http://boyoboy.ignitedminds.com/
Skelfilegt að heyra en húmorinn...
c",)
fimmtudagur, janúar 20, 2005
Og hana nú ;)
Hjón í sumarfríi fóru í bústað á Þingvallavatni. Eiginmanninum fannst best að veiða við sólarupprás. Konunni fannst gaman að lesa. Einn morgun snýr eiginmaðurinn aftur eftir nokkurra klukkustunda veiðar og ákveður að leggja sig. Þó konan þekki ekki vel til á Þingvöllum ákveður hún að fara á bátnum og sigla út á vatnið. Hún siglir stutta vegalengd út á vatnið,setur út akkerið og kemur sér vel fyrir og fer að lesa bók. Stuttu seinna kemur veiðivörður siglandi að henni á bát sínum. "Góðan daginn frú, hvað ert þú að gera ?" spyr hann. "Ég er að lesa bók" svarar hún (og hugsar með sér hvort það sé ekki augljóst!). "Þú ert á lokuðu veiðisvæði" segir vörðurinn."Fyrirgefðu en ég er ekki að veiða, ég er að lesa" segir hún. "Já" svarar hann, "En þú ert með allar græjur, hvað veit ég nema að þú farir að veiða eftir skamma stund. Ég verð að fá þig í land svo ég geti gert skýrslu um þetta". "Ef þú gerir það þá verð ég að kæra þig fyrir nauðgun!" svarar hún þá. "En ég hef ekki snert þig " segir vörðurinn forviða. "Það er rétt en þú hefur allar græjur og hvað veit ég nema að þú byrjir eftir skamma stund"."Hafðu það gott í dag frú" sagði vörðurinn og sigldi á brott.
Boðskapur sögunnar : Aldrei rífast við konu sem les. Það er mjög líklegt að hún geti líka hugsað !!

miðvikudagur, janúar 19, 2005
JI :s
ég gleymdi alveg að segja frá flottustu veislu ársins sem að ég var í um síðustu helgi. Reyndar byrjuðu veisluhöldin helgina áður en seinni veislan sló allt út. Það var nefnilega verið að vígja vöruhótelið hjá Samskipum. Framan af þá var ég ekkert á leiðinni þangað en síðan á fimmtudeginum fékk ég að vita að mökum væri boðið með. Jibbí jei, ég hafði ekkert viljað lesa póstana sem að Gummi var að sýna mér um þetta því þá hefði ég verið svekkt. Sko...við (ég með Sissu og Bjarna )mættum niður í vöruhúsið á laugardaginn um 6 leitið og þá var strax kominn alveg hellingur af fólki, mætir menn úr þjóðfélaginu og konur líka. Við mér blasti eðalveigar og veitingar og fyrr en ég vissi af var ég komin með cosmopolitan í hendur og teigaði vel og mikið. Það voru veitingar út um allt. Það var kartöfluakur, tilraunastarfsemi með alls konar kartöfluréttum. Það var vodkabar með fljótandi veitingum, einhver desertbar sem að ég missti af í gleði kvöldsins. Þarna voru ostrur ( mmmmmmmmmmm ), hrátt nautakjöt með gúmmelaði, kavíar og svo grillið. Slef, slef, þeir voru með nautakjöt á teini, kjúkling og risarækjur og þarna stóð ég bara og gúffaði í mig. Ef ég varð leið á cosmo þá fékk ég kínverskan bjór í hönd, ekkert verra ;) Klukkustund eftir að herlegheitin byrjuðu þá var strax farið að bera saman vígslu á öðru vöruhóteli hér í bæ sem var bara algjört prump miðað við þetta. Og kvöldið var rétt byrjað. Allt í einu voru tjöld dregin frá á sviðinu og sinfónían öll sat og byrjaði að spila undir eins. Ég horfði í kringum mig og sá að fólk gapti bara af undrun og hrifningu sem minnkaði svo ekkert þegar að Diddú steig á svið og þandi raddböndin. Fólk hrópaði og kallaði því að það er ekki möguleiki að klappa með báðar hendur fullar af veitingum. Og kvöldið varla byrjað. Næstir á svið komu Brimkló með Ragga Bjarna í för. Hann náði salnum algjörlega á sitt band og allir sungu í Samskipakórnum sem myndaður var á staðnum. Þegar þarna var komið var fólk farið að dilla sér aðeins og áfengisprósentan orðin soldið há í blóðinu. Þetta var sko ekki búið því að Sálin kláraði kvöldið með fullt af gömlum slögurum sem allir sungu með. Algjörlega geðveikt og ógeðslega gaman. Svo tókst okkur að lokum að draga Begga öryggisstjóra með okkur niður í bæ þar sem við kíktum inn á REX með öllum hinum uppunum. Pissfullum og geðslegum. Þvílíkur troðningur og bara æi... en samt gaman :)
Þannig að kvöldið var frábært í alla staði og ekkert kemst nærri því í framtíðinni. Þá er ég búin að deila smá minningum með ykkur...ég gapi enn ;)

þriðjudagur, janúar 18, 2005
ehemm
kewl að blogga með mánaðar millibili. Það er nú ekki eins og ekkert hafi gerst í millitíðinni svo ég held að það megi skella skuldinni á pjúra leti.
Jólin eru liðin og voru þau ljúfustu í mörg ár. Við héldum þau með foreldrum Gumma í mosó = fórum með troðfullan, þungan bíl fullan af pökkum og börnum á aðfangadag í mosfellsbæinn. Þau voru bara að tapa sér meðan við vorum að borða, ég og Gummi gerðum í því að teygja lopann til að gera þau enn brjálaðri en að lokum þá komust þau í pakkahauginn undir jólatrénu. Herlegheitin tóku alveg korter enda er bara ein ástæða fyrir því. Alltof mikið af pökkum. Annars hefði þetta tekið miklu styttri tíma. Það tók mig líka nokkra daga að finna út úr hvað hver fékk frá hverjum. En þetta skilaði sér allt saman. Þetta voru dótajólin miklu hjá okkur öllum. Þorvarður fékk fjarstýrðan bíl ( þetta er sko það sem ég hef beðið eftir að fá í mörg ár) og auðvitað margt annað, Þórunn Anna fékk örkina hans nóa í pleimó ( ég vissi það !! ) og Kristín Fríða drukknaði í pony- og barbie dóti og ljómaði enda allt saman bleikt.
Ég fékk svo mikið af pökkum, ætlaði ekki að trúa mínum eigin augum.
Gummi gaf mér flugmiða með Flugleiðum = búin að bóka mig í flug til ams 10. feb og er sem sagt að fara að hitta Siggu mína eftir 23 daga :) jibbí jei...
Pabbi og Dista gáfu okkur fallega silfurskál og kertastjaka og himnesk sængurföt
Tengdó gáfu okkur diska sem að við vorum búin að finna okkur og gáfu okkur miklu meira en við bjuggumst við
Anna Jóna og Kristín ( systur Gumma ) gáfu okkur tertudisk og engla :)
Amma og afi Gumma gáfu okkur nammikörfu
Kári gaf mér annan flugmiða með express, bíð aðeins með að nota hann á meðan ég held í veika von um að þeir taki út nokkrar sætaraðir til að við komumst almennilega fyrir með lappirnar
Gilla og Stefán gáfu okkur fallegan dúk á nýja borðstofuborðið í nýju íbúðinni okkar
Kristín bjó til kertastjaka handa okkur í Sælukoti
Gerður og Hemmi sendu okkur ost og nammigott og svo heimagerðan ostabakka úr rauðvínsflösku ( gott að geta nýtt þær á einhvern máta... )
Nú er minnið farið að bresta ( svo langt síðan...hehehe ) en ég held að ég hafi náð að impra á því helsta...
Nú, ég og Gummi vorum eiginlega búin að ákveða að gefa hvort öðru ekkert vegna íbúðakaupa en það varð nú ekki svo ( sbr. eitt stykki flugmiði ). Ég lét brenna fyrir hann Góða dátann Svejk á geisladiska og hann ljómaði í framan og þetta hefur verið í nonstop spilun í bílnum síðan um jólin...og svo gaf ég honum líka 3ju myndina um LOTR. Svo að við fórum aðeins á bakvið orðin en það var bara allt í lagi, svona einu sinni :)
Úff hvað þetta blogg verður laaaaaaaaannnnnnnnnngggggggggggt :)
Auðvitað var svo mikill hittingur yfir jólin, aðallega Gumma megin. Við vorum komin af stað í kaffi og kökur á jóladag um kaffileitið til ömmu og afa hans. Svo um kvöldið hittum við Gillu og Stefán og börn heima hjá pabba og Distu og fengum okkur meira að borða. Stóðum okkur mjög vel. Svo vel að Gummi varð hálfslappur daginn eftir og fékk magakveisu = misstum af jólaballinu í móðurfjölskyldu hans.
Á milli jóla og nýárs var lítið um að vera, Gummi reyndi að fara í vinnuna en það gekk ekkert alltof vel. Það var nefnilega verið að flytja skrifstofurnar á þessum tíma svo að einn daginn kom hann að tómri skrifstofu og dótið hans á flakki, annan daginn var hann ekki kominn með skrifborð og þriðja daginn þá var hann ekki búinn að fá helminginn af dótinu sínu. Svo að þetta varð allt saman minna en það átti að verða. Sem var mjög gott því þá kom hann bara fyrr í bólið til mín ( sem var í fríi notabene ). Svo kom gamlárskvöld. Gummi var reyndar á skralli kvöldið áður = myglaður...en það var allt í lagi. Reyndar byrjaði dagurinn snemma í fimmtugsafmæli frænku hans hennar Ingibjargar Sólrúnar. Voðalega gaman en mikið talað um hvaða hávaxna fólk væri þarna...hmmmmmm hver ætli það hafi verið ?? ;) Svo fórum við heim í millitíðinni og náðum í stelpurnar og keyrðum upp eftir. Það leið ekkert á löngu fyrr en við vorum komin með glas í hönd og skemmtum okkur bara ágætlega. Hlógum mikið að skaupinu og náðum að halda Kristínu vakandi fram yfir miðnættið. Það var rosalega flott flugeldasýning í mosó til minningar um Ragga sem var myrtur á Áslák ( Dráplák), einum af pöbbnum í mosó ( já þeir eru sko 2 ). Allur bærinn stóð og horfði á og enginn sprengdi á meðan á þessu stóð. Þess vegna var flugeldasýning íbúanna sjálfra hálfhjákátleg miðað við sýninguna. En hún var rosalega flott. Seinna um nóttina fengum við okkur göngutúr heim til frænku Gumma því að þar sátu vinir að sumbli. Reyndar var Nína frænka hans farin að sofa þegar við skiluðum okkur en Snorri var enn að. Í stuttu máli ,eftir umræður um öll farartæki sem nokkrum dettur í hug ( flugvélar, flutningaskip, farþegaskip og flutningabíla ) þá gat ég dregið Gumma heim og þá var klukkan farin að ganga 8 um morgun. Ég var voðalega hress og ekkert mygluð ( NOT )
Sem betur fer var svo frídagur eftir áramótin, hefði engan veginn meikað það að mæta í vinnu 2. janúar...ég ætla að hafa það í huga næst að það er eiginlega möst að eiga einn frídag eftir áramótin.
Svo er janúar búinn að líða ansi fljótt, miklu fljótar en ég þorði að vona enda er ég að bíða eftir því að komast af landinu og fá svo íbúðina okkar. Við erum búin að rúnta um útsölur og eyða nokkrum krónum í eitt og annað sem að við getum geymt í kjallaranum hjá tengdó ( sem betur fer ) Og í dag, nákvæmlega eru bara 8 vikur þangað til ég stend með sparsl og málningu í hönd að gera íbúðina okkar flottari en hún er fyrir :) og ég get varla beðið en þetta er búið að vera svo fljótt að líða hingað til svo að þessi dagur rennur upp fyrr en varir.
Er þetta ekki orðið alveg ágætt í bili ?? Ég verð að fara að troðast eitthvað í tölvuna hérna heima við á milli barnanna svo ég geti bloggað með aðeins styttra bili. Ekki að það séu margir um lesninguna...hvað veit ég ??

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)