föstudagur, apríl 07, 2006

TGIF

guði sé lof. Samt er svo stutt síðan það var föstudagur síðast. Sit hérna með labbann í kjöltunni og bíð eftir að idolið byrji. Hver vinnur ? ég hef haldið með Ínu frá upphafi en mér finnst Snorri líka mjög flottur. Svo ég held að ég verði hlutlaus í kvöld og njóti þessa bara.
Vikan er búin að vera svo fljót að líða, búið að vera brjálað að gera í vinnunni og dagarnir fljótir að líða. Var í starfsmannaviðtali um daginn hjá Adam og það eina sem vantaði var að hann myndi kyssa á mér tærnar. Ég held bara að hann sé nokkuð ánægður með mig. Enda telst ég vera hópur. Hvernig svo sem hann fær það út.

Ég varð fyrir kúltúrsjokki hérna í sófanum eitt kvöldið í vikunni þegar Gummi var að sörfa á milli rása í sjónvarpinu. Haldið þið ekki að hann hafi dottið inn á Túttukeppni Íslands 2006 ???? Ég hélt að það væri ekki hægt að leggjast svona lágt en viti menn. Það er hægt. Afgömul silikonjúlla frá Dalvík og einhverjar smástelpur í keppni um að verða eitthvað bíkínímódel. Æðislegt ? held ekki, þvílíkur metnaður. Ótrúlegt að einhver vilji taka þátt í svona fíflagangi. Ég held að ég reyni að forðast það umfram allt að stilla aftur á þetta.

Jæja ædolið byrjað :)


c",)

Engin ummæli: