Bara yndislegt. Vöknuð fyrir kl. 10 sem er auðvitað ekki alveg í læ :s en Þórunn þurfti að fara á hestanámskeið með nágrannastelpunum svo ég þurfti að koma henni aðeins af stað. Vaknaði reyndar fyrir 8 í morgun því mazdan mín fór í sprautun í morgun. Verður vonandi orðin skínandi fín á miðvikudaginn og ómægod hvað ég verð fegin að losna af þessum bílaleigubíl sem ég fékk á meðan. Hann angar eins og öskubakki og svo skítugur að ég hafði varla lyst á því að snerta stýrið í morgun. Og mazdan mín nýþrifin og lítur svo vel út...stórt stökk að fara á svona dr.... !!!
Annars bara ljúft að vera í fríi. Kíki á vinnupóstinn minn af og til og blammerast aðeins, bara smá. Við erum sko búin að afreka margt í sumarfríinu þó það séu ekki margir dagar búnir af því. Ég er búin að taka til í geymslunni, mála alla gluggana hérna heima við að utan og svo þrífa fína bílinn minn hátt og lágt. Svo erum við nú líka búin að fara í útilegu. Sem varð reyndar styttri en hún átti að vera vegna veðurs. Á fimmtudaginn síðasta skelltum við okkur í Skaftafell, sem alltaf er svo ljúft að heimsækja. Veðrið var fínt, var þó betra í bænum. En það skipti ekki öllu því að nágrannarnir biðu okkar á staðnum. Við skelltum upp tjöldunum með krökkunum og komum okkur fyrir í fellihýsinu hjá grönnunum. Svo var sest niður og nokkrum öllurum var slátrað ásamt einhverju öðru. Veðrið var ennþá fínt á þessum tíma og við sáum meira að segja Hvannadalshnjúkinn í allri sinni dýrð og á einum tímapunkti var tekið af mér loforð um að ég myndi skella mér þangað upp á næsta vori. Sjáum nú til með það ;) Eníveis, við fórum bara að sofa en svo um morguninn þegar við vöknuðum voru monsúnrigningarnar enn einu sinni teknar við. Rosaleg demba sem var bara yfir okkur og fullt af fólki búið að flýja staðinn. Ekki af því að við sungum neitt rosalega hátt þarna um nóttina... Svo við fórum bara í það að taka niður allt draslið í þessu yndislega veðri og voila, urðum rennandi blaut inn að beini. Svo vorum við í símasambandi við grannana á leiðinni í bæinn og ætluðum að planta okkur einhvers staðar þar sem væri þurrt og sæmilega hlýtt til að þurrka tjöld og mannskapinn. En það færi gafst ekki svo við enduðum í Hjallahlíðinni með allt klabbið. Ég fór í það að grilla pylsur ofan í mannskapinn og svo skriðum við bara í ból, örþreytt eftir barninginn.
Svo að helgin var bara róleg, við grilluðum saman aftur á laugardaginn, mér taldist til að það væru 12 manns í mat það kvöldið. Mjög vel heppnað og kjúllinn algjört lostæti. Ég ákvað að það væri komið gott bara um hálfellefu og skellti mér í bólið. Enda var ég ekkert smá hress í gær og byrjaði og kláraði að mála gluggana :) dugleg stelpa sko ;)
Jæja, er farin að horfa á ræmuna sem að Gummi náði í í gærkvöldi. Sofnaði yfir henni, ég ætti kannski að fara og láta athuga hvort ég sé komin með svefnsýki.
Hafið það gott í dag og vonandi lætur sólin sjá sig. Það er alla veganna ágætlega hlýtt á klakanum.
c",)
mánudagur, júlí 24, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli