laugardagur, maí 06, 2006

Týpískt

ég og mín lukka. Þegar ég fór á mösdunni í vinnuna á fimmtudaginn þá tók einhver helvítis hálfvitinn sig til og rispaði alla bílstjórahliðina, húddið, brettið og báðar hurðirnar. Ég tók eftir þessu þegar ég labbaði út kl. 4 og keyrði heim í frekar vondu skapi. Hver getur ekki séð fallegan bíl án þess að skemma og eyðileggja ? Mér er bara spurn. Öryggisverðirnir fengu engar tilkynningar um skemmdarverk á öðrum bílum þennan daginn og ekkert sást í myndavélunum enda lagði ég á gráu svæði sem vélarnar covera ekki. Týpískt...ég legg aldrei þar en gerði það þann daginn. Gummi fór með bílinn á sprautuverkstæði hérna í sveitinni og þetta verður aldrei undir 100 þúsund kjellinum, þarf að sprauta hálfan bílinn :( Ég er frekar pissed og vona að sá hinn sami sem skemmdi bílinn minn sé heima hjá sér með ælu og niðurgang og eitthvað þess mun verra !!!

Annars skellti ég mér á MI III á fimmtudaginn með Sissu. Þórunn Anna bættist óvart í hópinn en af því að salurinn var troðinn þá sat hún ekki með okkur. Sýningin byrjaði og þá kom í ljós að það var enginn íslenskur texti á myndinni. Frekar fyndið, fara á forsýningu með engum texta. Það var allt í lagi fyrir mig og flesta held ég sem voru þarna. Myndin er alveg ágæt, erfitt að horfa á Tomma geðveika en þegar ég náði að horfa framhjá geðveilu hans í daglega lífinu þá skemmti ég mér ágætlega.

Svo fórum við hópurinn upp á Skaga í gær eftir vinnu í mat til Shyamali. Indverskt of course. Hrikalega gott, ætlum að dobbla hana til að kenna okkur hinum taktana sína. Eftir matinn kom hún með litla skál með alls konar litlum fræjum og sagði að þetta væri breath fresheners. Þetta bragðaðist frekar eins og sápa og ilmkerti og aðeins þau huguðust fengu sér í lófann. Þar á meðal undirrituð. Gott kvöld og vel heppnað.

Svo skellti Gummi sér út í nótt, flaug til London og þaðan er víst ferðinni heitið til Birmingham. Þannig að ég vaknaði með honum í nótt og kvaddi hann vel og mikið því ég fæ ekki að sjá hann aftur fyrr en á fimmtudaginn á Schipol í Amsterdam. Skellti mér í bikkið í morgun ( ekkert smá stolt af sjálfri mér ) og Orri náði í stelpurnar eftir það. Kvöldið í kvöld er sko planað, er að fara í heimsókn til ömmusystur minnar að hitta nokkrar frænkur og kjafta doldið og svo ætlum við Sigga, Sissa ( og vonandi fleiri ) að mála bæinn rauðan undir morgunn. Luvlí, enda er komið sumar...skv. hitamælinum á pallinum hjá mér ;)

Jæja, farin að versla eitthvað gúmmelaði fyrir Þorvarð svo hann hafi eitthvað að nasla í hérna í kvöld...

c",)

2 ummæli:

Fanney sagði...

Oj ég vona að "risparinn" sé komin með miltisbrand og Ebólu núna...djöfulsins fífl.
En já máli máli máli bæinn rauðann:)

Bogga sagði...

gæti ekki verið meira sammála með risparann ;) og bærinn var nú málaðu ágætlega rauður...fram á morgun...