Eníveis, er annars búin að vera hrikalega dugleg undanfarið svona síðustu dagana fyrir FRÍIÐ mitt og svoleiðis reiti af mér niðurstöðum. Það er alltaf gott að fara í FRÍ( var ég búin að segja að ég er að fara í FRÍ ?? ) með lítið á bakinu og bara ný verkefni þegar maður snýr tilbaka. Og mér sýnist að þau verði all mörg.
Ætli kvöldinu verði ekki eytt í að pakka og fara yfir helstu nauðsynjar sem að við tökum með okkur í FRÍIÐ. Best að caps locka þetta orð svo ég sjái hversu oft ég hripa það niður...
Á ég að sýna ykkur áfangastaðinn ?

Trúið því bara, þetta er útsýnið frá einkasundlauginni við húsið sem ég er að fara í með fjölskyldunni. Við erum bara búin að vera að telja dagana niður í allan vetur og nú er þetta bara að skella á. Jibbí já. Kristínu leist nú ekkert á þetta í byrjun talningar, hefur aldrei farið í flugvél og segist vera svo lofthrædd að hún vilji bara alls ekki fara í flugvél. En nú er öldin önnur, hún með mjög svo ákveðnar skoðanir á því hvað eigi að fara með í töskunum og mér sýnist að það fari heil taska undir hafurtaskið hennar, bíkíníin og dótið. Það kemur allt í ljós þegar ég verð búin að pakka niður fyrir FRÍIÐ. Hin eldri eru nú rólegri yfir þessu, Þórunn Anna kannski æstari en Þorvarður kallinn. Ég held að það sé fátt sem að raskar ró hans. Reyndar er hann búinn að panta að fá að fara í einhvern hrikalegan skemmtigarð á afmælisdaginn sinn og ég býst nú ekki við öðru en að við látum það eftir honum. Ójá, ótrúlegt en satt...frumburðurinn að verða 15 ára eftir nokkra daga. Ji, hvað þetta er fljótt að líða :s
Jæja, best að fara að koma sér heim á leið og pakka niður í töskurnar fyrir FRÍIÐ !!!
þangað til næst, hafið það gott. Ég veit að ég kem til með að hafa það mjög gott í FRÍINU
c",)