hún dóttir mín hún Kristín Fríða. Mikið held ég að það sé mikill sannleikur í setningunni "blondes do have more fun ".
Hún var að spyrja Gumma í gær áður en hann fór til Rotterdam hvað hann væri að fara að gera ? Hann sagði henni það og þá fór hún að spá í hvar hann myndi vera spurði hann hvort hann ætlaði að tjalda ? Svo þegar hann neitaði því og sagði henni að hann ætlaði að vera á hóteli þá hváði hún og spurði hvað það væri eiginlega ? Svo stór hluti af kvöldinu fór í útskýringar á því hvað hótel væri !!!
Svo í dag á leiðinni heim þá barst talið að dauðanum, oft sem endra nær. Hún hefur mikið verið að spá í þetta undanfarið og vill alls ekki deyja á undan mér og ég á helst ekki að deyja á undan henni. Henni finnst tilvalið að við deyjum öll í einu. Nema hvað, þá fór hún að spá í hver ætti að bera allar kisturnar ? Svo að við megum víst fara eitt í einu eftir allt saman, svona þegar okkar tími kemur. Í dag fór hún svo að spyrja mig um mömmu. Hún spurði mig hvað hún héti og ég sagði henni að hún hafði heitið Þórunn Sigríður. Seríos ? spurði hún þá tilbaka og fannst nafnið Þórunn Seríos ansi flott. Þvílíkar pælingar hjá henni og stundum misskilningur svona inn á milli.
Svo er hún sko búin að panta það að sofa hjá mér á meðan Gummi er úti. Ætlar sko að passa plássið hans á meðan hann er í burtu. Sem er sko fínt að mínu mati, notalegt að hafa hana við hliðina á mér og horfa á sætabolluna mína sofa...
Annars bara stutt í helgina, verð kannski bara barnlaus ( kemur í ljós á morgun ) og þá ætla ég sko að slappa af, sofa vel og mikið og ná í Gumma minn á laugardaginn út á flugvöll. Yndislegt ;)
c",)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli