hún Kristín. Ég sótti hana eins og venjulega á leikskólann rétt rúmlega 4 í dag. Þar var mér tilkynnt að hún hefði grenjað svo sárt um daginn að hún var komin með ekkasog. Og af því að hún gat ekki andað vegna ekkans þá grét hún meira. Þvílíkur vítahringur. Og ástæðan ? Af því að Sunna gleymdi að teikna augnhár á myndina af henni. Það þarf sem sagt ekki meira til að særa hégóma hennar. Við erum alltaf að sjá það meir og meir að sá kk sem að nælir í hana þegar hún verður eldri verður að vinna 3 vinnur og bera út blöðin til að mæta kröfum hennar. Við erum nú ekki að láta allt eftir henni og þess mun minna þegar dramað lætur á sér kræla. En sú kann þetta sko...
Enn ein ljúf helgin er að baki. Við fórum í útskrift til Heiðu frænku hans Gumma á laugardaginn og sátum þar drykklanga stund þar til ég var örugglega búin með heila freyðivínsflösku. Og snitturnar...algjört nammi namm. Svo fórum við bara heim og ég eyddi svo kvöldinu fyrir framan imbann en Gummi skellti sér til Snorra með Óskari og skreið heim um 7 leitið á sunnudagsmorgni. Það rann nú ekki af honum fyrr en seinni partinn í gær, alltaf svo gaman hjá þeim strákunum þegar þeir hittast.
Svo er bara enn ein vinnuvikar byrjuð. Hún verður reyndar kannski eitthvað undarleg hjá mér því að ég er föst í bakinu ( enn einu sinni ) og efast um að ég geti setið fyrir framan smásjánna allan daginn á morgun eins og planið er. Kannski er betra að ég verði bara heima og kæli á mér helv hrygginn. Hlýði hnykkjaranum mínum. Ég á nú líka inneign í nuddi hérna í mosó, væri ekki vitlaust að ég skellti mér á morgun og léti losa aðeins um hryggjarliðinn.
Jæja, er farin að kæla mig aðeins...get víst ekki tekið fleiri verkjatöflur í kvöld, búin með skammtinn.
cya
c",)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli