laugardagur, júní 17, 2006

Hæ, hó, jibbí jei og jibbí jei !!!

það er kominn 17. júní. Veðrið var nú ekki eins blautt og það átti að vera en við vorum búin að ákveða fyrir löngu að við færum ekki í skrúðgöngur eða því um líkt í dag og höfum staðið við það. Þórunn Anna skellti sér norður á fimmtudaginn að passa hundinn hans Gísla bró fram á næsta fimmtudag svo ekki þurftum við að fara með hana í bæinn. Þorvarður skellti sér til pabba síns í hádeginu í dag og er væntanlega að drepast þar úr leiðindum eins og venjulega. Kristín fór aðeins í bæinn með pabba sínum og á meðan fórum við og fengum okkur smá þynnkumat ( aðallega Gummi ) og versluðum aðeins inn fyrir HM hátíðina sem enn heldur áfram. Bæði í handboltanum og fótboltanum. Kíktum líka aðeins í Stórateiginn til tengdó, var orðið svo langt síðan síðast.
Eníveis, ljúfur 17. júní að baki. Komumst áfram á HM í handboltanum, mjög svo stolt af strákunum. Var farin að hoppa hérna um gólf af spenningi. Sit núna og horfi á mjög rauðan leik milli USA og Ítala. Mikið um brot og rauð spjöld. Ítalarnir áttu auðvitað að taka USA í nefið en það lítur ekki út fyrir það. Aular, ekkert annað...
Kristín liggur núna uppi í rúmi að horfa á Incredibles, Gummi dottar yfir þessum leiðindaleik á meðan ég pikka aðeins. Stefnir í rólegt kvöld heima við, svona eins og þau gerast best. Ekkert planað á morgun annað en að horfa áfram á HM. Kannski baka ég aðeins fyrir mánudaginn en þá verður Þorvarður, þessi elska, 14 ára gamall. Jibbí jei !!!

Jæja, farin að bjarga kjúllanum úr ofninum. Eitthvað til að narta í yfir imbanum í kveld.
Hafið það gott, farið rólega inn í hátíðarhöldin í kveld... svona eins og ég ; )

c",)

Engin ummæli: