mánudagur, desember 04, 2006

Jæja...

þá eru bara 20 dagar til jóla. Sem þýðir að það eru bara 18 dagar í feitt jólafrí ( vonandi ). Ljúft, sé mig alveg í anda í náttfötunum heima milli jóla og nýárs að gera minna en ekki neitt.
Annars er desember hingað til búinn að vera ljúfur. Þórunn mín varð 13 ára á föstudaginn ( til hamingju elskan mín ), það er hægt að opna bílskúrinn og ég aðeins farin að jólavesenast. Svona loksins þegar ég komst í jólaskrautið mitt... Sko málið var að ég var á audi-inum síðasta þriðjudag því að Gummi var heima með Kristínu sem var aðeins slöpp eftir tannlækna"aðgerðina" á mánudeginum. Þegar ég er búin að ná bílnum út úr bílskúrnum set ég fjarstýringuna á milli sætanna í lítið hólf. Það opnast með því að maður ýtir á það og þá fer lokið ofan í pínulitla rauf. Nema hvað að einhvern veginn fór fjarstýringin með lokinu ofan í raufina og var þar föst og ekki nokkur leið að ná henni með einhverri lítillri fyrirhöfn. Ég reyndi alls konar trix en ekkert gekk. Svo að það var ekki hægt að opna bílskúrinn. En klári kallinn minn var nú með svona varaopnara. Nema hvað að hann virkaði heldur ekki svo að plan B var farið út um gluggann. Þannig að á endanum var farið með blessaðan bílinn niður í Heklu á laugardaginn og hann tekinn í sundur ( ekkert smá mál ) af 2ur bifvélavirkjum sem voru tæpa 2 tíma að klára verkið. Og ná í fjarstýringuna. Svo að voila, málinu var reddað...og það besta var að við þurftum ekkert að borga fyrir greiðann, Knútur forstjóri ætlaði eitthvað að melda þetta á milli hans og bifvélavirkjanna. Svo að lokum komst ég í jólaskrautið og ekki seinna að vænna, alveg orðin einum degi of sein að byrja að skreyta !!
Svo á sunnudeginum fór Gummi til Bretlands í vinnuferð. Og hann var ekki fyrr farinn úr húsi en ég var byrjuð að baka. Og gerði sko 3 sortir + sörur ( í fyrsta skipti og ómægod, ég er djínjus ) Hann kemur ekki heim fyrr en á fimmtudagskvöld svo ég ætla að nýta tímann vel þangað til, skreyta húsið eins og ég eigi lífið að leysa því ég sagði við hann að það myndi lýsa upp allan Mosfellsbæ ;)
Svo er framundan jólahlaðborð ( á reyndar eftir að skrá okkur en býst 90% við að mæta ). Og svo 2falt barnaafmæli á sunnudaginn fyrir nánustu vini og ættingja. Og svo bekkjarafmæli..og svo og svo verða bara næstum því komin jól. Og mér finnst ég nýbúin að taka niður skrautið :s

well, farin að föndra aðeins...bara pínupons ;)

julen, julen, julen kommer snart...

c",)

Engin ummæli: