þriðjudagur, ágúst 22, 2006

Og enn einu sinni...

er ég í sumarfríi. Verð heima við og að erinderast þessa vikuna. Hef nú ekki sofið út ennþá, er búin að vera að stússast út um allt. Við mæðgurnar skelltum okkur til tannsa í gær og svo fór ég aftur með Kristínu í morgun, að gera við eina holu. Hún stóð sig eins og hetja og er nú hlaðin verðlaunum frá tannsanum. Voðalega lukkuleg.

Nú er orðið ansi stutt í að þau byrji öll í skólanum. Á morgun er skólasetning hjá þeim eldri og Kristín fer svo á fimmtudaginn að hitta kennarann sinn og fær þá stundatöfluna. Svo byrjar ballið á föstudaginn þegar fyrsti skóladagurinn hennar rennur upp. Þá er litla stelpan mín orðin stór allt í einu. Það verður fróðlegt að sjá hvernig þetta þróast allt saman.

Við vorum bara í rólegheitunum heima um síðustu helgi og létum menninguna í nágrannasveitafélaginu alveg fara framhjá okkur. Reyndar sáum við flugeldana í garðinum hérna heima svo við þurftum ekki að fara langt. Svo er sko menningarhátíð Mosó um næstu helgi með tilheyrandi húllumhæi og þá lætur maður kannski aðeins sjá sig. Og meira um menninguna því að helgina á eftir verður sko Sálarball í Hlégarði og ég held að það sé bara skyldumæting. Beta og Haukur verða með partý hérna á móti og voru að leggja til að við héldum bara líka partý svo við gætum bara haft opið á milli íbúðanna. Það getur vel verið að það fari svo. Enda ekki oft sem að það er svona flott ball í sveitinni. Kemur allt í ljós. Ég er alla veganna búin að bjóða nokkrum í innlit þetta kvöld.

Annars lítið að frétta, stutt síðan ég var síðast í sumarfríi og ég gæti alveg hugsað mér að vinna bara aðra hverja viku eða svo ;) verst að maður verður víst að fá pening til að lifa af. Svo ég mæti galvösk í næstu viku, hrikalega endurnærð ( yeah right ) og tilbúin í næstu orrustur.

c",)

Engin ummæli: