þá er ættarjólaballið búið. Það stóð stutt en gaman allan tímann. Þvílíkur fjöldi af ættmennum Gumma. Veitingarnar þöktu borðið allan tímann og það var ekkert hægt að sjá að fólk hefði borðað nóg yfir jólin. Það voru ýmis skemmtiatriði en Kristín sá okkur nú fyrir einu gullkorninu. Sko, fyrir nokkrum dögum fór hún að spá í og spyrja hvernig hún ætti að bregðast við þegar ókunnugir færu að tala við hana.Við sögðum henni að réttu viðbrögðin væru bara að svara ekki og labba í burtu. Og þannig byrjaði hún á jólaballinu, þegar ein litla frænka hans Gumma gekk að henni og ætlaði að eiga við hana samræður á bleiku skýji labbaði Kristín bara burt og kom og talaði við okkur. Hún sagði okkur frá því að hún hefði talað við sig og við í tómu sakleysi spurðum hverju hún hefði svarað. " Engu, ég á ekki að tala við ókunnuga !!" svo að við leiðréttum blessað barnið og sögðum henni að það væri óhætt að tala við þá sem væru þarna inni í salnum. Svo hún hljóp af stað og það slitnaði ekki á milli hennar og Magneu allt ballið. Svo þegar jólasveinninn birtist þá færðist bara skelfingarsvipur yfir hana enda var hann með eindæmum ofvirkur. Hrikalega skemmtilegur. Að lokum dansaði hún við hann og fékk að launum nammi í poka. Svona til að viðhalda sykurstuðlinum í hæstu hæðum út daginn.
En mikil ósköp er svo gott að vera komin heim. Ég stefni á að fara í náttfötin mín fljótlega og hafa það notalegt í kvöld. Ég á reyndar eftir að heyra í Siggu, mér heyrðist fyrir helgi að hún ætlaði sko að vera í miklu djammstuði í kvöld, skella sér jafnvel á Sálarball á Selfossi með strípuhnökkunum. Hver veit hvað verður....
c",)
mánudagur, desember 26, 2005
Úbbs...Gleðileg jól !!!
Jólin komin og vel það. Niðurtalningin klikkaði eitthvað svona undir lokin en hátíðin gekk í garð þrátt fyrir það. Ég hafði bara soldið mikið að gera fyrir jólin,þó við hefðum verið búin að flest öllu. Við vorum búin að kaupa alla pakka, áttum eftir að fara í ákveðna ríkisverslun og kaupa meðlæti með steikinni svo að annirnar voru ekki heima við. Ég settist varla niður síðustu vinnudagana á þessu ári, verið að bíða eftir niðurstöðum út um allt hús. Og svo tók ég auðvitað hressilega á því í ræktinni þess á milli og uppskar eftir því. Ég ber víst Biggest looser, missti 10,7 kg á 12 vikum og get ómögulega sagt að ég sakni þeirra. Fataskápurinn minn er á leið í endurvinnslu því flest allar buxur eru víðar og pokalegar ( ekki lekkert ). Og mér finnst það bara ekkert leiðinlegt ; )
En víkjum nú aftur að jólunum. Þið ættuð að sjá jólasnjóinn sem að fellur í augnablikinu hérna fyrir utan gluggann hjá mér. Hann hefði mátt falla í fyrradag því þá var hávaðarok og rigning. Eins og haustlægð væri að ganga yfir landið. Ekkert jólalegt við það. Eníveis, yndislegt veður í dag. Við vorum með tengdafjölskylduna í mat, alls 9 manns. Við keyptum hagkaups hamborgarhrygginn í ár og ég kem sko til með að gera það aftur og aftur. Hann var geðveikur og munar auðvitað að þurfa ekki að sjóða hann, bara elda í ofninum. Diskarnir voru sleiktir hérna, meðlætið kláraðist líka svo að munnar voru sko mettir og vel það. Við vorum nú með súpu just in case í forrétt og svo var ítalskur ís ( súkkulaði, mintu og vanillu ) í eftirrétt með ferskum ávöxtum. Algjört nammi namm. Borðhaldið tók góðan tíma og krakkarnir voru svona við það að tapa sér af spenningi. Pakkarnir voru líka út um alla stofu, ekki séns að koma því öllu undir tréð. Kristín fékk það hlutverk að skríða undir tréð og ná í pakka og það byrjaði nú vel, hún náði í þá pakka sem hún vissi að hún ætti sjálf og vakti sko ekki mikla lukku viðstaddra. Stína systir hans Gumma var komin með skeifu niður á bringu þegar hún loksins fékk pakka. Þá léttist aðeins brúnin á henni. Ég verð nú að nota tækifærið og þakka kærlega fyrir mig og börnin mín. Allir mjög sáttir. Nema kannski Þorvarður í dag þegar hann er búinn að fá pakkann frá pabba sínum ( úlpa, buxur og peysa, hann vill ekki mjúka pakka þessi elska ). Það hefur væntanlega sigið á honum brúnin þegar hann opnaði hann.
Í gær kíktum við svo í heimsókn til afa og ömmu hans Gumma. Þar var boðið upp á kakó og kökur og ég verð nú að játa að lystin var nær engin. Mig langar bara í ferska ávexti núna :s Eftir innlitið í Hvassaleitið fórum við upp í kirkjugarð þar sem ég setti greinar og kerti á leiðin hjá mömmu og Jónatani blessuðum. Yndislegt að koma í garðinn á þessum tíma árs, allt upplýst og skreytt. Gott fyrir andlegu hliðina. Eftir það kíktum við aðeins í heimsókn til pabba og Distu og Mollý. Við vorum nú ásökuð um að hafa dottið á hausinn þegar við útbjuggum körfuna til þeirra en allt sem í henni var kemur að góðum notum. Svo það er nú allt í lagi. Svo hélt ég að rólegt kvöld heima við biði mín en nei, nei. Sissa og Bjarni hringdu og buðu okkur í mat svo að ég púðraði á mér nefið, Gummi skipti um bol og svo lögðum við í hann. Á borðum var hamborgarhryggur og ég get nú sagt núna að mér er sko slétt sama þó ég snæði hann ekki fyrr en eftir ár.Þetta er orðið gott í bili. En hann er nú alltaf svo góður. Svo sátum við og spjölluðum fram eftir kvöldi og stelpurnar voru uppi að leika sér með Sindra og seinna með Alexöndru. Klukkan var orðin eitt þegar við héldum heim á leið. Og ég lagðist upp í rúm og vissi ekki af mér fyrr en um 11 í morgun. Yndislegt að geta sofið svona vel út.
Svo er jólaball í dag hjá móðurfjölskyldunni hans Gumma. Fyrst að við erum með stelpurnar heima erum við tilneydd að mæta ( höfum sloppið síðustu 2 ár ). Þetta verður stuð, er einmitt að hlaða batteríin í myndavélina svo ég geti nú skráð þetta allt saman. Kristín kemur til með að hitta nokkrar heiðbleikar á svipuðu stigi og hún sjálf. Við komum nú til með að finna okkur bara gott sæti og fylgjast með úr fjarlægð. Það er nú alltaf skynsamlegt á svona mannamótum.
Og svo er bara vika eftir af fríinu mínu. Yndislegt. Ég ætla ekki að mæta fyrr en 3ja janúar aftur, taka mér gott jólafrí og hlaða batteríin. Dvel meira og minna í nýju náttfötunum sem að Gummi gaf mér. Habba habba ; )
Jæja, farin að fá mér ávaxtakokteil. cya

sunnudagur, desember 18, 2005
6 dagar...
svo það er orðið ansi stutt í blessuð jólin.
Ég er búin að vera að borða alla vikuna meira og minna. Lifi á gulrótum og gúrkusneiðum fram að jólum, svei mér þá. Við fórum á jólahlaðborð Argentínu á þriðjudaginn í tilefni þess að Dista varð sextug þann daginn. Við fórum 6 saman, ég og Gummi, pabbi og Dista og svo Gilla og Stefán og auðvitað byrjuðum við á að fá okkur smá cosmopolitan ( bestar á Argentínu ). Þetta var auðvitað ótrúlegt kvöld, þvílíkar veitingar. Ég gat varla fengið mér af aðalréttum því að forréttirnir voru algjört nammi. Og auðvitað þurfti ég að hafa pláss fyrir hina umtöluðu 4ra hæða súkkulaðitertu Argentínu. Sem ég og gerði og kláraði mig algjörlega. Yndislegt kvöld í alla staði.
Við vorum á föstudaginn niðri í vinnu á jólahlaðborði um kvöldið og enduðum á því að fá okkur aðeins meira af fljótandi veitingum en þeim sem voru formfastari. Það var alltaf svo lööööööööööng biðröð í réttina svo hentugast var að teygja sig í rauðvínsglas eða öllara. Þetta var ótrúlega flott niður frá, hef aldrei séð matsalinn okkar svona flottan. Við héngum mikið með Fanneyju (vinnufélaga ) og vinkonu hennar henni Betu Rokk. Þær eru alveg ótrúlegar saman, nokkrum sinnum tókst þeim að láta strákana roðna aðeins og sögurnar sem fengu að fjúka þetta kvöldið eru alls ekki prenthæfar hér. Þegar okkur var svo mokað út þá keyrði Ómar hennar Kollu okkur á Óliver í troðninginn þar. Ég skil ekki enn hvað er svona kewl við þennan stað, það er meiri troðningur þarna en inni á Thorvaldsen og þetta eru sko ekki meðmæli. En við þraukuðum þarna, fengum okkur skelfilegan cosmopolitan sem var ekki drykkjarhæfur. Þegar ég var orðin alveg megahress fannst Gumma skynsamlegt að koma mér heim enda var hér þrefalt barnaafmæli í gær, þar sem að Kristín Fríða sætabolla varð 5 ára í gær. Og frænka hennar hún Védís varð líka 12 ára í gær. Svo átti Þórunn líka að fá veislu en hún var í óvissuferð með vinkonu sinni í gær sem varð líka 12 ára. Naumast hvað þessi dagur er vinsæll. Þannig að mér tókst nú að halda veislu með stæl, hrikalega mygluð og vansæl. Með Argentínu súkkulaðiköku á borðinu ( sem að ég ætla með í vinnuna á morgun og gefa öllum í húsinu ). Það var nú skotið á mig að ég ætti að gera eina svona og senda svo til Afríku því að hún gæti brauðfætt heila þjóð þarna suður frá !!
Og svo á meðan ég man þá fékk hópurinn minn víst fyrstu verðlaun fyrir skreytingar í deildinni í ár. Dómnefndinni leist svo asskoti vel á þetta hjá okkur og ekki síst múturnar sem þau fengu. Sko, þemað hjá okkur var Bónusjól. Við útbjuggum fjárhúsið frá því í den nema hvað að Jón Ásgeir var jesúbarnið, Jóhannes í Bónus var Jósef og Jónína Ben var María mey. Alls ekki taka þetta alvarlega, þetta er bara svarti húmorinn í hópnum. Eníveis, svo í kringum skötuhjúin þá settum við ýmsa fjandmenn Baugsfeðga. Dabba Kóng, Sullenberger og fleiri góða menn. Við endursögðum jólaguðspjallið ( Bónusguðspjallið ) og útbjuggum mútur. 300 millur í umslagi þar sem stóð ; " 300 milljónir í mútur til dómnefndar- af því að Davíð vildi þær ekki !! " Og þetta fannst dómnefndinni algjört æði. Svo að við fengum brauðveislu frá Jóa Fel ( aftur...unnum keppnina líka í fyrra ). Svo það er spurning hvort að við fáum að fara í blautbolakeppni með honum í staðinn fyrir hvítlauksbrauðið þetta árið.
Jæja, sætabollan mín vill víst fá kúrið sitt og smá lesningu áður en að hún fer að sofa- bíða eftir því að hurðaskellir skelli hjá henni hurðinni.

mánudagur, desember 12, 2005
JæJa...
Þá er þessi helgi búin og innan við 2 vikur til jóla. Ég fór með pakka á pósthúsið í gær sem eiga að rata til útlanda og flest öll jólakort svo það er alla veganna frá. Og mér tókst að kaupa nokkrar jólagjafir um helgina, enda eins gott því ég fór 2ar í Kringluna ( eins og það er nú yndislegt á þessum tíma árs ). Svo að what to do listinn styttist óðfluga ; )
Við fórum svo að sjá frostrósirnar á laugardagskvöldið. Það var mjög fínt en ég hefði viljað upplifa þær miklu frekar í kirkju, Laugardalshöllin er ekki fyrir svona tónleika. Þetta kemur allt í lagi út á einhverjum rokktónleikum en ekki svona þar sem að raddirnar eiga að njóta sín, ekki fjara út í búningsklefum sveittra íþróttasokka. En þetta var upplifun, ég er ekkert minna hrifin af þeim en ég var áður og dauðlangar í disk með þeim. Jólasveinn, viltu gefa mér í skóinn á aðfangadag ???
Og svo kom auðvitað Stekkjastaur til byggða í nótt. Kristín fór varla úr náttfötunum í gær því hún ætlaði sko að fara snemma að sofa. Hún skreið upp í fyrir 9 og sofnaði fljótlega. En hún vaknaði líka fljótlega aftur ( svo þetta var ekki svo sniðugt ) því henni fannst svo leiðinlegt að bíða eftir jólasveininum. Hún er ekki alveg að sjá það að maður á bara að vakna á morgnana, ekkert most að hanga eftir honum í von og óvon um að sjá hann. Svo þegar hún vaknaði í morgun var hún alsæl því að Stekkjastaur setti hálsmen og hring í skóinn hjá henni. Svo voru miklar spekúleringar um þetta skóvesen yfir morgunmatnum og svo kom spurningin “ af hverju veist þú og Gummi svona mikið um jólasveininn ?? “ Svo kannski leynist einhver annar háralitur undir ljósa englahárinu ( verður kannski ljósrauðhærð eins og ég á hennar aldri ).
Ég heyrði aðeins í lækninum mínum í síðustu viku og það er ekkert hægt að útskýra hvað kveikti á drop dead viðbragðinu mínu. Hann giskar á að ég hafi verið jafnvel með væga flensu sem hafi getað kveikt á þessu. Það kemur í ljós bara hvort þetta gerist aftur ( jei, hvað það verður æðislegt ), alla veganna fann ég fyrir nettri drop dead tilfinnningu á laugardaginn og var snögg að setjast niður. Kannski var það ilmvatnsfnykurinn í búðunum sem startaði mér þann daginn. Hver veit…
c”,)

fimmtudagur, desember 08, 2005
16 dagar...
til jóla og í tilefni þess er hér linkur á flott jólalag ;)
http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4270043/6
kveðja,
drop/dead

fimmtudagur, desember 01, 2005
TIL HAMINGJU...
með afmælið, elsku Þórunn mín. Í dag er stóra stelpan mín 12 ára gömul, orðin svo stór. Skelfilegt hvað tíminn líður hratt.
Og aðeins 23 dagar til jóla, stefni á að klára útlandapakkana um helgina og var að panta jólakortin hjá hans petersen í gærkvöldi. Koma skemmtilega út, af þeim 40 myndum sem ég tók af afkvæmum mínum í gær þá kom 1 ágætlega út, ekki meira en það. Þau eru rosalega fótógenísk eða hittó !!!

sunnudagur, nóvember 27, 2005
ÉG ER ÆÐISLEG...
ú ú ú !!
Hér sit ég heima hjá mér á sunnudegi með þetta netta gat á hausnum, plástur í hárinu og með nettan hausverk. Af hverju ? Ég veit það varla sjálf :s Málið er að við vorum niðri í Samskipum í gærkvöldi á lítillri uppskeruhátíð Ísheima. Vel var veitt, alltaf fullt glasið hjá mér eins og það er nú hættulegt. Ég skemmti mér konunglega allt kvöldið en svo þegar við vorum bara 4 eftir þá var mér farið að líða hálfundarlega. Ég man að ég hugsaði með mér að ég yrði að fara á klósettið og svo veit ég bara ekki meir...fyrr en ég ranka við mér í blóðpolli á gólfinu. Ég hafði víst náð því að taka einhver 2 skref áður en það leið yfir mig og ég féll bara niður í ganginum. Ein hárspennan gekk víst fulllangt í hausinn á mér og afleiðingin er að ég var saumuð 5 spor í hvirfilinn, eða því sem næst. Þegar ég rankaði við mér þá skildi ég ekkert í neinu, ég hafði rotast og skildi ekkert í því hvaða hasar þetta væri í kringum mig. Svo þegar ég leit á hendina á mér sem var löðrandi í blóði þá leið mér nú ekkert sérlega vel með sjálfa mig. Það var hringt á sjúkrabíl ( fór nú síðast í svoleiðis dollu með mömmu upp á spítala fyrir rúmum 7 árum síðan og finnst það alltaf jafn óspennandi farkostur). Yndælis hjúkkur og læknar tóku á móti mér á slysó ( sem betur fer engin sem ég kannaðist við ) og mér var ekið inn á stofu, ég skoðuð og ákveðið að sauma mig aðeins. Ég get svo eiðsvarið það að þegar þau deyfðu mig þá hefði ég frekar viljað vera skotin í fótinn, hrikalega sárt :s Þegar deyfingin var svo farin að virka vatt læknirinn sér í saumaskapinn. Allt í einu kemur ein hjúkkan hlaupandi og segir honum að hann ætti að koma aðeins fram og þannig skildi hann við mig, búinn að sauma 3 spor og ég enn með nálina í hausnum !!! Klukkutíma síðar kemur ein hjúkkan og klárar saumaskapinn, ég lagði mig bara í millitíðinni og Gummi rölti um gangana á meðan ég svaf ( ég er svo æðislegur félagsskapur !!!)
Ég veit svo ekkert hvenær við komum heim, ég háttaði bara og fór í rúmið. Vaknaði svo í morgun með þennan yndislega hausverk og smá rugling. Gæti verið að gumsið hafi eitthvað hrist til í gærkvöldi þarna inni í hausnum á mér. Þannig að þessum sunnudegi verður eytt í sófanum að horfa á seríu 2 af Shameless þáttunum ( sem voru sýndir á rúv á fimmtudagskvöldum í haust ). Yndislegt að horfa á þessa vitleysu.
Best að fara að leita að einhverjum verkjalyfjum, hlýt að eiga eitthvað einhvers staðar.
Já, og btw...í dag er fyrsti sunnudagur í aðventu og aðeins 27 dagar til jóla : ) bara svona svo þið vitið...

fimmtudagur, nóvember 24, 2005
30 og nálgast óðfluga...
já já, jólin koma hvort eð er ; )
Það er víst fyrsti í aðventu á sunnudaginn svo ég gerði þau mistök í gær að segja Kristínu að við myndum setja ljós í gluggann hjá henni um helgina. Áður en ég gat snúið mér við þá var hún sko farin að segja að jólin kæmu um helgina og hún ætti þ.a.l. afmæli bara eiginlega alveg núna ( hefur þó vit á því að hún eigi afmæli fyrir jól ) og var ekkert smá lukkuleg með þetta. Hún var álíka óánægð þegar mér tókst að leiðrétta þennan misskilning, leit í kringum sig og benti mér á að aðrir væru byrjaðir að skreyta hjá sér, við gætum í það minnsta farið að kveikja á nokkrum seríum... svo það verður skreytt aðeins á sunnudaginn.
BL = 8.3 farin, er að stinga af í þessum málum, finnst það frábært og sakna kg engan veginn. Fari þau og veri !!!!

þriðjudagur, nóvember 22, 2005
og þá eru það...
32 dagar til stefnu.
Og ég var að panta miða á frostrósirnar ( dívurnar ) 10. desember, ekkert laust nema í stúkunni. Miðað við reynslu af tónleikum í Laugardalshöll þá ættum við alla veganna að sjá eitthvað. Hlakka mikið til, þetta verður rosalegt.
Svo fékk ég boðsmiða í pósti í gær á jólagleði Decode 16. desember.Um að gera að eyða peningum í boðskort og að senda þau heim í pósti. Allt of klént að senda þetta bara á innanhúsmeil, ekki satt ? Spurning hvort við mætum eður ei, á víst að vera með 3falt barnaafmæli daginn eftir og verð að vera í stuði þá....seinni tíma spekúleringar ; )

mánudagur, nóvember 21, 2005
Og...
ekki má gleyma þeim sem eiga afmæli í dag... Til hamingju með afmælið elsku Boggi bró, ellismellurinn þinn.
Og svo erum við Gummi víst 2 ára í dag, já..fyrir 2ur árum sá drengurinn ljósið og ákvað að ég væri nú vænlegri kostur en það að vera batchelor dauðans áfram. Heyr, heyr :) ég held að hann sjái nú ekki mikið eftir því að hafa tekið þessa ákvörðun...blessaður.
Ég elska þig, ástin mín eina : )

33 dagar...
til jóla ;) styttist í þetta.
Ef þið viljið komast í nettan jólafíling þá er hægt að hlusta á jólalögin á létt, væmið og viðbjóðslegt ( www.lett.is ), byrjar nú fullsnemma fyrir minn persónulega smekk...
Annars gengur vel með jólatrésteppið, tók mér pásu á laugardagskvöldið þegar ég stakk mig á nálinni við að kappmella ( komið gott það kvöldið ). Í staðinn lagðist ég í nettan 6itc fíling og horfði á 3 þætti úr 3. seríu. Yndislegt að geta leyft sér þetta svona af og til og inn á milli.
Svo var ég voðalega hugrökk í gær og skellti mér með börnin í sunnudagsbíltúr í Borgarnes í 2 ára afmæli hans Axels. Voðalega gaman, Gilla skellti á borðið veitingum sem hefðu vel átt heima í fermingarveislu, er að gæla við að hnupla henni í apríl á næsta ári...
Á heimleiðinni lentum við í ýmsum sýnishornum, blindbyl, rigningu, hagléli og sólskini, voðalega íslenskt ; )
Svo til að toppa góðan gærdag þá fékk ég símtal frá Gautaborg, elskan mín hún Þórunn Kristín búin að skila sér heim frá Nígeríu, nýgift og alsæl. Nú þarf hún bara að bíða eftir því að fá Andrew til sín, vonandi gengur það sem fyrst. Ég þarf að drífa í því að skoða myndirnar sem ég reyndi að taka af börnunum mínum um daginn og senda henni nokkrar. Og sjá hvort að þær séu nothæfar í jólakortin þetta árið. Efast um það en reyni mitt besta.

föstudagur, nóvember 18, 2005
36 dagar...
og still counting...
Er bara heima í dag, er svona nett læst í bakinu og ekki gagnlegur starfskraftur þegar svo stendur á. Vil líka vera í góðu formi í kvöld því að við erum að fara í matarboð til Nínu og Snorra, ásamt fleirum vinum. Rólegt reyndar því að Gummi er að fara út í nótt til Immingham svo við ætlum að vera komin heim svona í fyrra fallinu.
Kristínu finnst nú ekki slæmt að fá að vera heima svona á virkum degi. Hún klæddi sig ekki fyrr en um hádegið og er svo bara að flögra hérna um á bleika skýinu sínu.
Jæja, best að ég leggist aðeins á kælipokann minn, þetta er farið að verða ansi óþægilegt :s

fimmtudagur, nóvember 17, 2005
Og þá...
eru bara 37 dagar til jóla. Stress ? ekki farin að finna fyrir því ennþá og ætla eiginlega ekki að hleypa því að. Ætla að dunda mér heima um helgina ( vonandi ein ) að föndra jólatrésdúkinn og bara hafa það kósý.
Í dag er ég svo að fara á foreldrafund fermingabarna í Mosfellsbæ. Að hugsa sér að litli strákurinn minn ( sem er þó orðinn það hár að hann nær mér að höku ) sé að fara að fermast á næsta ári. Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt ( á gervihnattaröld )...
Og í sambandi við biggest looser...farin 7.6 kg á 2ur mánuðum...ekkert lítið stolt ;) og flott...múehhehehehhe
well, off to the bloody microscope : (

þriðjudagur, nóvember 15, 2005
39 dagar til jóla
...ekki að ég sé að telja ;)
búin að baka 3 sortir, var að enda við að kaupa efni í jólatrésdúkinn minn svo að ég er víst aðeins að fá snert af jólatilfinningu.
Svo til að toppa tilfinninguna þá var boðið upp á hangikjöt í vinnunni í dag, ég er með svona reykta ullarlykt í nefinu.
Best að halda áfram að lesa mér til um RNA fish ( spennó... )

fimmtudagur, nóvember 03, 2005
föstudagur, október 21, 2005
!!!
Endur fyrir löngu, í landi langt langt í burtu, rakst falleg, sjálfstæð og sjálfsörugg prinsessa á frosk þar sem hún sat og velti vöngum yfir vistfræðilegum álitamálum við bakka ómengaðrar tjarnar á fagurgrænu engi nálægt kastalanum sínum.
Froskurinn stökk upp í kjöltu prinsessunnar og sagði: Fagra frú, ég var eitt sinn gjörvilegur prins en grimm norn lagði á mig álög. Ef þú smellir á mig einum kossi mun ég aftur verða að þeim snotra prinsi sem ég raunverulega er.
Þá getum við, mín kæra, gifst og stofnað heimili í kastalanum þínum. Þú getur framreitt málsverði fyrir mig, þvegið klæði mín, alið börnin mín og fundið til þakklætis og hamingju um alla eilífð.
Sama kvöld sat prinsessan yfir málsverði sínum - léttsteiktum froskalöppum - og hló lágt með sjálfri sér: Ég held nú fokking síður!
MUNUM EFTIR KVENNA(verkfallinu)FRÍDEGINUM Á MÁNUDAGINN.......

föstudagur, október 07, 2005
þetta selur...
Ég fékk senda þessa lýsingu á fasteign af mbl.is
mæli með því að sá sem ætli að selja eign með þessu orðalagi finni sér aðra vinnu hið snarasta ;)
Til sölu jörðin Fjall í Skagafirði sem áður var var í Seyluhreppi og þar áður í Staðarhreppi. Jörðin er talin vera um 998 ha að stærð. Ræktuð tún samkvæmt fasteignamati 27 ha. Á jörðinni er 93 fm íbúðarhús, 10 bása hesthús (fjórar 2ja hesta stíur, 2 stórir salir- annar með jötum), hlaða og fjárhús fyrir 25 kindur. Seljandi hefur m.a. upplýst eftirfarandi: Afleggjarinn að jörðinni er 2,4 km. Frá Hvalfjarðargöngunum að jörðinni eru 250 km; til Akureyrar 105 km; í áfengisverslunina á Sauðárkrók eru 31,7 km. Í ríkasta kaupfélag og ódýrustu matvælaverslun á Íslandi til jafnaðar eru 30,7 km. Svo í einungis 14 km fjarlægð eru haldnir AA fundir á Löngumýri. Til sóknarkirkju að Víðimýri eru um 7 km (kirkjulegar athafnir moldarlykt og prestlegar hugganir, ásamt fyrirgefningu synda ef vel er beðið). Til Agnars og Döllu á Miklabæ eru 20 km (mjög skemmtilegt og gott fólk) 9 km er svo í K.S. Varmahlíð sem er opið næstum allan sólarhringinn og þar fæst allt frá bensíni að bjór ásamt góðu viðmóti allra starfsmanna. Síðast en ekki síst skagfirsk fegurð í allar áttir. Norðurhluti jarðarinnar er mjög góður til útivistar og má þar nefna: Fjallfoss og gljúfrin ásamt jökulhólum með skjóli úr öllum áttum. Fossaröð í Skarðsánni, í Reykjarskarði og mjög mikla friðsemd að finna. Fylgt geta 10 kindur, 15 hryssur ásamt einhverju af gömlum vélarkosti. Nánari upplýsingar á skrifstofu FM...
need I say more ?

miðvikudagur, október 05, 2005
Nú...
er sko aldeilis ástæða til að tapa sér...George Michael á víst að vera á landinu !!!!
Nú er bara að bíða og sjá hvort kappinn ætli að halda tónleika, þá verð ég fyrst í röðinni að kaupa miða á fremsta bekk ;)

þriðjudagur, október 04, 2005
HANN...
Á AFMÆLI Í DAG
HANN Á AFMÆLI Í DAG
HANN Á AFMÆLI, HANN GUMMI
HANN Á AFMÆLI Í DAG !!!
Til hamingju með daginn, elskan mín
c",)
HANN Á AFMÆLI Í DAG
HANN Á AFMÆLI, HANN GUMMI
HANN Á AFMÆLI Í DAG !!!
Til hamingju með daginn, elskan mín
c",)
sunnudagur, október 02, 2005
Jæja...
þá er enn ein ljúfa helgin að verða búin. Hún hefur reyndar verið extra löng því að Kristín var heima á fimmtudag og föstudag með hita og hæsi. En hún er alveg eiturhress núna, röddin að lagast og orkan alltof mikil.
Í gær áttum við 1 árs trúlofunarafmæli. Við gerðum nú ekki mikið í tilefni þess, annað en að fara á árshátíð Samskipa, í Gullhamra í Grafarholtinu. Djammið byrjaði reyndar snemma, okkur var boðið í partý í Garðabæinn þar sem við hittum þau sem við sátum svo með um kvöldið. Ég var í mínu fínasta pússi og Gummi ekki síðri í nýrri skyrtu og bindi. Það var umtalað hvað við vorum glæsileg, ein skaut á okkur að við værum eins og konungborin að horfa yfir þegnana. Við hlógum bara að þessu.
Veislustjórinn var Gísli Einarsson ( út og suður ) og stóð sig eins og hetja. Við hlógum okkur máttlaus yfir bröndurunum sem hann reytti af sér. Maturinn var æðislegur, humarsúpa, lambakjöt og súkkulaðikaka í eftirrétt. Hundur í óskilum kom og söng fyrir okkur sínar útgáfur af lögum, eins og Final Countdown ( Europe ) og eurovisionlagið sitt. Frábærir. Svo vatt Gummi sér upp á svið ásamt öðrum deildarstjórum í gervi, með yfirvaraskegg mikið. Ég sagði honum eftir á að hann skyldi sko aldrei fá sér slíka mottu. Þá myndi ég yfirgefa hann !!!
Að lokum þá dönsuðum við mikið við Sálina, alltaf jafn góðir. Ég var reyndar að drepast í fótunum eftir allan dansinn svo að ég skellti mér bara heim en Gummi fór í bæinn ásamt nokkrum orkuboltum og skilaði sér ekki heim fyrr en um 8 í morgun og hefur verið afskaplega hress í dag eða þess þá heldur. Hann hefur sofið meira og minna á meðan ég hef sinnt börnum og búi, meðal annars farið í kirkju með Þorvarði fermingardreng. Svo að þessi sunnudagur hefur verið ósköp eðlilegur og notalegur í nepjunni.
Svo er bara vinnudagur á morgun, Kristín orðin alltof hress til að vera heima. Gummi á afmæli á þriðjudaginn svo að ég verð víst að baka aðeins annað kvöld, við erum búin að bjóða foreldrum í kaffi á þriðjudagskvöldið. Alltaf gaman að hittast aðeins yfir góðum kökum og kaffi ;)

sunnudagur, september 25, 2005
Ég held...
að netið hjá okkur sé ekki alveg að höndla umferð fjölskyldunnar í augnablikinu, mér finnst líka svo voðalega skemmtilegt að bíða eftir því að síður opnist... :s eða hittó !!!
TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN SISSA MÍN :) bara svona á meðan ég man...ég reyndi að hringja í hana áðan en fékk ekkert svar svo ég sendi henni bara smess, svona til að láta vita að ég muni nú alveg eftir afmælisdeginum hennar.
Annars vorum við að skríða heim, skruppum í bústað í Borgarfjörðinn á föstudaginn eftir vinnu. Það var nú reyndar stuttu eftir hádegi því að við ákváðum að byrja helgina snemma. Það er náttúrulega fimbulkuldi á landinu svo að það fyrsta sem við gerðum þegar við komum upp eftir var að setja pottinn af stað og skrúfa upp í ofnunum í bústaðnum. Þetta er mjög fínn bústaður, vel rúmgóður og vel útlátinn ( fyrir utan ryksuguna sem var mjög lasburða ). Tengdó voru í næsta bústað við okkur svo að við röltum mikið á milli. Þau buðu okkur í súpu í brauði á föstudagskvöldið og svo drukkum við aðeins ofan í það. Voðalega notalegt, mjög matarmikil svona súpa. Við fórum svo í pottinn hjá þeim um miðnætti þegar krakkarnir voru sofnaðir og stiknuðum þar aðeins. Eftir það var ansi ljúft að leggjast í bólið með opinn gluggann og finna næðinginn fyrir utan.
Þrátt fyrir það að við værum í fríi vorum við komin á fætur eldsnemma á laugardagsmorguninn og við stelpurnar fórum aðeins í pottinn á meðan Gummi og Þorvarður fóru í Borgarnesið að kaupa hlaup. Alveg bráðnauðsynlegt. Svo dobbluðum við Óskar að koma með Dóróteu og Róbert seinni partinn og biðum eftir þeim að elda nautakjötið. Eða Guttorm blessaðan eins og maturinn var kallaður það kvöldið. Svo var drukkið aðeins meira og strákarnir enduðu í pottinum á meðan ég og Dórótea fannst meira heillandi að kúra með afkvæmunum. Svo vorum við bara eldhress í morgun, komin á fætur snemma. Eftir enn eina pottferðina drifum við okkur í að þrífa bústaðinn ( eða réttara sagt ég ) með hinni lasburða ryksugu og tusku í hendi. Og svo bara brunað í bæinn og heim. Alltaf gott að koma heim aftur. Reyndar komumst við að því að nýja leðursófasettið okkar lyktar ( eins og leðursófasett eiga svo sem að gera ) en þetta var alveg too much. Svo að við snöggkældum íbúðina með því að opna gluggana og þetta er svona að verða allt í læ. Svo nú sit ég og prjóna á mig lopapeysu enda kominn vetur á klakanum. Ekki enn kominn október en alveg skítkalt úti :s ég kemst bara bráðum í jólafíling ef þetta verður svona áfram.
Svo er bara vinna á morgun, nóg að gera eins og venjulega. Þessi vika ætti nú að vera snögg að líða því að það er eftir nógu að bíða um næstu helgi. Í fyrsta lagi er eitt ár á laugardaginn næsta síðan undirrituð fór á skeljarnar og í tilefni þess verður svaka veisla um kvöldið. Reyndar ekki í tilefni ársafmælis trúlofunar heldur er árshátíð Samskipa um næstu helgi með tilheyrandi húllumhæi. Sálin á að spila svo þetta verður án efa hrikalega gaman. Ég er að láta þrengja síðkjólinn minn svo ég geti nú litið svona skítsæmilega út um næstu helgi ;) og hlakka bara voðalega mikið til.
well, best að halda áfram að prjóna...kuldinn drífur mig áfram ;)

fimmtudagur, september 15, 2005
úúúúúúúúú
ég gægist upp....
ég sé ekki neitt
á skóla...eitthvað
á náttfötunum...úúú
í gömlum bás...( passar við aðstöðuna mína hérna í vinnunni )
ég hrekk í kút...úúúúúú
ég er alveg handviss um að þeir hafi samið lag nr. 2 um mig...
er að hlusta á nýja disk Sigurrósar...og skil meira að segja eitthvað í textunum, ólíkt fyrri diskunum þeirra...
þeir sem vilja fá að heyra, hérna er linkurinn en beware, það er ekki hægt að hlaupa yfir lögin, verður að sýna þolinmæði og hlusta á þau öll endilöng. Tölvan mín hefur aðeins verið að hiksta á úúúúúunum svo að ég er búin að heyra fyrstu 2 lögin all nokkrum sinnum ;)
http://www.myspace.com/sigurros

þriðjudagur, ágúst 23, 2005
ÚFF, PÚFF...
hvað ég er voðalega södd núna. Ég var að enda við að kyngja síðasta bitanum af kvöldmatnum og finnst miklu sniðugra að blogga en ganga frá eftir matinn. Verð líka að kæla uppþvottavélina aðeins áður en ég hleð í hana aftur.
Jæja, ágúst er búinn að vera viðburðarmikill. Helga Björg og Ásgeir giftu sig 6. ágúst við mikla kátínu. Ég var búin að búa til myndband úr gæsuninni og það var spilað í veislunni og svo létum við kökukefli ganga sem væri hægt að nota í ýmsum tilgangi. En vonandi bara til góðs, ásamt saltinu og hrísgrjónunum sem fylgdu með. Og ég fékk smá nasaþef af gay pride sama kvöld því ég, Gulla og Gummi enduðum á NASA á allsherjar djammi með gay pride förum. Það var geðveikt, hef ekki skemmt mér svona vel á balli síðan fyrir langa löngu síðan, ef ég hef nokkurn tímann gert það.
Þórunn Kristín kom í stutta heimsókn til Íslands með nýjustu frænkuna mína ásamt Jóel og Andrew manninum sínum. Þau kíktu hérna við á föstudaginn síðasta áður en þau héldu aftur til Svíþjóðar. Voðalega gaman að sjá þau, heyrði varla í sjálfri mér fyrir eggjahljóðum. Sem betur fer þá er það aftur í rénum, þ.e. eggjahljóðin.
Loksins komumst við í bíó í gær, eftir margar tilraunir. Kristín sofnaði nefnilega snemma í gær og við ákváðum að nýta tækifærið og drífa okkur. Reyndar vaknaði hún áður en við fórum af stað en það var nú í lagi. Við fórum að sjá Wedding Crashers og guð minn góður, ég grenjaði af hlátri...oft og mörgum sinnum. Ég þurfti meira að segja að taka niður gleraugun og þurrka mér um augun ( já, ég er komin með svona voðalega fansí hvíldargleraugu...algjör gella !!! )
Og svo eru krakkarnir byrjaðir í skólanum og leikskólanum aftur. Kristín byrjaði í gær og hin í dag. Reyndar kom soldið babb í bátinn í dag í leikskólanum því Kristín kastaði upp stuttu eftir að hún kom þangað. Hún hljóp á eitthvað, meiddi sig í hálsinum og kastaði upp frá því. Ekkert alvarlegt, það var bara fylgst vel með henni í dag og hún var alveg eiturfrísk. Hún var klædd í einhver furðuföt þegar ég sótti hana seinni partinn og virtist njóta sín vel.
Þorvarður og Þórunn Anna fóru í skólasetningu í dag. Þórunn Anna gleymdist reyndar í upplesningu á nemendum og kennarinn hennar náði bara í hana og beindi henni í réttan bekk. Þetta gekk betur hjá Þorvarði, hann komst alveg til skila. Svo að við eyðum kvöldinu í að finna gamalt og taka nýtt skóladót í gagnið. Ósköp er nú gott að vera búin að þessu, þó að það sé nú visst frelsi að vera í skóla.
Annars bara same old, same old...er búin að vera voðalega dugleg í vinnunni undanfarið, staðið mig vel sem multitasker / snillingur. Held því bara áfram...
Jæja, uppþvottavélin tilbúin fyrir næsta skammt...

föstudagur, júlí 29, 2005
Jæja...
hér sit ég eiginlega föst í bakinu og er ennþá síður á leið út á land með öllum hinum vitleysingunum. Nenni ómögulega að eyða helginni á bakinu eins og könguló og geta enga björg mér veitt. Verð miklu frekar heima hjá mér og nýt þess í ræmur. Við getum ekki einu sinni farið í RVK í dag því að vörubílstjórar ætla að loka leiðinni upp í Mosó og glætan að ég eyði deginum hangandi í bíl bara til þess að komast heim til mín aftur. Sénsinn, bensinn.
Hérna er heimasíðan hjá nýjustu frænku minni, henni Aliciu Ósk Enabulele http://barnaland.is/barn/28630/
Hún er að koma til Íslands eftir 2 vikur, nánara tiltekið föstudaginn 12. ágúst til að vera hérna í heila 2 mánuði ásamt mömmu sinni og pabba og stóra bróa. Einnig hef ég heyrt aðeins af því að fleiri ættingjar að utan ætli að láta sjá sig en það kemur nú allt í ljós...Ég ætla sko aðeins að fá að spilla henni, þó að hún sé svona ung. Eggjahljóðin í mér yfirgnæfa fuglasönginn hérna heima, svei mér þá :s og ekki er það auðvelt ;)
Jæja, best að rölta aðeins um svo ég festist ekki alveg. Ekki að þetta sé þægilegt ( og ég á ekki pantað í hnykk fyrr en eftir 2 vikur !!!!! )

þriðjudagur, júlí 26, 2005
brúmm, brúmm...
Við ákváðum að skella okkur í stuttan bíltúr í gær að Seljalandsfossi undir Eyjafjöllum því þar var víst blíðan meiri og betri en í bænum, ótrúlegt en satt. Sá stutti bíltúr entist í heila 8 klst því að við ákváðum aðeins að kíkja út fyrir eðlilega vegi og fara á staði sem hvorugt okkar mundi eftir að hafa farið á. Fyrst fórum við aðeins í gegnum Fljótshlíðina og kíktum á staðinn þar sem síðasta ættarmót var haldið á en við mættum ekki vegna brúðkaups Gillu og Stefáns. Jú jú, ágætis staður en að rukka 9000 kjell fyrir þessa kofa var auðvitað glæpur út af fyrir sig. Við stoppuðum minningarlundi um Guðmund ( eða Þorstein) og fengum okkur aðeins að borða. Kristín var reyndar of upptekin af því að skoða umhverfið svo hún gleymdi því alveg að borða. Svo héldum við sem leið lá að Seljalandsfossi þar sem ég rifjaði upp gamla, góða tíma frá því ég var lítil á leið í útilegu með mömmu og pabba því við stoppuðum alltaf þarna og áðum yfir eina nótt. Góðar minningar það ;)
Svo þegar við vorum að renna í bæinn datt okkur í hug að kíkja aðeins í Galtalæk því við höfðum aldrei komið þangað. Og í raun hafði ég aldrei komist nær Heklu en ég gerði í gær. Fínn spotti þarna upp eftir og augljóslega mjög gott að vera með börn þarna. Þó að það sé nú ekki planið um næstu helgi að leggjast þar út með öllum hinum. Þar sem við vorum svo nálægt Búrfelli og þ.a.l. nálægt virkjun þá fannst mér alla veganna skynsamlegt að keyra aðeins upp fyrir Galtalæk því þar hlyti að vera hægt að fara yfir Þjórsá á brú og komast niður í Þjórsárdalinn. Við keyrðum og keyrðum án þess að sjá nein merki um brú og vorum komin langleiðina upp á Sprengisand þegar Gummi ákvað að þetta væri orðið gott og við skyldum snúa við. En ég hafði það svo sterkt á tilfinningunni að brúin væri skammt frá svo við héldum aðeins áfram og viti menn, brúin var þarna og allt í einu vorum við komin á þetta fína malbik og laus við mölina. Yndislegt.
Við kíktum aðeins við á Þjóðveldisbæinn við Stöng í Þjórsárdal og þó að það væri búið að loka fengum við leiðsögn um svæðið því það mætti okkur voðalega fallegur svartur og hvítur fress sem að rölti með okkur sem leið lá kringum bæinn. Hann var voðalega hændur að okkur og leyfði Kristínu að halda á sér en það leyfa ekki margir kettir get ég sagt ykkur.
Eftir skoðunina keyrðum við sem leið lá í gegnum Laugavatn, yfir Lyngdalsheiðina og heim í gegnum Þingvelli. Og þetta tók aðeins 8 klst :s og Kristín sofnaði ekkert á leiðinni. Hún sofnaði ekki fyrr en að ganga 1 í nótt, aldeilis orkubúnt. Svo vaknaði hún eldhress í morgun um 10 og er farin að leika sér við Yrsu Björt, uppáhaldsvinkonu sína í músó.
Við verðum væntanlega heima í dag enda er veðurspáin best hérna megin á landinu. En á "næstum því hálendisrúnt" okkar í gær þá kviknaði hugmynd um að keyra Kjalarveginn yfir á norðurlandið. En það verður ekki gert nema það sé meira og betra veður þar. Svo ég er barasta farin út á pall að bæta við freknum ;)

mánudagur, júlí 25, 2005
Nú er ég í sjokki !!!!
Ég fékk nett fyrir hjartað í morgun þegar ég fletti Fréttablaðinu. Gamla húsið mitt á Laufásveginum er á sölu og aðeins á 16.9 millur.http://www.mbl.is/mm/fasteignir/fasteign/?eign=168950
Á þetta að vera grín ? Það er nú ekki nema sko alveg heilir 38 fm að stærð, hvað er eiginlega að fólki ??? Þetta er alveg 10 millum meira en ég seldi það á fyrir 7 árum síðan, ekki að það hafi verið gert eitthvað svakalega mikið fyrir það í millitímanum. Sama eldhúsið, gólfefni og fleira. Þetta er bara brandari, þvílík græðgi og vitleysa, segi nú ekki annað...

sunnudagur, júlí 24, 2005
Og já...
sumarið er komið, hefur alla veganna látið sjá sig þá daga sem ég hef verið í sumarfríi. Sést líka á bakinu á mér, er með voðalega lekkert far eftir brjóstahaldarann á bakinu en annars með hraustlegan lit annars staðar á kroppnum ;)
c",)
c",)
M M M M M...
Nú sit ég í rúminu heima hjá mér að blogga...voðalega gaman að vera loksins búin að fá þráðlausa netið hingað heim.
Í dag er ég frekar slöpp og hef alveg ástæðu til. Í gær vorum við nefnilega nokkrar að gæsa hana Helgu Björgu, sem er eiginlega elsta sveitasysturin mín. Við vorum mættar heim til hennar rétt um hádegisbilið í gær, henni til mikillar skelfingar. Henni var samt farið að gruna að það myndi nú gerast eitthvað þennan laugardag enda bara 2 vikur þangað til hún og Ásgeir ganga að altarinu og hætta að lifa í syndinni miklu. Alla veganna var hún skreytt aðeins með heimatilbúnu slöri og blómakransi og sagt að drífa ofan í tösku eitt og annað sem gæti komið að gagni um daginn. Svo héldum við áleiðis í Mosfellsbæinn og stefndum upp á Úlfarsfell þar sem að það átti að fleygja Helgu fram af bjargi eða því sem næst. Eða alla veganna hélt hún það. Útsýnið var algjörlega frábært, enda alveg heiðskýrt og glampandi sól. Við biðum og biðum og ekki kom fluggaurinn að hitta okkur ( enda var það svo sem ekki planið ). En Helga var meira en til í allt þarna uppi og kom okkur verulega á óvart. Eftir að hafa virt fyrir okkur RVK svona ofan úr lofti héldum við niður fjallið í öruggum aksturshöndum Freydísar. Niðri við fjallsbrúnina komu föngulegir mótorhjólatöffarar til móts við okkur og tóku Helgu á bak og ræddu við hana um galla þess að ganga að eiga Ásgeir. Þeir sáu alls enga kosti við þennan ráðahag. Á meðan þetta var rætt fram og tilbaka vorum við niðri í Grasagarðinum að undirbúa pikknikk með skaufaköku nokkurri ásamt öðru gúmmelaði. Loksins kom Helga til okkar og orðin nokkuð hífuð enda helltu töffararnir vel og mikið í hana.
Við nutum sólarinnar niðri í garðinum þangað til að við þurftum að drífa okkur á næsta stað. Við keyrðum í Kópavoginn á Mecca spa þar sem að Helga var sett í allsherjar dekur á meðan við svömluðum í pottinum og sundlauginni. Yndislegur staður og við eigum víst deit þarna mánaðarlega héðan í frá, við stelpurnar ;) Svo héldum við niður á Óliver og fengum okkur jarðaberja mojito ( kann nú betur við orginalinn ) og löbbuðum svo upp á Rosso Pommodoro og fengum okkur ógeðslega góðan mat ( eins og Helga sagði nokkrum sinnum um kvöldið ) Fyrst fengum við 3 konar forrétti, svo fengum við 3 konar pizzur og að lokum ( þegar við vorum allar orðnar ansi saddar ) kom nautakjöt og franskar og sjávarrétta pastaréttur með kolkröbbum ( sem horfðu víst eymdarlega á Helgu ) og hörpuskel. Hrikalega gott en við bara gátum ekki meir.
Klukkan var nú ekki margt svo að við þurftum að finna okkur eitt og annað að gera þar til við komumst á NASA á stuðmannaball. Helga var dregin inn á hvern pöbbinn á eftir öðrum og gefið misgóð skot og hún er enn að tala um hvað bláa gayol skotið var viðbjóðslegt. Hún fékk líka skot kennt við hrísgrjónagraut ( hvernig sem það getur verið gott ). Svo kom að því að hún hitti sólmeitinn sinn, eða því sem næst. Niðri í Austurstræti sat maður klæddur í bláar stuttbuxur, ber að ofan og í bleiser sem var bleikur og grænn og það sem toppaði hann var að það var bleikur grís aftan á jakkanum.Þar sat hann sem sagt og spilaði lög á gítar. Ekki sín eiginn, bara eitthvað bull út í loftið. Hann greip eitt og eitt orð og samdi lag um þau. Mér tókst að ná nokkrum myndum af þeim skötuhjúum og m.a. söngnum um Bjarnastaðabeljurnar. Þetta verður örugglega sýnt í brúðkaupinu og hlegið mikið að því.
Loksins var NASA opnað svo við drifum okkur þangað inn og vorum eiginlega fyrstar þangað inn. Við drukkum svona aðeins meira og dönsuðum aðeins og biðum eftir því að Stuðmenn ásamt Hildi Völu stigu á sviðið. Og þvílíkt og annað eins, ég er sárþjáð af harðsperrum og hálfhás eftir "sönginn". Þetta var alveg hrikalega gaman. Við vorum nú eiginlega alveg búnar á því um 3 leitið og drifum okkur út, fengum okkur aðeins að borða (þær sem gátu hugsað sér það ) og svo náði elskan mín, hann Gummi í okkur og voðalega var gott að leggjast upp í og sofna. Góðum degi var lokið og við vorum allar ánægðar með hvernig hann fór. Ég kíkti einmitt til Helgu áðan að ná í töskuna mína og hún var svona mellómygluð, Ásgeir miklu verri eftir steggjunina á föstudaginn síðasta.
Alla veganna er þessum hremmingum þeirra lokið og þau geta farið að ganga í það heilaga og hætt að lifa í syndinni. Annað en ég ;)

fimmtudagur, júlí 14, 2005
Hvar er íslenska sumarið ??
Nú sit ég hérna heima hjá mér í þoku og skil ekki hvað varð eiginlega um blíðuna ? Fyrir 2ur tímum síðan sat ég í sól og blíðu fyrir utan Decode að borða grillmat og ákvað að drífa mig heim fyrr í dag til að njóta dagsins. Korteri eftir að ég kom heim þá var bara komin þoka !!! Hvað á þetta eiginlega að fyrirstilla ? Það er svo sem vitað mál að veður er ekkert til að stóla á hérna á klakanum en þetta er nú kannski fullmikil veðurbrigði. Það verður þá bara lítið um pallnotkun í dag. Enda er málarinn mættur að mála kofann og friðurinn úti.
Annars er nú orðið stutt í sumarfríið mitt langþráða. Hvað skal gera ? Lítið og minna en það, aðallega slappa af og vera með fjölskyldunni. Við erum nú reyndar að vonast til að fá bústað rétt við Egilsstaði í næstu viku svo að Gummi geti nú aðeins fylgst með hafnarframkvæmdum á Reyðarfirði. Og ég kem þá til með að nýta tækifærið og heimsækja hana Höllu Dröfn á Seyðisfjörð. Svo að við kíkjum kannski eitthvað aðeins út fyrir mölina.
Ég er búin að eignast litla frænku. Hún lét nú aðeins bíða eftir sér og kom ekki fyrr en 18 dögum síðar en hún átti að koma í heiminn. Lét bíða eftir sér eins og bróðir hennar forðum. Hann er nú ekkert lítið ánægður með að hafa fengið litla systur, eins og sést ( http://barnaland.is/barn/28629 )
Hún er alveg svakalega sæt og myndarleg stúlkan, hárprúð og bara flottust ;) Ég er svona að klára peysuna á hana sem ég er að prjóna og gerði hana sem betur fer í stærri kantinum svo hún geti nú örugglega notað hana eitthvað.
Svo eru svo margir sem eiga afmæli núna í júlí svo að ég bara segi " Til hamingju með afmælið " svona á einu bretti. Og taki þeir sem mega til sín.
Jæja, andleysið er jafn þykkt og þokan fyrir utan svo ég held að þetta sé bara ágætt í bili ;)

föstudagur, júlí 01, 2005
Ji ég held...
að tölvan hérna heima sé að syngja sitt síðasta. Og hvað þá þegar bloggið verður svona langt...
en here goes ; )
Jæja...þá er nú aldeilis liðinn tíminn síðan síðast. Og ég er sko búin að fara til útlanda og í brúðkaup í millitíðinni svo það hefur verið nóg að gera svo sem. Best að byrja á Amsterdam ferðinni. Upphafið var nú ansi skrautlegt, svo ekki verði meira sagt. Heiða tengdamamma var svo yndisleg að skutla mér út á flugvöll um miðja nótt svo ég var mætt í Leifinn rétt rúmlega 5 um morgunn, alveg hreint óskaplega hress. Tékkið gekk hægt en vel og svo var ég auðvitað stoppuð í leitarhliðinu ( er náttla svo skuggaleg útlits... ) en þá fattaði ég ekki að það eru sylgjur á stígvélunum mínum svo ég varð að vippa mér úr þeim og ganga í gegn aftur. Þá pípti ekkert svo þeir voru ekki með nemana stillta á lykkjufund ( eins og síðast í Amsterdam ). Ég var sem sagt á góðum tíma í fríhöfninni og hugsaði mér gott til glóðarinnar. Það fyrsta sem ég keypti var kæfubiti handa henni Siggu minni. Algjört möst að koma með hann í dammið. Hann borgaði ég með klinki sem ég var með í vasanum. Voðalega hentugt. Vegna veðurblíðu úti ákvað ég að vera soldið forsjál og kaupa mér góða sólarvörn, fann hana og ætlaði að fara að borga hana. Þá sá ég, mér til mikillar skelfingar, að ég var ekki með debetkortið mitt. Ég var sem sagt á leiðinni til útlanda með engin kort. Ég fékk þetta netta taugaáfall og hringdi í Gillu frænku ( sem alltaf vaknar um miðjar nætur vegna vinnu ) og hringdi líka í Gumma og vakti hann. Ég sat bara með allt innvolsið úr töskunni minni og hló geðsjúkum taugaveiklunarhlátri. Það bráði nú af mér eftir stutta stund og ég ákvað að prófa að taka út af reikningnum mínum sem var svo eftir allt ekkert mál. Svo að ég var komin með íslenskar krónur og evrur í veskinu og þetta bara reddaðist allt saman. Ég keypti mitt sólarkrem og skundaði svo út í flugvél ( reyndar búin að fá mér einn kaldan í millitíðinni svona til að slökkva á taugaveikluninni ). En viti menn, næsta tók bara við.
Þegar við vorum komin út í vél þá tafðist brottförin um heila klst því að það þurfti að smala einhverjum Parísarförum í vélina hjá okkur vegna bilunar í einhverri dollunni. Svo við sátum þröngt á leiðinni út ( bara eins og venjulega ). Loksins, loksins lentum við. Þá tók bara annað við. Ég er farin að rata um Schipol eins og Mosfellsbæ og var þ.a.l. fljót að koma mér að töskubrettinu. Þar beið ég og beið og beið lengur þangað til að nokkrar tuðrur komu á brettið. Svo hægðist á brettinu og allt í einu stöðvaðist allt. Og ég beið bara lengur ( orðin alvön ), reyndar farin að spá í að snúa bara við og koma mér heim enda hafði nóg gengið á. Svo allt í einu var okkur tilkynnt að færa okkur að öðru bretti því að það þyrfti að laga það sem við stóðum við. Mín labbaði yfir og fleiri tuðrur fóru að berast, allar nema mín. Hún prumpaðist út á upprunalega brettinu svo að ég hljóp þangað og náði í hana. Meira vesenið. Að lokum gat ég farið út og hitt Gumma minn.
Eftir að við vorum búin að fá okkur aðeins í gogginn fórum við að ná í lyklana að íbúðinni hennar Siggu og komum okkur aðeins fyrir. Sigga var á einhverri ráðstefnu og kom svo seinna um kvöldið. Og þá hófst tjúttið. Við skelltum okkur á mexíkóskan steikarstað og fengum okkur KÖNNU af frosinni margarítu ( svo sterk og góð... ) og settumst svo á Leidzeplein og virtum fyrir okkur mannlífið. Föstudagurinn fór í búðarráp. Reyndar var nú ekki mikið hægt að kaupa, ekkert að gera við sumarföt hérna á klakanum. En ég endaði daginn með 2 gallabuxur, 1 kjól, 1 pils, nokkra boli og jakka á mig og svo stuttermaboli og kjóla á Kristínu. Svo að þetta var nú svo sem í læ. Gummi var auðvitað í eftirdragi með VISAkortið því að ég var auðvitað ekki með mín kort ( meiri déskotans ljóskan ). Við fórum svo á hollenskan stað um kvöldið og fengum okkur túnfisksteik, ammi nammi. Smá djamm og svo curly fries á Leidze. Laugardagurinn var ljúfur, Sigga fór reyndar í brúðkaup svo við gerðumst svona ekta túristar og gengum um miðbæinn og fórum í canalcruise með geðstirðan skipstjóra sem blótaði og ragnaði svo að maður svitnaði bara. Það var alveg skelfilega heitt þennan dag, eitthvað um 30 stiga hiti svo ég var dugleg að jóðla á mig sólarvörninni minni góðu. Gummi var ekki eins duglegur og endaði með rautt nef og handlegg í lok dagsins. Við flúðum svo bara heim og fengum okkur nokkra kalda á meðan við biðum eftir Siggu. Fórum út að borða á uruguaiskan steikarstað ( ALBERTOS ) og ji hvað þetta var gott. Kojan heillaði doldið um kvöldið svo að við fórum bara heim og hittum Siggu þar, sátum og drukkum og kjöftuðum þangað til að augun sögðu stopp. Sunnudagurinn fór svo bara í rölt og rómantík, hittum aftur vin okkar sem við eignuðumst á föstudeginum. Hann er breskur og býr í einu af fínu hverfunum í Amsterdam. Það fyndna var að hann var í hermannajakka og leit út fyrir að vera heimilislaus. Þetta er ekki búið. Hann var með svona renndan brjóstvasa og allt í einu skýst hvít rotta upp úr honum og læðir sér upp á öxlina á honum. Ég missti andlitið. Hann þolir sem sagt ekki breska eða ameríska ferðamenn því að þeir bera enga virðingu fyrir öðru fólki. Svo hann er duglegur að sýna þeim rottuna sína ( sem heitir Sinbad ) því hún hefur sömu skoðun á þeim og bítur þá bara ;) Við náðum fínum myndum af þeim, enda er þetta eiginlega ótrúlegt. Og þá held ég að sé búin að kovera Amsterdam ferðina...
Og þá er það næsta mál á dagskrá. Eða þannig. Ég ákvað þegar við vorum að gæsa Gillu að fara í brúðkaupið. Og Gummi fór líka með mér. Hann ( við ) átti að vera á ættarmóti sömu helgi en það rigndi svo mikið að honum fannst það ekkert sérlega spennandi að vera þar einn í tjaldi. Ég var nú að snattast á föstudaginn að ná í blóm og fleira fyrir brúðkaupið. Ég kippti Distu og Maggý með mér og við vorum komnar í Borgarnesið rétt upp úr hádegi með fullan bíl af blómum. Restin af föstudeginum fór í að skreyta salinn í Bifröst og hann var líka ekkert smá flottur. Okkur var boðið í mat um kvöldið niður í bústað til pabba og Distu. Grill og tilheyrandi meðlæti, nema kannski skinkusalatið sem rataði á borðið. Óvart ? veit ekki... Eftir átið keyrði ég tilvonandi brúði ( Gillu ) og Maggý niður í Borgarnes og við settumst aðeins niður að tjatta. Ég var svo komin heim til mín rétt rúmlega 1 um nóttina, nett búin á því.
Laugardagurinn var blautur, svo ekki sé meira sagt. Við klæddum okkur í okkar fínasta púss ( Amsterdam dress ) og keyrðum upp eftir í brúðkaupið sem byrjaði með kirkjunni kl. 4. Gilla var svooooooooooo falleg brúður að þegar hún labbaði inn gólfið skutust nokkur tár fram. Ég reyndi að halda aftur af mér og tókst það nokkuð vel. Guðrún Árný söngkona söng nokkur lög, svo vel að tárin spruttu aftur fram. Presturinn var æðislegur, við hlógum bara og hann náði að lyfta mannskapnum upp úr rigningunni. Auðvitað sögðu bæði Gilla og Stefán já ( kom ekkert annað til greina ).
Við brunuðum úr kirkjunni í Borgarnesi og keyrðum á eftir pabba sem keyrði í loftköstum upp í bústað, það sagði Dista alla veganna. Við húkkuðum þau upp þar og sáum meðal annars þegar það voru teknar myndir af hjónunum. Ég stalst til að taka nokkrar æðislegar.
Veislan var haldin í Bifröst. Við misstum aðeins af því þegar hjónin komu þangað en náðum að skála með þeim inni í salnum. Veislustjórinn, hún Maggý, hélt svo vel utan um allt að restin af kvöldinu rann mjög ljúflega. Maturinn var æðislegur, sterk og góð humarsúpa í forrétt og svo kalkúnabringur og lambalæri í aðalrétt með hrikalega góðu meðlæti. Og desertinn :s ómægod, ég fór 2 ferðir og fékk mér súkkulaðiköku með hindberjakremi og kransaköku, sem að var svo góð að ég eiginlega pantaði eina slíka í ferminguna hjá Þorvarði á næsta ári. Heimabakað er best.
Skemmtiatriðin voru hvert öðru betra en gæsaatriðið var langbest, það lá allur salurinn og engdist um með tárin í augunum, þvílík voru hlátrasköllin. Ég þarf endilega að nálgast það og spila það í vinnunni þegar ég er alveg að bugast. Í heildina skemmtu allir sér konunglega ( svo langt sem ég veit ), Gilla og Stefán stungu af rétt upp úr miðnætti og við héldum áfram til svona 2. Þá allt í einu var eins og við hefðum verið rotuð og það var bara komið gott. Við vorum svo sniðug að bóka okkur í gistingu á Hótel Bifröst svo að það var ekki langt að fara upp í herbergi. Ég þraukaði allt kvöldið í svörtu pinnahælunum mínum og fann ekkert fyrir því. Stolt stelpan...
Svo á sunnudaginn kíktum við aðeins við í bústaðnum hjá pabba og Distu þar sem að heilsan var svona misgóð enda voru þau að til klukkan 5 um morguninn. Alltaf langmesta stuðið í þeim eldri, við yngri höfum ekkert úthald...
Og svo að lokum að þá eignaðist ég litla frænku síðasta sunnudag í Svíþjóð. Loksins, loksins lét hún sjá sig en greyið Þórunn Kristín var búin að ganga 18 daga framyfir :s þeir eru svo líbó í svíaríkinu... Innilega til hamingju með litlu dúlluna, elskurnar mínar....
Er þetta ekki bara orðið ágætt í bili ? Ég þakka öllum þeim sem nenntu að lesa þetta frá upphafi til enda... hehehehe

mánudagur, júní 13, 2005
Tæklið hana stelpur !!!
Klassísk setning síðan um helgina...
Á laugardaginn var Gilla gæsuð. Hana grunaði ekki neitt enda höfðum við hver á eftir öðrum logið að henni undanfarið. Hún ætlaði sér að gera eitthvað annað á laugardaginn en raunin var. Hún var vakin á laugardagsmorgun og kom til dyra og þar beið hennar kassi með ýmsu góðgæti. Hún hljóp reyndar inn í herbergi og lokaði og sagðist vera farin aftur inn að sofa en kom loks fram og fór að taka sig til. Hún var send með rútunni úr Borgarnesi í bæinn þar sem hún komst í tæri við unglingspilta sem voru að koma úr meðferð. Kannski ekki ideal að biðja þá um aðstoð við að opna bjórflöskuna sína en hún kann að bjarga sér. Að lokum komst hún heilu á höldnu niðri á BSÍ og þar tók við heljarinnar eftirför (þ.e. þær sem ætluðu að mynda hana og Gilla ) á Vegamót þar sem við svo biðum eftir henni. Við ljómuðum allar þegar hún kom og ekki síst hún enda orðin doldið kennd. Við fengum okkur ógeðslega góðan mat og soldið mikið af bjór og svo hófst ratleikur mikill.
Leið okkar lá í Garðabæinn þar sem að kvennahlaupið var haldið. Minn hópur var reyndar svo kewl að við tókum bara taxa á meðan hinar ( þ.á.m. Gilla ) tóku strætó og komu þ.a.l. talsvert á eftir okkur þangað. Í millitíðinni fórum við í ríkið og bættum aðeins á birgðirnar. Gilla var ekkert smá ánægð með að fá að taka þátt í hlaupinu því að það var víst hennar upprunalega plan á laugardeginum. Við sátum flestar hjá en keyptum reyndar bol til að finna til samkenndar með þúsundum kvenna. Og fengum m.a.s. medalíu fyrir ákafan stuðning.
Þegar hlaupinu lauk fengum við smá ábót á alkóhólið og var það vel þegið. Við skáluðum sko í kampavíni fyrir hlaupagarpinum og fórum svo áfram í Kópavoginn þar sem beið okkar ratleikur og pikknikk. Og enn var bætt á birgðirnar...
Svo kom að því að við fengum aðeins að sulla soldið í sundhöll RVK. Ég hef ekki komið þar inn í mörg ár og hinar stelpurnar fengu svona fortíðarhroll og minningar um óskemmtilegt skólasund. Gilla skellti sér á stökkpallinn en sleppti söngnum þrátt fyrir mikla hvatningu. Það var nú svo sem í lagi. Veðrið var náttúrulega svo gott að við höfðum sko góða ástæðu til að skella okkur út á sólbaðsþakið í sundhöllinni og þar beið okkar heldur betur fögur sjón. Gömul, hrukkótt níræð nakin skrudda sem var sko ekki í góðu skapi yfir komu okkar. Hún vildi víst fá að vera nakin í friði.Hún lét fúkkyrði fjúka í átt til okkar og þegar Gilla var í miðri Mullersæfingu þá datt út úr henni..."Tæklið hana, stelpur " og við svoleiðis sprungum úr hlátri. Vonandi verður þetta sýnt í bryllupinu ;)
Eftir að við höfðum skolað af okkur klórnum og fúkkyrðunum þá héldum við heim til Jónu og sátum þar á pallinum lengi vel. Enda var veðrið alveg hreint frábært. Við fengum sendan indverskan mat í sterkara lagi svo að það þurfti bara að drekka meira. Svo sem í læ...ekki eins og dagurinn hefði ekki verið undirlagður í alkóhóli. Gilla fékk sitt dekur ( fótabað í bláu fótanuddtæki frá því um miðja síðustu öld ) og var förðuð voðalega fínt af Maggý.
Seinna um kvöldið var svona minningarleikur, þ.e. hver okkar átti að koma með hlut sem að minnti okkur á Gillu. Þetta var mjög gaman þar sem við höfum þekkt hana mislengi. Mér telst til að við höfum þekkst í heil 17 ár, meira en helming ævi okkar. Og mín fyrsta minning um Gillu eru fyrstu jólin okkar "saman" fyrir einmitt 17 árum ( held ég), þá tók hún mig inn í herbergi með sér að sýna mér medalíusafnið sitt ( að beiðni Distu ) og þar voru þær nokkrar enda stúlkan mikil keppnismanneskja. Svo að mér fannst tilvalið að gefa henni medalíu með áletrunni " Gæs ársins 2005 ". Og það féll ekkert smá vel í kramið. Við vorum á þessum tímapunkti allar farnar að gráta yfir þessu minningaflóði og Gilla var löngu búin að þurrka fínu förðunina framan úr sér, eins og við hinar. Ég held að við höfum klárað viskustykkjabirgðirnar hennar á nótæm. Yndisleg stund og yndislegar minningar ( og megi þær verða miklu fleiri ). Svo bara dönsuðum við og tjúttuðum þangað til að komið var nóg og þá rölti ég með Gillu yfir til pabba og Distu þar sem við lögðumst í rúmið og áttum saman notalegt koddahjal. Gummi kom svo og sótti mig, mundi reyndar ekkert eftir því daginn eftir. Þá ákvað ég að ég skyldi fara í brúðkaupið hja Gillu og Stefáni og senda Gumma á ættarmót með börnin. Ég held að ég komi nú ekki til með að sjá eftir þessari ákvörðun enda gera þau þetta bara einu sinni á ævinni : )
Svo eru bara 3 dagar þangað til að ég fer til Amsterdam. Gummi fór út í nótt og er strax farinn að sakna mín, jafnmikið og ég sakna hans. Svo að það verður yndislegt að eiga ljúfar stundir með honum og Siggu minni í damminu.
Og nú hef ég ástæðu til að kaupa sætan sumarkjól og skó fyrir bryllupið... ;) ekki slæmt það...

föstudagur, júní 10, 2005
Jæja...
þá er enn ein helgin byrjuð og hvað verður gert ? meira um það síðar...
Annars er vikan búin að vera ljúf, ég tel bara niður dagana þangað til ég fer til Amsterdam að hitta Siggu mína. Það verður æðislegt að komast aðeins frá og í aðeins meiri hita en hérna á klakanum. Annars er yfir litlu að kvarta, veðrið er að verða skaplegt.
Ég fór með Þorvarð til augnlæknis á miðvikudaginn og viti menn, hann er kominn í -3 á báðum og þurfti að fá göngugleraugu ( sem hann er þá alltaf með ). Það tók hann ekki langan tíma að velja sér brillur sem hann fékk svo í gær og hann er barasta farinn að sjá frá sér og var mjög hissa á því að sjá að loftið í íbúðinni okkar er hraunað en ekki slétt eins og hann hélt. Þetta komment frá honum sannaði fyrir mér að hann sá ekki baun. Núna er þetta sem sagt allt annað og hann brosir bara út í annað yfir þessu öllu saman.
Þórunn Anna er lögst út. Hún skellti sér til Margrétar í Hafnarfirði á þriðjudaginn og svo hringdi hún í mig í gær og þá var hún komin til Einars frænda og hundanna hans. Hvenær hún skilar sér heim er óljóst, það er svo sem í lagi á meðan hún er ekki að hringja í mig og biðja mig um að fá hund inn á heimilið...
Kristín er bara alltaf sama eðalblondínan, alveg yndisleg ( oftast nær ) í umgengni. Það er ekki nema þegar maður vekur hana vitlaust að hún verður alveg kolill og þá forða ég mér bara. Annars svífur hún bara um á bleiku skýi, þessi elska.
Jæja, best að hleypa Þorvarði aðeins á netið áður en hann skríður undir sæng...

sunnudagur, júní 05, 2005
Og annað...
Ég er að fara til Amsterdam eftir 11 daga, sem sagt fimmtudaginn 16.júní í 5 daga. Gummi er að fara á ráðstefnu til Antwerpen í Belgíu í nokkra daga og við ætlum svo að hittast í damminu og eyða helginni saman. Svo að á föstudaginn á meðan ég var í mat í vinnunni þá var pössun, hóteli og farmiða reddað og þegar ég stóð upp frá grasinu og fetaostinum þá var ég bara á leiðinni til útlanda ;) ekki slæmt það. Ég var reyndar spurð hvort ég væri komin í dóp ( alltaf að fara til Amsterdam ) og líka skotið á mig vegna tilbreytingarleysis í utanlandsferðum...
Ég lét Siggu auðvitað vita og þó að hún sé önnum kafin þá komum við til með að geta djammað aðeins alla veganna 2 kvöld. Ég ætla einmitt að fara út með afmælisgjöf handa henni því að í byrjun júlí verður skvísan þrítug svo hún fær svona miniafmæli...
Annars er þessi helgi búin að vera í rólegra lagi, bara búin að vera heima við og hafa það notalegt. Við fórum og versluðum blóm á pallinn og hann er bara allt annar, miklu heimilslegri ;) Svona eiga sumar helgar að vera...rólegar og notalegar :)

ég komst heilu á höldnu frá helginni annasömu. Hún byrjaði auðvitað snemma á föstudeginum á því að við fórum í stúdentaútskrift hjá Hrafnkeli, frænda hans Gumma. Eftir að hafa velt því fyrir mér lengi vel hvað við ættum að gefa honum þá gekk ég inn í dótabúð og keypti svona læknatösku því hann stefnir á að reyna að komast þar inn í haust. Ég nefnilega þoli ekki að fara og gefa pening í umslagi. En hann fékk nú samt peninginn en svona líka flottan pakka með. Eftir þetta partý fórum við aðeins heim til Sissu og Bjarna því að Gulda varð 85 ára gömul á föstudaginn (frænka hennar Sissu sem ég hef þekkt í einhver 25 ár).
Svo á laugardaginn þá byrjaði dagurinn snemma því að við keyrðum alla leið á Hellissand til að vera viðstödd í jarðarför mágkonu ömmu minnar sem að dó í síðustu viku. Veðrið var eins og best verður á kosið og Snæfellsjökull gnæfði yfir hvar sem við vorum. Samt var vindurinn kaldur svo að veðrið var best einhvers staðar í skjóli. Athöfnin var falleg í alla staði og gekk vel. Eftir það var svo erfidrykkja eins og alltaf í sveitinni. Við stoppuðum nú stutt þar því að ég þurfti að vera þá komin í bæinn innan 2ja tíma. Ég heilsaði upp á þau sem ég þekkti þarna og svo brunuðum við aftur í bæinn. Og Gummi missti ekki bílprófið svo við getum haldið báðum bílunum...
Mér tókst svo að vera komin í bekkjarpartýið rétt rúmlega 6 og kalla það nú bara gott að hafa náð því. Þá gat ég svona farið að slappa af í góðra vina hópi. Við komumst eiginlega að því að við höfum eiginlega ekkert breyst á þessum 10 árum, fjölskyldurnar hafa kannski stækkað en við erum alveg eins í útliti og innræti eins og í gömlu góðu. Reyndar hafa umræðuefnin breyst eitthvað því að lítið annað komst að en brjóstagjafir og bleijuskipti svona framan af kvöldinu. Það breyttist aðeins með auknu alkóhólinnihaldi í blóðinu...Það var bara lygnt í sjóinn út í Viðey svo að siglingin var bara notaleg. Við áttum nú að fá púns við varðeld en þar sem það er orðið svo bjart úti þá fengum við bara viðeyjargums ( þetta kölluðu þau bláa glundrið sem við fengum) í sólinni. Ég hló eiginlega bara fyrstu mínúturnar því að þetta var eitthvað svo súrt.Við stelpurnar sátum svo bara saman í borðhaldinu og drukkum vel og mikið og reyndum að láta ekki borðhaldið skemma fyrir okkur skemmtuninni. Hlaðborðið var æðislegt, aðallega meðlætið. Ji dúdda mía, ég hef sko óskað þess alla vikuna að hafa það á borðunum heima hjá mér. Kjötið var síðra en samt ekkert slæmt. Verst var að fá engan eftirmat, okkur dreymdi um súkkulaðistykki og auðvitað engin sjoppa í nágrenninu. Svo tóku við skemmtiatriði sem voru nú dáldið fábreytt en bara fyndin. Við fengum að sjá fréttaskot frá deginum sem við útskrifuðumst á ( enda var Ingólfur Bjarni á stöð 2 veislustjóri og hæg heimatökin hjá honum... ) og það er nú bara hægt að segja að tískan fyrir 10 árum síðan var doldið mikið litlaus. Við sáum líka vídeó af okkur þar sem við vorum að klára stúdentsprófin. Og þar var hárið á mér bara eldrautt og rosalega sítt. Ég hélt nú að á þeim tíma hefði það verið aftur orðið músalitt en svo var ekki. Lítið var um önnur skemmtiatriði svo að við drukkum bara meira og dönsuðum.
Á miðnætti fórum við nokkur í land með ferjunni og ég, Halla Dröfn og Darri ákváðum að fara í hjúkkupartý. Darri stakk reyndar af fljótlega og ég skildi hann svo sem alveg. En ég þraukaði og við vorum svo komnar í bæinn um hálftvö leitið....og þá lá leiðin á NASA á ball með í svörtum fötum. Og það var sko bara gaman. Við vorum orðin svo mörg þarna úr MR að við bara áttum staðinn og í hvert sinn sem Jónsi skaut á 10 ára MR ingana þá fékk hann það margfalt til baka í fagnaðarlátum. Ég hitti meira að segja nokkra úr 74 árganginum úr MR og dansaði vel og mikið. Gummi var líka í bænum og var byrjaður að hringja í mig ansi oft svo ég dreif mig bara heim með honum um 4 leitið þegar hann var kominn með nóg. En ég frétti á mánudeginum að það var sko eftirpartý eftir NASA svo ég hefði getað verið á djamminu langt fram undir morgun. En daginn eftir var ég mjög fegin að hafa farið tiltölulega snemma heim. Þynnka ?? Já, svona doldil en ég þraukaði það...

föstudagur, maí 27, 2005
fimmtudagur, maí 26, 2005
og enn ein tvíbókunin...
kemur svo sem ekki af góðu. En sem sagt áður en ég fer að hitta "gamla" MR inga á laugardaginn verð ég að bruna vestur á Hellissand í jarðarför. Anna á Selhól lést um daginn eftir veikindi og ekki annað hægt en að sýna henni þá virðingu að kveðja hana almennilega. Svo að við leggjum í hann snemma á laugardaginn og brunum svo í bæinn eftir það svo ég komist í eynna. Ef að Gummi missir prófið þá getum við alla veganna selt annan bílinn...en vonum að það komi nú ekki til ;)
Nóg að gera á stóru heimili...
c",)
Nóg að gera á stóru heimili...
c",)
miðvikudagur, maí 25, 2005
voðalega er það kewl...
að blogga með mánaðar millibili. Ekki að það gerist ekki neitt í mínu lífi ;)
Kannski er það málið að ég þarf að berjast við börnin að komast á netið hérna heima hjá mér og blogga auðvitað ekki á launum hjá Kára, reyni að gera eitthvað annað þarna í mýrinni...
Þessa dagana er annars nóg að gera og ég sé ekki fram á djammlausa helgi fyrr en einhvern tímann í júlí. Og hana nú !! er jafnvel tvíbókuð ef ekki þríbókuð sum kvöldin framundan. Er bara svo vinsæl...er það ekki bara ? múhehehehe
Meðal annars fór ég um daginn út að borða á Argentínu, með Samskipafólki og er eiginlega ennþá södd ef eitthvað er og það er nú komið soldið síðan þetta var. Pöntunin mín ruglaðist eitthvað svo ég fékk stærri steik en ég pantaði og gat ekki klárað allt ( skamm/ skamm)...
Fór svo á djammið um daginn með hobbýhórunni minni og þjáðist af stærrimáttarkennd. Við vorum komin á þá skoðun að dvergarnir hafi farið á djammið sama kvöld því að við gnæfðum yfir allt og alla og hobbýhóran mín er nú bara í þessari klassísku meðalstærð. Ég er náttla farin að nálgast 2 metrana þegar ég er komin á hælana en er vön því að horfa niður á fólk ( ekki neitt niðrandi við það ). Við röltum um allan bæ ( alla veganna miðað við harðsperrurnar daginn eftir ) og ég hitti fullt af fólki sem ég hef ekki hitt lengi, voðalega gaman :)
Hvað annað ??? hmmmmm jú, var auðvitað með júrovisjón djamm hérna í músó um síðustu helgi þó að Selma kæmist ekki úr undankeppninni. Mikið drukkið, voðalega gaman. Sungum okkur hásar ( þ.e. stelpurnar) og svo fór ég bara að sofa þegar mér fannst þetta orðið gott. Samt var enginn farinn en ég bara gat ekki meira. Óskar greyið kom inn til mín á trúbba en ég bara man ekkert hvað hann sagði við mig og enginn annar veit hvað okkar fór á milli. Ekki hann einu sinni vegna ölvunar. Hann var víst orðinn óskiljanlegur á þessu stigi kvöldsins, svona eins og gerist stundum...
Svo um næstu helgi er enn eitt djammið. Við erum boðin í útskriftarboð hjá frænda hans Gumma á föstudaginn en það verður nú bara rólegt og notalegt. Er að brjóta heilann um hvað ég gaf bróður hans í fyrra þegar hann útskrifaðist en er ekkert að muna það. Svo að við endum örugglega með að gefa honum bara einhvern aur sem hann getur notað að vild.
Svo á laugardaginn næsta er ég víst ásamt nokkuð mörgum öðrum að halda upp á 10 ára stúdentaafmæli okkar MR inga og verður Viðey undirlögð... Ég er síðustu daga búin að reyna að hafa samband við bekkinn og hef náð að hóa nokkrum saman í djamm. Þetta verður eflaust fyndið kvöld, alla veganna hef ég fengið að heyra allt síðasta ár að krakkarnir skemmtu sér mjög vel í fyrra. Ég átti nefnilega að útskrifast '94 en vegna anna ( barneigna í MR ) seinkaði ég þessu bara um ár en held sambandi við bæði árin þrátt fyrir það. Þess vegna átti ég að vera úti í Viðey í fyrra en vegna anna ( var sko fimmbókuð það kveldið ) fór ég ekki. Svo það sé á hreinu. Alla veganna stefnir í gott djamm með góðu fólki ;)
Svo um næstu helgi erum við stelpurnar að fara að kveðja Höllu Dröfn sem er að fara austur á Seyðisfjörð næstu ár að vinna. Helgin þar á eftir er ég líka bókuð, fæ svo eina helgi í frí frá djamminu( að ég held ) til að halda upp á 13 ára afmæli Þorvarðar míns... ( guð hvað þetta líður hratt ).
Og næstu helgi eftir það eru Gilla og Stefán að gifta sig en þá er ég tvíbókuð ( once again) því að við erum að fara á ættarmót hjá fjölskyldunni hans Gumma, eitthvað sem var planað fyrir löngu síðan... :( því miður því að ég hefði svo viljað vera í Borgarnesi á þessum tyllidegi. Ég verð bara að láta duga að skoða myndirnar úr bryllupinu...og þá verður bara kominn júlí :s
Úff, ég verð bara þreytt á því að horfa á dagbókina mína. En þegar þessu öllu verður lokið verður nú stutt í sumarfrí þar sem ég get vonandi hlaðið batteríin aðeins, dundað mér hérna heima við og sleikt sólina á pallinum : )
Jæja, ég er komin með nóg af því að sitja hérna í fuglabjarginu inni hjá Þorvarði. Best að fara að gera eitthvað af viti áður en Gummi kemur heim. Og þá hringir þessi elska....

miðvikudagur, apríl 13, 2005
BRUMM...BRUMM
Jæja, þá er ég komin á lítinn sætan frúarbíl... :) og er ekkert smá lukkuleg með það. Fyrir valinu varð hyundai getz sem gengur fyrir loftinu að því er virðist. Liturinn er doldið sjokkerandi en venst vel...svona ljósgrænn á litinn. Gummi segir að bíllinn heiti froskurinn en ég hlusta nú ekki á það.
Annars er bara jafn yndislegt að búa í mosó. Krökkunum gengur vel í skólanum, meira að segja Þorvarði. Hann mætir eins og herforingi og í leikfimi og sund líka. Sko minn mann. Svo að þetta er bara æðislegt...
Kristín er búin að eignast vini út um allt og sést varla heima við eftir að við skríðum heim á frosknum ; ) ég næ henni varla inn á kvöldin. Það verður nú skrautlegt eftir nokkur ár...hehehe
Við hjónakornin erum bara búin að vera róleg undanfarið og ekkert djammað síðan síðast. Enda rétt svo búin að jafna okkur. En það stendur nú til bóta næstu helgar og ekki margir dagar lausir. Samskipaliðið er nú svo duglegt við þetta og við þar af leiðandi líka. Reyndar eru þverrandi líkur á einu djamminu, árshátið ÍE. Ég er eiginlega í engu stuði fyrir það og svo er Anna Jóna líka að skíra litlu Söru Ósk á sunnudeginum eftir svo að ég held að ég verði bara heima að baka og undirbúa með þeim í Stórateignum. Enda nenni ég ekki að standa skrallþunn við altari að morgni dags. Ekki alveg my style...
Jæja, best að fara að elda mexíkóskt...ala Bogga ; )

mánudagur, mars 28, 2005
Og...
Þá er öðru gilli af þremur lokið um þessa helgi. Núna er ég að fara að setja í djöflaköku og eitthvað fleira gott því að fjölskyldan mín er að fara að mæta hingað í dag. Í gær komu tengdó og pabbi og dista í mat og það gekk alveg rosalega vel. Reyndar fóru Dista og pabbi heim í fyrra fallinu því að pabbi er að fara upp á Akranes í dag í undirbúning fyrir mjaðmaaðgerð sem hann fer í á morgun. En tengdó...þau voru hér til miðnættis og fengu meira að segja nesti með sér í fljótandi formi svona til að geta haldið áfram heima. Við Gummi erum búin að sjá það að það er ekkert slæmt að koma til okkar í bjóð...alla veganna eru góðar veitingar í boði langt fram eftir öllu og mikið af þeim. Bara gaman að geta veitt vel : )
Svo er bara vinna á morgun og fyrsti dagur í nýjum skóla hjá Þorvarði og Þórunni Önnu. Það gengur nú vonandi allt vel. Þorvarður fær reyndar að sofa aðeins út á morgun því hann mætir ekki fyrr en um 9 eins og alla mánudaga og þriðjudaga. Það finnst honum ekkert smá sport, að fá að sofa lengur en systir sín og nudda henni upp úr því...
Well, farin að baka .

sunnudagur, mars 27, 2005
Gleðilega páska...
öll sömul : )
Jæja, þá erum við flutt í mosó. Nú erum við búin að búa hérna í 8 daga.... Orðnir Múslingar af lífi og sál. Þetta er alveg hreint yndislegt, okkur líður alveg voðalega vel hérna. Við heyrum ekkert í nágrönnunum og þeir vonandi ekki í okkur. Þetta er bara eins og að vera í einbýli. Pallurinn á sko eftir að koma sér vel þegar fram líða stundir, það verður sko æðislegt að sitja þar í sumar í góða veðrinu og drekka í sig kvöldsólina. Og svo er náttúrulega dýrlegt að í ekki stærra bæjarfélagi séu 2 lágvöruverslanir og þar af ein opin til miðnættis. Svo að það þarf ekkert að vera að stressast í búðum eftir vinnu, bara skella sér í sveitina og versla þar. Það á sko eftir að koma sér vel...
Kristín Fríða er sko komin með sitt bleika herbergi. Þegar fyrsta umferðin af litnum var kominn á hélt ég að við hefðum keypt neonbleikan en hann skánar svona eftir því sem tíminn líður. Alla veganna er hún himinlifandi yfir þessu öllu saman. Þorvarður stakk af til pabba síns stuttu eftir að við fluttum svo að það er svo sem ekki komin mikil reynsla á það. Hann byrjar svo í skólanum á þriðjudaginn og þá förum við væntanlega að fá einhver viðbrögð hjá honum.
Þórunn Anna er líka stungin af. Hún skellti sér í sumarbústað með Margréti vinkonu sinni og kemur heim á morgun. Svo að það er frekar rólegt hérna heima við...
Við erum nú þegar búin að halda 1. innflutningspartýið þó að við séum bara búin að vera hérna í rétt rúma viku. Við ákváðum að kýla á þetta á föstudeginum langa = flöskudeginum langa. Mætingin var góð, fámennt en góðmennt. Hér var drukkið og etið til rúmlega 4 á laugardagsmorgninum og eftir að við tékkuðum á liðinu í gær þá komumst við að því að þetta var almennilegt því heilsan var frekar slæm hjá flestum...
Svo er sko næsta bjóð í dag, við fáum foreldra í mat til okkar seinni partinn og erum að fara að elda 2 læri ofan í liðið. Það er eins gott að við erum búin að kaupa nýtt borðstofuborð til að koma þeim öllum fyrir. Þetta verður voðalega gaman. Gott að geta boðið í mat og gert það almennilega. OG við erum sko ekki búin þessa páskana því að svo kemur fjölskyldan mín í kaffi og kökur á morgun. Nóg að gera á stóru heimili. Það er nú allt í lagi, við sofum svo vel hérna í sveitinni svo ég verð nú ekki þreytt við þessi bjóð : )
Jæja, best að fara að ná mér í smá bita af egginu áður en það klárast...
c",)
p.s. til hamingju með daginn mamma mín : )

fimmtudagur, janúar 20, 2005
Og hana nú ;)
Hjón í sumarfríi fóru í bústað á Þingvallavatni. Eiginmanninum fannst best að veiða við sólarupprás. Konunni fannst gaman að lesa. Einn morgun snýr eiginmaðurinn aftur eftir nokkurra klukkustunda veiðar og ákveður að leggja sig. Þó konan þekki ekki vel til á Þingvöllum ákveður hún að fara á bátnum og sigla út á vatnið. Hún siglir stutta vegalengd út á vatnið,setur út akkerið og kemur sér vel fyrir og fer að lesa bók. Stuttu seinna kemur veiðivörður siglandi að henni á bát sínum. "Góðan daginn frú, hvað ert þú að gera ?" spyr hann. "Ég er að lesa bók" svarar hún (og hugsar með sér hvort það sé ekki augljóst!). "Þú ert á lokuðu veiðisvæði" segir vörðurinn."Fyrirgefðu en ég er ekki að veiða, ég er að lesa" segir hún. "Já" svarar hann, "En þú ert með allar græjur, hvað veit ég nema að þú farir að veiða eftir skamma stund. Ég verð að fá þig í land svo ég geti gert skýrslu um þetta". "Ef þú gerir það þá verð ég að kæra þig fyrir nauðgun!" svarar hún þá. "En ég hef ekki snert þig " segir vörðurinn forviða. "Það er rétt en þú hefur allar græjur og hvað veit ég nema að þú byrjir eftir skamma stund"."Hafðu það gott í dag frú" sagði vörðurinn og sigldi á brott.
Boðskapur sögunnar : Aldrei rífast við konu sem les. Það er mjög líklegt að hún geti líka hugsað !!

miðvikudagur, janúar 19, 2005
JI :s
ég gleymdi alveg að segja frá flottustu veislu ársins sem að ég var í um síðustu helgi. Reyndar byrjuðu veisluhöldin helgina áður en seinni veislan sló allt út. Það var nefnilega verið að vígja vöruhótelið hjá Samskipum. Framan af þá var ég ekkert á leiðinni þangað en síðan á fimmtudeginum fékk ég að vita að mökum væri boðið með. Jibbí jei, ég hafði ekkert viljað lesa póstana sem að Gummi var að sýna mér um þetta því þá hefði ég verið svekkt. Sko...við (ég með Sissu og Bjarna )mættum niður í vöruhúsið á laugardaginn um 6 leitið og þá var strax kominn alveg hellingur af fólki, mætir menn úr þjóðfélaginu og konur líka. Við mér blasti eðalveigar og veitingar og fyrr en ég vissi af var ég komin með cosmopolitan í hendur og teigaði vel og mikið. Það voru veitingar út um allt. Það var kartöfluakur, tilraunastarfsemi með alls konar kartöfluréttum. Það var vodkabar með fljótandi veitingum, einhver desertbar sem að ég missti af í gleði kvöldsins. Þarna voru ostrur ( mmmmmmmmmmm ), hrátt nautakjöt með gúmmelaði, kavíar og svo grillið. Slef, slef, þeir voru með nautakjöt á teini, kjúkling og risarækjur og þarna stóð ég bara og gúffaði í mig. Ef ég varð leið á cosmo þá fékk ég kínverskan bjór í hönd, ekkert verra ;) Klukkustund eftir að herlegheitin byrjuðu þá var strax farið að bera saman vígslu á öðru vöruhóteli hér í bæ sem var bara algjört prump miðað við þetta. Og kvöldið var rétt byrjað. Allt í einu voru tjöld dregin frá á sviðinu og sinfónían öll sat og byrjaði að spila undir eins. Ég horfði í kringum mig og sá að fólk gapti bara af undrun og hrifningu sem minnkaði svo ekkert þegar að Diddú steig á svið og þandi raddböndin. Fólk hrópaði og kallaði því að það er ekki möguleiki að klappa með báðar hendur fullar af veitingum. Og kvöldið varla byrjað. Næstir á svið komu Brimkló með Ragga Bjarna í för. Hann náði salnum algjörlega á sitt band og allir sungu í Samskipakórnum sem myndaður var á staðnum. Þegar þarna var komið var fólk farið að dilla sér aðeins og áfengisprósentan orðin soldið há í blóðinu. Þetta var sko ekki búið því að Sálin kláraði kvöldið með fullt af gömlum slögurum sem allir sungu með. Algjörlega geðveikt og ógeðslega gaman. Svo tókst okkur að lokum að draga Begga öryggisstjóra með okkur niður í bæ þar sem við kíktum inn á REX með öllum hinum uppunum. Pissfullum og geðslegum. Þvílíkur troðningur og bara æi... en samt gaman :)
Þannig að kvöldið var frábært í alla staði og ekkert kemst nærri því í framtíðinni. Þá er ég búin að deila smá minningum með ykkur...ég gapi enn ;)

þriðjudagur, janúar 18, 2005
ehemm
kewl að blogga með mánaðar millibili. Það er nú ekki eins og ekkert hafi gerst í millitíðinni svo ég held að það megi skella skuldinni á pjúra leti.
Jólin eru liðin og voru þau ljúfustu í mörg ár. Við héldum þau með foreldrum Gumma í mosó = fórum með troðfullan, þungan bíl fullan af pökkum og börnum á aðfangadag í mosfellsbæinn. Þau voru bara að tapa sér meðan við vorum að borða, ég og Gummi gerðum í því að teygja lopann til að gera þau enn brjálaðri en að lokum þá komust þau í pakkahauginn undir jólatrénu. Herlegheitin tóku alveg korter enda er bara ein ástæða fyrir því. Alltof mikið af pökkum. Annars hefði þetta tekið miklu styttri tíma. Það tók mig líka nokkra daga að finna út úr hvað hver fékk frá hverjum. En þetta skilaði sér allt saman. Þetta voru dótajólin miklu hjá okkur öllum. Þorvarður fékk fjarstýrðan bíl ( þetta er sko það sem ég hef beðið eftir að fá í mörg ár) og auðvitað margt annað, Þórunn Anna fékk örkina hans nóa í pleimó ( ég vissi það !! ) og Kristín Fríða drukknaði í pony- og barbie dóti og ljómaði enda allt saman bleikt.
Ég fékk svo mikið af pökkum, ætlaði ekki að trúa mínum eigin augum.
Gummi gaf mér flugmiða með Flugleiðum = búin að bóka mig í flug til ams 10. feb og er sem sagt að fara að hitta Siggu mína eftir 23 daga :) jibbí jei...
Pabbi og Dista gáfu okkur fallega silfurskál og kertastjaka og himnesk sængurföt
Tengdó gáfu okkur diska sem að við vorum búin að finna okkur og gáfu okkur miklu meira en við bjuggumst við
Anna Jóna og Kristín ( systur Gumma ) gáfu okkur tertudisk og engla :)
Amma og afi Gumma gáfu okkur nammikörfu
Kári gaf mér annan flugmiða með express, bíð aðeins með að nota hann á meðan ég held í veika von um að þeir taki út nokkrar sætaraðir til að við komumst almennilega fyrir með lappirnar
Gilla og Stefán gáfu okkur fallegan dúk á nýja borðstofuborðið í nýju íbúðinni okkar
Kristín bjó til kertastjaka handa okkur í Sælukoti
Gerður og Hemmi sendu okkur ost og nammigott og svo heimagerðan ostabakka úr rauðvínsflösku ( gott að geta nýtt þær á einhvern máta... )
Nú er minnið farið að bresta ( svo langt síðan...hehehe ) en ég held að ég hafi náð að impra á því helsta...
Nú, ég og Gummi vorum eiginlega búin að ákveða að gefa hvort öðru ekkert vegna íbúðakaupa en það varð nú ekki svo ( sbr. eitt stykki flugmiði ). Ég lét brenna fyrir hann Góða dátann Svejk á geisladiska og hann ljómaði í framan og þetta hefur verið í nonstop spilun í bílnum síðan um jólin...og svo gaf ég honum líka 3ju myndina um LOTR. Svo að við fórum aðeins á bakvið orðin en það var bara allt í lagi, svona einu sinni :)
Úff hvað þetta blogg verður laaaaaaaaannnnnnnnnngggggggggggt :)
Auðvitað var svo mikill hittingur yfir jólin, aðallega Gumma megin. Við vorum komin af stað í kaffi og kökur á jóladag um kaffileitið til ömmu og afa hans. Svo um kvöldið hittum við Gillu og Stefán og börn heima hjá pabba og Distu og fengum okkur meira að borða. Stóðum okkur mjög vel. Svo vel að Gummi varð hálfslappur daginn eftir og fékk magakveisu = misstum af jólaballinu í móðurfjölskyldu hans.
Á milli jóla og nýárs var lítið um að vera, Gummi reyndi að fara í vinnuna en það gekk ekkert alltof vel. Það var nefnilega verið að flytja skrifstofurnar á þessum tíma svo að einn daginn kom hann að tómri skrifstofu og dótið hans á flakki, annan daginn var hann ekki kominn með skrifborð og þriðja daginn þá var hann ekki búinn að fá helminginn af dótinu sínu. Svo að þetta varð allt saman minna en það átti að verða. Sem var mjög gott því þá kom hann bara fyrr í bólið til mín ( sem var í fríi notabene ). Svo kom gamlárskvöld. Gummi var reyndar á skralli kvöldið áður = myglaður...en það var allt í lagi. Reyndar byrjaði dagurinn snemma í fimmtugsafmæli frænku hans hennar Ingibjargar Sólrúnar. Voðalega gaman en mikið talað um hvaða hávaxna fólk væri þarna...hmmmmmm hver ætli það hafi verið ?? ;) Svo fórum við heim í millitíðinni og náðum í stelpurnar og keyrðum upp eftir. Það leið ekkert á löngu fyrr en við vorum komin með glas í hönd og skemmtum okkur bara ágætlega. Hlógum mikið að skaupinu og náðum að halda Kristínu vakandi fram yfir miðnættið. Það var rosalega flott flugeldasýning í mosó til minningar um Ragga sem var myrtur á Áslák ( Dráplák), einum af pöbbnum í mosó ( já þeir eru sko 2 ). Allur bærinn stóð og horfði á og enginn sprengdi á meðan á þessu stóð. Þess vegna var flugeldasýning íbúanna sjálfra hálfhjákátleg miðað við sýninguna. En hún var rosalega flott. Seinna um nóttina fengum við okkur göngutúr heim til frænku Gumma því að þar sátu vinir að sumbli. Reyndar var Nína frænka hans farin að sofa þegar við skiluðum okkur en Snorri var enn að. Í stuttu máli ,eftir umræður um öll farartæki sem nokkrum dettur í hug ( flugvélar, flutningaskip, farþegaskip og flutningabíla ) þá gat ég dregið Gumma heim og þá var klukkan farin að ganga 8 um morgun. Ég var voðalega hress og ekkert mygluð ( NOT )
Sem betur fer var svo frídagur eftir áramótin, hefði engan veginn meikað það að mæta í vinnu 2. janúar...ég ætla að hafa það í huga næst að það er eiginlega möst að eiga einn frídag eftir áramótin.
Svo er janúar búinn að líða ansi fljótt, miklu fljótar en ég þorði að vona enda er ég að bíða eftir því að komast af landinu og fá svo íbúðina okkar. Við erum búin að rúnta um útsölur og eyða nokkrum krónum í eitt og annað sem að við getum geymt í kjallaranum hjá tengdó ( sem betur fer ) Og í dag, nákvæmlega eru bara 8 vikur þangað til ég stend með sparsl og málningu í hönd að gera íbúðina okkar flottari en hún er fyrir :) og ég get varla beðið en þetta er búið að vera svo fljótt að líða hingað til svo að þessi dagur rennur upp fyrr en varir.
Er þetta ekki orðið alveg ágætt í bili ?? Ég verð að fara að troðast eitthvað í tölvuna hérna heima við á milli barnanna svo ég geti bloggað með aðeins styttra bili. Ekki að það séu margir um lesninguna...hvað veit ég ??

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)