föstudagur, desember 19, 2003

SÍÐASTI VINNUDAGUR ÁRSINS...

er loksins að renna sitt skeið á enda eftir nokkra klukkutíma. Þetta eitt er yndislegt og hvað þá það sem bíður mín, yndisleg jól með fjölskyldu og vinum .

Sigga skvísa er líklega sveitt og ofurþunn að versla jólagjafir þessa stundina í Amsterdam því hún kemur heim á morgun. Stefnan er góður grýlukanilkaffibolli sem fyrst, btw...þetta kaffi fær alveg topp tíu hjá mér fyrir að vera full máltíð, en samt algjört sparikaffi... Það verður alveg hreint ólýsanlega yndislegt að fá skvísuna á skerið, ég get varla beðið eftir að fá að sjá framan í hana og knúsa doldið.

Er eiginlega búin að versla flestar jólagjafir en spurning hvort að það verði aðeins bætt við. Það kom ein mjög svo stór jólagjöf á heimilið í gær því að minn kæri verslaði sér stóru jólagjöfina frá sér til sín í gær...Panasonic heimabíó...eða réttara sagt panic yfir hávaðanum heimabíó. Ég er nefnilega stelpukind...og ég held að flestar séu sammála mér í því að það er alveg hægt að horfa á altari heimilisins án þess að það hljómi eins og varnarliðsþyrlurnar séu að hafa sig á loft. En á hinn bóginn eru strákar alltaf strákar og dótið þeirra stækkar bara með aldrinum... :) ég þarf bara að fara í bæinn og bæta við mína gjöf...LOL hehehe og LOL

Krakkarnir eru alltaf að spyrja hvað þau séu að fá en þegar ég býðst til að segja þeim það allt saman eru þau fljót að láta sig hverfa. Þetta er allt í nösunum á þeim, vilja auðvitað ekkert vita fyrr en þetta er allt saman opnað. Kristín er ekki alveg að kveikja á perunni, enda er hún eðalblondína inn við beinið. Hún er alveg skíthrædd við alla jólasveina og jólaballið, sem verður haldið á eftir í Sælukoti, verður hrein hörmung fyrir hana...í fyrra fann ég bara hvernig barnið stífnaði upp í höndunum á mér og það var ekki um það að ræða að nálgast þennan stórskrýtna kall neitt frekar. Ég á eftir að skemmta mér konunglega um jólin að fylgjast með henni og viðbrögðum hennar við þessu öllu.

Á bara eftir að heimta nokkra litninga úr helju...eða kannski réttara sagt steindrepa frumur til að ná í litningana mína til að grandskoða í smásjánni eftir áramót...eftir mjög svo langan tíma...hehehe
-gefur lífi mínu lit núna í augnablikinu, þarf ekki mikið til að gleðja mig þessa dagana :)

Ljúfa lífið, þetta er svo að síga inn í blóðrásina að ég þarf ekki að koma á Kárastaði í rúmar 2 vikur...luvlí :)

Jæja, ætli það sé ekki best að fara að gera eitthvað af viti. Já, ég veit...er alltaf að segja þetta og er líka alltaf að reyna að gera eitthvað af viti. Bara misjafnt hver árangurinn er... ;)

Kveð í bili og við sjáumst hálf á næsta ári... ( þoli ekki þegar það er sagt að maður sjáist heill á næsta ári !?! hvað annað ætti eiginlega að gerast ?? sjáumst 3/4...hljómar enn betur )

Merry Christmas and Happy New Year!
Veselé Vianoce a stastný nový rok!
Glædelig Jul og godt nytår!
God Jul och Gott Nytt År!
Kellemes Karácsonyi ünnepeket és boldog új évet!
Fröhliche Weihnachten und ein glücklichen Neues Jahr!
Joyeux Noël et Bonne Année!
Feliz Navidad y Próspero Ano Nuevo!
Og auðvitað Gleðileg jól og njótið hátíðarinnar !!!




c",)


miðvikudagur, desember 17, 2003

Aðeins...

vika til jóla og styttist í jólafríið...loksins myndu sumir segja sem að hafa fylgst með mér telja niður frá því í sumar...eða því sem næst !!

Nú er Kristín loksins orðin 3 ára, mikill áfangi í hennar augum. Hún trúði því varla í morgun þegar ég sagði við hana að það væri kominn sautjándi desember, hún er búin að bíða svo lengi eftir honum. Við fórum svo með ís í leikskólann og þar verður skrallað í dag. Svo er jólaball hjá henni á föstudaginn með skemmtiatriðum og fleiru. Í fyrra stóð hún á sviðinu og dillaði sér bara en ég býst við að hún taki meira þátt þetta árið.

Þorvarður og Þórunn eru farin í jólafrí svona í huganum. Efast stórlega um að Þorvarður láti sjá sig á jólaballinu á föstudaginn, haldi sig frekar hjá pabba sínum. Þórunn er endanlega búin að fá sér jólafötin og ekkert smá ánægð með þau... ekkert farið að bóla á einhverjum pakkaspenningi en hann kemur, tekur venjulega aðeins svona um korter að opna pakkana heima hjá mér...þau eru svo dugleg !!

Well, best að fara að slútta deginum

c",)

mánudagur, desember 15, 2003

JIbbí JeI

aðeins 4 vinnudagar eftir af árinu...hljómar himneskt í mínum eyrum- og lítið annað um það að segja...

Annars er nú búin góð helgi. Vann aðeins frameftir á föstudeginum og var svo dregin í Idol partý...þó að Idol hafi nú ekki spilað mikla rullu þar. Svo skelltum við okkur niður í bæ og fórum á tónleika með Todmobile og þvílík snilld...er með verki í hnakkanum eftir allt dillið.

Laugardagurinn fór í þynnkumat á eldsmiðjunni, þau eru farin að kannast við okkur þar. Svo fórum við aðeins í smáralindina og keyptum jólagjöf handa míns...frekar flotta *******sem að ég fæ ekki fyrr en á jólunum. Get varla beðið en er svo góð stelpa að ég þrauka þetta. Svo var ég bara sveitt og sæt í eldhúsinu um kveldið að baka fyrir afmælið sem að var svo haldið í gær. Það gekk bara vel fyrir sig og Kristín drukknaði í dóti...svona alveg eins og það á að vera á þessum aldri :) Þannig að í heildina var þetta ágæt helgi en ég get alveg fleygt mér undir sæng nákvæmlega núna og sofnað...

Well...best að halda heim á leið...

þangað til næst, hagið ykkur vel svo þið fáið í skóinn... LOL

c",)

föstudagur, desember 12, 2003

Jæja...

þá er þessari vinnuviku lokið, loksins ;)
og þá eru aðeins 5 vinnudagar eftir á árinu, jibbí jei ;)

Minn kæri var að hringja og það á víst að útstáelsast í kveld... :S eins og ég er nú mikill bógur á föstudögum. En það verður fínt, gott að breyta til ;)

Svo verð ég sveitt og bíp...við bakstur á morgun því að ættingjar og vinir verða velkomnir á sunnudaginn að halda upp á öll afmæli sem við munum eftir og eiga sér stað í desember. Þannig að helgin verður svo sem undirlögð af því.

Well, býð bara góða helgi í bili og njótið hennar í ræmur ;) - það ætla ég alla veganna að gera !!

c",)

fimmtudagur, desember 11, 2003

OG NIÐURTALNINGIN HELDUR ÁFRAM...

aðeins 6 vinnudagar eftir af árinu, getur varla verið betra. Orðið ansi erfitt að komast fram úr á morgnana og þreytan að yfirkeyra allt. En þetta tekur enda...

Nú er komið að því að $)/%)/&$ jólasveinarnir fara að koma til byggða. Alveg hreint frábært að leggja þetta á mann :( Kristín hefur ekkert vit á þessu, gleymir almanakinu sínu dag eftir dag og fær það líklega í blandi í poka á aðfangadag án þess að fatta neitt. Hvað ætli hún segi þegar hún finnur eitthvað í skónum sínum í fyrramálið ?? Það verður fyndið að fylgjast með viðbrögðunum. En líka erfitt að fara að útskýra að það séu einhverjir skrýtnir kallar sem að stinga þessu þar ofan í. Þorvarður og Þórunn Anna voru svo vinsamleg að minna mig á þetta í morgun...þó að þau viti sko alveg hvernig þetta gengur fyrir sig. Þannig að ég sit í súpunni enn eitt árið. Þetta endar venjulega með því að þau eru að fá mandarínur og kókómjólk á víxl...hehehe...er svo hugmyndarík þegar að þessu kemur... eða hittó ;)

Well...best að fara að koma sér að ná í Stínu fínu... ;)

c",)

þriðjudagur, desember 09, 2003

OG AÐEINS 8 VINNUDAGAR EFTIR AF ÞESSU ÁRI...

nú er það allt í einu farið að telja miklu frekar en dagarnir til jóla...hmmmmmmm af hverju ætli það sé ?? :) Reyndar eru bara rétt rúmar 2 vikur til jóla svo að þetta er að skella á...jibbí jei ;)

Annars er lífið bara búið að vera ljúft síðan síðast. Ragnheiður kíkti til mín á föstudagskvöldið og við horfðum á Idol saman og skröfuðum yfir þessu öllu saman. Svo var ég orðin svo þreytt á endanum að ég var farin að dotta í sófanum ( bara svona eins og venjulega ). Ég er alveg búin að sjá það að ég er ómöguleg á föstudögum, á bara að halda mig heima við og gera sem minnst...

Annars hafði ég það svo notalegt um helgina með mínum kæra, vorum barnlaus frá því um hádegi á laugardeginum og vissum hreinlega ekkert hvað við áttum af okkur að gera. En auðvitað tókst okkur svo að eyða deginum í eiginlega ekkert sérstakt. Ég skrapp svo aðeins í Njarðvík um kveldið á meðan minn kæri leit aðeins út fyrir hússsins dyr á vegum vinnunnar. Svo tókum við því bara rólega á sunnudaginn og skelltum okkur á jólatónleika um kvöldið í Hallgrímskirkju. Það var mjög svo hátíðlegt og svolítið sérstakt því að það vantar allan snjóinn hérna og þar af leiðandi eru jólaljósin eitthvað svo ankannaleg þessa dagana. En það hlýtur að rætast úr þessu.

Svo er það bara vinna og endalaus vinna, lítið staldrað við...

Best að fara að koma sér heim í rólegheitin...

c",)

fimmtudagur, desember 04, 2003

EHEMM....

orðið doldið langt síðan bloggað var síðast...

En það er bara búið að vera svo brjálað að gera, ekkert annað. Ég er farin að ganga undir starfsheitinu multitasker því að það er víst orðið eitthvað erfitt að skilgreina allt það sem að míns getur gert. Svo að þetta varð niðurstaðan og ég er svo sem sátt...þetta jaðrar svona við að vera alltímúlímann ;)

Og svo eru bara 20 dagar til jóla og einungis 11 og hálfur vinnudagur fram að jólafríi. God, hvað það er orðið stutt í þetta :) jibbí jei... ( og Kristín hefði nú sett aftan við þetta... " það er kominn sautjándi júní... )

Fór á jólahlaðborð í Perluna síðasta föstudag og er eiginlega ennþá södd. Þvílíkt samansafn af góðum mat, hef aldrei fyrr né síðar upplifað annað eins. Maki minn þetta kvöld var hin fagra Ragnheiður og við skemmtum okkur konunglega. Það klikkaði alveg happdrættið, þ.e. ég var búin að biðja um að ein ostakarfan yrði merkt mér en því var víst ekki komið við...en minn dagur mun koma seinna meir :)
Eftir átið fórum við svo niður í bæ og hittum minn kæra og samstarfsmenn hans og það var svo bara haldið áfram að þjóra...enda eins gott því að það er ekkert hægt að fara á Sálina öðruvísi ( nú verð ég skotmark sálarmanna...en so what ) Skriðum svo heim undir morgun eftir skemmtilegt kveld

Svo var auðvitað þynnkumatur ala KFC sneyddur á laugardaginn, reynt að ná í smá orku... áður en áfram var haldið. Sunnudagurinn fór svo í að undirbúa 10 ára afmæli Þórunnar dóttur minnar.... jæks, nú á ég 2 börn sem eru orðin 10 ára eða eldri...ekki eldri en ég er ( LOL )

Svo er bara vinna, vinna og endalaust verið að vinna...en talningin niður að jólum er alveg að gera þetta fyrir mig, gæti ekki þraukað þetta öðruvísi..

well, skeiðklukkan æpir á mig núna...verð að rjúka ( smá tröppuleikfimi í dag )

þangað til næst...njótið jólalyktarinnar :)

c",)

fimmtudagur, nóvember 27, 2003

OG BARA 27 DAGAR TIL JÓLA...

og einungis 17 vinnudagar, jibbí jei...

miðvikudagur, nóvember 26, 2003

YAWN...

langar bara heim að sofa...

er eitthvað svo ógeðslega þreytt í dag og ég skil ekki af hverju. Reyndar sofnaði Kristín ekki fyrr en um hálfeitt í gærkvöldi svo að ég fékk enga svona mí pásu í gær...gæti verið ástæðan. Í staðinn sat hún á miðju stofugólfinu, dillaði sér við Scooter í sjónvarpinu !!! og gargaði ef á hana var yrt. Við komum nefnilega aðeins við í Smáralind eftir vinnu og hún náði sér í smá kríu á leiðinni heim...NEVER AGAIN, þ.e. að fara eitthvað svona eftir vinnu með þessa flís...
Er búin að drekka 2 bolla af svo sterku tei að ég ætti í raun að liggja inni á hjartadeild lansans...en allt kemur fyrir ekki, get engan veginn rifið mig upp úr þessu. Snemma að sofa í kvöld...ahamms, sé það alveg ganga eftir...

Fékk líka þær ömurlegu fréttir í gær að Boggi bró kemur ekki til landsins um jólin, ég hlakkaði svo til að sjá hann. En þá fær hann engan til að vera með blessuðu tíkina ( ekki alveg það sem mig langaði að segja en það er víst ljótt að blóta ). Svo að þetta eru eiginlega önnur jólin sem að hún kemur í veg fyrir að hann komi á klakann. Í fyrra var það eitthvað í sambandi við að hún var gervihvolpafull og átti svo erfitt að það var ekki hægt að skilja hana eftir. Hún er örugglega upprunnin frá Trölla, þ.e. þeim sem vildi engin jól...hehehe
þannig að við erum að spá í hvað við getum sent honum í jólagjöf. Mér datt í hug að senda honum Leoncie diskinn...en var skotin í kaf um leið. Skil ekki af hverju, það fæst ekki betri brandari út úr búð....sérstaklega ef að það fylgja textarnir með ;) Þannig að hann fær bara eitthvað gott, íslenskt nammi til að jóðla á yfir jólin. Ég veit að hann vill alls ekki fá ora baunir eða tópas, hann á fullar skúffur af þessum óþverra úti ( hans orð... ) og vill alls ekki meira. Verð að fara að leggja hausinn í bleyti, má alla veganna reyna sitt besta.

Í kvöld er svo skólaskemmtun hjá Þorvarði þar sem okkur foreldrum er boðið að koma og sjá afrakstur einhverrar þemavinnu. Bara svona til að ég geti örugglega ekki slappað af eftir vinnu...alveg hreint týpískt... En ég reyni að þrauka þetta, koma mér beint heim og ná aðeins að pústa á milli. Vill bara svo vel til að vegna þess hvað ég var alveg hreint rosalega hress í morgun að þá gleymdi ég bæði gemsanum og veskinu mínu heima...hvernig ég fer heim á alveg eftir að koma í ljós. Endilega að hafa lífið svolítið spennó ;)

Og akkúrat núna eru bara 28 dagar til jól ( 4 vikur...) og einungis 17 og hálfur vinnudagur eftir af þessu ári, hljómar miklu betur en að segja bara til jóla...því að það verður svo barasta ekkert unnið meir...jibbí jei. Eðlilegt ?? NEI...en svona er það víst að vera svona þreytt...yawn ;)

Well, best að fara að dúlla meira við smásjárglerin...þau þurfa svo á því að halda ;)

þangað til næst...

c",)

mánudagur, nóvember 24, 2003

Þá eru ekki nema 30 dagar til jóla...og einungis 19 og hálfur vinnudagur ;)

sem er náttúrulega mjög gott...

Helgin var yndisleg í alla staði. Fór í klippingu á laugardagsmorgun, klukkan tíu um morgun sem er ekkert annað en um miðja nótt svona um helgi. Svo að þegar ég mætti á staðinn fengum við okkur rótsterkt kaffi áður en Alli hófst handa við að gera mig að blondínu. Ég skaut á hann að ég yrði að hafa þetta sem afsökun, alltaf gott að geta sagt "hey, ég er blondína og veit þetta ekkert... " og brosa sínu blíðasta. Og hann klippti mig líka og ég er eiginlega komin með smá topp...god knows why... en er mjög sátt og ánægð með útkomuna. Fór svo í hringluna ( orðinn alltof tíður gestur þar inni...veit það alveg ) og fékk mér augnskugga með glimmer, svona fyrir föstudaginn. Gekk heim...á sko heima í Kópavoginum svo að ég kláraði hreyfinguna fyrir vikuna þarna á einum og hálfum klukkutíma ( tók soldinn tíma því að birgðarnar voru nokkrar ). Reyndar fór ég ekki beint heim heldur kíkti aðeins við í Vallargerðinu og fékk að sjá nýjasta fjölskyldumeðlim Ragnheiðar og co. Yndislegur scheffer hundur kominn í hópinn og hann er ekkert smá flottur. Verður orðinn stór og mikill strax um jólin og er algjör bolti núna, aðeins 9 vikna.

Fór svo út að borða um kvöldið...alveg hreint yndislegt. Ég og minn kæri fórum á Caruso og dekruðum við okkur í alla staði. Erum ennþá södd. Röltum svo aðeins yfir á Ölstofuna en stoppuðum stutt og vorum komin snemma heim. Dugleg sko... skelltum okkur svo út um hádegið í gær og fengum okkur meira að borða og ekki var það verra. Fórum á eldsmiðjuna og fengum okkur eina rótsterka. Skelltum okkur í smáralind og svona, bara slæpast og hafa það notalegt. Er alveg endurnærð eftir helgina...ljóma að innan sem utan ;)

Svo er bara enn ein vinnuvikan tekin við. Tókst reyndar að slasa mig aðeins í morgun og verð líklega mjög flott í kvöld þegar bólgan kemur almennilega fram í handarbakinu á hægri hönd. Svoleiðis lamdi henni í borðhorn á labbinu, ef að það eru ekki lærin þá taka handarbökin við ( sigh )...

well...best að skella sér í sloppinn og slást við litninga...

c",)

fimmtudagur, nóvember 20, 2003

Well...

God...hvað ég þoli það ekki þegar maður er búin að blogga svo fínt og svo þegar það fer frá manni er það allt í einu voðalega sniðugt að birta það á einhverju hottintottatungumáli með letri frá fornöld...en ég skal sko koma þessu frá mér...hehehe

Í dag eru aðeins 34 dagar til jóla og einungis 21 og hálfur vinnudagur....ekki annað hægt en að gleðjast yfir þessum tölum ;)

Einmitt þegar ég held að ég sé alveg voðalega vinsæl er nú raunin önnur. Hvað á maður að halda þegar maður opnar tölvuna sína á morgnana og manni er tilkynnt að allt sé í hers höndum, pósthólfið að springa og 3.233.256 skilaboð bíði manns ?? Svo hefst nú vinnan við að eyða tilkynningum um að ég sé orðinn milli í lottóinu í kongó, að ég sé nú alveg að verða skuldlaus og happy því að í einhverju bananalýðveldi bíði mín kreditkort með himinhárri innistæðu og herlegheitum....svo ekki sé minnst á tippastækkanir !!! Hef lítið við slíkt að gera nú sem endra nær... Ég elska hotmeilinn minn og veit að ég er sko alls ekki sú eina sem stend í þessum hreinsunum...og ég sem vildi bara vera vinsæl...hulk, hulk ;)

Í dag hef ég mission. Það er að fara í mjög svo vel og yfirdrifið skreyttu Hringluna og versla mér einhver voðalega flott föt fyrir jólahlaðborðið...ahammm, á alveg eftir að sjá það gerast !!! Er reyndar búin að ákveða að reyna við pils í þetta sinn því að kvartbuxur á þessum tíma árs er ekkert voðalega sniðugt ( það eru flest allar buxur kvartbuxur á mér... ). Það er hreinlega mission almost impossible að versla buxur á mig, kemur bara skemmtilega á óvart ef að það tekst. Ég ætla að hafa hana Ragnheiði með mér, þá finn ég örugglega eitthvað. Hún sér alltaf eitthvað sem að ég kem ekkert auga á og er mjög dugleg að benda mér á það. Alveg hreint yndislegt. Nema hvað að það er orðinn smá tendens hjá okkur að kaupa það sama...veit ekki hvað við eigum til dæmis margar eins buxur... svo að það er eins gott að við berum saman bækur okkar fyrir kvöldið í sambandi við klæðaburð því að við erum ekki systur eins og við erum oft spurðar að :S

Jæja, ætli ég fari ekki að reyna að gera eitthvað af viti ( ég fæ nú alveg toppeinkunn fyrir að reyna það sí og æ... )

þangað til næst...múahahahahah

c",)

miðvikudagur, nóvember 19, 2003

Í DAG ERU 35 DAGAR TIL JÓLA...

og aðeins 23 vinnudagar fram að jólafríi...

ætla að halda upp á það í allan dag ;)

farin á fund, jibbí jei ( skil ekki af hverju er verið að gera manni þetta svona snemma dags í miðri viku)
-eitthvað svona grúpphög ( ojjjjjjjjjjjjjjjjjjjj barasta )

c",)

þriðjudagur, nóvember 18, 2003

ÚFF...BARA 23 OG HÁLFUR VINNUDAGUR TIL JÓLA...

sem betur fer...

Er barasta búin að vera heima með veika stínu fínu ( sem vill endilega fá að heita Sara ?!?!?! ) hún afrekaði að fá bronkítis ofan í kvef, 40 stiga hita svo að ástandið var mjög svo lukkulegt. En þetta er allt að koma...

Þurfalingarnir mínir stækka og dafna og það styttist í klippiklipp, þ.e. kattarstoltið þeirra dvín eftir nokkrar vikur. Er alveg búin að sjá að það þýðir ekkert að setja pakka undir jólatré fyrr en 5 mínútum áður en þeir verða opnaðir því að þeir ráðast á þá og opna þá...ekkert sérstaklega gaman að vita hvað er í hverjum einasta pakka. Gæti líka pakkað hverjum og einum í plastpoka- ein hugmynd ;)

Þorvarður og Þórunn Anna eru búin að skrifa ansi langan og ýtarlegan gjafalista fyrir jólin. Ég er búin að versla inn nokkur atriði af honum án þess að spá í það svo að ég verð kannski í topp 5 um jólin...hehehe...
þeim er farið að langa til að baka og mála piparkökur svo að ætli ég láti ekki undan fljótlega þar sem allt í einu verður kominn desember...

Það er nebbla jólahlaðborð í vinnunni í lok nóvember og þá er eiginlega bara næsta helgi laus í eitthvað svona heilbrigt og lekkert. Ætla mér ekkert að vera neitt ofurhress hlaðborðshelgina heldur liggja fyrir og bara bööööööögh........gera alls ekki neitt ;) Ég og Ragnheiður erum að spá í að fá borð bara fyrir okkur 2, mingla ekki við mjög svo marga og bara skemmta okkur að hætti hússins...þetta verður bara gaman

well, best að hemja garnagaulið og halda svo baráttunni áfram :(


einn góður að lokum...

Af hverju er ekki búið að gera frímerki með Davíð Oddssyni ??
af því að sjálfstæðismenn geta ekki ákveðið sig hvorum megin á að sleikja !!!!

- einn sá besti sem ég hef heyrt í langan tíma ;)

fimmtudagur, nóvember 06, 2003

32 VINNUDAGAR TIL JÓLA...HEHEHEHE

og hana nú....

veit að ég er klikk en ég er búin að koma af mér pökkum til Svíþjóðar og er geðveikt stolt af því að vera búin að því. Sé fram á að eiga náðugri desember núna en nokkru sinni fyrr, laus við allt pakkavesen og vesen ;) Stefni á jólakortagerð heima við um helgina enda eru Þorvarður og Þórunn farin að bíða eftir því að byrja. Held svei mér þá að Þorvarður fari ekkert til pabba síns og verði bara heima hjá mömmu gömlu. Gott að vita til þess að maður sé nú einhvers virði í hausnum á þessum kjánum...þau eru nú svo yndisleg....svona stundum ;)

Á morgun er svo fjáröflunarmáltíð í Sælukoti...þar verður væntanlega boðið upp á kóngulær og ólívur og þá verður Kristín ánægð... Kóngulær eru held ég djúpsteiktar kartöfluræmur sem verða svo eins og kóngulær. Hún er búin að vera að gaula eitthvað lag undanfarið sem ég kannast ekkert við svo að þetta verður eitthvað kómískt á morgun. En eins gott að muna eftir myndavélinni og smella nokkrum af henni ;) Þetta verður bara gaman...

Well...verkin bíða, enn einu sinni

c",)



miðvikudagur, nóvember 05, 2003

33 VINNUDAGAR TIL JÓLA... ;)

...farin að sjá að ég get bloggað á miðvikudögum og föstudögum hvað helst, hef fullmikið að gera hina dagana :S
verð bara að sætta mig við það og gera vel þegar ég get ;)

hvað eru núna margir dagar til jóla ?? rétt svar er 50, sem þýðir að það eru bara 45 dagar í frí...jibbí jei ;) þetta er algjörlega að gera það fyrir mig, verð að fá á tilfinninguna að ég geti slappað af í nánustu framtíð.

hvað eru margir vinnudagar til jólafrís ??? rétt svar er... ( veit, ég er orðin tæp á geði !! ) 33 vinnudagar fram að jólum...god, hljómar ekkert smá vel ;)

annars gengur lífið í melgerðinu sinn vanagang, þurfalingarnir mínir eru alltaf að stækka og kúlurnar aftan á þeim orðnar frekar áberandi. Bráðum verður klippt og skorið...hehehe. Þeir eru farnir að átta sig á að það er til heimur þarna úti og sitja um útidyrahurðina við hvert tækifæri...þarf að fara með þá í bólusetningu og fleira gúdderí áður en ég sleppi þeim út í heiminn. Þeir fóru aðeins út á svalir í gær að sulla í snjónum og líkaði misvel, skildu ekkert í því af hverju þetta væri svona blautt og kalt... mícró brilleraði um helgina, vildi að ég hefði getað tekið mynd af þessu...

á laugardagsmorgni voru þeir aulabárðarnir að leika sér í baðkarinu ( orðinn svona standard að tékka alltaf á því svona af og til ). Ég var nýbúin á klósettinu og það var opið. Haldið þið ekki að mícró hafi hoppað upp úr baðkarinu...og auðvitað beint ofan í klósettið...þið hefðuð þurft að vera þarna. Auðvitað, eins og katta er siður, reyndi hann að láta eins og þetta hefði sko átt að gerast, part of the plan. En hann svoleiðis hristi sig allan og skelfdi. Ég var fljót að grípa hann og setja í sturtu... og hann var ekki par ánægður með það greyið. En þetta varð ég að gera alveg hreint öskrandi af hlátri.
Kettir....gefa lífinu lit !!

Loksins er skólinn byrjaður aftur og vetrarfríinu lokið. Kemst svona einhver regla á liðið. Þórunn var reyndar að fara á hestbak í morgun og Þorvarður á skauta ( ekki par hrifinn )... verður gaman að heyra hvernig þessi dagur gengur fyrir sig. Svo tekur svona alvöru alvaran við á morgun...puð og púl við að láta þessi grey læra...gaman gaman :S

well...skeiðklukkan mín er farin að pípa á mig illilega svo að ég verð líklega að halda puðinu áfram...

þangað til næst ( líklega á föstudag... ) hagið ykkur vel ;)

c",)

föstudagur, október 31, 2003

THANK GOD IT'S FRIDAY...

loksins er komin helgi aftur, svona nánast...verður svei mér þá yndislegt að sofa út á morgun...

annars bara brjálað að gera og þessi dagur verður líklega mjög fljótur að líða. Það er það besta við annríkið, tíminn flýgur frá manni svo að það er eins gott að klára það sem liggur fyrir...svo tekur bara við hið ljúfa líf og leti ;)

kíkti á ógó góða ræmu í gær, Anger management...hló mig máttlausa nokkrum sinnum. Gott að lyfta sér upp, þá sjaldan maður gerir það ( LOL ), át hnakk ( eins og það heitir á mínu heimili ) og gulrætur með ídýfu...heilsusamleg sko ( svona af og til ) og svo auðvitað rjómakúlur frá Nóa....mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm bara góðar ;)

Best að fara að byrja...vera dugleg í dag og launa mér það með einhverju góðu í kveld...
hafið það gott þangað til næst og njótið helgarinnar ;)

OG ÞAÐ ERU EINUNGIS 55 DAGAR TIL JÓLA Í DAG...JIBBÍ JEI ;) ( ætti í raun að telja líka niður í fríið mitt, hvernig væri það ?? ) Þá eru aðeins 50 dagar þangað til ég kemst í jólafrí...hljómar miklu betur ;)

c",)

p.s. einn góður í lokin...

Toppurinn á sjálfsjöryggi...mýfluga sem flýtur á bakinu niður Ölfusá með standpínu...öskrandi
"Opnið brúna...opnið helvítis brúna !!! "

miðvikudagur, október 29, 2003

57 dagar til jóla...

og allt of langt síðan síðast...skamm, skamm

Eins og þið getið svo sem giskað á er búið að vera brjálað að gera hjá mér, skeiðklukkudagar og þúsundir litninga á glerjum... ;) Lífið er yndislegt...hehehe

Je dúdda mía, hvað er nú búið að gerast síðan síðast ??

Fimmtudagur- vinna eins og mofo og fór í bíó um kvöldið, alltaf gaman ( fer svo sjaldan... ). Ég og minn kæri fórum á Kill Bill og annað eins blóðbað og háan blóðþrýsting hef ég aldrei fyrr né síðar orðið vitni að. En myndin er bara brill, ekkert annað og við erum enn að hlægja að henni...

Föstudagur- vinna eins og mofo ( ekkert nýtt svo sem... ) en lífið eftir vinnu var bara rólegt það kvöldið. Við stelpurnar vorum bara einar heima og höfðum það notalegt.Minn kæri kom svo seinna um kvöldið og við kúrðum oss bara...alltaf jafn gott ;)

Laugardagur- sukk og svínarí út um allan bæ...fæðulega séð. Bara notalegt, eins og helgar eiga að vera. Kvöldið var bara tjill með ískaldan corona við hönd...gerist varla betra...

Sunnudagur - vöfflur með sultu og rjóma, innivera...ógó veður úti ;)

Mánudagur- vinna eins og mofo...fór svo reyndar í föndurbúð eftir vinnu ( er ekkert viðbjargandi, geri mér fullkomlega grein fyrir því... ) og er alveg búin að hanna jólakortin í ár...ekkert smá stolt. Svo að við klárum þau fljótlega, tökum eitt kvöld í það ;)

Þriðjudagur- vinna eins og mofo ( what a clisje... ), hringdi í Harald og fékk að vita hvenær ég er að fara í jarðarför frænku minnar sem lést aðfaranótt laugardags...alltaf sorglegt en hún þjáist ekki meir...
Eldaði svo ógó góðan mat ( eins og venjulega ) og fór snemma í ból...

Loksins er ég komin á öpdeit....eftir að hafa hlaupið yfir síðustu viku. Dagurinn í dag lítur vel út, er að fara á fund og svo er bara tiltekt og smásjá eftir hádegi...ljúfur dagur að fara í hönd. Skítakuldi úti en það er samt notalegt að finna að það er að koma vetur...styttist í frí ( jibbíjei...og já, mér er ekkert viðbjargandi... og er stolt af því ;)

well, farin á fundinn, best að grípa með sér eitursterkt te svo ég sofni ekki...jawn

þangað til næst...
c",)

miðvikudagur, október 22, 2003

Stund milli stríða...

það er enn einu sinni brjálað að gera, svo sem ekkert nýtt. En ég verð nú að blogga, þó að það sé ekki nema bara pínupons...hehehe

Ég var alveg barnlaus á föstudagskvöldið, hef ekki upplifað slíkt í ansi langan tíma. Var eins og fífl, vissi ekkert hvað ég átti af mér að gera og endaði með að sitja heima og prjóna eins og gömul kerling allt kveldið...bara hægt að hlægja að þessu. En fyrir vikið eru nú 2 gjafir í viðbót komnar vel á skrið, þar af sængurgjöf. Það verður svolítið mikið um fjölganir í kringum mig um jólin og þar í kring svo það er um að gera að gera svona öðruvísi gjafir sem að ekki allir eiga...
Skrapp svo aðeins til Helgu Bjargar á laugardaginn ( sem er einmitt ólétt ) og hjálpaði henni aðeins áður en hún skilaði af sér síðustu íbúð og svo fékk ég auðvitað grandtúr um nýju íbúðina sem er í næsta húsi. Mjög sniðugt, ekkert vera að flytja einhverjar vegalengdir... ;)

Ég lifði af barnaafmælið, það var eiginlega bara mjög gaman og við skemmtum okkur konunglega. Átti í stökustu erfiðleikum að ná börnunum aftur heim. En það tókst og þau liðu út af mjög snemma á sunnudagskvöld. Erum að spá í að skella aftur í svona 2falt afmæli í desember en Kristín og Védís frænka eiga afmæli sama dag, þó að það sé smá aldursmunur. Það er allt í lagi, fólk hefur venjulega alveg nóg að gera í desember...eitthvað annað en að þræða barnaafmæli... ;) Þetta er bara sniðugt, ekkert annað... ;)


well, best að halda áfram að puða og púla...

þangað til næst, behave ;)

OG MUNIÐ AÐ ÞAÐ ERU AÐEINS 64 DAGAR TIL JÓLA...JIBBÍ JEI ;)

c",)

föstudagur, október 17, 2003

69 dagar til jóla....

og enn að telja niður ;)

er svo andlaus og mygluð, held að ég sé ekkert alveg búin að jafna mig fullkomlega á þessari flensu. En þá kemur sér náttla vel að það skuli vera föstudagur. Helgin verður ljúf og strembin svona á víxl. Ætli ég þurfi ekki að fara á morgun að versla kuldagallann ( loksins ) á Kristínu, hún fær bráðum ekkert að fara út í leikskólanum vegna vanbúnaðar ;) gengur náttla ekki... svo er 2falt barnaafmæli á sunnudaginn, Hjalti frændi og Sigurborg frænka eru í raun einu ári eldri í dag, þessar elskur. Sem betur fer er fjölskyldan ekkert rosalega stór svo að þetta verður yfirstíganlegt ;) fínt að klára þetta svona í einum pakka á einum degi. Stefnir ekkert í einhver læti, nema þá að Kristín verði í fullu fjöri. Það væri soldið típískt að hún myndi verða veik yfir helgina, en ætla sko ekkert að biðja um það...svona hennar vegna.

Best að halda áfram að þekja glerin mín fyrir smásjánna. Kemur hvort eð er ekkert af viti upp úr mér í dag ( svo sem ekker nýtt ;) )

góða helgi, gæskur og hagið ykkur vel...


c",)

fimmtudagur, október 16, 2003

INFLÚENSAN...

er mætt og búin að ganga frá mér líkamlega og næstum því andlega. Er núna fyrst að koma í vinnu í þessari vinnuviku því að við mæðgurnar höfum legið í kross og keng heima, hóstandi og með hitamæli í munni. Óska ekki mínum verstu óvinum þessari pest ( þeir eru nú svo sem ekki margir..hehehe ) , þetta er búið að vera mjög svo óþægilegt en núna blasa vonandi við betri tímar og betri heilsa. Ég hefði ekki átt að æpa svona um daginn að fá að vera heima hjá mér í veikindum, það er ekkert sérstaklega gaman að vera með börnin í kringum sig þegar maður vill einungis liggja undir feld og hugsa bara um sjálfan sig. Það gengur erfiðlega en reyndar þakka ég guði fyrir að finna upp vídeótækið í den...eða þá einhverjum asíubúanum ;) Það hefur aldeilis reddað mér í gegnum þennan lasleikann. Ekki svo sem mikil menning sem rann í gegnum tækið, aðallega teiknimyndir og núna síðast Lína langsokkur...frá því um 1970 með tilheyrandi tæknibrellum og óhljóðum. Dró sko sængina yfir höfuð þá ;)

