ekki eins og það gerist ekkert í lífi mínu, tjellingin bara löt að blogga.
Margt og mikið hefur gerst síðan síðast, fullt af afmælum ( 4 í einni viku ), partý, tónleikar, böll og fleira. Og utanlandsferð plönuð. Jaháts, tjellingin búin að vera duglegri á öðrum sviðum en blogginu undanfarið.
Fyrst má nefna afmælin. Óskar vinur okkar ( og varamaðurinn minn ) varð 32 um daginn. Áður en við fórum í afmælið til hans var okkur boðið í kokteil hjá OR og á tónleikana með Bo Hall. Ég get svo svarið það að ég fékk gæsahúð við fyrsta lag og tár í augun. Og í enda giggsins var ég farin að syngja manna hæst, mest og best ( yeah right ). Svo var haldið til Óskars þar sem vinakjarninn var, Óskar og Dorota, Snorri einsamall, við og Alli og Nong. Það var mikið um fljótandi í boði og ekkert slakað á fyrr en um miðja nótt þegar ég var eiginlega komin með nóg. Svo ekki sé minnst á Dorotu. Hún gapti bara. Málið var að Snorri var alltaf eitthvað að pirrast og nuddast út í Gumma, gefa honum óumbeðið nudd ( sem var ansi harkalegt ) og fleira. Í stuttu máli sagt þá endaði kvöldið þannig að Gummi snéri Snorra niður í sófann og lá á bringunni á honum og bað hann að hætta. Sem hann gerði en var helaumur á eftir. Hann hringdi svo í Gumma í dag og þá er komið í ljós að hann er með brákað bringubein eftir lætin. Læknirinn sagði honum að skipta um vini. Eins og það gerist...
Næsta afmæli var svo hjá henni Sissu minni. Hún varð 33 ára um daginn en lítur út eins og þegar við vorum litlar. Ég er sko búin að þekkja hana í 27 ár ( held ég ) og það er nú bara alveg slatti. Ég gaf henni forláta lopapeysu í afmælisgjöf, svo henni verði ekki kalt í skólanum í vetur. Næstur á afmælislistanum var svo tengdapabbi minn en hann varð 55 ára. Hann / þau buðu okkur í mat og við skáluðum í nokkrum bjórum bara svona í tilefni dagsins. Við gáfum honum voðalega flott úr.
Og svo kom að afa hans Gumma. Hann varð áttræður um daginn og bauð í kvöldmat og með því í sal vestur í bæ. Það var vel mætt, maturinn æðislegur og bara gaman að eyða kvöldstund með ættingjunum. Við laumuðum að honum smá aur en hann vildi í raun ekkert í gjöf, bara að sjá liðið sitt. Og þá er ég búin að telja upp þau 4 afmæli sem ég fór í á 5 dögum. Geri aðrir betur.
Og svo, síðast en ekki síst...á Gummi afmæli á morgun, 4. október. Hann verður þá loksins jafngamall mér, glæsilegt hjá mér að ná mér í yngri mann en ég er sjálf ;) tjellingin kewl...
Annað sem ég hef afrekað undanfarið er að panta mér flug til usa, nánar tiltekið til Boston 11. október næstkomandi.Þangað ætla ég að fara með henni Distu minni ( stjúpu ) og Gillu stjúpsystur. Doddi hennar Distu á heima rétt fyrir utan Boston og þar ætlum við að eyða nokkrum dögum í afslappelsi og shop till u drop. Og heilsa upp á nýjustu frænkuna, hana Lou Distu. Það er löngu ákveðið að þetta verður sko ekki menningarferð. Svo nú leita ég mér að STÓRRI ferðatösku sem á að vera eins létt og hægt er, svo ég komi nú miklu í hana án þess að borga yfirvikt.
Svo...er ég búin að vera heima síðustu 2 daga með einhverja kviðverki og leiðindi. Ég er búin að fara í prufur og tékk og ekkert er búið að sjást eða finnast. Ég er einmitt í augnablikinu alveg að drepast :s svo ég ætti kannski bara að hætta þessu pikki ???
þangað til næst....
c".)
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)