Það hefur aðeins verið skotið á mig síðustu daga að það er orðið eitthvað langt síðan síðast. Je je...hvað á maður að segja ? Ég veit upp á mig sökina ef svo má segja en hef líka heilan helling af afsökunum. Af hverju ætti ég að nenna að blogga þegar ég er á haus í vinnunni og kem heim, sinni börnum og búi og er svo bara búin á því fyrir framan imbann ? Það er nú öðruvísi í kvöld því nú er kallinn á Akureyri í kúnnaboði og auddað eru allir sofnaðir hér enda klukkan orðin 12. Ég var að enda við að horfa á desperate housewifes í labbanum og öskra, hlægja og skemmta mér konunglega.
Pirripú, hér er sko eitt sem hefur verið að pirra mig óendanlega síðustu daga. Hafið þið ekki heyrt auglýsingu í útvarpinu um einhverja aula sem þykjast ætla að bjóða einhverjum skutlum út að borða = tríta þær og þá kemur einhver hálfvitinn og segir að besta trítið sé að fá á Taco Bell ? þar sem þú getur sko trítað kjellingarnar ( trítið er notað fulloft í þessari auglýsingu svona til að toppa pirripúið ) og borgað svo með klinki. Og svalað þorstanum með mountain dew. Síðan hvenær er það trít í nokkurs manns augum að fara út að borða á stað þar sem áferðin á matnum er svo slepjuleg og engin þörf á að tyggja hann, bragðast eins og mogginn með salsasósu og svo alveg geðveikt að borga með tíköllum ?? Hvaða konu finnst það spennandi trít ? Not me, for sure...kannski er ég bara einhver snobbkjelling en þetta kalla ég ekki trít ! og hana nú.
Hvað annað hefur verið að pirra mig undanfarið ? Hehehe...auddað. Nú man ég. Kosningarnar. Ég hef sjaldan upplifað aðra eins kosninganótt. Þegar ég fór að sofa um 3 um nóttina þá var stjórnin að falla eða halda á víxl allt eftir því hvernig nýjustu tölur féllu. Hún var sem sagt fallin þegar ég hallaði mér á koddann. Ég var alsæl, hélt að ég myndi nú fara að upplifa aðra tíma en undanfarin ár en nei, nei. Þegar loksins var búið að telja síðustu atkvæði frá einhverjum afdalabæjum á Vestfjörðum þá kom í ljós að stjórnin var með nauman meirihluta. Hvað í andskotanum er að fólki ? Hvaðan koma þessi atkvæði sem falla í skaut framsóknarmanna ? Ég hélt að það væru bara um 400 flokksbundnir og þá væri verið að tala um 4 bændur og rollurnar þeirra ? En nei, nei. Einhvers staðar frá þá koma þessir plebbar skríðandi undan steinum og mæta á kjörstaði. Og enn eru í gangi stjórnarmyndunarviðræður milli sjálfstæðismanna og framsóknarmanna. Ekki misskilja mig, ég er ekki og verð aldrei stuðningsmaður sjálfstæðismanna. Og ég er líka raunsæ, það var ekki séns að fella stjórnina nema þá að framsókn fengi ekki nógu mörg atkvæði. En viti menn. Svona fór um sjóferð þá. Við vitum væntanlega á næstu dögum hvernig þetta allt fer en ég segi fyrir mína parta að ég hefði viljað sjá sjálfstæðismenn og samfylkinguna saman í stjórn. Mín skoðun...
Og annað pirripú. Eurovision. Eða Balkanvision eins og réttast væri að kalla það. Þriðja árið komust Íslendingar ekki upp úr forkeppninni. Og eins og keppnin lítur út þá komum við ekkert til með að gera það fyrr en fyrirkomulaginu verður á einhvern hátt breytt. Ég er búin að heyra nokkrar tillögur undanfarið og ein er sú að það verði haldnar 2 forkeppnir, fyrir austur og vestur Evrópu og 10 bestu lögin úr hvorri komi saman í aðalkeppninni. Allt gott og blessað, nema hvað að austrið yrði þá í fyrstu 10 sætunum og vestrið í neðstu 10 sætunum. Það virðist vera svo mikil spenna fyrir þessu þarna í fjarska svo að löndin virðast gera flest allt sem í þeirra valdi stendur til að koma sínu lagi og nágrannana ( sem þeir eru búnir að berjast við í blóðugum stríðum undanfarna áratugi ) í úrslitin. Kannski er bara besta leiðin að taka ekkert þátt. Við erum alla veganna ekki að halda keppninni uppi eins og sumir sem senda inn flugfreyjur með trollís á sviðið. Nefni ekkert land sko...
Reyndar væri soldið skrýtið að taka ekki þátt í þessum rússíbana. Þetta er nefnilega orðið tilvalið partýkvöld hvernig svo sem keppnin endar...
Úff, nú sé ég hvað ég er eitthvað pirruð...
þangað til næst
c",)
fimmtudagur, maí 17, 2007
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)