þá er enn ein helgin byrjuð og hvað verður gert ? meira um það síðar...
Annars er vikan búin að vera ljúf, ég tel bara niður dagana þangað til ég fer til Amsterdam að hitta Siggu mína. Það verður æðislegt að komast aðeins frá og í aðeins meiri hita en hérna á klakanum. Annars er yfir litlu að kvarta, veðrið er að verða skaplegt.
Ég fór með Þorvarð til augnlæknis á miðvikudaginn og viti menn, hann er kominn í -3 á báðum og þurfti að fá göngugleraugu ( sem hann er þá alltaf með ). Það tók hann ekki langan tíma að velja sér brillur sem hann fékk svo í gær og hann er barasta farinn að sjá frá sér og var mjög hissa á því að sjá að loftið í íbúðinni okkar er hraunað en ekki slétt eins og hann hélt. Þetta komment frá honum sannaði fyrir mér að hann sá ekki baun. Núna er þetta sem sagt allt annað og hann brosir bara út í annað yfir þessu öllu saman.
Þórunn Anna er lögst út. Hún skellti sér til Margrétar í Hafnarfirði á þriðjudaginn og svo hringdi hún í mig í gær og þá var hún komin til Einars frænda og hundanna hans. Hvenær hún skilar sér heim er óljóst, það er svo sem í lagi á meðan hún er ekki að hringja í mig og biðja mig um að fá hund inn á heimilið...
Kristín er bara alltaf sama eðalblondínan, alveg yndisleg ( oftast nær ) í umgengni. Það er ekki nema þegar maður vekur hana vitlaust að hún verður alveg kolill og þá forða ég mér bara. Annars svífur hún bara um á bleiku skýi, þessi elska.
Jæja, best að hleypa Þorvarði aðeins á netið áður en hann skríður undir sæng...
c",)
föstudagur, júní 10, 2005
sunnudagur, júní 05, 2005
Og annað...
Ég er að fara til Amsterdam eftir 11 daga, sem sagt fimmtudaginn 16.júní í 5 daga. Gummi er að fara á ráðstefnu til Antwerpen í Belgíu í nokkra daga og við ætlum svo að hittast í damminu og eyða helginni saman. Svo að á föstudaginn á meðan ég var í mat í vinnunni þá var pössun, hóteli og farmiða reddað og þegar ég stóð upp frá grasinu og fetaostinum þá var ég bara á leiðinni til útlanda ;) ekki slæmt það. Ég var reyndar spurð hvort ég væri komin í dóp ( alltaf að fara til Amsterdam ) og líka skotið á mig vegna tilbreytingarleysis í utanlandsferðum...
Ég lét Siggu auðvitað vita og þó að hún sé önnum kafin þá komum við til með að geta djammað aðeins alla veganna 2 kvöld. Ég ætla einmitt að fara út með afmælisgjöf handa henni því að í byrjun júlí verður skvísan þrítug svo hún fær svona miniafmæli...
Annars er þessi helgi búin að vera í rólegra lagi, bara búin að vera heima við og hafa það notalegt. Við fórum og versluðum blóm á pallinn og hann er bara allt annar, miklu heimilslegri ;) Svona eiga sumar helgar að vera...rólegar og notalegar :)

Jæja...
ég komst heilu á höldnu frá helginni annasömu. Hún byrjaði auðvitað snemma á föstudeginum á því að við fórum í stúdentaútskrift hjá Hrafnkeli, frænda hans Gumma. Eftir að hafa velt því fyrir mér lengi vel hvað við ættum að gefa honum þá gekk ég inn í dótabúð og keypti svona læknatösku því hann stefnir á að reyna að komast þar inn í haust. Ég nefnilega þoli ekki að fara og gefa pening í umslagi. En hann fékk nú samt peninginn en svona líka flottan pakka með. Eftir þetta partý fórum við aðeins heim til Sissu og Bjarna því að Gulda varð 85 ára gömul á föstudaginn (frænka hennar Sissu sem ég hef þekkt í einhver 25 ár).