Fattaði líka í þessum veikindum mínum að kannski eru bjútíkvinnur með flensu á meðan á keppnum stendur. Það er annaðhvort það eða að þær hlaða 3 tópösum á geirvörturnar á sér svona til að vera meira 6y. Alla veganna hef ég aldrei verið meira 6y en í þessum veikindum mínum því að ég var barasta með 5 tópasa í stað 3ja, geirvörturnar stóðu út í loftið í 3 sólarhringa og þetta lagaðist ekki einu sinni við að fara í mjög svo heita sturtu. Þannig að ég fékk þarna bjútítips. Ef þú vilt vera 6y á jamminu með geirvörtur nokk harðar = tópasgeirvörtur eða bara næla þér í næstu flensu...reyndar fylgir smá nefrennsli og stífla með í kaupbæti en so ??? allt fyrir bjútíið ;)

Og nú eru þá sem sagt 70 dagar til jóla ??!!! styttist óðfluga, ég er sko búin að gera eina jólagjöf í viðbót, handmade á leiðinni til svíaríkis fyrir jól...svona til að hlýja snúllunni minnni þar ;) svo að ég er byrjuð aðeins, játa það alveg. Fór einmitt aðeins í Garðheima í gær og fékk fullt af hugmyndum af jólakortum...Jólafan from heaven, ekkert annað ;)

Þurfalingarnir mínir eru ennþá sætastir. Keypti handa þeim nýja tegund af kattamat í gær og mícró ( bollan mín ) stóð í dallinum allan tímann á meðan ég eldaði ( 30 mínútur) og rúllaði svo bara fram í sófa svo sæll og ánægður. Nanó er eitthvað grennri, er farin að spá í hvort að mícró sé svona frekur að hleypa honum ekki að. En nanó fékk fylli sína í gær og lagðist hjá honum og þeir kúrðu út í eitt í allt gærkvöld. Nýjasta nýtt er að fara ofan í baðkar...svo rosalega margt að skoða þar. Ekki veit ég hvað þeir eru að sjá út úr lífinu en það að fá að kíkja inn í uppþvottavélina og horfa í baðkarið gjörsamlega meikar daginn fyrir þá...gott að vera svona lítill og vitlaus, ekki hægt að segja annað...

Jæja, skeiðklukkan æpir, same old...same old ;)

þangað til næst, hagið ykkur og farið vel með ykkur svo að þið fallið ekki í flensufans ;)

c",)



föstudagur, október 10, 2003

76 dagar til jóla...

var að kíkja aðeins á bloggið hjá freysaling í danaveldi og þetta er staðreynd...styttist óðfluga til jóla ;) og þá verður nú ljúft í mínu 16 daga fríi !!!!!!!!!!!! algjört bensín á orkulausan bílinn þessa dagana.

Styttist líka í helgina, ekkert planað og gerist ekki ljúfara. Verð reyndar eiginlega að fara að versla kuldagalla á Kristínu, þær neita að setja hana í gallann sem ég er með úti á leikskóla, er víst eitthvað lítill á hana. Þegar ég sótti hana í gær var hún í úlpu og flíspeysu að ofan en að neðan tóku við pollagallabuxur. Og það sem meira var...hún var búin að rífa þær á einhverju príli og þær héngu utan á henni. Við drifum okkur heim og kúrðum heil ósköp. Hún er ólæknandi kúrudýr, eins og mamma sín.

Verð líka að kíkja á gallabuxur eða alla veganna bæta mínar einu sönnu. Kom gat á einhvern undarlegan stað í fyrradag :( á mitt lærið að aftan ,veit ekkert hvernig það hefur gerst. Á kannski ekkert að vera að hjóla í þeim en come on...þetta eru nú gallabuxur ;) Á að brúka þær vel og lengi og mikið, óskráð lögmál...

Þurfalingarnir mínir eru alltaf jafn yndislegir. Nanó er held ég meira kúrudýr ( fellur vel í kramið ), leggst hjá mér á kvöldin og horfir á mig ástföngnum augum. Hann meira að segja svaf upp í rúmi í nótt...hlýjaði mér ;) Þeir eru algjört æði, ekkert annað. Hljóma örugglega eins og biluð plata...mér er alveg sama ;)

well...skeiðklukkan pípir, litningar bíða eftir að vera heimtir úr helju, svo ég verð að fara að bjarga þeim ;)

þangað til næst...

c",)

fimmtudagur, október 09, 2003

Og auðvitað...

varð ég ekkert veik. Veit ekki hver ræður þessu öllu saman en þetta er að verða ótrúlegt...Af hverju fæ ég aldrei að vera veik, undir sæng að láta stjana við mig ??? Ætti svo sem ekkert að vera að grátbiðja um veikindi, þá gerist eitthvað sem ég vildi ekkert endilega kalla yfir mig :S verð að hætta þessu....er bara fílhraust og þakka fyrir það

Í gær var stigaskeiðklukkudagurinn mikli. Elska soleiðis daga...eða þannig sko. Svo gaman að vera að vinna á öllum 3ur hæðum hússins, fæ bara flottari rass fyrir vikið, ekki satt ?? Í dag er svo bara skeiðklukkudagur, bara á einni hæð....algjör lúxus ;) skeiðklukkudagur ?? þá er ég að vinna eftir skema þar sem allt á að taka x tíma og ekki mínútu skemur eða lengur. Svaka fjör sko...hehehe er alltaf með skeiðklukkuna á mér, hlegið að mér því að ég get ekki án hennar verið...hún er alltaf með mér hvort sem ég er í kaffi eða mat. Erum best pals, ekkert annað.

Svo er loksins að koma helgi, síðasta nýbúin. Yndislegt, ekkert annað. Ekkert plan, bara tjill og notalegheit...elska svoleiðis helgar. Föndra kannski svo sem eina jólagjöf eða svo, hver veit...

