mánudagur, maí 01, 2006

1. maí

og allt lokað. Það er ekkert opið hérna í sveitinni, engar búðir og engar sjoppur. Ég hefði þurft að vita þetta fyrir því að hér er ekker til nema majonesbombur og brauðrúllur til að henda í ofninn. Við endum sem sagt á því að borða fermingarmat annan daginn í röð. Allt þakka ég því að búðarfólkið verður að fá að berjast fyrir bættum kjörum...yeah right ;)
Gummi fann reyndar eina ræningjabúllu opna þar sem staffið fær ekkert bættari kjör með því að þramma niður laugaveginn eða eitthvað því um líkt. 10-11...standa fyrir sínu. Við getum sem sagt keypt gamalt lambakjöt á grillið þar fyrir 50.197 krónur...kostakjör !!! nammi, namm. Held að ég fái mér bara fermingarmat sem kostaði mig minna, bara blóð, svita og tár ;)


c",)

Engin ummæli: