föstudagur, febrúar 16, 2007

Nú get ég ekki orða bundist...

hér sit ég á föstudagskvöldi og eins og alltaf er ekkert í imbanum. Öllarinn úti á palli ósnertur og skilningarvitin þar af leiðandi eins góð og þau eiga að sér að vera. Og ég horfi á X- factor. Og ómægod, ég get bara ekki orða bundist. Eftir að keppendurnir eru búnir að gaula er rennt yfir performansinn á einu bretti og þá fattaði ég af hverju mér finnst þetta hræðilegt sjónvarpsefni. Því að þetta minnir á lélégt karíókí, ekkert annað. Og keppendurnir hljóma eins og þau séu á essinu. Kynnirinn hræðilegur, sorry...það pirrar mig bara svooooooooooo mikið að heyra þegar hún brosir einhverju hræðilegasta gervibrosi sem hefur sést í imbanum í háa herrans öld. Það í alvörunni heyrist þegar hún brosir, þá einhvern veginn smellur í munninum á henni. Og dómararnir, Palli og Einar eru fínir en Ellý er svo stíf og freðin og það kemur ekkert af viti upp úr henni. Hún bara stamar eitthvað út í loftið og það skilst annað hvert orð...á góðu kvöldi. Ó jibbí, nú er aftur verið að renna yfir performansinn á einu bretti og þetta hljómar ekkert betra í seinna skiptið. Eða það þriðja. Ég er að spá í að fara að hlusta á gufuna eða eitthvað...hlýtur að vera skárra.
Annars er bara ljúf helgi framundan. Gummi verður á "fundi" í Viðey allan daginn á morgun og þegar hann skilar sér aftur verður hann væntanlega mjög hress. Því eins og venjulega verða fljótandi veigar í boði. Og svo á sunnudaginn erum við boðin í 2 barnaafmæli, hjá Söru Ósk og Sindra Frey. Þannig að ég þarf lítið eða ekkert að elda á morgun og alls ekki á sunnudaginn. Sénsinn, verðum í boðum allan daginn ;)
Jæja annaðhvort er ég að fara að horfa á úrslitin í X-factor eða hella í mig öllaranum. Eða bara hvoru tveggja. Þá kannski er hægt að hlægja aðeins að karíókíinu...hehehe


c",)