þriðjudagur, maí 09, 2006

Á morgun...

er eiginlega föstudagur hjá mér. Því að á fimmtudagsmorgunn flýg ég til Amsterdam og hitti Gumma minn. Loksins, alltaf svo skrýtið að vera án hans. Hann er þó duglegur að hringja í mig á milli bjórkollnanna sem hafa verið ófáar undanfarna daga.

Veðrið er bara búið að vera æðislegt síðustu daga. Við sátum meira að segja úti í vinnunni í dag í hádeginu og borðuðum grillmat. Þetta hefur aldrei gerst í maí, að við séum í sumargrillveislu. Ekki einu sinni hálfnaður maí. Luvlí. Vonandi verður þetta áfram svona í sumar, gott að venjast þessum hita...

Þrátt fyrir hitann og svitann undanfarna daga þá skellti ég mér í smá brúnku í dag. Svona hentugt þegar strollað verður úti í damminu, get verið í pilsi án þess að fólk í kringum mig fái ofbirtu í augun. Verð sem sagt brún og sæt þegar Gummi sér mig næst. Honum finnst það ekkert leiðinlegt ;)

Jæja, farin að kúra með Kristínu í síðasta sinn í bili. Svo notalegt...

c",)