mánudagur, janúar 02, 2006

GLEÐILEGT NÝTT ÁR...

og takk fyrir öll þau gömlu og góðu.
Nú er síðasti frídagurinn minn runninn upp, búið að vera yndislegt jólafrí. Ég er búin að njóta þess í ræmur að vera bara í nýju náttfötunum mínum ( jóli hlustaði á mig ;), lesa og bara tjilla almennt. Hef nú mætt í ræktina inn á milli, voðalega dugleg. Það var uppskeruhátíð í síðustu viku og ég missti flest kíló, 10.7 alls. Ansi lukkuleg með það enda komin í kjörþyngdina mína, sem var nú markmiðið. Nú er bara að halda áfram...
Til hamingju með afmælið í gær, elsku Gilla mín og takk fyrir síðast. Hún bauð okkur nokkrum vinkonunum út að borða í gær á Galileó, algjörlega meiriháttar. Við sátum þar til hálfeitt þegar staffið eiginlega rak okkur út, alveg komið með nóg af okkur. Ég, Gilla og Ylfa fórum aðeins á röltið með Stefáni og Hannesi og enduðum á Apótekinu. Feikna fjör, Buffið var að spila og þeir eru náttúrulega algjör snilld. Í næsta húsi ( Borginni ) var Sálin með ball og Hannes gerði sér lítið fyrir og reddaði okkur miðum inn. Gilla var reyndar komin með nóg, búin að drekka nokkra cosmo ( mjög góðir á Apótekinu ) og nokkra mojito fyrir utan fullnægingarnar á barnum. Svo að Stefán fór bara með hana heim á hótelið meðan ég, Ylfa, Hannes og fleiri skelltum okkur á Sálina með hinum snobburunum. Geðveikt, eins og alltaf. Þeir standa sko fyrir sínu. Soldið fyndið að sjá jet tímið á essinu... vægast sagt. Hitti nokkra góða vini síðan í den, m.a. Adda reddara. Hef ekki séð kappann í örugglega 3 ár. Alltaf gaman að hitta hann og vera kölluð sykurpúði. Enda er ég soddan gella júnó ;)
Svo þegar Sálin lauk sér af þá ákvað ég að þetta væri orðið gott og smessaði á elskuna mína sem var ekki sofnaður. Svo hann sótti mig og við komum við á lélegt og keyptum gúmmelaði til að reyna að koma í veg fyrir þynnku dauðans. Og það virkaði, er eiturhress í dag og er bara að spá í hvort ég ætli í ræktina hálfsex, hálfsjö eða bara í 2faldan tíma. Kemur í ljós á eftir...
Jæja, er farin undir teppi að lesa aðeins....

c",)

Engin ummæli: