir degi. Sem betur fer kólnaði aðeins um kvöldmat því að það var allt svo mollulegt, jafnheitt úti og inni. Henni finnst þetta fínt, hefur nokkuð gott þol gegn hitanum.

Svo er bara stutt í helgina. Ætlum aðeins að kíkja í sveitina með nesti og nýja skó, hehehe og hjálpa aðeins til í bústaðnum. Svo þarf auðvitað að bruna heim á sunnudeginum til að ná úrslitaleiknum á EM. Ég hélt nú að það yrði portúgalir og tékkar í úrslitum en svo verður víst ekki. Blessaðir grikkirnir koma enn á óvart. Þetta verður spennandi, verst að það er svo langt í ólympíuleikana, þetta er nefnilega ágætis afsökun til að sitja og prjóna og brenna við kvöldmatinn vegna framlenginga og vítaspyrnukeppna. Verð að bíða fram í ágúst fram að næstu íþróttaveislu.

Aumingja Þorvarður. Stefnan var að halda upp á afmælið hans um helgina en það er ekki séns að hóa saman liðinu þegar það er svona mikið að glápa á í imbanum. Svo að hann bíður enn eftir pökkum í tilefni þess að hann er 12 ára. Það kemur allt, í versta falli verður öllum afmælum skotið saman í eitt sameiginlegt. Og þá verður allt vitlaust. Ég hlýt að geta haldið upp á þetta svona á næstu misserum, þá mæta bara færri.

Jæja, best að fara að prjóna...gengur ekki að vera að slæpast svona í tölvunni...

c",)

föstudagur, júní 25, 2004

Jibbí jei...

frakkarnir dottnir út á em og allt getur gerst :) þvílíkt og annað eins...

Drengurinn minn varð 12 ára um síðustu helgi. Ykkur kann að finnast þetta ótrúlegt, hvað þá mér. Ég lá uppi í rúmi síðasta laugardag og hló bara því að mér finnst þetta sjálfri bara fyndið. Hann kom svo heim frá Noregsheimsókn daginn eftir afmælið sitt og svei mér þá ef hann stækkaði ekki aðeins í ferðinni sinni. Hann verður vaxinn mér yfir höfuð áður en hann fermist, ef hann fermist á annað borð. Verðandi sláni...og hefur svo sem ekki langt að sækja það :)

Við skötuhjúin skelltum okkur á tónleika í gær. Deep purple, eða djúppurpurarauður eins og kjánaprikin á skonrokki nefna þá. Þetta var fínt, mikið stuð en svolítil vonbrigði að fá ekki að heyra meira af gömlu lögunum þeirra. Við verðum bara að spila diskana með þeim í staðinn...

Annars bara komin helgi, meira að segja kosningahelgi. Þarf að minna mig á að rölta út í skóla á morgun og kjósa því að það er ekkert sem að minnir mann á að kosningarnar séu að skella á. Ekki nema það að maður sér Ástþór gera sig að fífli í sjónvarpinu en það er nú svo sem nærri því daglegt brauð, svo ekki sé meira sagt. Ekki get ég skilið hver það er sem að kýs þann mann. Og ekki orð um það meir ( ætla ekki að skrifa það sem mér datt í hug ).

Stefnir bara í ljúfa innihelgi, veðrið býður ekki upp á mikið annað. Verð bara inni að prjóna...er svo dugleg sko ;)... eða gömul í anda eins og minn kæri kallar mig af og til þegar ég sit hokin við handavinnuna á síðkvöldum...

c",)

fimmtudagur, júní 10, 2004

Einn góður...

Einn daginn fékk maðurinn minn skyndilega þá köllun að fara að sinna
heimilisstörfunum og í einhverju bjartsýniskasti ákvað hann að þvo
stuttermabolinn sinn. Hann var varla kominn inn í þvottahús þegar hann
kallaði á mig "Á hvaða stillingu set ég þvottavélina elskan?"
"Það fer eftir því hvað stendur á bolnum" kallaði ég til baka.
"Húsasmiðjan" Gargaði hann...
Og svo segja þeir að ljóskur séu heimskar.....

c",)

fimmtudagur, maí 27, 2004

BBQ...

fnykinn leggur um allt hús núna. Verið að kveikja í fyrir hádegismatinn, versta er að loftræstingin hérna dælir brælunni inn í húsið svo að það er eiginlega ekki hægt að vera hérna lengur :S

Er svefnvana, minn kæri kom svo seint heim og auðvitað þurfti ég að vaka og catch up með honum þegar hann loksins skreið inn um dyrnar. Held að ég sé ekki enn farin að sofa :S yndislegur dagur...

Sem betur fer er ég í fríi á morgun. Verð bara heima að tjilla með Kristínu eðalbeyglu. Hún er að umbreytast í litla Barbie. Minn kæri mætti með fullt af barbie dóti fyrir hana og hún gengur nú um allt bara BLEIK !!!!!!!!!! frekar fyndið að sjá hana...

c",)

miðvikudagur, maí 26, 2004

Shut up...

erum að hlusta á Black eyed peas, uppáhaldsbandið hennar Kristínar...hún stendur hérna hjá mér og geiflar sig og fettir :)

Kristín er orðin algjör hjólagarpur, hún skellir sér á fákinn á hverjum degi og hjólar hring í hverfinu með mismunandi bangsa aftan á og sýnir þeim heiminn. Hún er orðin furðugóð eftir ekki lengri tíma. Henni finnst þetta algjört æði, stekkur út úr bílnum þegar við komum heim og heldur af stað. Algjör gella...

Er bara farin að bíða eftir því að fá minn kæra aftur á klakann. Hann er búinn að vera nógu lengi frá mér og kominn tími á að hann skili sér heim. Hann verður mættur um miðnætti svo að það verður seint farið að sofa hér. Eins gott að fara og fá sér kaffi svo ég tóri þetta ;)

Farin í bili, Tobbi trutt vill endilega fá að komast á netið...greyið ;)

c",)

mánudagur, maí 24, 2004

BRRRRRRR...

það er nú ekki eins hlýtt úti og það var í dag :S en samt lét ég mig hafa það að standa úti og grilla kvöldmatinn, fórna sér fyrir fjölskylduna ;) Það var svo hlýtt og notalegt í hádeginu að við skelltum okkur út fyrir dyr og sátum í grasinu og glenntum okkur framan í sólina...

Annars er orðið rólegt hér því að Kristín sofnaði sitjandi svo að við tekur ljúf kvöldstund. Alltaf gott þegar blessuð börnin sofa.

Helgin var annasöm, við fórum í 2 veislur á laugardaginn og minn kæri er svona að komast aftur á strik eftir átökin. Fyrst héldum við í útskriftarveislu og svo í þrítugsafmæli. Sem sagt veislur í einhverja 10 tíma. Ég var nú svo sniðug að hætta að þjóra á vissum tímapunkti þegar líkaminn gat ekki meir og var því góð í gærdag. En minn kæri var eins og múkki á klósettinu og þurfti svo að fara í flug seinni partinn í gær. Hann er nú loksins orðinn góður, þessi elska :) er í sól og sumaryl í góðu yfirlæti í Hollandi. Sem betur fer er hann ekki lengi því að rúmið er svo tómt. Er alvarlega að gæla við að hafa Kristínu uppí í nótt svo að það sé einhver við hliðina á mér.

c",)

Góður...

There were two blonde guys working for the city. One would dig a hole, the other would follow behind him and fill the hole in.
They worked furiously all day without rest, one guy digging a hole, the other guy filling it in again. An onlooker was amazed at their hard work, but couldn't understand what they were doing.
So he asked the hole digger, "I appreciate the effort you are putting into your work, but what's the story? You dig a hole and your partner follows behind and fills it up again."
The hole digger wiped his brow and sighed, "Well, normally we are a three-man team, but the guy who plants the trees is sick today."

c",)

föstudagur, maí 21, 2004

TGIF...

þó það hafi nú verið svona stutt helgi í gær ;)

Fórum að sjá TROY á miðvikudaginn klukkan 10. Það er of seint fyrir mig því að á meðan að blessuð myndin minnti óhugnanlega á ameríska sápuóperu þá dottaði ég :S þetta var ógeðslega fyndið. Það voru allir leikarar að gera svona zoolander svipi í upphafi myndarinnar svo mér lá við ælu...en svo lagaðist þetta en samt komst blessuð myndin aldrei á neitt flug. Algjört flopp í mínum huga og fleiri því að ég er búin að vera að sjá frekar neikvæða dóma um ræmuna...alveg sama þó að Brad Pitt hafi sést nakinn nokkrum sinnum ;)

Var sko að kaupa mér teinótta dragt á miðvikudaginn :) er búin að leita lengi og fann loksins eina sem smellpassaði...svo að kaupin réttlættu sig um leið. Erum nebbla að fara í stúdentaútskrift á morgun, það bættist við á síðustu stundu. Ætti að vera komin með 5 klóna af mér fyrir morgundaginn en fyrst að það gengur ekki þá verðum við að velja og hafna. Fyrir valinu hefur sem sagt orðið stúdentagill og svo þrítugsafmæli í Mosó um kveldið. Um að gera að hvíla sig aðeins fyrir átökin...og það gerðum við í gær. Nema hvað... Við í fjölskyldunni skelltum okkur í hjólreiðatúr í rigningunni í gær og það var voðalega gott/vont á meðan að á því stóð. Svona er það að búa í Kópavogi, ekki hægt að hreyfa sig án þess að þurfa að fara upp einhverjar brekkur á leiðinni heim. En þetta tók vel á svo að samviskan var hrein á eftir.

Svo er bara vinna í dag og svo aftur frí, yndislegt :)

c",)

þriðjudagur, maí 18, 2004

zzzzzzzzz

er enn að jafna mig eftir helgina. Held að þriðjudagar séu verri en mánudagarnir sjálfir.

Það var vel tekið á því um helgina. Byrjaði föstudaginn á því að fara á bjórkvöld með vinnufélögum. Sat lengi vel fram eftir nóttu og minn kæri náði í mig um 3 leitið. Svaf eitthvað fram eftir á laugardeginum og svo tók ekki betra við því að við fórum til tengdó í júgóvisjónpartí. Það var svakalega gaman og ölið þjórað af bestu lyst. Þegar evrópska strippsjóvinu lauk vorum við keyrð heim, haldið áfram að þjóra og svo skelltum við okkur niður í bæ, svona eins og allir gerðu. Það voru alls staðar raðir svo að við duttum inn á Þjóðleikhúskjallarann og sátum þar þangað til að ljósin voru kveikt. Voðalega gaman. Svo var bara orðið bjart þegar við komum út en við létum það nú ekki stoppa okkur, NB minn kæri var farin heim á þessum tíma ( hefur ekki roð í mig og systur sína ;) )og fórum á næsta bar. Í stuttu máli þá skiluðum við okkur heim upp úr 7 um morguninn :S svo að það er kannski ekkert skrýtið að ég sé þreytt ( yawn !!! )

Svo bara vinna og meiri vinna. Fékk reyndar gleðitíðindi í gær, launahækkun...já, það er rétt...ég fékk launahækkun :) þá fyrstu í einhver ár, svo að kannski er bara fyrirtækið að rétta úr kútnum. Svo að ég vaknaði aðeins í gær eftir að þetta kom í ljós. En dagurinn í dag var hreinasta martröð :S fékk reyndar boð til Englands í hádeginu þegar breti labbaði upp að mér og sagði að ég væri bara mjög falleg og bauð mér til Englands með sér. Hlæ enn að þessu...gaman að fá svona skjall í hádeginu...

Og svo er ég bara að bíða eftir því að minn kæri skili sér heim. Hann er fyrir austan að rífast eitthvað...honum leiðist ekki í vinnunni, það eitt er víst :)

Og bara vinna á morgun og svo er hægt að sofa út, svo lengi sem að Kristín leyfir ( ca.7 ) en samt notalegt að þurfa ekki að vakna eftir einhverri klukku...

c",)

föstudagur, maí 14, 2004

Loksins...

er komin helgi. Var að ljúka vinnudeginum og get varla beðið eftir að komast heim. Stefnir í total barnleysi sem er langþráð pása þrátt fyrir að þau séu nú yndisleg. Það er bara svo gott að sofa út þegar maður er í fríi ;)

Bíður eftir mér ískaldur corona heima í ísskáp, gerist ekki betra...

góða helgi

c",)

Og...

ég er stolt af Óla grís, hann þarf ekkert að fara og horfa á eitthvað bryllup í danaveldi. Getur bara horft á herlegheitin í imbanum eins og við hin.

Hann lætur Dabba vonandi finna fyrir því næstu daga, svona fyrir hönd okkar flestra ;)Kominn tími til að einhver fari að setja stólinn fyrir dyrnar hjá þessum veruleikafirrta manni...

c",)

TGIF...

þarf að segja meira ?

Algjörlega guðdómlegt að það sé að koma helgi, stefnir reyndar í mikla neyslu á lingói en ég lifi þetta af. Bjórkvöld í kveld og svo náttla júróvisjón á morgun, engin leið að þrauka það bláedrú.

Og...ég vann mér inn snickers í gær. Kláraði fyrstu peysuna á listanum og hún er bara æðisleg. Er að spá í að ramma hana inn, er svo stolt af sjálfri mér ;)

Jæja, best að fara að vinna fyrir saltinu í grautinn...

c",)

fimmtudagur, maí 13, 2004

Loksins...

tókst mér að fá mér nýtt lúkk á bloggið mitt...þrefalt húrra fyrir mér ;)

Annars allt gott að frétta af mér og mínum, nenni engan veginn að vinna þessa dagana og langar bara að vera heima við og prjóna !! Er komin með system, fæ ekki að byrja á neinu fyrr en ég klára prjónið sem ég er með hálfklárað út um alla íbúð. Í hvert sinn sem ég klára eitthvað þá fær míns húkkulaði í staðinn. Þetta er sko hvatning í lagi því að ég er komin vel á veg með peysu sem ég átti hvað mest eftir að gera við. Svo að hinar verða ekkert mál ;)

Er líka búin að vera svo dugleg í ræktinni að ég má alveg við því að fá mér eitt og eitt húkkulaði. Tók eftir því í gær að bakið á mér er orðið þvílíkur massi :S verð aðeins að slaka á þar. En þetta er bara svo gott / vont ;)

Svo er náttla júróhelgi framundan. Glæsileg þýðing á laginu okkar kom í fréttablaðinu í morgun og ef ég er í pikkstuði þá fýkur það kannski hingað inn. Annars hlæ ég endalaust að laginu frá Bosníu, það er svona á sama kaliber og textarnir eftir Leoncie. " I'm late, I'm straight, I'm losing my weight...at the disco ( og tilheyrandi stunur með ) "
Þetta verður æðislegt, gaman að fylgjast með svona evrópsku rusli af bestu gerð...

c",)

þriðjudagur, maí 04, 2004

Jæja...

þá gefst smá stund milli stríða...ef svo má að orði komast ;)

Helgin var svoooooooooo ljúf, held að við höfum bara sofið meira og minna. Leigðum Nemo fyrir Kristínu og þá þagði hún í nokkra klukkutíma þegar hún spilaði aftur og aftur. Við skriðum bara upp í á meðan og steinsofnuðum, algjörar purkur...
Vorum með aðeins meiri rænu á sunnudeginum, þ.e. ég og Ragnheiður. Skelltum okkur í hringluna að sjá hvort að það væri hægt að versla eitthvað. Sem var ekki hægt því að við neitum að vera bleikar og bláar í sumar :S Enduðum með að fara í IKEA og þar er nú alltaf hægt að kaupa eitthvað. Múhahahaha...á meðan að á þessu stóð var minn kæri heima við og tók til og allt...algjörlega yndislegur.

Svo er bara enn ein vinnuvikan byrjuð. Fengum að vita að Kári karlinn er eitthvað aðeins að létta pyngjuna hjá sér, þ.e. það er von á einhverjum launahækkunum ( ef það má þá kalla þær því nafni því að þetta er eitthvað mjög svo lítið og nánasarlegt... ) Það kemur í ljós seinna í vikunni hvað úr verður, krossum fingur og vonum það besta.

Byrjuð aftur í ræktinni eftir smá pásu vegna verkja. Var orðin mjög slæm á tímabili og grenjaði af sársauka á kvöldin. En ég er búin að heita sjálfri mér að fara ekki aftur í aðgerðina eins og síðasta sumar...ekki fyrr en ég nauðsynlega neyðist til :S Er þokkalega góð og ekkert smá ánægð að vera komin út rétt rúmlega 6 á morgnana. Er hins vegar engin selskapsmanneskja þegar líður á kvöldið en það er nú í læ, bara skríða snemma upp í góða rúmið okkar ;)

Svo er bara að þrauka þetta...ógeðslega kalt úti og mig langar bara undir sæng að prjóna eða lesa. Það er ekkert eins og það sé að koma sumar heldur eins og það sé að koma vetur...svona síðhaustveður :S eugh...ég vil fá hita í kroppinn og bæta við freknum...það gerist nú vonandi fljótlega.

c",)

föstudagur, apríl 30, 2004

ómægod...

Joaquin Cortez er kynþokkinn gangandi. Er enn að ná mér eftir gærkvöldið, hann var æðislegur. Hann vissi nákvæmlega hvað hann var að gera, kunni á hverja einustu konu þarna inni því að honum dugði að ganga um sviðið og glotta og það ærðist allt pleisið. Reyndar minntu öskrin í fyrstu eins og á eitthvað strippsjó því að hann mátti ekki depla auga og þá gargaði liðið. Þetta var frekar fyndið en svo þegar á leið naut maður þess í ræmur að sitja þarna undir kynþokkanum, svitanum og ótrúlega fallegu brosi. Takk fyrir mig :)

Þannig að öðrum menningarviðburðinum er lokið í þessari viku. Sinfónían tekur svo við í kveld eftir að ég hef nálgast mína innri ljósku með hjálp Alla. Það hittir nú alltaf þannig á að þegar ég er búin að plana eitthvað þá er tjilltæm í vinnunni. Glatað því að það er bara á hálfs árs fresti. Ég mæti bara næst, ekki málið.

Svo bara alveg að koma helgi, meira tjill og eitthvað stúss með minni kæru hobbýhóru :) hlakkar bara til að geta kúrt mér í morgunsárið og þurfa ekki að vakna við vekjaraklukku, bara Kristínu sem segir mér í sífellu að það sé kominn dagur :S hún er alveg búin að gleyma því hvað það er gott að sofa út...

c",)

fimmtudagur, apríl 29, 2004

Jæja...

er búin að slást fyrir sumarbústað í sumar. Endaði með Húsafell, sísti kosturinn en góð sundlaug á staðnum. Vonandi að veðrið verði sæmilegt á þessum tíma þó að það sé ekki nokkur leið að segja til um það. Það kemur bara í ljós. En alla veganna er þá komið eitthvað skipulag á sumarfríið...jibbí jei. Verður ekki stefnulaus vitleysa, né eytt í einhverjar liðþófaaðgerðir !! nóveihósei

Er ekki eins flökurt og mér var hérna fyrir hádegi en samt ekkert alveg með fúllefem heilsu :S sem betur fer er stutt í helgina, klippingu og annað slíkt dekur :) eitthvað til að hlakka til...

Og ekki má gleyma því að ég og hobbýhóran mín ætlum í eitthvað búðarölt um helgina...stefnir í ljúfa helgi ;)

c",)

Eugh...

er með æluna í hálsinum og langar bara heim undir sæng...
Skil ekki hvað ég er eitthvað slöpp þessa dagana, er að sofa næstum því allan sólarhringinn og það dugar ekki til. Verð að fara að fá sól og yl í kroppinn...

:S

miðvikudagur, apríl 28, 2004

Þá loksins...

kemst ég að hérna í tölvunni heima hjá mér. Hef ekkert getað blammerast í vinnunni, nóg að gera þar ;)

Ég er að fara á Joaquin á morgun, liggaliggalá ;) Verð alveg rosalega menningarleg í þessari viku því að svo er ég að fara á sinfóníutónleika á föstudaginn...eftir að Alli hefur fengið að hressa upp á ljóskuna mína. Ég er komin með alveg hreint hroðaleg skil eftir aðeins 2 mánuði :S frekar leiðinlegt að horfa upp á...

Annars lítið að frétta, lífið bara same old, same old. Er ekkert orkumeiri eftir því sem líður á vikuna. Veit ekki alveg hvað er í gangi en þetta hlýtur að fara að koma, með fleiri kaffi og tebollum :)

c",)

mánudagur, apríl 26, 2004

M M M M M...

Var að fá miða á dillibossann Joaquin Cortes, fann mér samherja til að fara með. Bæði mér og Nönnu langaði að fara en mökunum ekki svo að við bara skellum okkur 2 og skemmtum okkur örugglega vel. Maðurinn er nú ekkert lítið til að horfa á... (sigh )
Fengum miðana líka á góðum prís sem skemmir ekki fyrir ;)



Olé !!!

c",)

Nú...

langar mig bara heim að sofa :S helgin er sko aldeilis að segja til sín og eftir 3 tebolla í morgunsárið er ég engu meira vöknuð en klukkan 2 í nótt...

zzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzz...

sunnudagur, apríl 25, 2004

Ji dúdda mía...

hvað ég er dugleg að droppa hérna við ;)

Hef svo sem afsökun. Ég hef engan aðgang að tölvunni hérna heima við og er löngu hætt að blogga á kostnað Kára. Hér er slegist í bak og fyrir daginn út og inn í missukkmiklum slagsmálaleikjum. Þorvarður lærir svo fremi sem minn kæri sýnir honum hvernig á að fara að. Sem betur fer er hægt að taka út blóðsletturnar og mesta ógeðið svo að þarna er alla veganna kominn grundvöllur fyrir heimanámi hjá Þorvarði, þ.e. hægt að múta honum með tölvubanni ef hann stendur ekki sína plikt :)

Vikan var náttla í styttra lagi og vinnulega séð fór hún í einhverja fundi og fyrirlestra, inn á milli blóðsúthellinga og litninga. Við hjúin ákváðum svo að taka okkur frí á föstudeginum til að fá svona langa helgi og í raun líður mér núna eins og ég hafi verið í vikufríi...luvlý ;) Ætluðum reyndar að nýta daginn í að skipta um bíl en sú saga er svo leiðinleg og löng að það hálfa væri nóg og engin ástæða til að rekja hana hér. Get í stuttu máli sagt að ég sé komin með nóg af bílasölum og fer að draga minn kæra í IKEA og gardínubúðir ef þetta fer ekki að ganga eins og við viljum auðvitað.

Komin heim eftir sumarbústaðaferð = sukkferð á Laugarvatn...eða þar í grennd. Er algjörlega sannfærð um að sumarið sé ekki komið þrátt fyrir að almanakið sé með einhvern derring þar um. Við sem vorum í sveitinni sátum inni í rigningu og roki þar sem ekki einu sinni hundi var út sigandi. En þetta var nú samt svo ljúft. Ég fór sem sagt á föstudeginum með mágkonu minni svo við vorum komnar með gott forskot á sæluna þegar restin kom á laugardeginum. Þar kom minn kæri með vini sínum og mín uppáhaldshobbýhóra :) eða eðalvinkona eins og hún ætti frekar að kallast, Ragnheiður blessunin. ( NB. hún heitir núna hobbýhóran mín í símanum mínum, þeir sem hafa séð okkur saman skilja þetta vel...þið hin - greyin ( múhahahahahaha.... ) )
Þeim tókst ekkert að koma með góða veðrið með sér svo við sátum bara fleiri inni við eftir að þau komu. Sendum strákana út að grilla, sem var mjög kómískt að horfa upp á. Þeir taka sér aldrei grillspaða í hönd...sem betur fer kannski :) alla veganna endaði þetta vel, við átum svín og lítið lamb og drukkum öl með. Þegar strákarnir voru orðnir kippí skelltum við skvísurnar okkur í pottinn með rauðvínsbeljuna og höfðum það svo notalegt. Alveg þangað til að þeir birtust og spurðu hvort þeir mættu fara á sprellanum oní. Þá vorum við ekki lengi að fara inn...og halda áfram sumblinu þar. Seint og um síðir skriðum við svo upp í ból, sátt og sæl. Nema hvað að beddinn var ekki sá besti sem að við höfum lagst upp í. Ekkert af okkur. En við létum okkur hafa það, vitandi að daginn eftir færum við heim í góða, nýja rúmið okkar :) Alla veganna við tvö...

Svo tekur bara vinnuvikan við, eiginlega sú fyrsta heila í apríl. Og mánuðurinn að verða búinn og þá tekur við nýtt tímabil í sumarfrístökum svo að ég get hætt að taka frí fyrirfram. Skulda sem betur fer ekki mikið svo ég verð ekkert í svo djúpum hægðum þetta sumarið.
MMMMMMM sumarið, ég og mágkona mín erum farnar að skipuleggja fríið fyrir okkur 2 og þau sem vilja fljóta með. Hvað úr verður kemur í ljós...en það verður vonandi eitthvað sem færir yl í kroppinn :) í það minnsta heitur pottur...

c",)

mánudagur, apríl 12, 2004

Úffffffffffffff....

hér er öllum illt í maganum og enginn treystir sér í að klára leifarnar af eggjunum. Börnin liggja hér um alla íbúð og halda utan um magann á sér og heita því á fimm mínútna fresti að þau ætli aldrei aftur að borða súkkulaði. Yeah right, segi ég nú bara...á alveg eftir að sjá það standast eftir nokkra daga þegar þessi páskaáthátíð er minningin ein...

Ég held að ég geti sagt og skrifað að ég hafi aldrei fyrr né síðar verið eins löt eins og núna um páskana og afsökunin um að rúmið okkar sé nú tiltölulega glænýtt er ekki lengur brúkleg. Ég kláraði meira að segja bók !!! ég ?!?!?! sem hef ekki getað lesið neitt almennilegt síðan ég var í líffræðináminu með letrið á enninu eftir að hafa sofnað yfir bókunum einu sinni sem oftar :) Ég er ekki lítið stolt af mér. En ég ætla sko aldeilis ekki að borða meira í nánustu framtíð nema gras með feta í vinnunni. Ég ætla að taka mig á svona eins og flest allir eftir þessar átveislur síðustu daga. Og hana nú ;) Var í gær í kalkúnaveislu ala tengdó og það var svo ljúft...góður endir á veislunni.

Svo tekur bara vinnan við á morgun. Jibbí jei ( funduð þið fyrir einhverjum innilegheitum í þessum orðum mínum ??? )
Það verður ágætt, að fá smá rútínu á lífið eftir þetta allt saman. Reyndar hið besta mál að vinnuvikan er í styttra lagi sem og næsta. Apríl er yndislegur mánuður, frí á eftir fríi og fáar heilar vinnuvikur. Þarf að fara að finna til stuttbuxur á börnin svo þau geti fagnað fyrsta sumardegi með stæl, með blátt nef og blöðru í hönd. Ætli það væri ekki nær að setja þau í kraftgallana og lopahúfur á hausinn í staðinn fyrir derhúfurnar. Alltaf hægt að hlægja að því að það sé haldið upp á sumarkomuna svona snemma þegar það snjóar oftast í heilan og jafnvel hálfan mánuð í viðbót. Íslensk jákvæðni, ekkert annað ;)

jæja, er farin að narta í gras með nagsvíninu :)

c",)

laugardagur, apríl 10, 2004

Yes...

það er ekki einu sinni liðin vika síðan síðast...mér fer fram ;)

Það er sko margt búið að gerast síðan síðast. Við erum búin að kaupa okkur nýtt rúm !!!!!! Getið rétt ímyndað ykkur hvað við erum ánægð. Nema hvað að ég sef svo vel að um klukkan 7 er ég útsofin :S en þurfti alveg 24 tíma svefn hérna áður til að ná sams konar svefni. Þetta er ekkert vandamál svona á virkum degi en eins og núna þegar við erum í fríi er ég að rumska um 7 !!!!!! ekkert sérlega glöð með það. Ég reyni og reyni að pína mig til að hafa augun lokuð áfram og stundum gengur það. En því fylgir líka það að mig dreymir bölvaða vitleysu ef mér tekst að sofna aftur. Svo gengur Kristín um gólf og segir að það sé nú alveg kominn dagur fyrir utan gluggann svo að kannski er best að ég fari bara á lappir um 7, sama hvaða dagur það er :S

Svo eru náttla að koma páskar :) jibbí jei. Okkar bíða nokkur eggin upp í skáp því að enginn má vera útundan. Ég vildi sko ekki deila eggi með mínum kæra því að hann er svo fljótur að borða. Sá það í anda að ég færi að slást við hann um eina kúlu og helminginn af fætinum. Svo að ég fékk mitt eigið og það er svo stórt að það endist mér örugglega allt árið. Það er auðvitað bara prinsipp að fá sitt eigið egg á páskunum og hana nú !!

Jæja, best að hætta þessu pikki og fara að hafa sig til fyrir daginn.

Gleðilega páska öll sömul, hvar sem þið eruð :)

c",)

sunnudagur, apríl 04, 2004

Já já...

það er naumast að það er langt síðan síðast.

Kannski má kenna bömmernum yfir því að vera komin á fertugsaldurinn eða vera orðin hálfsextug um þessa leti........ en ég er ekki haldin bömmer yfir því svo að ég hef hreinlega, kannski, ef til vill...verið LÖT og haft nóg annað að gera. En það er ekki eins og ekkert hafi gerst síðan síðast.


Ég er orðin þrítug. Dagurinn var yndislegur í alla staði og ég er svo sátt við þetta ólíkt mörgum öðrum sem að hreinlega vorkenndu mér :S Við fórum út að borða með stóðið og hétum því að gera slíkt aldrei nokkurn tímann aftur. Það var slegist aftur í allan tímann, tuðað og vælt. Mjög svo skemmtilegt. En við þraukuðum þetta og vorum södd og sæl þegar við skriðum heim. Ég fékk meira að segja pakka þennan dag, sléttujárn...eitthvað sem að mig hafði svo lengi langað í. Minn kæri er nú svo yndislegur... sigh
Ragnheiður eðalskvísa afrekaði líka að verða árinu eldri degi á undan mér svo við höldumst í hendur við þetta eins og svo margt annað ;)
Svo hélt ég nú upp á þennan stóráfanga í lífinu helgina á eftir. Bakaði eins og brjálæðingur og minn kæri hlær enn að því að ofninn hafi verið rauðglóandi í 3 sólarhringa...sem hann var því að það var nóg að gera. Ég komst að leið að því að það verður ekkert mál að halda fermingarveislu eftir 2 ár ( og 3 ár ) ef að börnin mín kjósa að fara þann veginn í lífinu. Míns er nú svo dugleg í eldhúsinu...bah !!!
Alla veganna þá var fullt hús af gestum allan daginn og bara frábær dagur í alla staði. Ég hélt að ég hefði verið of dugleg en svo var nú aldeilis ekki. Kökurnar og meðlætið kláraðist næstum...svo að ég var nú sátt. Ég fékk svo mikið af pökkum að ég hef aldrei séð annað eins né upplifað.

Spegill ( bráðnauðsynlegur og þurfti hann aldeilis til að fá að líta fegurð mína og það í fullri líkamsstærð... )
Desertskálar frá tengdó...sem meira að segja passa við fínu glösin mín = mjög sátt :)
fallegar rósir...
ostadiska...komnir í brúk ;)
geisladiskinn með Todmobile og sinfó, algjörlega brilljant...og frosk með svona dinglumdangli sem ég hengdi á útidyrahurðina
leðurtösku með fullt af kremum og ilmvatnsprufum, hef ekki lyktað svona vel í háa herrans tíð...múhaaaaaaaaa
pening...sem kom sér vel nokkrum dögum síðar þegar ég flúði land með mínum kæra...
æðislega kertastjaka frá æskuvinkonu minni...sem hún gerði sjálf !!!
og þá held ég að ég sé búin að telja allt upp. Ef að ég hef gleymt einhverju er það minni mínu að kenna en ekki því að það hafi ekki skipt mig máli :)

Að loknu afmælinu tóku við erfiðir vinnudagar því að ég var alveg að fara að komast í frí...sem var mjög svo kærkomin tilbreyting...
Fimmtudaginn 25.mars héldum við til Póllands, ég og minn kæri. Renndum í leifsstöð í rólegheitum og mættum snemma til að fá almennileg sæti. Það gekk nú ekki eftir því að í sardínudósina ( flugvélina ) hafði elsta og minnsta fólkinu verið komið fyrir við neyðarútgangana...í mesta fótarýminu. Svo að við enduðum á að sitja í níðþröngum sætum með hnén í nefinu í þá 4 tíma sem að flugið tók til Kraká. Þegar við lentum tók ekkert skárra við því að það þurfti að fara í gegnum passann hjá öllum farþegunum. Hljómar ekkert svo illa nema hvað að við vorum vél númer 2 til að mæta á svæðið og það var einn maður að taka á móti 400 manns. Svo að skiljanlega þá tók þetta smá tíma. Þegar það kom loksins að mér þá skoðaði hann passann minn blaðsíðu fyrir blaðsíðu eins og þetta væri ævisagan mín. Svo pikkaði hann nafnið mitt inn en kunni nú ekki á lyklaborðið svo að þetta tók alveg korter. Að lokum slapp ég í gegn með leyfi hans til að dvelja í Póllandi í nokkra daga. Taskan mín var búin að renna alveg 5 sinnum í gegn frammi og var örugglega farin að örvænta um eiganda sinn ( þ.e. ef að fína taskan mín gæti það ). Eftir að minn kæri var líka sloppinn í gegn drifum við okkur að endurheimta eigur okkar og náðum í næsta taxa. Leiðin að hótelinu var mjög undarleg. Þetta var um kvöld og þarna strax komst ég að því að pólverjar eru ekkert að eyða í veglýsingu. Og fólkið ekki heldur því að klukkan 9 þá var eiginlega hvergi ljós að sjá. Það tók einhvern hálftíma að komast inn á hótel en leiðin var ekki nema svona 14 km. Ástæðan fyrir því að þetta tók sinn tíma var sú að það er þrætt í gegnum öll krummaskuð á leiðinni. Vegurinn liggur í gegnum alla bæi og húsaþyrpingar svo að hámarkshraðinn var sums staðar 20km/klst.
Hótelið blasti loks við okkur vel upplýst og glæsilegt. Við tékkuðum okkur inn undir drunandi partímúsík ( einhverjir plebbar með partí á barnum ). Okkur var afhent lyklarnir að herbergi með 2 rúmum, aðskildum í þokkabót. Við vorum ekki lengi að skipta út því að við vorum nú í fríi...come on ;) Herbergið okkar var draumi líkast. Algjörlega æðislegt og ég veit alveg hvernig framtíðarherbergið mitt verður...copy, paste. Við vorum á fyrstu hæð, rétt fyrir ofan allan skarkalann niðri en urðum hans aldrei var. Við sjænuðum okkur aðeins til og skelltum okkur svo út að finna eitthvað að borða. Nota bene...kuldinn beit í lærin þegar við stigum út svo að það vorið var ekkert að segja til sín. Alla veganna, eftir að hafa labbað niður í miðbæ þá fundum við æðislegan mexikóskan veitingastað sem heitir Azteka. Ef að einhver er að fara til Kraká þá er þetta besti staðurinn þar að okkar mati. Við fengum okkur corona og frosnar margarítur og gott að eta. Kíktum svo aðeins út á lífið og komumst að því að í Kraká stendur það alveg undir morgunn. Og verðlagið spillir ekki fyrir því að 2faldur á barnum kostaði okkur 152 krónur !! Segi það og skrifa. 152 krónur. Hægt að fara á suddadjamm fyrir 1500 kall ;) Við stöldruðum ekkert lengi við heldur drifum okkur inn á hótel.
Föstudagurinn var alveg frír við allt skipulag. Við röltum um bæinn og reyndum hvað best að forðast hina íslendingana sem að flugu með okkur út. Þau létu flestöll plata sig í sight seeing um miðbæinn með íslensku gætunum ( =geitunum ). Það var þá ekkert erfitt að forðast þau því að þau voru svona eins og börn í leikskóla sem halda í band þegar þau fara niður í bæ. Og fremstur var geitin með íslenska fánann og veifaði honum í gríð og erg og tuðaði eitthvað sem enginn heyrði. Það var ískalt og blautt og þessi grey ( vonandi hafa þau lært af þessu ) voru hundblaut og aumkunnarverð. Á meðan nutum við alls þess sem að miðbærinn hafði upp á að bjóða og höfðum það svo gott. Fjarri hinum íslendingunum. Fórum svo út að borða um kvöldið og höfðum það notalegt. Eða alla veganna reyndum það. Mig minnir að við höfum farið á ítalskan stað !?!?! sem að bauð upp á eldbakaðar pizzur. Okkur hlakkaði mikið til en þegar þær komu þá brostum við ekki lengur. Minn kæri fékk sér pizzu sem á var dreift gulrótum, gulum og grænum baunum og einhverju kjötmeti sem að skoppaði af pizzunni við fyrsta tækifæri. Ég fékk mér pizzu með einhverri reyktri skinku og það átti að vera brokkolí á henni en í staðinn voru þar ætiþistlar. Sem að ég er með netta fóbíu fyrir. Alla veganna eftir mikið puð og plokkerí tókst okkur að klára næstum og forðuðum okkur út. Kíktum á skoskan pöbb þar sem við gátum talað saman heillengi og héldum barnum uppi því að við vorum þau einu þarna inni sem ekki voru að drekka hálfan líter af bjór sem kostaði 100 kall. Við vorum í dýrari drykkjum sem kostuðu alveg 200 kall.
Laugardagurinn var mjög skemmtilegur. Við fórum snemma á fætur og út í bæ að bílífast fyrir hádegi. Eftir hádegi var svo farið í saltnámur í nágrenni Kraká. Mjög forvitnilegur staður. Við sáum bara brotabrot af honum en leið okkar lá einhverja 200 metra niður í jörðina og við sáum alls konar hvelfingar sem að menn höfðu meitlað út í gegnum tíðina, nokkrar aldir. Sáum meðal annars 3 kapellur en greyin voru mjög trúuð á sínum tíma og fannst nauðsynlegt að fleygja sér á skeljarnar af og til. Þetta var alveg ótrúlegt hvað þeir afrekuðu með höndunum einum saman. Þarna eru meðal annars einhverjir full size fótboltavellir lengra niðri í jörðinni. Þetta var mikið puð niður stiga en sem betur fer tókum við lyftuna upp. Ferðin tók aðeins lengri tíma því að þar sem íslendingar eru þá er alltaf eitthvað vesen. Þarna voru einstaklingar sem að fannst svo sniðugt að skoða aðeins meira en hinir og létu svo bíða eftir sér lon og don þegar allir vildu fara að komast aftur á hótelin. Alla veganna þá tókst okkur það að lokum. Og fórum aftur út að borða á Azteka, vorum búin að finna góðan mat og nenntum ekki að verða aftur fyrir vonbrigðum !!
Á sunnudeginum fórum við svo til Auschwitch. Vona að mér hafi tekist að stafa þetta rétt. Mér leið undarlega allan tímann á leiðinni þangað og þegar við komum svo loksins eftir að hafa þrætt öll krummaskuðin á leiðinni þá var þetta mjög þrúandi. Óhugnalegt að vera á þessum stað svo ekki sé sterkara tekið til orða. Við vorum með alveg yndislega geit þarna sem að gerði í því að koma óhugnaðinum vel að og augljóst að hann hafði átt ættingja sem runnu þarna í gegn. Við skoðuðum húsakostinn sem að fólkinu var troðið inn í og svona til að byrja með þá voru þetta bara tölur, ógeðslega stórar tölur af fólki sem var myrt og drepið eins og sláturfé. Þetta náði ekkert til mín fyrr en við fórum að skoða persónulegu hlutina. Ferðatöskurnar sem merktar voru eigendum, fæðingarári og komudegi til A. Burstarnir, skórnir, kopparnir...allt í tugþúsundatali. Þarna var líka hólf með 2 tonnum af mannshári. Sem samsvarar 50.000 manns. Viðurstyggilegt og vitni um þá ómennsku sem þarna gekk á. Þegar okkur var svo sýnt klæði fólksins og litlu barnafötin og dótið...þá brotnaði ég niður og hágrét. Þarna á þessari stundu þá sló þetta mig og það allsvakalega. Ég dró mig bara til hlés og grét og slóst svo aftur í för með fólkinu eftir að ég var búin að jafna mig. Þetta var ólýsanleg ferð og eftir á er ég fegin að hafa farið því að þetta er eitthvað sem að maður gleymir aldrei og eitthvað sem að við megum ekkert gleyma að hafi átt sér stað. Óhugnalegt að ganga þarna um og jörðin var svona brúnleit...hreinlega aska frá fyrri tíð :S
Um kvöldið tókum við því svo bara rólega og pökkuðum dótinu okkar svo við værum tilbúin um morguninn að leggja eldsnemma af stað heim.
Við höfðum það mission að vera komin út á flugvöll á undan öllum rútunum með hinum bjánunum og lögðum því snemma af stað og vonuðumst eftir góðum sætum. Allt kom fyrir ekki, við vorum með þeim fyrstu út á völl en það var frjálst sætaval í vélinni heim = fyrstur kemur, fyrstur fær. Auðvitað þurfti að stimpla okkur út úr landinu og blessunin spurði mig hvort að ég héti Hafnarfjörður. Eins og við værum á stóru ættarmóti, afkomendur Hafnarfjarðar, Reykjavíkur og Kópavogs ???? Ég reyndi að halda andlitinu og hlægja ekki að henni því að hún hefði þá bara skotið mig á staðnum eða eitthvað. Ég komst í gegn eftir að hún hafði pikkað inn nafnið mitt með tveimur fingrum og settist niður. Liðið fór að skríða í gegn á sniglahraða og heimskan skein úr hverju andlitinu á eftir öðru, að okkur fannst. Það var meira að segja kona þarna sem að reyndi að koma hnífi í handfarangurinum sínum...sem var á stærð við sveðju !!! ekki alveg með fúlle femm...
Við slógumst fyrir sætunum okkar en sátum samt ekkert hlið við hlið. Þetta var langt og leiðinlegt flug þar sem var boðið upp á soðið kjöt :S svona eins og á leiðinni út. God, hvað það var ljúft að komast heim, í kalda vatnið og hreina loftið.
Ferðin var æðisleg í alla staði, lífsreynsla svo ekki sé meira sagt. Takk elsku kæri minn ( smjúts ) ;)
Svo tók við vinnuvika sem var bara 4 dagar, guði sé lof. Erfiðir en svo alltaf stutt í helgina.
Í gær fór ég svo með Ragnheiði minni að eyða peningum og við stóðum okkur vel. Keyptum helling af stelpudóti og í heildina fullkominn dagur að okkar mati. Ég eldaði svo ofan í okkur um kvöldið himneskan kjúllarétt ( fer bráðum að fá fiður, geri mér alveg grein fyrir því ) og við fengum okkur aðeins í tánna. Minn kæri og vinur hans fóru svo niður í bæ á skrall og ég lagðist sátt og sæl í bólið og er alveg eldhress núna enda þarf ég þess eftir að hafa setið hérna og slegið inn ævisögu mína. God, hvað þetta er orðið langt :S lofa því að blogga aldrei svona mikið aftur ;) hehehe

þangað til næst, hagið ykkur ;)

c",)

laugardagur, mars 13, 2004

Ammoníakeitrun...

sit hérna og þjáist, kettirnir mínir eru orðnir ansi miklir svona lyktarlega séð. Við göngum um og erum að reyna að finna uppsprettu eitrunarinnar...og ekkert gengur :S kettir eru ekkert sérstaklega in þessa dagana...

Skellti mér með Ragnheiði og systur hennar á femin kvöld á fimmtudaginn. Aðallega vegna vinningana og við komum ekki tómhentar heim. Við vissum svo sem fyrir víst að Ragnheiður myndi vinna eitthvað sem hún og gerði. Í skaut hennar féll taska með brúnkumeðölum frá Clarins...frekar kúl ;)
Ég og Þórhildur fengum svo dvd disk með jógaæfingum, heilum 2 og hálfum tímum. Svo að ég er búin að ákveða að ná niður á tærnar á mér fyrir jól, ekki gott markmið ?

Við skötuhjúin fórum svo á árshátíð ÍE í gærkveldi og skemmtum okkur ágætlega. Forstjórinn var náttla eins dónalegur og venjulega, breytti ekkert út af. Við sem erum vön sáum alveg björtu punktana í ræðunni hjá honum. Það átti að vera góður matur en svo gott var það nú ekki... :S forrétturinn var með einhverju undarlegu bragði sem að okkur líkaði ekki, það var lifrarbragð af hreindýrasteikinni og í raun það eina góða við aðalréttinn voru kartöflurnar. Eftirrétturinn rann best niður, ostakaka af bestu gerð ;) Við vorum svo komin heim á skynsamlegum tíma, gúffuðum í okkur einhverju sem ég man ekki lengur hvað var og komum þar af leiðandi í veg fyrir þynnkuna í morgun :)

Jæja, þoli ekki lengur við í þessari lykt :S

c",)

miðvikudagur, mars 10, 2004

hehehe...

er sem sagt farin að blogga með vikumillibili...gott mál, gott mál. Það er alla veganna betra en að það líði mánuður á milli ;)

Hvað hefur nú á daga mína drifið síðan síðast ? eeeeeeeeeeeeeee...er að reyna að hugsa...

Fimmtudagur...vinna, sofa snemma eins og venjulega

Föstudagur...enn meiri vinna, sofa aðeins seinna en þó ekki neitt voðalega seint

Auðvitað eyddum við laugardeginum í reynsluakstur. Prófuðum Jeep Grand Cherokee, með öllum þeim dillum og dúllum sem þurfa að vera til staðar. Nema hvað að það vantaði geislaspilarann. MIKILL ÓKOSTUR...og svo heyrðum við bílinn japla á bensíninu eins og það væri rjómahnallþóra af bestu gerð. Ekki sniðugur kostur...og þó ?? allt í skoðun.
Prófuðum líka Volvo, eitthvað jarídarí voða flottan. Vorum ekkert hrifnari af Volvo eftir það og erum þar með búin að minnka kostina enn meira. Þetta er allt í vinnslu, verðum væntanlega búin að endurnýja farkost heimilisins fyrir næstu áramót ;)
Það var líka svo gott veður á laugardaginn, en þó svo langt síðan það var að það er eins og það hafi rignt eldi og brennisteini í nokkra mánuði. Við komumst í svona nettan vorfíling og sólbrillurnar voru meira að segja dregnar fram, notkun í stutta stund en vonandi eykst hún í nánustu framtíð ( ekki í þessari viku...svo eitt er víst :S )

Á sunnudag var sem sagt farið að rigna, komin ógeðsleg rigning og þvílíkt rok. Vorum bara innandyra að dúllast eitthvað, mest lítið svona eins og sunnudagar = hvíldardagar eiga að vera.

Mánudagur, enn einn annasamur dagur í vinnunni. Skelltum okkur í bíó um kveldið á asskoti góða ræmu, Along Came Polly. Hún var sýnd í Laugarásbíói, C sal :S svo að það var þröngt á þingi. Við vorum mætt snemma svo að við náðum góðum sætum en eftir því sem nær dró að myndinni þrengdist að okkur og ég endaði með sitt hvora manneskjuna í fanginu :S Það var uppselt í salinn, alveg hreint ótrúlegt hvað allir vilja fara í bíó á sama tíma og við. Enda var svo sem lítið hægt að gera úti við í ógó veðrinu. Ég er enn með harðsperrur í maganum eftir að hafa grátið í 2 tíma af gleði og skemmtun. Mæli með henni við hvern sem ég hitti, ætti að komast á prósentudíl við samma gamla.

Þriðjudagur, enn meiri vinna. Fór reyndar út að borða í hádeginu og er enn södd :S við vorum að kveðja eina sem er að hætta í lok vikunnar og skelltum okkur á nýjan stað sem heitir Rossopomodoro ( rauður tómatur ). Ítalskur staður, fínn matur en kannski doldið dýr. Fékk mér pizzu sem átti að vera voða sterk, var það eftir að ég var búin að dekka hana með hvítlauksolíu og kryddi. Duttum svo aðeins í það eftir mat, þ.e. súkkulaðifíklarnir fengu fullnægju sína og vel það. Fengum okkur volga súkkulaðiköku með vanillukremi og ís. Ársskammtur af súkkulaði í ekki stærri köku, það vall meira að segja út úr henni þegar við byrjðuðum að borða hana... ljúft :)
Lét svo undan hópþrýsting og skráði mig á árshátíð næsta föstudag. Hlakka bara til, lélég mæting og einhver metnaður í liðinu að láta þá sem skráðu sig ekki sjá eftir því. Sama er mér, bara ef að maturinn verður góður...
Fór eftir vinnu og fékk mér svona smá skraut til að gera mig enn sætari fyrir föstudaginn...hehehe ;)

Í dag, same old...same old. Það er alveg ótrúlegt hvað vinnan er alltaf mikil, þrátt fyrir að ég vinni eins og mófó alla daga er nóg að gera samt sem áður. Það er nú svo sem í læ, hundleiðinlegt þegar það er ekkert að gera. Ógeðslegur matur í vinnunni í hádeginu, hvað kokkarnir eru að spá veit ég ekki en þetta var sko fullmikiði af því góða. Pasta með jarðarberja og vanillusósu og eitthvað þaðan af verra :S ekki gott, ekki gott...

Svo er bara orðið stutt í næstu helgi og stutt í að ég yfirgefi landið í smátíma...og STUTT í að ég eigi afmæli...ómægod, eins og Kristín kemst að orði á góðum stundum. Á víst að mæta með einhverja hnallþóru í vinnuna á þriðjudaginn, get það svo sem alveg...svona myndarleg eins og ég er...

Jæja, best að fara að þurrka píurnar sem eru komnar með rúsínuputta í baðinu...og kettirnir á leiðinni ofan í með þeim ;)
alltaf fjör hérna...

c",)

miðvikudagur, mars 03, 2004

Sumir...

eru sko heppnari en aðrir. Ein af mínu bestu vinkonum hún Ragnheiður eðalskvísa datt í lukkupottinn um daginn og vann flugmiða fyrir 2 til London í einhverum smessleik sem hún tók þátt í. Í dag var hún svo að segja mér að hún hefði nú dottið í annan lukkupottinn því að saumaklúbburinn hennar var dreginn út í einhverjum leik og þær fá alls konar gjafir og dúllerí... það er alveg ótrúlegt hvað lukkan leikur við suma. Ég er víst bara svona heppin í ástum fyrst að vinningunum rignir ekki yfir mig. Enda er ekki annað hægt að segja þessa dagana.

Minni mitt er svo gloppótt að ég gleymdi að segja frá prufukeyrslum og setuprófunum helgarinnar. Málið er að við erum að reyna að yngja upp blessaðan farkostinn á heimilinu. Þar sem minn kæri er tæpir 2 metrar á hæð þá sagði hann mér í mesta trúnaði að hann gæti nú ekki setið undir stýri í hvaða bíl sem er. En ég, þessi þrjóska stundum...trúði því nú tæplega en fékk aldeilis að eta hattinn minn um helgina. Við vorum búin að finna alveg eins bíl og við erum á um daginn, búin að prufukeyra og vorum nokkuð sátt. Nema hvað að við ákváðum að athuga fleiri kosti. Eftir miklar athuganir á netinu með tilliti til alls konar sérþarfa þá vorum við búin að þrengja hringinn niður í einhverjar 2-3 tegundir af bílum. Og á laugardaginn þá fórum við á rúntinn að tékka á þeim. Nema hvað að ég komst að því að ef að minn kæri ætlar að fá sér annan bíl en þann sem að við erum að keyra á núna þá verður hann annaðhvort að taka vænan bút úr lærbeini sínu og stytta sig allmikið...eða við verðum að aka um með topplúguna opna svo að hann geti stungið hausnum þar út svo hann komist almennilega fyrir. Hvorugur kosturinn er fýsilegur svo að á einum degi þrengdum við hringinn niður í 1 tegund og það er nú ekki slæmt. Nema hvað að það eru ekki margir slíkir í boði. Annaðhvort að hrökkva eða stökkva. Framhald síðar þegar vonandi verður stokkið ;)

Gat ekki annað en hlegið dátt í dag. Vorum látin fylla út könnun í vinnunni sem átti að kanna hug starfsmanna til stjórnenda fyrirtækisins og hve góður starfsandinn er. Ég var ekki lengi að fylla þetta út og skaut að lokum á stjórnendur að þeir ættu nú aðeins að bæta upplýsingaflæði til starfsmanna þegar það væri mögulegt...( same old...same old ) og einnig að það ætti nú að hlusta á okkur svona af og til...það hlýtur að vera einhver ástæða fyrir hagsmunaráði, nema það sé bara til að þagga niður í okkur. Þetta tók ekki langan tíma, ekki mikið í það lagt enda veit ég að það verður ekkert farið eftir þessu að lokum. Annars er vinnan bara ljúf þessa dagana, gott að geta sest niður og notið grassins og fetaostsins sem aldrei fyrr ;)

Nú er minn kæri í flugi í augnablikinu, að skila sér heim frá Færeyjum ( útnára heimsins að hans mati ). Ég var spurð um daginn hvort að það væri verið að refsa honum fyrir eitthvað í fyrra lífi því að þetta er í annað sinn sem að hann heldur þangað. Og hann sér fram á aðra ferð innan mánaðar. Hvað hann hefur eiginlega gert af sér, veit ég ei en alla veganna er hann ekkert sérlega mikið í skýjunum. Þeir geta alla veganna skemmt sér yfir málinu á meðan þeir eru úti, án þess að vera eitthvað sérlega andstyggilegir. Það besta sem að við gerum í vinnunni er að fara á færeyskar heimasíður og gráta aðeins af hlátri...ekki annað hægt. Eins og til dæmis klúbbur fyrir gilda limi, alveg hægt að misskiilja það. En það er sárasaklaust, þú verður einungis að vera meðlimur í klúbbnum. Eða það að panta sér pizzu. Með hænsnaungum og svömpum...þ.e. kjúkling og sveppum. Hljómar ekkert sérlega vel á færeysku ;)

Well, farin undir teppi...ótrúlegt hvað manni kólnar við pikkið.
Læt einn fjúka sem að ég fékk í símann í dag ( og skellihló í Hagkaupum þegar ég las hann... )

" Maður labbaði framhjá 17 ljóskum sem að stóðu fyrir utan Sjallann og spurði...hvað eruð þið eiginlega að gera hérna fyrir utan ??
Tja...svaraði ein, við verðum að vera 18 til að komast inn...

c",)

þriðjudagur, mars 02, 2004

Í kvöld...

er sko tilefni til að kveikja á kertum og prjóna, þvílíkt ógó sem veðrið er þessa stundina og reyndar búið að vera hreinn viðbjóður í allan dag. Hárgreiðslan algjörlega úr skorðum og liggur við að maskarinn fjúki af ;) Verst að aukakíló fjúki ekki líka af í leiðinni...ekki að ég sé að kvarta mikið ;) Er svo rosalega dugleg í ræktinni þessa dagana ;)

Helgin var hin ljúfasta, fengum okkur góðan göngutúr í vorblíðunni, sem þá var, á sunnudeginum. Stuttu eftir að við komum heim kíktu pabbi, Dista og hundurinn Mollý í heimsókn, andstyggðunum til mikillar skelfingar. Sé þá varla ennþá, heyri þá bara mjálma af og til. Þetta var stutt stopp hjá þeim,svona eins og venjulega en svo datt svolítið skondið upp úr Distu þegar þau voru að kveðja. Að ég og minn kæri værum nú óttalegar dúllur. DÚLLUR ???!!! Aldrei fyrr né síðar hef ég verið kölluð dúlla...alla veganna ekki af fjölskyldunni. Við erum enn að hlægja að þessu....dúllurnar ;)

Annars bara enn einn vinnudeginum lokið. Er með netta edikssýrueitrun í vitunum því að ég var að sulla með litninga í allan dag að reyna að koma þeim haganlega fyrir á glerjum svo hægt sé að skoða ormasúpuna (þannig líta þeir út í smásjánni alla veganna ). Það verður sko ekki opnuð rauðkálsdós á mínu heimili næstu mánuðina, takk fyrir !!
Reyndar var boðið upp á rjómatertu í vinnunni í dag svona í tilefni þess að Kári blessaður var ekki staddur á skerinu. Það var nú líka ætlunin að halda upp á ýmsa áfanga með kaloríubombu. Míns hlakkaði voða mikið til að fá eitthvað gott í gogginn, svona tilbreytni við grasið með fetaostinum sem hefur verið á diski mínum undanfarin tæp 5 ár. En það varð nú lítið úr gleðinni þegar ég leit á herlegheitinu frammi í matsal. Í boði var rjómi með bleiku kremi og skopparabotni þarna undir einhvers staðar. Gat ómögulega hugsað mér að fá mér svo að ég fékk mér skyr.is og banana...same old, same old... :S
Sýndi svo mikið hugrekki að loknum edikssýruvinnudeginum og fauk út í bíl...

Jæja, ég er orðin loppin við tölvuna, best að skríða inn í stofu undir teppi og glápa á imbann og prjóna kannski eilítið...svona þegar hitinn er kominn aftur í kroppinn...

þangað til næst, ekki vera utandyra !!!

c",)

laugardagur, febrúar 28, 2004

M M M M M...

hvað það er alltaf ljúft þegar það eru helgar...bara tjill og notalegheit.

Vikan var svona frekar skondin, kattalega séð. Óbermin afrekuðu ýmislegt...mícró lét sig gossa niður af svölunum eitt kveldið og vældi og skældi undir pallinum niðri í garði því að hann var svo hræddur við þessa stóru og ógnvænlegu veröld sem að allt í einu blasti við honum. Reyndar áttu 2 aðkomukettir örugglega sinn þátt í að gera hann svona skelkaðan. Þannig að við eyddum kvöldinu í það að reyna að lokka hann inn með alls konar brögðum, sem gengu misvel. Nota bene, það var 10 stiga frost úti svo að þetta var ekkert sérlega skemmtilegt. Að lokum náðum við honum klukkan hálfeitt um nóttina og skriðum fegin upp í rúm. Nanó var svo fegin að fá bróður sinn aftur að hann tók sig til og þreif hann frá toppi til táar. Kannski vildi hann líka fá smá nasaþef af veröldinni. Eftir þetta er mícró að verða sífellt meir og meira æstur í að komast aftur út. Svo að það þarf að ákveða mjög fljótlega hvort að kvikindin eiga að vera inni- eða útikettir.

Það er nú ekki allt búið. Náttúrulega er þeirra hlutverk á heimilinu að eta, skíta og klóra. En þeir bættu við sig einu hlutverki sem að er ekki það fallegasta sem að við höfum séð til þeirra. Við vorum bara í rólegheitunum ennþá í rúminu á föstudagsmorgun þegar við heyrðum einhver furðuleg hljóð. Minn kæri vatt sér framúr og kíkti fram á klósett og viti menn...þar voru 2 kettir á haus niðri í klósettskálinni að fá sér sopa. Ég trúði ekki mínum eigin augum þegar ég sá þetta en þetta var víst satt. Svo að við höfum ekki klappað þeim síðan þá og alveg spurning hvenær okkur er hætt að gera það.
Þeir eru stórskrýtnir, það er ekki hægt að segja annað...

Annars hefur lífið þessa vikuna snúist um að vinna og sofa, minn kæri hefur reyndar gert fullmikið af því fyrra svo að ég hef varla séð hann í viku. En það stendur allt til bóta ;)

Best að fara að horfa á eitthvað í blessaðum imbanum...og muna að loka klósetinnu :S

þangað til næst...

c",)

mánudagur, febrúar 23, 2004

hehehe...

frétti í gær að beyglan sem að var að hrella okkur á djamminu um síðustu helgi hefði verið böstuð rækilega um helgina og endað í steininum, var víst eitthvað að slá um sig niðri í bæ...greyið ( BAH)

annars bara unnið í dag eins og mofo og lítið staldrað við, nema auðvitað til að fá sér eina bollu. Gott að þessi dagur er bara einu sinni á ári, er búin að fá overdose af rjóma í dag :S

og svo sagði Ragnheiður mér þau gleðitíðindi í dag að henni tókst að vinna 2 miða til London á hnakkaútvarpsstöð Íslands, ekkert smá sátt...hún er líka í potti fyrir ferð til Las Vegas og gerir sér fullkomlega grein fyrir því hvern/hverja hún eigi að taka með sér þangað...auðvitað mig ;)

well...farin undir sæng að lesa, ekkert betra að gera þar sem minn kæri er að elta tuðru í kveld...

c",)

sunnudagur, febrúar 22, 2004

Og...

enn einu sinni líður langt á milli...
enda lífið aldeilis ljúft og ekkert sérlega merkilegt þegar lífið snýst um að vinna, borða og sofa. En þó hefur svona eitt og annað gerst undanfarið...

Míns skellti sér á djamm um síðustu helgi og það var mjög svo skondið. Við buðum Ragnheiði og Önnu í mat og lingó á laugardaginn síðasta ( lingó = alkóhól...eða eðalguðaveigar í sumra augum ). Flýttum okkur sem sagt að borða og svo drukkum við vel og mikið það kvöldið og skunduðum svo niður í bæ seint og um síðir. Minn kæri gafst upp mjög snemma og skildi okkur stelpurnar eftir á djamminu og okkur leiddist ekkert sérlega eftir það. Lentum reyndar í algjörri eðalbeyglu sem að var örugglega á einhverju öðru en lingói því að hún vildi alveg endilega fá að slást við Ragnheiði sem að sló um sig með rauða hárinu og var slétt sama um þessa geit sem að gjammaði fyrir framan hana. Það var mjög skondið að horfa upp á þetta og enn einu sinni sannað að þegar stúlkukindur eru að fá sér lingó eða eitthvað annað sterkara þá kemur verndar-veiði eðlið upp í þeim og það er ekki verandi nálægt þeim :S þetta var eitt það undarlegasta sem að ég hef séð til nokkurrar af mínu kyni... en ein af þessum minningum sem að við getum hlegið að endalaust... BAH !!!!!

Svo hefur heilasellunum fækkað snarlega síðustu viku því að ég mætti einungis einn dag í vinnu en eyddi hinum heima við að sinna sjúklingi. Fór reyndar til tannsa inn á milli og lét kippa einum jaxl úr mér sem var btw á leiðinni út í eyra og ekkert sérlega þægilegur andsk.... sá !! Kristín var illa haldin af kvefi og hita og var svo mikill sjúklingur að ég sat með hana í fanginu meira og minna og er komin með ógeð á Disney fabrikkunni og öllu því sem að hún hefur framleitt síðustu 10 ár. Það hefur allt fengið að rúlla í gegnum vídeótækið sem að hefur verið í gangi nonstop með mismunandi fígúrum að öskra og reyna að tjá sig...en þetta vilja börnin. Ég loka bara inn á meðan þetta gengur á og athuga svo með lífsmörkin í henni nokkru síðar....svona þegar ég hef fengið að setja hana niður.

Okkur var svo boðið í 7 ára afmæli í gær til hans Sindra Freys ( copy/paste af Sissu og Bjarna vinum okkar ) og sátum og fengum okkur sykursjokk í formi alls konar hnallþóra með hinu og þessu. Er enn hálfdösuð eftir átið...en þetta var nú þess virði. Og fengum svo knús og kreist fyrir gjöfina sem að leggst væntanlega inn á sífeitari bankabók sem að hann á...
Svo fórum við í bíó í gærkvöldi og sáum Lost in Translation. Hún fær mín meðmæli...alveg hiklaust. Góðir toppar sem að gera góða mynd betri og svo náttúrulega góðir leikarar sem að geta ekki klikkað. Alla veganna ekki Bill Murray...blessaður ;)

Svo á víst að baka bollur í dag... en ég er nú alvarlega að gæla við að fá aðstoð eðalbakarans á horninu við bollugerðina og ekkert reyna við þetta enn einu sinni. Get hugsað mér að gera allt annað en að eyða deginum í eldhúsinu...enda á ég að vera í stanslausu dekri í dag þar sem að það er konudagurinn. Hehehe...segi það og skrifa. Nema hvað að minn kæri er í augnablikinu að spila og þarf svo aðeins að skreppa í vinnuna. Blessaður...svo að hann verður sko aldeilis að taka fram dekurstuðið í kveld þegar ég fæ athygli hans óskerta ;)
Annars örvænti ég engan veginn þegar lífið er svona ljúft upp á hvern einasta dag...veit ekki hvort að ég myndi finna mun á því að það væri konudagur eður ei...slíkt er dekrið ;)

Well, best að fara að ryksuga upp sílíkonkúlur sem að eru út um alla íbúð...NEI, ég var ekki að fá mér stærri júllur, við vorum að fá okkur svona voðalega sniðugan kattasand í formi áðurnefndra kúla sem að eiga að taka í sig alla lykt. Og þær gera það en eru út um alla íbúð því að þeir skvetta þessu út úr kassanum og leika sér svo að þeim, blessuð nittvittin. Ekkert sérlega þægilegt að stíga á þetta en allt fyrir ammoníakslyktarleysið...og hananú ;)

c",)

mánudagur, febrúar 09, 2004

Jahá...

aldeilis langt síðan síðast...
svo sem lítið gerst, bara vinna og sofa og lítið annað við að vera. En samt svo ljúft.

Við skötuhjúin erum búin að bóka okkur ferð til Kraká í mars í tilefni þess að ég er að verða árinu eldri. Tel niður dagana en bara fyrir mig, svona ekki opinberlega eins og fyrir síðustu jól... ;) Þetta verður algjör snilld, ætlum bara að hafa það eins notalegt og kostur er. Verðum á nokkuð dýru dekurhóteli svo að aðstaðan ætti að vera nokkuð góð. Alla veganna betri en á hótelinu sem að minn kæri var á fyrir helgi þar sem að klósettið og sturtan var eitt og sama únitið...og þar af leiðandi blotnaði mogginn talsvert við morgunbaðið ;) Þetta hlýtur að verða betra en það...

Er svona að reyna að rifja upp hvað hefur á daga mína drifið undanfarið og það gengur nokkuð illa. Ellin að segja til sín. En frá því síðast er ég alla veganna búin að fara í skírn og afmæli, allt á einum degi. Gilla í Hafnarfirði var að skíra prinsinn sinn litla sama dag og Íris varð 3 ára. Hann fékk nafnið Axel og er bara svo sætur með það nafn. Ennþá sætari en áður þegar hann var litli prinsinn.

Og reyndar skelltum við okkur líka á þorrablót um daginn og það var mjög svo skemmtilegt þó að við átum ekkert á okkur gat. Reyndar pöntuðum við okkur pizzu á leiðinni heim því að það er ómögulegt að fara að sofa svangur. Það var margt og mikið um manninn og gaman að sjá andlitin á persónunum sem að ég hef verið að heyra sögur af frá því að ég kynntist mínum kæra.

Hvað annað hefur á daga mína drifið ?? God, man ekki meir í bili enda hefur það þá ekki verið ýkja merkilegt ( vona að ég sé ekki að móðga einhvern núna.... hehehe )

Fór reyndar á smá búðarráp um helgina með minni kæru Ragnheiði. Það er alveg stórhættulegt því að hún er svo dugleg að mana mann í að kaupa eitt og annað. Gerði reyndar aldeilis góð kaup út um allan bæ og er enn með brosið allan hringinn...mjög svo sátt ;) Er svo búin að bjóða henni í mat um næstu helgi þar sem við vonandi stefnum á smá glyðrudjamm, svona að okkar hætti ;) Þá get ég aldeilis dressað mig upp í nýju, fínu fötunum mínum...

Jæja, best að fara að gera eitthvað af viti ( ég veit, ég held því ennþá fram að ég geti það...LOL )

þangað til næst...í mars !!!

c",)