Jæja, þá er ég komin á lítinn sætan frúarbíl... :) og er ekkert smá lukkuleg með það. Fyrir valinu varð hyundai getz sem gengur fyrir loftinu að því er virðist. Liturinn er doldið sjokkerandi en venst vel...svona ljósgrænn á litinn. Gummi segir að bíllinn heiti froskurinn en ég hlusta nú ekki á það.
Annars er bara jafn yndislegt að búa í mosó. Krökkunum gengur vel í skólanum, meira að segja Þorvarði. Hann mætir eins og herforingi og í leikfimi og sund líka. Sko minn mann. Svo að þetta er bara æðislegt...
Kristín er búin að eignast vini út um allt og sést varla heima við eftir að við skríðum heim á frosknum ; ) ég næ henni varla inn á kvöldin. Það verður nú skrautlegt eftir nokkur ár...hehehe
Við hjónakornin erum bara búin að vera róleg undanfarið og ekkert djammað síðan síðast. Enda rétt svo búin að jafna okkur. En það stendur nú til bóta næstu helgar og ekki margir dagar lausir. Samskipaliðið er nú svo duglegt við þetta og við þar af leiðandi líka. Reyndar eru þverrandi líkur á einu djamminu, árshátið ÍE. Ég er eiginlega í engu stuði fyrir það og svo er Anna Jóna líka að skíra litlu Söru Ósk á sunnudeginum eftir svo að ég held að ég verði bara heima að baka og undirbúa með þeim í Stórateignum. Enda nenni ég ekki að standa skrallþunn við altari að morgni dags. Ekki alveg my style...
Jæja, best að fara að elda mexíkóskt...ala Bogga ; )
c",)
miðvikudagur, apríl 13, 2005
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)