sunnudagur, janúar 08, 2006

M M M

Ljúf helgi að baki, ótrúlegt að ég þurfi að fara í vinnu í fyrramálið. Ég var með Siggu í Kringlunni í dag þar sem hún reyndi að selja mér það að í dag væri föstudagur svo við ættum 2 daga eftir í fríi eftir. Því miður er nú reyndin ekki sú : ( og alveg heil vinnuvika framundan.
Við buðum Sissu og Bjarna í mat í gær, áttum nautalund í frystinum sem ég hanteraði eins og mér einni er lagið. Og ég gerði líka geðveikan forrétt, setti höfðingja ( ostinn ) í parma skinku og hitaði í ofni og hafði melónu með. Ómægod, hvað þetta var gott. Svo þegar við vorum búin að eta nautið vorum við alveg bakk. Eftir að við vorum búin að liggja á meltunni þá skelltum við okkur í Trivial pursuit spil, stelpur á móti strákum. Við vorum nú svo góðar að leyfa strákunum að vinna, enda hefur það tekið ansi langan tíma að fá Bjarna að spilaborðinu. Svo að kannski sest hann aftur niður með okkur og tekur annað geim. Svo enduðum við á því að horfa á brúðkaupið hans Óskars, alltaf hægt að hlægja að því.
Við skelltum okkur í Kringluna í dag, ég...Sigga og Sissa að skoða útsölurnar. Ég keypti mér 2 toppa í ræktina og svo aðeins á Kristínu, sem vantaði svooo buxur...lítur alltaf út eins og hún sé að bíða eftir næsta flóði. Ótrúlegt hvað hún stækkar hratt og mikið. Sigga var nú duglegri en ég, keypti sér 2 galladýr og einn jakka og Sissa keypti sér 2 peysur og aðeins á hann Sindra sinn. Svo settumst við niður og fengum okkur góðan kaffibolla og ræddum um New York ferðina okkar sem við stefnum á að fara á þessu ári. Erum sem sagt orðnar 4 sem ætlum að taka gott kúludjamm á Manhattan og tuttlast aðeins og auðvitað skella okkur í sex in the city tourinn, algjört möst.
Svo er sko bara tjill í kvöld, Gummi skellti sér með Óskari í skvass. Þeir eru búnir að taka einhverja 50 leiki og staðan síðast þegar ég vissi var 48-2, fyrir Gumma. Duglegur strákurinn minn. Best að fara í bólið snemma svo ég verði súper, dúper hress á morgun...tilbúin í hvað sem er ;)

c",)