með Kristínu. Hún vaknaði hitalaus í morgun ( það hefur ekki gerst síðan um helgina ) svo kannski er þetta gengið yfir. En hún er samt með hása viskírödd, ennþá meiri dúlla fyrir vikið.
Svo við erum bara að finna okkur eitthvað að gera, hún er í Barbie leik í augnablikinu og ég að þvo þvotta, alltaf nóg að gera þar. Og svo er ég auðvitað að undirbúa mig fyrir æfingu í kvöld. Er að fara að keppa á morgun í langstökki og kúluvarpi og finnst skynsamlegra að æfa aðeins hand og fótatökin fyrir átökin á morgun. Þetta er nú meira til gamans gert en spurning hvort að keppnisskapið birtist í öllu sínu veldi þegar á hólminn verður komið.
Annars bara orðið stutt í helgina, á að vera pabbahelgi svo vonandi verður henni eytt í afslöppun og kúr. Tengdó eru að fara í sumarbústað við Laugarvatn svo við kíkjum kannski til þeirra. Svo tel ég bara dagana þangað til ég kemst til útlanda.... í dag eru bara 50 dagar í flugtak ( soldið mikið en verður nú fljótt að líða )
c",)
miðvikudagur, mars 22, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli