eru boðskortin í ferminguna hjá Þorvarði loksins farin í póst. Loksins, loksins. Gott að því er lokið. Nú er bara að undirbúa restina, kemur allt saman.
Í dag hefði mamma orðið 58 ára gömul, blessunin. Ég fór nú ekki í kirkjugarðinn, það hefði hvort eð er ekki logað á kerti í þessu roki. Ég kveiki bara á kerti hérna heima við, svona til að ylja mér við. Skrýtið að hugsa til þess ef hún væri enn hérna á meðal okkar. En það þýðir víst lítið að spá í það. Hún er nú kannski að fylgjast með okkur þarna uppi einhvers staðar. Með kisunum okkar öllum, eins og Kristín heldur fram. Sé hana í anda sitja í kisufaðmi, þær voru nú ekki ófáar um tíðina.
Er að losna við strengina síðan á fimmtudaginn. Við funduðum í dag og settum saman 2 lið í vinnunni sem að keppa á laugardaginn í fyrirtækjamóti ÍSÍ. Þetta verður bara stuð. Ég sagði Kristínu að hún gæti komið með mér og verið með Sollu stirðu á meðan ég væri að keppa en hún vill það alls ekki. Kemur á óvart en hún vill ekki hitta Glanna Glæp og ekki séns að segja henni að hann komi ekki. Hún tekur sko ekki svoleiðis sénsa. Svo hún verður væntanlega heima á meðan ég sprikla...
Jæja, farin að kúra með kellunni...hafið það gott í kvöld sem endranær
c",)
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)