laugardagur, desember 22, 2007

2. dagur

í jólafríi. Erum bara að dúllast heima við og býsnast yfir pökkunum sem við eigum eftir að keyra út, sem eiga eftir að verða sóttir og þeir sem eru nú þegar komnir til okkar. Og já á meðan ég man, takk fyrir öll jólakortin. Alltaf gaman að fá smá fréttir af vinum og vandamönnum.

Annars er bara allt gott að frétta. Jólasveinninn er að komast aftur í náðina eftir smá flopp í vikunni sem leið. Kristín varð 7 ára á mánudeginum og fékk mandarínu og lyklakippu í skóinn. Mandarína var nú sett pent í ávaxtakörfuna og dæst yfir lyklakippunni " ég á enga lykla ". Næsta dag fékk hún bangsa með nammi í belgnum, voða fínt en Kristín kommenteraði og sagði að hún hefði nú séð þennan bangsa í Krónunni nokkrum sinnum. Næsta dag fékk hún svo pez, svona prinsessu og þá dæsti hún enn einu sinni og sagði að hún væri nú orðin svolítið þreytt á þessum prinsessum. Síðan að jólasveinninn náði að floppa svona svakalega 3ar í röð hefur hún verið nokkuð sátt, blessunin. Og þeir eiga bara eftir að koma tvisvar í viðbót ( guði sé lof !!! ).

c",)