þriðjudagur, janúar 06, 2004

Gleðilegt nýtt ár...

og takk fyrir allt gamalt og gott :)

Jæja, þá eru jólin búin og þau voru nú aldeilis ljúf í alla staði. Þegar ég loksins komst í jólafrí þá var ég búin að flest öllu svo að við tók afslöppun, skellti mér á Lord of the Rings sunnudaginn fyrir jól og ómægod... hún er sko engu síðri en fyrri myndirnar. Það er svolítið skrýtið að nú sé þetta bara búið...

Jólin gengu annars fyrir sig nokkuð áfallalaust. Við vorum hjá tengdó í mosó á aðfangadagskvöld og börnin mín voru þvílíkir englar að annað eins hafði ekki sést lengi vel. Þau voru líka svo upptekin við tölvuleikina að það var svo sem ekkert skrýtið. Kristín skemmti sér konunglega og steig oftar en einu sinni upp á stól, bað viðstadda vinsamlegast um að tala einn í einu og söng hástöfum jólalög að sínum hætti. Hún fékk svo lítið útvarp sem að hún getur sungið með í og hún er að verða búin með batteríin og orðin hálfhás af öllu sönglinu.

Jóladagurinn var mjög svo ljúfur, fórum ekkert á fætur fyrr en um eða eftir hádegi og fórum í boð um kveldið. Þá borðuðum við hangiket í annað skiptið þann daginn, soldið spes :) en svo sem ekkert að því :)

Annar í jólum...hvað var nú aftur þá í gangi ?? Já auðvitað, þá buðum við vinafólki í mat. Ég eldaði hamborgarhrygg og hef nú oft gert slíkt en þessi var svo ógeðslega vondur að það var ekkert hægt að bjarga honum. Bautabúrið mæ ess, ætla sko aldrei nokkurn tímann aftur að versla kjöt frá þeim, þetta var meira líkt einhverjum /&%$###%&$ skopparabolta og algjörlega bragðlaust þar fyrir utan !!!

Þriðji í jólum, þá hittumst við mín litla nána ætt í Njarðvík og höfðum það notalegt. Fengum okkur hóflega að borða, ekkert of mikið.

Fjórði í jólum - matarboð hjá ömmu og afa míns kæra. Það var mjög svo gaman, hitti alla helstu ættingjana á einu bretti og Kristín hljóp um allt og reyndi að kyssa strákana. Ekki veit ég hvaðan hún hefur það en grunar helst eldri stelpurnar sem voru á svæðinu. Ljóskan mín hefur nú lítið vit á þessu ennþá, sem betur fer...en skemmti sér konunglega !!

Þá var nú komin smá pása í jólaboðin því að við héldum okkur heima við alveg fram að áramótum. Þá hreinlega gistum við hjá tengdó og skemmtum okkur langt fram eftir nóttu með þeim. Mæli með áramótum í mosó, hef aldrei upplifað aðrar eins sprengingar og það kvöld. Kristín var nú ekkert svakalega hrifin svona fram eftir en svo að lokum var hún síðasta manneskjan til að skríða inn fyrir dyrnar. Þórunn gisti í svefnpoka með systur míns kæra og þær tjöttuðu fram eftir öllu og hún eignaðist trúnóvinkonu þessa nóttina. Alltaf notalegt þegar það gerist.

Eftir þetta allt saman hefur ekkert verið etið, alla veganna haldið í lágmarki...ég er búin að kaupa mér árskort í ræktina og meira að segja farin að mæta þangað því að jólin voru svona á heildina litið mikil áthátíð og mér er alveg sama þó að ég fái ekki reykt kjöt næstu mánuðina. Þegar ég vaknaði á nýársdag leið mér eins og ég væri með silikon í vörunum...svona til að sýna fram á að saltneyslan var svona helst til of mikil. En þetta var nú samt svo ljúft og erfitt að snúa sér aftur í gang. En þetta kemur með kalda vatninu...og miklu af því :)

c",)