Svo á laugardaginn þá byrjaði dagurinn snemma því að við keyrðum alla leið á Hellissand til að vera viðstödd í jarðarför mágkonu ömmu minnar sem að dó í síðustu viku. Veðrið var eins og best verður á kosið og Snæfellsjökull gnæfði yfir hvar sem við vorum. Samt var vindurinn kaldur svo að veðrið var best einhvers staðar í skjóli. Athöfnin var falleg í alla staði og gekk vel. Eftir það var svo erfidrykkja eins og alltaf í sveitinni. Við stoppuðum nú stutt þar því að ég þurfti að vera þá komin í bæinn innan 2ja tíma. Ég heilsaði upp á þau sem ég þekkti þarna og svo brunuðum við aftur í bæinn. Og Gummi missti ekki bílprófið svo við getum haldið báðum bílunum...
Mér tókst svo að vera komin í bekkjarpartýið rétt rúmlega 6 og kalla það nú bara gott að hafa náð því. Þá gat ég svona farið að slappa af í góðra vina hópi. Við komumst eiginlega að því að við höfum eiginlega ekkert breyst á þessum 10 árum, fjölskyldurnar hafa kannski stækkað en við erum alveg eins í útliti og innræti eins og í gömlu góðu. Reyndar hafa umræðuefnin breyst eitthvað því að lítið annað komst að en brjóstagjafir og bleijuskipti svona framan af kvöldinu. Það breyttist aðeins með auknu alkóhólinnihaldi í blóðinu...Það var bara lygnt í sjóinn út í Viðey svo að siglingin var bara notaleg. Við áttum nú að fá púns við varðeld en þar sem það er orðið svo bjart úti þá fengum við bara viðeyjargums ( þetta kölluðu þau bláa glundrið sem við fengum) í sólinni. Ég hló eiginlega bara fyrstu mínúturnar því að þetta var eitthvað svo súrt.Við stelpurnar sátum svo bara saman í borðhaldinu og drukkum vel og mikið og reyndum að láta ekki borðhaldið skemma fyrir okkur skemmtuninni. Hlaðborðið var æðislegt, aðallega meðlætið. Ji dúdda mía, ég hef sko óskað þess alla vikuna að hafa það á borðunum heima hjá mér. Kjötið var síðra en samt ekkert slæmt. Verst var að fá engan eftirmat, okkur dreymdi um súkkulaðistykki og auðvitað engin sjoppa í nágrenninu. Svo tóku við skemmtiatriði sem voru nú dáldið fábreytt en bara fyndin. Við fengum að sjá fréttaskot frá deginum sem við útskrifuðumst á ( enda var Ingólfur Bjarni á stöð 2 veislustjóri og hæg heimatökin hjá honum... ) og það er nú bara hægt að segja að tískan fyrir 10 árum síðan var doldið mikið litlaus. Við sáum líka vídeó af okkur þar sem við vorum að klára stúdentsprófin. Og þar var hárið á mér bara eldrautt og rosalega sítt. Ég hélt nú að á þeim tíma hefði það verið aftur orðið músalitt en svo var ekki. Lítið var um önnur skemmtiatriði svo að við drukkum bara meira og dönsuðum.
Á miðnætti fórum við nokkur í land með ferjunni og ég, Halla Dröfn og Darri ákváðum að fara í hjúkkupartý. Darri stakk reyndar af fljótlega og ég skildi hann svo sem alveg. En ég þraukaði og við vorum svo komnar í bæinn um hálftvö leitið....og þá lá leiðin á NASA á ball með í svörtum fötum. Og það var sko bara gaman. Við vorum orðin svo mörg þarna úr MR að við bara áttum staðinn og í hvert sinn sem Jónsi skaut á 10 ára MR ingana þá fékk hann það margfalt til baka í fagnaðarlátum. Ég hitti meira að segja nokkra úr 74 árganginum úr MR og dansaði vel og mikið. Gummi var líka í bænum og var byrjaður að hringja í mig ansi oft svo ég dreif mig bara heim með honum um 4 leitið þegar hann var kominn með nóg. En ég frétti á mánudeginum að það var sko eftirpartý eftir NASA svo ég hefði getað verið á djamminu langt fram undir morgun. En daginn eftir var ég mjög fegin að hafa farið tiltölulega snemma heim. Þynnka ?? Já, svona doldil en ég þraukaði það...

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)