sunnudagur, desember 18, 2005

6 dagar...

svo það er orðið ansi stutt í blessuð jólin.

Ég er búin að vera að borða alla vikuna meira og minna. Lifi á gulrótum og gúrkusneiðum fram að jólum, svei mér þá. Við fórum á jólahlaðborð Argentínu á þriðjudaginn í tilefni þess að Dista varð sextug þann daginn. Við fórum 6 saman, ég og Gummi, pabbi og Dista og svo Gilla og Stefán og auðvitað byrjuðum við á að fá okkur smá cosmopolitan ( bestar á Argentínu ). Þetta var auðvitað ótrúlegt kvöld, þvílíkar veitingar. Ég gat varla fengið mér af aðalréttum því að forréttirnir voru algjört nammi. Og auðvitað þurfti ég að hafa pláss fyrir hina umtöluðu 4ra hæða súkkulaðitertu Argentínu. Sem ég og gerði og kláraði mig algjörlega. Yndislegt kvöld í alla staði.

Við vorum á föstudaginn niðri í vinnu á jólahlaðborði um kvöldið og enduðum á því að fá okkur aðeins meira af fljótandi veitingum en þeim sem voru formfastari. Það var alltaf svo lööööööööööng biðröð í réttina svo hentugast var að teygja sig í rauðvínsglas eða öllara. Þetta var ótrúlega flott niður frá, hef aldrei séð matsalinn okkar svona flottan. Við héngum mikið með Fanneyju (vinnufélaga ) og vinkonu hennar henni Betu Rokk. Þær eru alveg ótrúlegar saman, nokkrum sinnum tókst þeim að láta strákana roðna aðeins og sögurnar sem fengu að fjúka þetta kvöldið eru alls ekki prenthæfar hér. Þegar okkur var svo mokað út þá keyrði Ómar hennar Kollu okkur á Óliver í troðninginn þar. Ég skil ekki enn hvað er svona kewl við þennan stað, það er meiri troðningur þarna en inni á Thorvaldsen og þetta eru sko ekki meðmæli. En við þraukuðum þarna, fengum okkur skelfilegan cosmopolitan sem var ekki drykkjarhæfur. Þegar ég var orðin alveg megahress fannst Gumma skynsamlegt að koma mér heim enda var hér þrefalt barnaafmæli í gær, þar sem að Kristín Fríða sætabolla varð 5 ára í gær. Og frænka hennar hún Védís varð líka 12 ára í gær. Svo átti Þórunn líka að fá veislu en hún var í óvissuferð með vinkonu sinni í gær sem varð líka 12 ára. Naumast hvað þessi dagur er vinsæll. Þannig að mér tókst nú að halda veislu með stæl, hrikalega mygluð og vansæl. Með Argentínu súkkulaðiköku á borðinu ( sem að ég ætla með í vinnuna á morgun og gefa öllum í húsinu ). Það var nú skotið á mig að ég ætti að gera eina svona og senda svo til Afríku því að hún gæti brauðfætt heila þjóð þarna suður frá !!

Og svo á meðan ég man þá fékk hópurinn minn víst fyrstu verðlaun fyrir skreytingar í deildinni í ár. Dómnefndinni leist svo asskoti vel á þetta hjá okkur og ekki síst múturnar sem þau fengu. Sko, þemað hjá okkur var Bónusjól. Við útbjuggum fjárhúsið frá því í den nema hvað að Jón Ásgeir var jesúbarnið, Jóhannes í Bónus var Jósef og Jónína Ben var María mey. Alls ekki taka þetta alvarlega, þetta er bara svarti húmorinn í hópnum. Eníveis, svo í kringum skötuhjúin þá settum við ýmsa fjandmenn Baugsfeðga. Dabba Kóng, Sullenberger og fleiri góða menn. Við endursögðum jólaguðspjallið ( Bónusguðspjallið ) og útbjuggum mútur. 300 millur í umslagi þar sem stóð ; " 300 milljónir í mútur til dómnefndar- af því að Davíð vildi þær ekki !! " Og þetta fannst dómnefndinni algjört æði. Svo að við fengum brauðveislu frá Jóa Fel ( aftur...unnum keppnina líka í fyrra ). Svo það er spurning hvort að við fáum að fara í blautbolakeppni með honum í staðinn fyrir hvítlauksbrauðið þetta árið.

Jæja, sætabollan mín vill víst fá kúrið sitt og smá lesningu áður en að hún fer að sofa- bíða eftir því að hurðaskellir skelli hjá henni hurðinni.

c",)