páska...
Hér sit ég með labbann í kjöltunni og ligg á meltunni, eftir vel heppnaða máltíð þar sem við borðuðum öll yfir okkur. Páskaeggið sem við hjónakornin eigum uppi í skáp fær væntanlega að vera þar í friði í kvöld, ekki bætandi á vömbina. Alveg spurning að mæta í ræktina í fyrramálið, svona samviskunnar vegna.
Annars er páskafríið hingað til búið að vera ljúft, ég og Sigga skruppum til Kollu á Selfoss á föstudaginn síðasta og ætluðum að skreppa á hestbak. En veðrið var bara viðbjóðslegt svo við sátum bara og spjölluðum og hlógum þess meira. Sérstaklega að skírn minni. Skrýtið, ekki satt ? hehehehe
Svo sentumst við um bæinn í gær og reyndum að finna hamborgarhrygg frá Hagkaupum. Og það tókst í 3ju búðinni sem við fórum í. Guð, nú er Gummi að teygja sig í ísinn, ótrúlegt að hann ætli að bæta því á sig. Jæja, verði honum að góðu. Ég held bara áfram að sötra rauðvínið sem ég er með í glasinu.
Svo er það bara imbinn í kveld sem ræður för. 4 brúðkaup og jarðarför byrjuð ( yndisleg ), Bridget Jones á eftir og svo lokaþátturinn af Rome. Gott plan, sötra rauðvín og horfa á kellingamyndir ( að mestu ).
Þorvarður er að horfa á eitthvað í imbanum inni hjá sér og hlær eins og vitleysingur. Hann borðaði svo mikið áðan að ég hélt að hann myndi vera sofnaður núna...ótrúlegt úthald hjá honum.
Hafið það gott í kvöld, gæskurnar allar saman, farin að einbeita mér að brúðkaupi nr.2 ;)
c",)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Hæ heyrðu.. ég er eiginlega hætt með blogspot aftur sko.. Er komin alveg endanlega á blog.central.is, hitt var eitthvað bilað í tölvunni.. Thought you wanted to know.. En allavega.. Hérna ég var að pæla, er í lagi að taka með sér 1 gest í ferminguna? Þá fáið þið kannski loksins að hitta þennan Danna, þori samt varla að kynna hann fyrir ykkur;) En einhverntímann er allt fyrst!;P
Kv.. Margrét..:)
Skrifa ummæli