föstudagur, nóvember 18, 2005

36 dagar...

og still counting...

Er bara heima í dag, er svona nett læst í bakinu og ekki gagnlegur starfskraftur þegar svo stendur á. Vil líka vera í góðu formi í kvöld því að við erum að fara í matarboð til Nínu og Snorra, ásamt fleirum vinum. Rólegt reyndar því að Gummi er að fara út í nótt til Immingham svo við ætlum að vera komin heim svona í fyrra fallinu.

Kristínu finnst nú ekki slæmt að fá að vera heima svona á virkum degi. Hún klæddi sig ekki fyrr en um hádegið og er svo bara að flögra hérna um á bleika skýinu sínu.

Jæja, best að ég leggist aðeins á kælipokann minn, þetta er farið að verða ansi óþægilegt :s

c",)

fimmtudagur, nóvember 17, 2005

Og þá...

eru bara 37 dagar til jóla. Stress ? ekki farin að finna fyrir því ennþá og ætla eiginlega ekki að hleypa því að. Ætla að dunda mér heima um helgina ( vonandi ein ) að föndra jólatrésdúkinn og bara hafa það kósý.

Í dag er ég svo að fara á foreldrafund fermingabarna í Mosfellsbæ. Að hugsa sér að litli strákurinn minn ( sem er þó orðinn það hár að hann nær mér að höku ) sé að fara að fermast á næsta ári. Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt ( á gervihnattaröld )...

Og í sambandi við biggest looser...farin 7.6 kg á 2ur mánuðum...ekkert lítið stolt ;) og flott...múehhehehehhe

well, off to the bloody microscope : (

c",)

þriðjudagur, nóvember 15, 2005

39 dagar til jóla

...ekki að ég sé að telja ;)

búin að baka 3 sortir, var að enda við að kaupa efni í jólatrésdúkinn minn svo að ég er víst aðeins að fá snert af jólatilfinningu.
Svo til að toppa tilfinninguna þá var boðið upp á hangikjöt í vinnunni í dag, ég er með svona reykta ullarlykt í nefinu.
Best að halda áfram að lesa mér til um RNA fish ( spennó... )

c",)