laugardagur, desember 22, 2007
2. dagur
Annars er bara allt gott að frétta. Jólasveinninn er að komast aftur í náðina eftir smá flopp í vikunni sem leið. Kristín varð 7 ára á mánudeginum og fékk mandarínu og lyklakippu í skóinn. Mandarína var nú sett pent í ávaxtakörfuna og dæst yfir lyklakippunni " ég á enga lykla ". Næsta dag fékk hún bangsa með nammi í belgnum, voða fínt en Kristín kommenteraði og sagði að hún hefði nú séð þennan bangsa í Krónunni nokkrum sinnum. Næsta dag fékk hún svo pez, svona prinsessu og þá dæsti hún enn einu sinni og sagði að hún væri nú orðin svolítið þreytt á þessum prinsessum. Síðan að jólasveinninn náði að floppa svona svakalega 3ar í röð hefur hún verið nokkuð sátt, blessunin. Og þeir eiga bara eftir að koma tvisvar í viðbót ( guði sé lof !!! ).
c",)
fimmtudagur, desember 13, 2007
Frá sjónarhorni konunnar...
Þrír menn sátu saman og voru að monta sig af því hvernig þeir höfðu látið
nýju konurnar sínar fá skyldur og verkefni heima fyrir.
Sá fyrsti hafði gifst konu frá Colarado og hann hafði sagt henni að hún
ætti að þvo upp og þrífa húsið. Það tók nokkra daga en á þriðja degi kom
hann heim í hreint hús og uppvaskið búið og frágengið.
Annar maðurinn hafði gifst konu frá Nebraska. Hann hafði skipað konu sinni
að sjá um öll þrif, uppvask og eldamennsku. Fyrsta daginn hafði ekkert
gerst, annan daginn hafði það aðeins skánað og þann þriðja var húsið
hreint, uppvaskið búið og svaka steik og meðlæti í matinn.
Þriðji maðurinn hafði gifst konu frá Íslandi. Hann sagði henni að hennar
verk væru að halda húsinu hreinu, sjá um uppvaskið, slá garðinn, þvo þvott
og elda heita máltíð í hverjum matmálstíma. Hann sagði að fyrsta daginn
hefði hann ekki séð neitt, annan daginn sá hann ekki neitt en á þriðja
degi minnkaði bólgan aðeins svo hann sá aðeins með vinstra auganu, nóg svo
hann gat útbúið sér eitthvað að borða og sett í uppþvottavélina!
miðvikudagur, nóvember 21, 2007
þriðjudagur, nóvember 20, 2007
Julen, julen, julen kommer snart…
Fyrst ég var þarna í koppavoginum ákvað ég að skella mér líka inn í Pier á meðan Gummi fór í Elko. Og eins og TRU þá náði hún ekki heldur að heilla mig. Erfitt að labba þarna í gegn, sveið hreinlega í nefið ( svipað eins og að labba framhjá LUSH ) og var ekkert að sjá neitt sérstaklega mikið sem heillaði mig. Enn ein ástæðan fyrir því að halda sig heima og versla jólagjafir á netinu.
Og nú kemur að því skemmtilegasta. Af því að það er verið að byggja einhvern turn þarna ofan í gatnamótunum við Þvagrás Kapítalismans þá er umferðin frekar erfið þarna í kring. En að það taki mann hálftíma að komast út af stæðinu !?!?!?! hvað í ands&%#$& er það eiginlega ? er ekki hægt að skipuleggja þetta aðeins betur og beina umferðinni meira í gegnum svæðið í staðinn fyrir að þjappa þangað til ekkert gerist ?
Fjand%$###&. Þetta er orðið svona pirripú blogg. Eníveis, jólaverslun...ekki að heilla mig í bráð, skelli mér bara einhvern tímann eftir kvöldmat í desember. Hef hvort eð er nóg að gera um helgar þangað til um miðjan desember ; )
c”,)
p.s. byrjuð að baka ( julen..... )
föstudagur, nóvember 16, 2007
YES, YES, YES !!!!!!!!!
Er búin að gera bragðkönnun á jólabjór ( og smákökum hjá nágrönnunum ) og viking er í læ, samt soldið goskenndur en tuborg jólabruggið stendur alltaf fyrir sínu.
Skál : )
fimmtudagur, nóvember 15, 2007
Guð skapaði manninn...
Þú átt eftir að þræla hvern einasta dag og verður kallaður heimskur. Þú
munt lifa í 20 ár.
Asninn svaraði: Ojoj þetta hljómar ekki vel. Getum við ekki sagt að ég
lifi bara í 5 ár. Guð samþykkti tillögu asnans.
Síðan skapaði Guð hundinn og sagði við hann: – Þú verður kallaður
hundur og munt einbeita þér að því að hlýða, borða afganga og standa
vörð um húsið. Þú munt lifa í 35 ár. Hundurinn svaraði: Ojoj, þetta
verður ekkert skemmtilegt líf, er ekki nóg að ég lifi bara í 15 ár? –
Guð samþykkti tillögu hundsins.
Nú skapaði Guð páfagaukinn og sagði við hann: – Þú verður kallaður
páfagaukur. Þú munt sitja úti í horni og endurtaka allt sem sagt er til
ama fyrir alla. Þú munt lifa í 75 ár. Páfagaukurinn svaraði: Þetta
hljómar frekar einhæft og leiðinlegt. Getum við ekki bara sagt 50 ár og
málið er dautt? Guð samþykkti tillögu gauksa.
Að lokum skapaði Guð manninn og sagði við hann: Þú ert karlmaður og
munt lifa góðu lífi. Þú ert vel greindur og munt ráða ríkjum á
jörðinni. Þú munt lifa í 20 ár. Maðurinn svaraði: Þetta hljómar allt
mjög vel og ég mun örugglega una hag mínum vel. En get ég ekki lifað
aðeins lengur? (Og nú sannaði karlmaðurinn greind sína): Get ég ekki
fengið 15 árin sem asninn vildi ekki, 20 árin sem hundurinn afþakkaði
og líka þessi 25 ár sem páfagaukurinn vildi ekki? Guð samþykkti
tillögu mannsins.
Þess vegna lifir maðurinn æðislegu lífi upp að 20 ára aldri. Síðan
giftir hann sig og þrælar næstu 15 árin og venst því að vera kallaður
heimskur. Næstu 20 árin fara í að uppfylla þarfir allra
fjölskyldumeðlimanna, borða afganga og passa húsið. Að lokum situr
karlmaðurinn síðustu 25 ár ævinnar úti í horni og endurtekur allt það
sem sagt er til ama fyrir alla í nánasta umhverfi.
c",)
þriðjudagur, október 30, 2007
Í dag...
Eru 9 ár síðan að mamma dó.
Er 1 ár síðan að afi hans Gumma var jarðaður.
Blessuð sé minning þeirra beggja
fimmtudagur, september 06, 2007
Ég gat ekki annað en sett þetta hérna inn...
Ef þú myndir öskra í 8 ár 7 mánuði og 6 daga myndir þú búa til næga orku til að hita 1 kaffibolla.
Mér sýnist varla taka því
Ef þú myndir reka við stanslaust í 6 ár 9 mánuði myndast gas sem jafngildir krafti atómsprengju.
Þetta er betra
Fullnæging svína stendur í 30 mínútur. Í næsta lífi vil ég vera svín
Hvernig finna menn þetta út og afhverju!!!.
Ef þú lemur hausnum við vegg brennir þú 150 hitaeiningum á klukkutíma.
ég er ekki enn búin að komast yfir þetta með svínin og ekki prufa þetta með hausinn heima kannski í vinnunni, það myndi líta mjööööööög vel út
Menn og höfrungar eru einu tegundirnar sem stunda kynlíf sér til skemmtunar.
(Nú vitum við af hverju Flipper er alltaf svona glaður) (og svín fá 30 mínútna fullnægingar) ( virðist ekki sanngjarnt)
Sterkasti vöðvinn í líkamanum er tungan.
(Hmmmmmmmmm........)
Rétthent fólk lifir að meðaltali 9 árum lengur en örvhentir.
(ef þú ert jafnvígur á báðar deilir maður þá með 2?)
Maurar geta lyft 50 faldri þyngd sinni,togað 30 falda þyngd sína og þeir falla alltaf á hægri hliðina þegar þeir verða drukknir.
(Eftir að hafa drukkið litlar flöskur af...??) (greiddu skattgreiðendur fyrir þessa rannsókn)
(og hvað með það þótt svín fái 30 mínútna fullnægingar!)
Ísbirnir eru örvhentir.
(hver vissi það..?Hverjum er ekki sama...?hvernig fundu menn það út, spurðu þá? - og táknar það að þeir lifa skemur?)
Leirgedda (það er fiskur) er með 27,000 bragðkirtla.
(hvað í ósköpunum getur verið svona bragðgott neðst í vatninu ??)
Flóin getur stokkið 350 falda lengd sína, það er þá svipað og maðurinn stökkvi yfir fótboltavöll.
(30 mínútur ímyndaðu þér og af hverju svín)
Kakkalakki getur lifað í 9 daga án höfuðs áður enn hann sveltur til bana. (Creepy)
Sum ljón eðla sig 50 sinnum á dag(ég vill samt verða svín í næst lífi .. gæði fram yfir magn...)
Fiðrildi eru með braglaukana á fótunum
(ojjjjjjj) (það er næstum eins slæmt og Leirgeddan)
Auga strútsins er stærra en heilinn
(Ég þekki svoleiðis fólk.)
Krossfiskar hafa engan heila.
(Ég þekki líka svoleiðis fólk.)
Eftir að hafa lesið þetta er það eina sem ég get sagt er
Svín eru heppin.
c",)
föstudagur, júlí 13, 2007
Déjà vu
Sko, við skiluðum Mözdunni í gær ( = eigum engan bíl ) og erum að leita að öðrum þessa dagana. Það er búið að prufukeyra flest allar tegundir og verið sest upp í aðrar og snúið við á nóinu. Til dæmis Citroen. Það er nú meiri viðbjóðurinn, gallabuxurnar mínar voru límdar við lærin á mér í heilan dag eftir að ég prófaði að setjast inn í einn. Plusshrollur… Og alltaf þegar við erum að nálgast niðurstöðu þá er annaðhvort bíllinn seldur eða eitthvað gerist þannig að við hættum við. Og þetta var nákvæmlega svona fyrir 3ur árum.
Annað, Gummi er búinn að liggja heima alla vikuna, fékk úrskurð á miðvikudaginn að hann væri með eðal streptókokka og ætti að taka því rólega. Fyrir 3ur árum horfði þetta aðeins öðruvísi við , þá vorum við nýbúin að fá mözduna okkar, voðalega lukkuleg. Gummi var þá tiltölulega nýbúinn í endajaxlatöku hjá tannsa og var á einhverju pensillíni. Nema hvað að 3ur dögum eftir að við fáum bílinn þá fer Gummi að steypast út í útbrotum. Og það eina sem honum datt í hug var að hann væri örugglega með ofnæmi fyrir leðursætunum í mözdunni. Eða þá fyrir Ariel Ultra. Eftir 2 heimsóknir á bráðamóttökuna, nokkrar sterasprautur og eitthvað jukk í æð kom í ljós að hann var með ofnæmi fyrir penisillíni. Sem hann hafði fengið hjá tannsa. Og viti menn, hann er að bíða núna eftir að komast til tannsa. Yet again déjà vu. Þannig að bílamál, veikindi og tannsaferðir. Vonandi er það bara þetta þrennt sem tilheyrir þessu déjà vu, alla veganna nenni ég ekki þessum bráðamóttökuferðum. Svo að ég er voða dugleg að minna Gumma á að taka lyfin sín, ekkert múður á mínu heimili.
Annars er allt gott að frétta, ég held bílaleitinni áfram og finn vonandi einhvern kagga sem mér líkar við. Sumarleyfisblogg kemur síðar ;)
c”,)
fimmtudagur, júní 14, 2007
Síðasti...
Eníveis, er annars búin að vera hrikalega dugleg undanfarið svona síðustu dagana fyrir FRÍIÐ mitt og svoleiðis reiti af mér niðurstöðum. Það er alltaf gott að fara í FRÍ( var ég búin að segja að ég er að fara í FRÍ ?? ) með lítið á bakinu og bara ný verkefni þegar maður snýr tilbaka. Og mér sýnist að þau verði all mörg.
Ætli kvöldinu verði ekki eytt í að pakka og fara yfir helstu nauðsynjar sem að við tökum með okkur í FRÍIÐ. Best að caps locka þetta orð svo ég sjái hversu oft ég hripa það niður...
Á ég að sýna ykkur áfangastaðinn ?

Trúið því bara, þetta er útsýnið frá einkasundlauginni við húsið sem ég er að fara í með fjölskyldunni. Við erum bara búin að vera að telja dagana niður í allan vetur og nú er þetta bara að skella á. Jibbí já. Kristínu leist nú ekkert á þetta í byrjun talningar, hefur aldrei farið í flugvél og segist vera svo lofthrædd að hún vilji bara alls ekki fara í flugvél. En nú er öldin önnur, hún með mjög svo ákveðnar skoðanir á því hvað eigi að fara með í töskunum og mér sýnist að það fari heil taska undir hafurtaskið hennar, bíkíníin og dótið. Það kemur allt í ljós þegar ég verð búin að pakka niður fyrir FRÍIÐ. Hin eldri eru nú rólegri yfir þessu, Þórunn Anna kannski æstari en Þorvarður kallinn. Ég held að það sé fátt sem að raskar ró hans. Reyndar er hann búinn að panta að fá að fara í einhvern hrikalegan skemmtigarð á afmælisdaginn sinn og ég býst nú ekki við öðru en að við látum það eftir honum. Ójá, ótrúlegt en satt...frumburðurinn að verða 15 ára eftir nokkra daga. Ji, hvað þetta er fljótt að líða :s
Jæja, best að fara að koma sér heim á leið og pakka niður í töskurnar fyrir FRÍIÐ !!!
þangað til næst, hafið það gott. Ég veit að ég kem til með að hafa það mjög gott í FRÍINU
c",)
fimmtudagur, maí 24, 2007
Stuttar bækur
Stjórnmálaflokkar sem ég á eftir að prófa-eftir Kristinn H. Gunnarsson
Tískuhandbók tölvunarfræðingsins
Framfarir í mannréttindamálum í Kína
Hlutir sem ég hef ekki efni á- eftir Björgúlf Thor Björgúlfsson
Villtu árin- eftir Geir H. Haarde
Hvernig halda skal formannssæti- Össur Skarphéðinsson
Félagatal Framsóknarflokksins
Kúnstin að vera krúttlegur-eftir Gunnar Birgisson
Vinsælustu lögfræðingar landsins
Hvernig á að bjóða útlendinga velkomna-eftir Jón Magnússon
Úr fréttum inn á þing- eftir Ómar Ragnarsson
Hafarnaruppskriftir- Náttúruverndarsamtök Íslands
Þingmannsárin-eftir Jón Sigurðsson
Það sem mér líkar vel við í fari Framsóknarmanna- eftir Steingrím J. Sigfússon
Hér að ofan eru nefndar nokkrar stuttar bækur sem varla verða gefnar út...
c",)
fimmtudagur, maí 17, 2007
Pirripú...
Pirripú, hér er sko eitt sem hefur verið að pirra mig óendanlega síðustu daga. Hafið þið ekki heyrt auglýsingu í útvarpinu um einhverja aula sem þykjast ætla að bjóða einhverjum skutlum út að borða = tríta þær og þá kemur einhver hálfvitinn og segir að besta trítið sé að fá á Taco Bell ? þar sem þú getur sko trítað kjellingarnar ( trítið er notað fulloft í þessari auglýsingu svona til að toppa pirripúið ) og borgað svo með klinki. Og svalað þorstanum með mountain dew. Síðan hvenær er það trít í nokkurs manns augum að fara út að borða á stað þar sem áferðin á matnum er svo slepjuleg og engin þörf á að tyggja hann, bragðast eins og mogginn með salsasósu og svo alveg geðveikt að borga með tíköllum ?? Hvaða konu finnst það spennandi trít ? Not me, for sure...kannski er ég bara einhver snobbkjelling en þetta kalla ég ekki trít ! og hana nú.
Hvað annað hefur verið að pirra mig undanfarið ? Hehehe...auddað. Nú man ég. Kosningarnar. Ég hef sjaldan upplifað aðra eins kosninganótt. Þegar ég fór að sofa um 3 um nóttina þá var stjórnin að falla eða halda á víxl allt eftir því hvernig nýjustu tölur féllu. Hún var sem sagt fallin þegar ég hallaði mér á koddann. Ég var alsæl, hélt að ég myndi nú fara að upplifa aðra tíma en undanfarin ár en nei, nei. Þegar loksins var búið að telja síðustu atkvæði frá einhverjum afdalabæjum á Vestfjörðum þá kom í ljós að stjórnin var með nauman meirihluta. Hvað í andskotanum er að fólki ? Hvaðan koma þessi atkvæði sem falla í skaut framsóknarmanna ? Ég hélt að það væru bara um 400 flokksbundnir og þá væri verið að tala um 4 bændur og rollurnar þeirra ? En nei, nei. Einhvers staðar frá þá koma þessir plebbar skríðandi undan steinum og mæta á kjörstaði. Og enn eru í gangi stjórnarmyndunarviðræður milli sjálfstæðismanna og framsóknarmanna. Ekki misskilja mig, ég er ekki og verð aldrei stuðningsmaður sjálfstæðismanna. Og ég er líka raunsæ, það var ekki séns að fella stjórnina nema þá að framsókn fengi ekki nógu mörg atkvæði. En viti menn. Svona fór um sjóferð þá. Við vitum væntanlega á næstu dögum hvernig þetta allt fer en ég segi fyrir mína parta að ég hefði viljað sjá sjálfstæðismenn og samfylkinguna saman í stjórn. Mín skoðun...
Og annað pirripú. Eurovision. Eða Balkanvision eins og réttast væri að kalla það. Þriðja árið komust Íslendingar ekki upp úr forkeppninni. Og eins og keppnin lítur út þá komum við ekkert til með að gera það fyrr en fyrirkomulaginu verður á einhvern hátt breytt. Ég er búin að heyra nokkrar tillögur undanfarið og ein er sú að það verði haldnar 2 forkeppnir, fyrir austur og vestur Evrópu og 10 bestu lögin úr hvorri komi saman í aðalkeppninni. Allt gott og blessað, nema hvað að austrið yrði þá í fyrstu 10 sætunum og vestrið í neðstu 10 sætunum. Það virðist vera svo mikil spenna fyrir þessu þarna í fjarska svo að löndin virðast gera flest allt sem í þeirra valdi stendur til að koma sínu lagi og nágrannana ( sem þeir eru búnir að berjast við í blóðugum stríðum undanfarna áratugi ) í úrslitin. Kannski er bara besta leiðin að taka ekkert þátt. Við erum alla veganna ekki að halda keppninni uppi eins og sumir sem senda inn flugfreyjur með trollís á sviðið. Nefni ekkert land sko...
Reyndar væri soldið skrýtið að taka ekki þátt í þessum rússíbana. Þetta er nefnilega orðið tilvalið partýkvöld hvernig svo sem keppnin endar...
Úff, nú sé ég hvað ég er eitthvað pirruð...
þangað til næst
c",)
miðvikudagur, maí 02, 2007
fimmtudagur, apríl 26, 2007
True...true
Fínar dömur: Ef þú hefur ofsaltað matinn sem þú ert að elda, þá skaltu setja kartöflu í pottinn.Hún dregur saltið í sig.
Alvöru konur: Ef þú ofsaltaðir matinn er það bara assgoti pirrandi.
Fínar dömur: Það er auðvelt að lækna höfuðverk með því að skera límónu í sundur og nudda henni á ennið.
Alvöru konur: Taktu límónu og blandaðu henni við tekíla og salt og drekktu. Höfuðverkurinn hverfur sennilega ekki, en þér verður alveg sama.
Fínar dömur: Ef þú setur sykurpúða í botninn á vöffluformi, þá lekur ísinn ekki í gegnum það.
Alvöru konur: Sjúgðu bara ísinn úr vöffluforminu. Þú liggur hvort eð er
örugglega með fæturna upp í loft í sófanum og borðar hann.
