þannig líður mér þessa dagana. Kannski er það veðrið ? eins og það er nú yndislegt í augnablikinu, grátt...rok og rigning.
Er bara heima í dag, fór snemma úr vinnunni í gær því mér leið eiginlega ömurlega. Kannski borgaði sig ekki að sitja svona lengi úti aðfaranótt sunnudags með nágrönnunum. Hmmm, held að það sé að koma í bakið á mér. Þórunn er líka veik svo við slæpumst bara hérna mæðgurnar. Kristín er komin í sumarfrí og nýtur þess í ræmur,sofnar seint og vaknar seint. Er eiginlega úti alla daga að leika við Árna, hund nágrannans eða Yrsu Björt vinkonu sína. Svo að lífið er yndislegt, væri miklu yndislegra ef að veðrið væri eins og það væri sumar en ekki miður september. Ömurlegt sumar búið að vera :s
Jæja, farin að sinna skvísunum mínum...
lasarusakveðjur úr Músó
c",)
þriðjudagur, júlí 11, 2006
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)