föstudagur, júní 30, 2006

TGIF...

klukkan er korter yfir fimm og ég er komin í 3ja bjór. Ástæðan ? HM, hvað annað. Sitjum hérna 3 og horfum á leikinn, ég, Gummi og varamaðurinn sem fékk btw frí í vinnunni í smátíma til að fá að horfa á seinni hálfleik Þjóðverja og Argentínu. Nema hvað að núna er leikurinn í framlengingu og enn situr hann hér, fékk leyfi til að sitja aðeins áfram.

Elskulegur nágranni okkar, hann Haukur, hringdi áðan í Gumma...hló soldið þegar Gummi sagðist vera í fríi eftir hádegi í vinnunni því að á því augnabliki var hann mættur út á völl í Berlín í 27.röð að horfa á leikinn live. Með einhverja kúnna í eftirdragi, bömmer skilurru !!! Voðalega leiðinlegt að vera þarna á staðnum. Þegar hann mætti voru bara komnir 10.000 manns á völlinn en hávaðinn var orðinn óbærilegur...hvað þá núna.

Annars bara ljúf helgi framundan. Ekkert planað annað en að horfa á HM. Ég er að vonast til að Ítalir detti út í kvöld og Englendingar á morgun og þá er ég sátt. Og svo mega brassarnir alveg valta yfir frakkalöfin annað kvöld ;) bara svona fyrir mig. Leikurinn sem stendur núna ? Auddað taka Þjóðverjar þetta, enginn sóknarmaður eftir hjá Argentínu og hvernig ætla þeir þá að taka vítaspyrnukeppnina sem allt stefnir í ? spurning...góð spurning ;)

Jæja, farin að undirbúa mig andlega undir vítaspyrnukeppnina. Vefja um mig þýska treflinum sem við fengum að gjöf í gær og veifa þýska fánanum sem lafir í logninu á pallinum hérna fyrir utan.

Áfram Þýskaland !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!



c",)