að baki og hún var nú alveg ágætlega tíðindamikil. Gummi vatt sér til Færeyja á föstudaginn síðasta í kúnnaboð Samskipa og skemmti sér ágætlega með öllum lúðunum sem girða buxurnar í stígvélin og keppast við að safna í hormottu. Alla veganna heppnaðist ferðin ágætlega og allir sáttir eftir á held ég.
Á meðan hann var í Færeyjum þá skellti ég mér hérna út í hringleikahús með nágrönnunum í umræður og nokkra öllara. Föstudagskvöldið var bara mjög rólegt og þægilegt, yndislegt veður btw. Á laugardeginum skelltu börnin sér til feðra sinna ( já, skítur skeður ) svo við vorum orðin barnlaus seinni partinn. Við skelltum okkur í bíltúr til Sissu og Bjarna og borðuðum með þeim ( takk fyrir okkur ) og þau fengu sér nokkra öllara en ég var bara þæg og góð og keyrði audi-inn ( það var sko þess virði ). Svo auðvitað heillaði Sálarballið hérna í sveitinni, nánar tiltekið í Hlégarði. Svo ég keyrði hingað upp eftir um 11 leitið og við kíktum aðeins niður í Hlégarð í miðasöluna. Röðin var bara svo löng svo við ákváðum bara að skella okkur heim og fara svo á ballið um 1 leitið. Sem við gerðum en vorum farin að heyra útundan okkur í partýinu hérna við hliðina á okkur að það væri orðið uppselt. Við létum sem við heyrðum þetta ekki en komumst svo að því að þetta var satt. Nú voru góð ráð dýr, engir miðar og fullt af fólki fyrir utan að reyna að komast inn. Gummi hringdi í grannann sem var kominn inn og viti menn, hann gat skellt 2ur á gestalistann sinn. Svo þetta endaði á því að ég og Sissa skelltum okkur á ballið á meðan strákarnir héldu í bæinn.
Ballið var æðislegt, reyndar var varla hægt að komast á dansgólfið og hvað þá barinn en við brutum okkur leið og keyptum bara kippu af bjór á barnum til að þurfa ekki að standa í röð eftir öllaranum. Svo sungum við aðeins og dönsuðum með Mosfellingum og akp ( aðkomupakki ) sem var sko margmennt þetta kvöldið. Ég sá meðal annars vinkonu mína frá Hafnarfirði og svo eitthvað norðanlandspakk.
Eftir ballið þótti mér svaka sniðugt að fara úr heimabænum ( korter frá my place ) og niður í miðbæ RVK til að hitta Gumma minn. Svo við fengum far niður í bæ, hittum strákana og fórum heim. Enda var komið gott í þetta sinn. Ég er bara mjög sátt við helgina, skemmti mér konunglega og gat líka náð að slappa aðeins af. Reyndar svo mikið að ég festist í hálsinum og bryð verkjatöflur eins og smartís...bara svona til að þrauka vinnudaginn af. Vonandi verð ég betri á morgun...
c",)
mánudagur, september 04, 2006
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)