Fínar dömur: Þú getur komið í veg fyrir að kartöflur spíri með því að setja epli í pokann með þeim.
Alvöru konur: Kauptu karföflumúspakka, hann geymist í heilt ár í eldhússkápnum.
Fínar dömur: Kökur fá jafna, slétta áferð ef þú penslar þær með eggjahvítu áður en þær fara í ofninn.
Alvöru konur: Betty Crocker segir ekkert til um penslun á kökunni. Slepptu þessu bara.
Fínar dömur: Ef þú átt erfitt með að opna sultukrukku er gott að setja á sig gúmmíhanska. Þannig færðu betra grip..
Alvöru konur: Biddu myndarlega, ríka og einhleypa nágrannann um að opna krukkuna!
Fínar dömur: Ekki hella afgangs rauðvíni. Það má frysta í ísmolabakka og nota í sósur seinna.
Alvöru konur: Hvað er afgangs rauðvín?
Ég ? 100% alvöru kona
c",)
mánudagur, apríl 09, 2007
Páskarnir...
Og svo er líka fermingin hennar Þórunnar Önnu aflokið. Sem er mjög ljúft. Hún fermdist á fimmtudaginn, á skírdag. Ég var búin að vera í fríi dagana á undan svona til að undirbúa, baka og taka til. Sissa kom svo og hjálpaði til á miðvikudeginum, við náðum í yndislegar rósir upp í dal og bollastellið niður í vinnu. Á miðvikudagskvöldið var eiginlega allt tilbúið og hjónarúmið okkar komið út í bílskúr og búið að gera setustofu í herberginu okkar. Já, heimilinu var eiginlega snúið við þessa daga. Svo vöknuðum við bara snemma á fimmtudeginum og gerðum Þórunni fína, skelltum nokkrum liðum í hárið á henni og klæddum hana upp í hennar fínasta.
Messan var alveg í lengra lagi, enda voru 17 börn að fermast þennan dag. Það var frekar fyndið að þegar fyrstu börn fóru að altarinu þá tæmdist kirkjan. Ég er alveg handviss um að nokkrir í kirkjunni fóru oftar upp en einu sinni, einhverjir sem finnst púrtarinn góður. Þórunn Anna var síðust upp að altari og ég og Gummi, mamma hans og Gerður og Kristín fórum upp með henni. Messan kláraðist loksins, 1 og hálfum tíma eftir að hún byrjaði. Þá stormuðum við heim með fermt barnið og fórum að gera klárt fyrir kaffiboðið. Gilla og Gerður voru mér innan handar að skera niður brauðið í ofninn og hella á könnuna. Við vorum búin að ákveða að vera með opið hús milli 2 og 5 og það var sko bara orðið troðið hérna hjá okkur kl.2. Það komu eiginlega allir á sama tíma og sem betur fer komumst við öll fyrir. Og ekki einu sinni setið þröngt. Þetta rann allt saman mjög ljúft áfram án nokkurra hnökra. Og barnið fékk mikið af gjöfum, hún var búin að fá rúm frá okkur og náttúrulega spánarferð ( bara 68 dagar þangað til ), fékk sæng og kodda frá tengdó, 2 hálsmen frá Gautaborgar ættingjum og Kiddý, hestamynd, teiknigræjur og svo fullt af peningum. Takk allir saman fyrir þetta allt saman :)
Um klukkan 5 birtist burðardýrið okkar, Óskar. Hann hjálpaði Gumma að bera út sófann sem við höfðum fengið frá nágrönnunum og rúmið okkar aftur inn og við gengum bara frá flest öllu og opnuðum nokkra bjóra á meðan á þessu gekk. Nágrannarnir voru hérna líka til að skemmta sér og öðrum og þetta entist alveg til 2 um nóttina. Ég var reyndar alveg komin með nóg um miðnætti og skreið upp í en Óskar, Gummi og Tommi nágranni sátu að til 2 um nóttina. Og það gekk aðeins betur á veitingarnar og það eina sem stóð eftir var heil súkkulaðikaka sem fór bara í frystikistuna og verður tekin upp einhvern tímann við tækifæri.
Í heildina var þetta yndislegur dagur, rann vel áfram og skildi bara góðar minningar eftir sig.
Annars hafa páskarnir bara verið ljúfir. Við grilluðum á föstudaginn langa og fórum svo aðeins yfir til nágrannana eftir matinn og vorum hjá þeim þangað til einhvern tímann um nóttina. Þetta var svaka stuð þó að byrjunin hafi verið róleg. Ég held að irish coffee-inu sé um að kenna sem við drukkum um miðnætti, það gaf öllum aukabúst inn í nóttina.
Laugardagurinn var svo alveg uber rólegur, enda komið gott í bili. Og í gær á páskadag var okkur boðið í mat til tengdó. Hamborgarhryggurinn rann ljúft niður með tilheyrandi veitingum. Og eftir síðustu talningu þá eru til 3 heil páskaegg á heimilinu. Það síðasta sem mig langar í í augnablikinu er meira súkkulaði. Samt fékk ég bara bita hér og þar í gær. Þetta er sko alveg too much fyrir minn smekk :s
Svo er bara vinnudagur á morgun. Samkvæmt því sem ég hef heyrt á meðan ég var í fríi þá er brjálað að gera framundan. Sem er bara gott því að þá líða dagarnir hraðar og þá styttist í næsta frí. Sem verður æðislegt.
Jæja, hætt að bulla í bili, komið gott :)
c",)
laugardagur, mars 17, 2007
Og...
Ég átti afmæli í gær,
ég átti afmæli í gær
ég átti afmæli í gææææær
ég átti afmæli í gær !!
Ég reyndi að gera heiðarlega tilraun til að blogga í gær (16.) en það gekk ekki alveg. So here goes.
Eníveis, ljúfur afmælisdagur er að baki. Ég mætti galvösk með sko 2 hnallþórur í vinnuna og bauð GMT upp á morgunkaffi við góðar undirtektir. Fékk að heyra að ég ætti nú ekki að eiga erfitt með að halda enn eina fermingarveisluna fyrst ég gæti reitt þessar tertur fram úr ermum mínum. Sem er kannski rétt, kemur í ljós. Og allan daginn var ég að fá skilaboð með árnaðaróskum. Og pabbi minn kæri mundi meira að segja eftir mér og hringdi þegar leið á daginn...
Svo þegar vinnudeginum lauk rauk ég heim til að skutla Gumma á kúttmagakvöld ( eða viðbjóðskvöldið ). Og minn maður svo sneddí, fékk sér ekkert að borða áður en hann fór og það endar bara á einn veg. Hann verður alveg ofurhress á morgun, eða hittó :s og eins og hann þarf að afreka margt áður en hann heldur af landi brott á sunnudaginn. Greyið.... Ekki ætla ég að vorkenna honum heldur ætla ég sko að vera mætt í bröns til hobbýhórunnar minnar eldsnemma um morguninn og þá á ég allan daginn eftir í ýmislegt stúss. Ég og Dista skelltum okkur svo út að borða í kvöld með barnaskarann og fórum á ofurstann, sem klikkar aldrei ;) og eftir það komu 21's í fljótandi og fastar veitingar og gáfu mér meira að segja pakka :) sem er nú aldrei leiðinlegt. Og Sissa kom líka seinna í kvöld og er eiginlega nýfarin. Þessi elska. Hún kemur nú aftur á morgun í mat til mín svo við sjáumst aftur þá.
Og já, ég er búin að fá fullt af afmælispökkum. Sem ég átti alls ekki von á. Ég fékk gjafakort í Kringluna frá Gumma, flotta sósukönnu / pott frá tengdó og Stínu, karöflu frá Önnu Jónu og stelpunum og kertastjaka frá 21's. Voðalega gaman hjá mér.
Well, komið gott í bili.
c",)
fimmtudagur, mars 15, 2007
Hún...
hún á afmæli í dag !
hún á afmæli hún Ragnheiður ( hobbýhóran mín )
hún á afmæli í dag !
Elsku Ragnheiður mín. Til hamingju með daginn, hafðu það gott í dag sem aðra daga og við sjáumst á laugardaginn og heyrumst vonandi fyrr :)
Kossar og knús...
c",)
miðvikudagur, mars 07, 2007
föstudagur, febrúar 16, 2007
Nú get ég ekki orða bundist...
Annars er bara ljúf helgi framundan. Gummi verður á "fundi" í Viðey allan daginn á morgun og þegar hann skilar sér aftur verður hann væntanlega mjög hress. Því eins og venjulega verða fljótandi veigar í boði. Og svo á sunnudaginn erum við boðin í 2 barnaafmæli, hjá Söru Ósk og Sindra Frey. Þannig að ég þarf lítið eða ekkert að elda á morgun og alls ekki á sunnudaginn. Sénsinn, verðum í boðum allan daginn ;)
Jæja annaðhvort er ég að fara að horfa á úrslitin í X-factor eða hella í mig öllaranum. Eða bara hvoru tveggja. Þá kannski er hægt að hlægja aðeins að karíókíinu...hehehe
c",)
miðvikudagur, febrúar 07, 2007
Kominn tími á blogg ?
Þá er víst komið nýtt ár og ágætis ári lokið. Mikil afrek á síðasta ári og það stefnir í álíka afrek þetta árið, ef ekki meiri. Það á allt eftir að koma í ljós en eins og við sögðum um áramótin þá er þetta árið !!!
Nú, við erum búin að plana fyrstu utanlandsferðina okkar þetta árið. Við erum að fara út til Spánar með nágrönnunum í sumar. Við erum búin að finna okkur æðislegt hús til að leigja, með einkasundlaug og það er meira að segja ísskápur við sundlaugina. Sem á sko örugglega eftir að koma sér vel. Allt er frágengið og við teljum bara niður dagana ( eða vikurnar réttara sagt ). Þessi ferð kemur eiginlega í staðinn fyrir stóra fermingarveislu Þórunnar Önnu, við ákváðum að hafa bara minni veislu heima fyrir þá nánustu vini og ættingja og skella okkur frekar í sólina. Og ég held að við eigum sko ekki eftir að sjá eftir þessari ákvörðun.
Annars er allt gott að frétta úr Mosó, krökkunum gengur alveg ágætlega í skólanum og Þorvarður farinn að læra meira heima eftir að við fórum að skammta í hann tölvutímann per dag. Drengurinn er bara allt annar eftir þetta. Kristín er farin að stafa sig í gegnum orð og les og les á hverjum degi. Skólinn snýst um lítið annað en lestur og smá stærðfræði, hún er voðalega stolt af sér þegar hún þilur upp hinar og þessar samlagningarnar sem eru alltaf réttar. Blessað barnið veit ekki enn að þetta á bara eftir að þyngjast. Þórunn Anna stendur sig eins og hetja í skólanum, með einkunnir upp á 9 og 9.5. Það eina sem hún getur bætt sig í er stærðfræðin og er það allt í vinnslu. Maður getur nú ekki verið séní í öllu ??
Og ég og Gummi vinnum bara og vinnum. Erum búin að vera í nokkrum veislum þetta árið og það byrjaði auðvitað með þrettándagleði í botnlanganum þar sem við skáluðum í eðalkampavíni sem við fengum í jólagjöf. Og svo var komið að tilteknu fimmtugsafmæli sem hefur verið á milli tannanna á fólki síðan þá. Elton var auðvitað flottastur og ég fæ enn gæsahúð þegar ég heyri lögin hans í útvarpinu. Og maturinn, algjör snilld. Svo núna um síðustu helgi var þorrablót Samskipa en þar spilaði Elton nú bara í græjunum, gat ómögulega mætt þá helgi. En þetta var þrusupartý, bara svona eins og venjulega. Og sunnudagurinn góður eftir því... NOT !!!
Svo stefnir bara í rólega helgi, gott að fá eina svona við og við. Gerist ekki oft :s og um að gera að njóta þess þá mun meira.
Og síðast en ekki síst ;)varð ég frænka í dag. Gilla og Stefán eignuðust lítinn pjakk núna eftir hádegið og sá fær flotta kennitölu ;) 070207, verður ekki erfitt að muna hana. Innilega til hamingju, elskurnar mínar.
Jæja, komið gott í bili. Gullfiskaminnið fer alveg með mann þegar það líður svona langt á milli. Eins gott að það verði styttra á milli næst...
c”,)