miðvikudagur, júní 14, 2006

Ég og varamaðurinn...

sitjum hérna kvöld eftir kvöld og horfum á 7 leikinn á HM. Gummi vinnur langt frameftir öll kvöld núna svo að Sýn áskriftin er alveg að borga sig fyrir hann. Í staðinn sit ég hér með rauða ljóninu ( Óskar ) og horfi á hverja stórþjóðina á eftir annarri skíta á sig eða því sem næst. Þjóðverjarnir rétt mörðu Pólverjana 1-0, eitthvað sem að okkur fannst frekar ósanngjörn úrslit eftir gangi leiksins. En svona er þetta, ekki spurt að því. Svo að Þjóðverjarnir eru komnir áfram í 16 liða úrslit en Pólverjarnir að fara heim. Sagt er að Þjóðverji með "húmor" hafi staðið fyrir framleiðslu á T-shirt fyrir leikinn sem á stóð " árið 1939 tók það okkur 8 daga að sigra ykkur - árið 2006 kemur það til með að taka okkur 90 mínútur". Frekar ósmekklegt framlag svo ekki sé meira sagt !!

Jæja, annars bara lítið að frétta. Verð í fríi á morgun, jarðarför á Selfossi eftir hádegið og eiginlega brönsj hérna hjá mér fyrir hádegi þar sem safnað verður í sætaferðina austur. Svo horfum við Óskar væntanlega á 7 leikinn annað kvöld þar sem Svíþjóð og Paragvæ mætast. Eins gott fyrir Svíana að taka þetta á morgun annars fara þeir bara heim með skottið á milli lappanna. Eða taglið. Þeir eru enn með þessa hallærislegu klippingu sem var í tísku þarna í kringum 1990. Sítt að aftan...jakk edí jakk.

Well, farin að hita upp fiðrildið...hinn varamanninn minn þessa dagana...hehehehe

c",)

Engin ummæli: