föstudagur, mars 24, 2006

Dream team deCode

Haldiði ekki að ég sé komin í draumalið deCode eftir afrek gærkvöldsins. Og það sem meira er, Sigga mín líka. Ég varð sem sagt í öðru sæti í langstökki og Sigga í þriðja sæti í 60 metra spretti. Þokkalega góðar ;) Við erum sem sagt að fara að keppa 1. apríl á fyrirtækjamóti ÍSÍ í frjálsum íþróttum ásamt grilljón liðum úr öðrum fyrirtækjum og bæjarfélögum. Bara vera með, er það ekki annars ? Annars braust fram keppnisandinn í gær eins og ég bjóst svo sem við og þetta var bara gaman þegar á hólminn var komið.
Kristín er búin að ná sér, hóstar aðeins ennþá en það er annað mál með mig. Ég er hætt að telja hvað ég er búin að hnerra oft í dag, er alveg að kafna úr kvefi og með strengi eftir gærkvöldið. Þess vegna get ég sagt með mikilli innlifun ;"Guði sé lof að það er kominn föstudagur ". Eða TGIF á okkar ylhýru ensku.
Plan um helgina ? Kannski að kíkja í bústað við Laugarvatn, bíllinn okkar er enn í viðgerð og Gummi búinn að gefast upp á fáknum sem hann er búinn að vera með á meðan svo hann ætlar að skila honum á eftir. Skrýtið ? NOT...hrikaleg drusla sem kemst ekkert áfram. Kannski erum við bara svona góðu vön...

c",)

Engin ummæli: