hér sit ég heima á mánudegi með Kristínu raddlausa og enn sætari fyrir vikið. Hún er með hitaslen og slappast niður svona af og til yfir daginn og þá er sko bara að kúra með henni til að bæta líðanina.
Ljúf helgi að baki, var með kaffiboð á laugardaginn fyrir ættingja í tilefni afmælisins. Og um kvöldið bauð ég nokkrum vinum í lingó partý sem var hrikalega gaman. Ragnheiður var fyrst til að mæta, svo komu Sissa og Bjarni og svo Sigga og fruntlið með henni. Og síðast en ekki síst mætti Gilla stepsister og Stefán. Það var mikið drukkið, hlegið og sungið. Við þau hörðustu entumst til 3 ( ég og Ragnheiður ) en aðrir skemur. Gummi varð allt í einu voða þreyttur, þessi elska og lagðist bara upp í rúm og aðrir fóru heim þegar nóg var komið. Í heildina snilldarkvöld.
Ég fékk nú nokkra pakka ;
gemsa og blómvönd frá Gumma
g strengi frá Ragnheiði
fótsnyrtingu og hvítvín frá Sissu og Bjarna
sængurver frá tengdó
líkjörsglös frá Önnu Jónu
dekurkörfu frá Þórunni Önnu
púður og fleira frá Distu og pabba
Queen disk frá Gillu frænku og co.
Bara ekkert smáræði, mjög lukkuleg með þetta allt saman og get sagt að allt er komið í gagnið, nema hvítvínið ( geymi það til betri tíma )
Svo kláruðum við í gær að panta okkur ferð til Amsterdam í maí. Við ætlum að skella okkur með Sissu og Bjarna og eiga góða helgi saman í vonandi góðu veðri. Gummi og Bjarni verða hvort eð er úti á þessum tíma svo þeir hitta bara mig og Sissu á Schipol þegar þar að kemur. Verður yndislegt að fá smá pásu frá þessu daglega. Svo er þetta líka stuttu eftir að frumburðurinn fermist svo ég á þetta örugglega inni fyrir allt puðið í kringum það allt saman...ekki satt ?
Ég hélt það líka...hehehehe
Jæja, ætla að hleypa Kristínu á www.barbie.com
c",)
mánudagur, mars 20, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli