Nú sit ég hérna heima hjá mér í þoku og skil ekki hvað varð eiginlega um blíðuna ? Fyrir 2ur tímum síðan sat ég í sól og blíðu fyrir utan Decode að borða grillmat og ákvað að drífa mig heim fyrr í dag til að njóta dagsins. Korteri eftir að ég kom heim þá var bara komin þoka !!! Hvað á þetta eiginlega að fyrirstilla ? Það er svo sem vitað mál að veður er ekkert til að stóla á hérna á klakanum en þetta er nú kannski fullmikil veðurbrigði. Það verður þá bara lítið um pallnotkun í dag. Enda er málarinn mættur að mála kofann og friðurinn úti.
Annars er nú orðið stutt í sumarfríið mitt langþráða. Hvað skal gera ? Lítið og minna en það, aðallega slappa af og vera með fjölskyldunni. Við erum nú reyndar að vonast til að fá bústað rétt við Egilsstaði í næstu viku svo að Gummi geti nú aðeins fylgst með hafnarframkvæmdum á Reyðarfirði. Og ég kem þá til með að nýta tækifærið og heimsækja hana Höllu Dröfn á Seyðisfjörð. Svo að við kíkjum kannski eitthvað aðeins út fyrir mölina.
Ég er búin að eignast litla frænku. Hún lét nú aðeins bíða eftir sér og kom ekki fyrr en 18 dögum síðar en hún átti að koma í heiminn. Lét bíða eftir sér eins og bróðir hennar forðum. Hann er nú ekkert lítið ánægður með að hafa fengið litla systur, eins og sést ( http://barnaland.is/barn/28629 )
Hún er alveg svakalega sæt og myndarleg stúlkan, hárprúð og bara flottust ;) Ég er svona að klára peysuna á hana sem ég er að prjóna og gerði hana sem betur fer í stærri kantinum svo hún geti nú örugglega notað hana eitthvað.
Svo eru svo margir sem eiga afmæli núna í júlí svo að ég bara segi " Til hamingju með afmælið " svona á einu bretti. Og taki þeir sem mega til sín.
Jæja, andleysið er jafn þykkt og þokan fyrir utan svo ég held að þetta sé bara ágætt í bili ;)
c",)
fimmtudagur, júlí 14, 2005
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)