með afmælið, elsku Þórunn mín. Í dag er stóra stelpan mín 12 ára gömul, orðin svo stór. Skelfilegt hvað tíminn líður hratt.
Og aðeins 23 dagar til jóla, stefni á að klára útlandapakkana um helgina og var að panta jólakortin hjá hans petersen í gærkvöldi. Koma skemmtilega út, af þeim 40 myndum sem ég tók af afkvæmum mínum í gær þá kom 1 ágætlega út, ekki meira en það. Þau eru rosalega fótógenísk eða hittó !!!
c",)
fimmtudagur, desember 01, 2005
sunnudagur, nóvember 27, 2005
ÉG ER ÆÐISLEG...
ú ú ú !!
Hér sit ég heima hjá mér á sunnudegi með þetta netta gat á hausnum, plástur í hárinu og með nettan hausverk. Af hverju ? Ég veit það varla sjálf :s Málið er að við vorum niðri í Samskipum í gærkvöldi á lítillri uppskeruhátíð Ísheima. Vel var veitt, alltaf fullt glasið hjá mér eins og það er nú hættulegt. Ég skemmti mér konunglega allt kvöldið en svo þegar við vorum bara 4 eftir þá var mér farið að líða hálfundarlega. Ég man að ég hugsaði með mér að ég yrði að fara á klósettið og svo veit ég bara ekki meir...fyrr en ég ranka við mér í blóðpolli á gólfinu. Ég hafði víst náð því að taka einhver 2 skref áður en það leið yfir mig og ég féll bara niður í ganginum. Ein hárspennan gekk víst fulllangt í hausinn á mér og afleiðingin er að ég var saumuð 5 spor í hvirfilinn, eða því sem næst. Þegar ég rankaði við mér þá skildi ég ekkert í neinu, ég hafði rotast og skildi ekkert í því hvaða hasar þetta væri í kringum mig. Svo þegar ég leit á hendina á mér sem var löðrandi í blóði þá leið mér nú ekkert sérlega vel með sjálfa mig. Það var hringt á sjúkrabíl ( fór nú síðast í svoleiðis dollu með mömmu upp á spítala fyrir rúmum 7 árum síðan og finnst það alltaf jafn óspennandi farkostur). Yndælis hjúkkur og læknar tóku á móti mér á slysó ( sem betur fer engin sem ég kannaðist við ) og mér var ekið inn á stofu, ég skoðuð og ákveðið að sauma mig aðeins. Ég get svo eiðsvarið það að þegar þau deyfðu mig þá hefði ég frekar viljað vera skotin í fótinn, hrikalega sárt :s Þegar deyfingin var svo farin að virka vatt læknirinn sér í saumaskapinn. Allt í einu kemur ein hjúkkan hlaupandi og segir honum að hann ætti að koma aðeins fram og þannig skildi hann við mig, búinn að sauma 3 spor og ég enn með nálina í hausnum !!! Klukkutíma síðar kemur ein hjúkkan og klárar saumaskapinn, ég lagði mig bara í millitíðinni og Gummi rölti um gangana á meðan ég svaf ( ég er svo æðislegur félagsskapur !!!)
Ég veit svo ekkert hvenær við komum heim, ég háttaði bara og fór í rúmið. Vaknaði svo í morgun með þennan yndislega hausverk og smá rugling. Gæti verið að gumsið hafi eitthvað hrist til í gærkvöldi þarna inni í hausnum á mér. Þannig að þessum sunnudegi verður eytt í sófanum að horfa á seríu 2 af Shameless þáttunum ( sem voru sýndir á rúv á fimmtudagskvöldum í haust ). Yndislegt að horfa á þessa vitleysu.
Best að fara að leita að einhverjum verkjalyfjum, hlýt að eiga eitthvað einhvers staðar.
Já, og btw...í dag er fyrsti sunnudagur í aðventu og aðeins 27 dagar til jóla : ) bara svona svo þið vitið...

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)