get víst lítið annað sagt í dag. Er að drepast í bakinu, svaf ekkert í nótt og bryð verkjatöflur eins og m & m. Í nótt um 4 þegar ég var búin að velta mér um og vekja Gumma með reglulegu millibili þá bauð þessi elska mér aðeins sterkari töflur svo ég tók eina og fann hvernig ég dofnaði og gat ekki einu sinni sagt eitt, stakt orð.Útkoman varð sú að ég dottaði aðeins betur en ég hafði gert fyrr um nóttina en ætla að halda mig við hefðbundin verkjalyf í dag svo ég sé nú með smá rænu. Svona til að fyrirbyggja einhvern misskilning þá voru þessi aðeins sterkari verkjalyf parkódín forte...algjört eitur :s
Svo ég bara reyni að ganga um og sitja aðeins og frysti svo á mér hrygginn þegar ég er alveg að drepast. Yndislegt eða hittó. Vona bara að ég fái að sofa í nótt, er frekar mygluð og með eindæmum skapgóð...je læt ; )
jæja, farin að rölta aðeins um...
c",)
þriðjudagur, janúar 17, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Össs, ég fylltist eftirvæntingu að vita hvers konar dásemdarverkjalyf Gummi var að gefa þér þar til ég las neðar...parkodin forte hvað..það rétt svo slær á hausverk hjá mér:s Hlýt að vera algjört hross miðað við þessar lýsingar hjá þér! Votta þér samúð mína í þessum bakfestum og mæli með að Guðmundur fari ekki svona harkalega með þig á kvöldin;)
Kveðja,
rauðka.
Skrifa ummæli