föstudagur, maí 27, 2005

fimmtudagur, maí 26, 2005

og enn ein tvíbókunin...

kemur svo sem ekki af góðu. En sem sagt áður en ég fer að hitta "gamla" MR inga á laugardaginn verð ég að bruna vestur á Hellissand í jarðarför. Anna á Selhól lést um daginn eftir veikindi og ekki annað hægt en að sýna henni þá virðingu að kveðja hana almennilega. Svo að við leggjum í hann snemma á laugardaginn og brunum svo í bæinn eftir það svo ég komist í eynna. Ef að Gummi missir prófið þá getum við alla veganna selt annan bílinn...en vonum að það komi nú ekki til ;)

Nóg að gera á stóru heimili...

c",)

miðvikudagur, maí 25, 2005

voðalega er það kewl...

að blogga með mánaðar millibili. Ekki að það gerist ekki neitt í mínu lífi ;)

Kannski er það málið að ég þarf að berjast við börnin að komast á netið hérna heima hjá mér og blogga auðvitað ekki á launum hjá Kára, reyni að gera eitthvað annað þarna í mýrinni...

Þessa dagana er annars nóg að gera og ég sé ekki fram á djammlausa helgi fyrr en einhvern tímann í júlí. Og hana nú !! er jafnvel tvíbókuð ef ekki þríbókuð sum kvöldin framundan. Er bara svo vinsæl...er það ekki bara ? múhehehehe

Meðal annars fór ég um daginn út að borða á Argentínu, með Samskipafólki og er eiginlega ennþá södd ef eitthvað er og það er nú komið soldið síðan þetta var. Pöntunin mín ruglaðist eitthvað svo ég fékk stærri steik en ég pantaði og gat ekki klárað allt ( skamm/ skamm)...

Fór svo á djammið um daginn með hobbýhórunni minni og þjáðist af stærrimáttarkennd. Við vorum komin á þá skoðun að dvergarnir hafi farið á djammið sama kvöld því að við gnæfðum yfir allt og alla og hobbýhóran mín er nú bara í þessari klassísku meðalstærð. Ég er náttla farin að nálgast 2 metrana þegar ég er komin á hælana en er vön því að horfa niður á fólk ( ekki neitt niðrandi við það ). Við röltum um allan bæ ( alla veganna miðað við harðsperrurnar daginn eftir ) og ég hitti fullt af fólki sem ég hef ekki hitt lengi, voðalega gaman :)

Hvað annað ??? hmmmmm jú, var auðvitað með júrovisjón djamm hérna í músó um síðustu helgi þó að Selma kæmist ekki úr undankeppninni. Mikið drukkið, voðalega gaman. Sungum okkur hásar ( þ.e. stelpurnar) og svo fór ég bara að sofa þegar mér fannst þetta orðið gott. Samt var enginn farinn en ég bara gat ekki meira. Óskar greyið kom inn til mín á trúbba en ég bara man ekkert hvað hann sagði við mig og enginn annar veit hvað okkar fór á milli. Ekki hann einu sinni vegna ölvunar. Hann var víst orðinn óskiljanlegur á þessu stigi kvöldsins, svona eins og gerist stundum...

Svo um næstu helgi er enn eitt djammið. Við erum boðin í útskriftarboð hjá frænda hans Gumma á föstudaginn en það verður nú bara rólegt og notalegt. Er að brjóta heilann um hvað ég gaf bróður hans í fyrra þegar hann útskrifaðist en er ekkert að muna það. Svo að við endum örugglega með að gefa honum bara einhvern aur sem hann getur notað að vild.

Svo á laugardaginn næsta er ég víst ásamt nokkuð mörgum öðrum að halda upp á 10 ára stúdentaafmæli okkar MR inga og verður Viðey undirlögð... Ég er síðustu daga búin að reyna að hafa samband við bekkinn og hef náð að hóa nokkrum saman í djamm. Þetta verður eflaust fyndið kvöld, alla veganna hef ég fengið að heyra allt síðasta ár að krakkarnir skemmtu sér mjög vel í fyrra. Ég átti nefnilega að útskrifast '94 en vegna anna ( barneigna í MR ) seinkaði ég þessu bara um ár en held sambandi við bæði árin þrátt fyrir það. Þess vegna átti ég að vera úti í Viðey í fyrra en vegna anna ( var sko fimmbókuð það kveldið ) fór ég ekki. Svo það sé á hreinu. Alla veganna stefnir í gott djamm með góðu fólki ;)

Svo um næstu helgi erum við stelpurnar að fara að kveðja Höllu Dröfn sem er að fara austur á Seyðisfjörð næstu ár að vinna. Helgin þar á eftir er ég líka bókuð, fæ svo eina helgi í frí frá djamminu( að ég held ) til að halda upp á 13 ára afmæli Þorvarðar míns... ( guð hvað þetta líður hratt ).

Og næstu helgi eftir það eru Gilla og Stefán að gifta sig en þá er ég tvíbókuð ( once again) því að við erum að fara á ættarmót hjá fjölskyldunni hans Gumma, eitthvað sem var planað fyrir löngu síðan... :( því miður því að ég hefði svo viljað vera í Borgarnesi á þessum tyllidegi. Ég verð bara að láta duga að skoða myndirnar úr bryllupinu...og þá verður bara kominn júlí :s
Úff, ég verð bara þreytt á því að horfa á dagbókina mína. En þegar þessu öllu verður lokið verður nú stutt í sumarfrí þar sem ég get vonandi hlaðið batteríin aðeins, dundað mér hérna heima við og sleikt sólina á pallinum : )


Jæja, ég er komin með nóg af því að sitja hérna í fuglabjarginu inni hjá Þorvarði. Best að fara að gera eitthvað af viti áður en Gummi kemur heim. Og þá hringir þessi elska....

c",)