fimmtudagur, apríl 13, 2006

Bleeeeh...

myglaðasti dagur ársins held ég að kvöldi kominn og ég er svona rétt að vakna til lífsins. Við hjónakornin erum sammála að þessi dagur er búinn að vera eins og föstudagarnir löngu í æsku okkar, líður bara í einhverju móki og slappelsi. Ætli þetta séu ekki eftirstöðvar gærkvöldsins.

Við náðum í Sissu og Bjarna á Nordica hótel rétt fyrir 9 í gær og fórum niður á enricos. Geðveikur maturinn þar, ég fékk mér forréttaþrennu í forrétt og túnfisksteik í aðalrétt. Algjört æði, bragðsterkt og fínt. Gummi og Bjarni fengu bragðdaufa humarsúpu í forrétt, vantaði algjörlega kryddið í hana, eins og þær geta verið vel lukkaðar. Eftir það fórum við svo niður í bæ á pöbbarölt, Vínbarinn og Dubliners urðu fyrir valinu. Ég var alveg komin með nóg þarna og komin í vatnið en hin 3 teiguðu ölið af miklum krafti. Svo héldum við heim til Sissu og Bjarna í pottpartý, yndislegt að liggja eins og skata í kuldanum við kertaljós og notalegheit. Sissa var alveg komin með nóg þarna og ég sauð fljótt og vel svo við skelltum okkur upp úr og leyfðum köllunum að eiga góðar stundir í hitanum. Sissa fór bara upp í rúm og ég lagðist í sófann með teppi ofan á mér og vissi ekki af mér fyrr en klukkutíma seinna þegar strákarnir skriðu inn, rennblautir og æðislegir. Svo við hringdum bara á taxa og drifum okkur heim í ból. Sem ég er svo nýskriðin upp úr og langar jafnvel aftur upp í. Orkubúntið ég, alveg ótrúleg.

Við vorum að heyra í fréttunum að við fáum endurgreiðslu á fasteignasköttum frá Mosfellsbæ af því að það var svo mikill rekstrarafgangur fyrir síðasta ár. Kemur sér ágætlega en það er nú ósköp mikil kosningaskítafýla af þessu. Það er víst von á öllu næstu vikurnar þangað til að við höfum kosið yfir okkur einhverja andskotans aulana og allt fellur í sama farið aftur. Um að gera að njóta þess að þeir séu að friða samviskuna eða eitthvað næstu vikur. Greyin...það er örugglega af nógu að taka þar.

Jæja, best að drífa sig út á leigu og sjá hvað er í boði, móka yfir einhverju í kvöld...

c",)

miðvikudagur, apríl 12, 2006

Fyrsti...

dagur páskafrís komin að kveldi og fullt af dögum eftir. Ég fer ekki í vinnu aftur fyrr en 24. apríl svo það hljóta að vera 12 dagar eftir. Yndislegt, svo ekki sé meira sagt.
Fórum í fyrstu fermingu vorsins síðasta sunnudag. Söfnuðum hugmyndum á meðan við sátum undir góðum veitingum á Kaffi Reykjavík. Soldið fyndið að koma þar inn í björtu, hef aldrei gert það áður. Fermingarbarnið Alexandra fékk haug af gjöfum og peningurinn telst víst á 4. hundrað þúsunda króna. Sem er nú bara eiginlega sjokkerandi upphæð. Ef að Þorvarður kemst í hálfkvisti við þetta þá veit ég vel að það fer meira og minna allt inn á bók til betri tíma. Hann er soddan aurasál, þessi elska...

Sit hérna heima með Led Zeppelin á fóninum, búin að dressa mig upp og á leiðinni út að borða með Sissu og Bjarna ( afmælisbarni ). Ætlum að skella okkur á Enrico's, ég afrekaði að fá innleggsnótu þar frá www.femin.is sem verður gjörnýtt í kvöld í bús og góðan mat ( vonandi ). Við erum líka eiginlega að fagna skírn minni, já í dag ( og héðan af ) geng ég á vegum guðs ( hehehe ) og sonur minn líka. Þetta var bráðnauðsynlegt í tilefni þess að blessað barnið ætlar að láta ferma sig eftir rúmar 2 vikur. Ji hvað er orðið stutt í þetta. Skírnin gekk bara fljótt fyrir sig og pabbi gaf mér skírnargjöf. Voðalega sætur, alltaf gaman þegar hann kemur mér á óvart.

Annars bara voðalega lítið að frétta, bara afslöppun framundan og smá fermingarundirbúningur. Nenni ekki að stressa mig yfir þessu, þetta gengur vonandi allt vel og smurt. Salurinn er reyndar minni en mig minnti svo við sitjum bara aðeins þrengra en við héldum. Sem er í lagi, man ekki eftir því að það séu einhverjar krísur í fjölskyldunum sem saman koma. Þetta verður bara gaman og best þegar þessu verður lokið ;)

Jæja, farin að sletta úr klaufunum....

c".)