sunnudagur, janúar 22, 2006

Jæja....

þá er runninn upp 6. dagurinn sem ég er með stöðuga verki í bakinu, er orðin soldið leið á þessu. Ég kemst í hnykk á morgun og þangað til bryð ég nýju verkjatöflurnar mínar sem heita naproxen. Ég tók 2 í gær og var orðin sæmileg í mjóhryggnum en er enn slæm í herðunum. Ég óska engum þessu, ekki einu sinni mínum versta óvin ( ekki að ég eigi marga svo sem, ef nokkurn ).
Annars skellti ég mér út fyrir hús í gær með Gumma í smá bíltúr. Þeir sem þekkja okkur vita vel að bíltúrar okkar um helgar geta oft orðið ansi dýrir og þessi bíltúr var ekkert frábrugðinn. Í stofunni er kominn flatskjár og ég er að pikka á glænýja tölvu sem þeysist um netið á ljóshraða. Ekki örvænta, við fengum tölvuna með í kaupbæti. Og jú, svo keyptum við líka eitt lítið hornborð í IKEA og kertastjaka. Aldrei hægt að fá nóg af kertum. Svo að leitin að fullkomna flatskjánum er lokið og ómægod hvað ég er fegin.
Og jú, svo sáum við baðinnréttingu sem við erum sátt við og skellum okkur á í næsta helgarbíltúr...sem þarf ekkert endilega að vera um næstu helgi sko...
Annars er vikan búin að vera viðburðarlítil, hef bara verið heima að morkna úr verkjum. Vonandi fer þetta nú að taka enda, alveg komið nóg í bili. Svo ég ætti að eiga fulla vinnuviku framundan.
Jæja, farin að fá mér eitthvað í morgunmat ( eins og litlu börnin )
Hafið það gott í dag elskurnar allar saman, best að kíkja á nýja tv-ið...

c",)