skóladagurinn eiginlega runninn upp hjá Kristínu. Við vorum að koma heim úr heimsókn í skólann hérna hinum megin í garðinum hjá okkur. Kristín fékk að hitta kennarann sinn og konuna sem tekur á móti henni á morgnana þegar hún mætir og fékk að skoða allt hátt og lágt. Mér sýnist hún bara vera ansi spennt fyrir þessu öllu. En við komumst að því að skólataskan verður varla útjöskuð eftir þetta fyrsta skólaár því í henni verður ein teygjumappa og svo aukaföt. Skólinn kaupir öll ritföng og bækur svo hún á ekkert að þurfa að vera að burðast með þetta á milli heimilis og skóla. Jú, hún á líka að taka með sér plastglas til að geta fengið sér vatn inn á milli tarna. Segja má að hún sé uppgefin eftir þessa heimsókn, liggur hérna á bak við mig og blaðrar eitthvað út í loftið.
Svo nú er stelpan mín orðin stór, alveg að byrja í skóla. Skrýtið að vera búin með allt þetta leikskólavesen...
c",)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli