hvað ég er voðalega södd núna. Ég var að enda við að kyngja síðasta bitanum af kvöldmatnum og finnst miklu sniðugra að blogga en ganga frá eftir matinn. Verð líka að kæla uppþvottavélina aðeins áður en ég hleð í hana aftur.
Jæja, ágúst er búinn að vera viðburðarmikill. Helga Björg og Ásgeir giftu sig 6. ágúst við mikla kátínu. Ég var búin að búa til myndband úr gæsuninni og það var spilað í veislunni og svo létum við kökukefli ganga sem væri hægt að nota í ýmsum tilgangi. En vonandi bara til góðs, ásamt saltinu og hrísgrjónunum sem fylgdu með. Og ég fékk smá nasaþef af gay pride sama kvöld því ég, Gulla og Gummi enduðum á NASA á allsherjar djammi með gay pride förum. Það var geðveikt, hef ekki skemmt mér svona vel á balli síðan fyrir langa löngu síðan, ef ég hef nokkurn tímann gert það.
Þórunn Kristín kom í stutta heimsókn til Íslands með nýjustu frænkuna mína ásamt Jóel og Andrew manninum sínum. Þau kíktu hérna við á föstudaginn síðasta áður en þau héldu aftur til Svíþjóðar. Voðalega gaman að sjá þau, heyrði varla í sjálfri mér fyrir eggjahljóðum. Sem betur fer þá er það aftur í rénum, þ.e. eggjahljóðin.
Loksins komumst við í bíó í gær, eftir margar tilraunir. Kristín sofnaði nefnilega snemma í gær og við ákváðum að nýta tækifærið og drífa okkur. Reyndar vaknaði hún áður en við fórum af stað en það var nú í lagi. Við fórum að sjá Wedding Crashers og guð minn góður, ég grenjaði af hlátri...oft og mörgum sinnum. Ég þurfti meira að segja að taka niður gleraugun og þurrka mér um augun ( já, ég er komin með svona voðalega fansí hvíldargleraugu...algjör gella !!! )
Og svo eru krakkarnir byrjaðir í skólanum og leikskólanum aftur. Kristín byrjaði í gær og hin í dag. Reyndar kom soldið babb í bátinn í dag í leikskólanum því Kristín kastaði upp stuttu eftir að hún kom þangað. Hún hljóp á eitthvað, meiddi sig í hálsinum og kastaði upp frá því. Ekkert alvarlegt, það var bara fylgst vel með henni í dag og hún var alveg eiturfrísk. Hún var klædd í einhver furðuföt þegar ég sótti hana seinni partinn og virtist njóta sín vel.
Þorvarður og Þórunn Anna fóru í skólasetningu í dag. Þórunn Anna gleymdist reyndar í upplesningu á nemendum og kennarinn hennar náði bara í hana og beindi henni í réttan bekk. Þetta gekk betur hjá Þorvarði, hann komst alveg til skila. Svo að við eyðum kvöldinu í að finna gamalt og taka nýtt skóladót í gagnið. Ósköp er nú gott að vera búin að þessu, þó að það sé nú visst frelsi að vera í skóla.
Annars bara same old, same old...er búin að vera voðalega dugleg í vinnunni undanfarið, staðið mig vel sem multitasker / snillingur. Held því bara áfram...
Jæja, uppþvottavélin tilbúin fyrir næsta skammt...
c",)
þriðjudagur, ágúst 23, 2005
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)