Well...klukkan pípir, enn einu sinni

ciao hon's...

c",)

miðvikudagur, október 08, 2003

Í dag...

eru tásurnar mínar sáttar. Þær fengu nefnilega fótabað úr Dauðahafinu í gær og líkaði vel. Þetta var einmitt það sem þeim vantaði... Það var líka skellt einhverjum maska úr dauðahafinu í andlitið mitt svo að ég var þakin Dauðahafinu í gær...en lifi enn ;) þetta gekk bara vel, vel mætt og mjög skemmtilegt. Óvænta kakan féll vel í kramið hjá öllum...enda var hún mjög góð. Þorvarður fékk sér meira að segja í morgunmatinn því að hann gat ekki vakað eftir henni í gær.

Þurfalingarnir stálu nú aðeins senunni í gær en þeim virtist líka vel við athyglina sem beindist að þeim. Undu sér vel við að leika við töskur og svona, fengu stórmennskubrjálæði og héldu örugglega að þeir væru sko stærri en þeir eru að slást við bráð...Mícró þurfti svo að fá að kíkja aðeins inn í uppþvottavél og eftir það róaðist hann niður og leit á okkur syfjulegum augum áður en hann hneig niður algjörlega búinn með orkuna. Mér leið svo sem alveg eins þegar allir voru farnir og var ekki lengi að sofna með ánægðar tásur...

Mæli ekkert sérstaklega með því að fara út að hjóla snemma að morgni dags með hálfblautt hárið. Þurfti þess samt í morgun þar sem að það er frekar mikið að gera og fundur að slíta sundur daginn fyrir míns... :( En ég komst á leiðarenda en er eiginlega ennþá kalt og þá helst á afturendanum ;) langar mikið að skríða heim og undir sæng núna, kannski er ég bara að verða lasin...jibbí...því að það gerist aldrei. Á einhverjir við þetta að stríða þarna úti að verða aldrei almennilega veik ??? Ég er svo oft á mörkunum, get ekki réttlætt það fyrir mér að leggjast undir feld en er svo ekkert sérstaklega hress...

Best að skella í sig einum góðum bolla af grænu tei áður en haldið er áfram...puð og púl, eilíft puð og púl ;)

c",)

þriðjudagur, október 07, 2003

Þurfalingarnir...

eru stórskrýtnir. Vitið þið hvað er það nýjasta hjá þeim ?? Setjast inn í uppþvottavélina og virða fyrir sér veröldina þaðan...eða eitthvað !! Þarf að passa mig að kíkja alltaf núna og sjá hvort að þeir séu enn þar inni þegar ég loka annars kem ég til með að þvo þá óvart með diskunum... þeir eru nú alveg yndislegir, lágu ofan á mér í gærkvöldi og möluðu eins og 2 flugvélar, beið bara eftir að sjá þá takast á loft og svífa um stofuna í alsælu yfir kúrinu ;)

Kristín djammari heimtaði í miðri búð í gær að fá að hvísla að mér, þýddi ekkert fyrir mig að ætla að halda áfram. Og það sem kom upp úr henni í annarri tilraun ( þegar ég var búin að fjarlægja nudduna ) var að henni langar að fara á dýrin í hálsaskógi...algjör dúlla....ekkert annað. Læt það eftir henni, líklega í nóvember.

Svo skelltum við í eina óvænta köku sem verður borin fram í kveld eftir fótabað dauðans...hehehe... verð sem sagt með kynningu á aloe vera vörum frá Ísrael, ég og Gilla frænka lengdum líf okkar um nokkur ár þegar við fórum á svona kynningu fyrir ekki svo löngu síðan en vorum kannski í einhverju smá rugl stuði þá. Alla veganna er þarna boðið upp á fótabað sem er alveg hreint rosalega gott...fótabað dauðans er svo sem ekki réttnefni nema vörurnar eru frá Dauðahafinu og þetta hljómaði stundum soldið fyndið...góðar minningar en alveg fáranlegt svo sem að segja frá því á blaði ;) Alla veganna er kakan þess virði, svo ekki sé meira sagt. Hlakka mikið til...

Og já...ég sem hélt að ég gæti aldrei hugsað mér að vaxa á b..... svæðinu, hellti mér í það í gær og viti menn, ekki svo slæmt. Eiginlega það besta við það er að vera laus við þetta í nokkrar vikur, bið ekki um annað. Mér hefur aldrei fundist flott að vera loðna að suður evrópskum sið...bara mæ opinijon... ;)

Er farin að spá í jólafríið...er algjört kex en er líka stolt af því. Málið er nefnilega að ef að ég tek bara nokkra daga í frí næ ég 16 dögum í samfellt jólafrí. Himneskt í mínum augum, ekki farið úr náttfötum mest allan tímann og bara kúrt með fjölskyldumeðlimum...alveg eins og það á að vera ;) keypti mér meira að segja piparkökur í gær, bara til að fá smá bragð í munninn. Samt jafnast ekkert á við mömmupiparkökur...

Well, best að skella sér í smásjánna að skoða litningagreyin mín...long tæm nó sín ðem :)

c",)

mánudagur, október 06, 2003

Rauðvín er yndislegt...

er enn á þeirri skoðun eftir þessa helgi. Drakk þessar guðaveigar bæði á föstudag og laugardag og það er svo sem ágætt í bili. Auðvitað skiptir félagsskapurinn máli og hann var nú ekkert slor að þessu sinni. Taki þeir það til sín sem mega ;)

Kristín er verðandi djammskvísa. Fór með hana á búðarrölt á laugardaginn og hún fílar sig hvað best í þeim búðum þar sem ég þoli ekki við :S þar sem er mestur hávaðinn og mikil tónlist...þar gleymir hún sér alveg og dillar sér hvað mest hún getur, fólki til mikillar ánægju. Ég glotti út í annað, vön þessum dillisveiflum hennar...hún er svo fyndin þegar hún tekur sig til...

Annars bara ljúf helgi í alla staði...

mikið að gera, farin í sloppinn minn að heimta litninga..jibbí jei :S

þangað til næst...hafið það sem allra best ;)

c",)

föstudagur, október 03, 2003

LOKSINS...

er komin helgi, mér til mikillar gleði...planið ?? nákvæmlega ekkert !!! sem kemur þó varla til með að standast því að ég er víst að fá Ragnheiði í rubbakvöld ( rauðvín ) annað kveld svo að ég verð að sofa vel út á morgun og drekka vel og mikið af kaffi. Það er ekki það að Ragnheiður sé leiðinleg en ég þessi síþreytta tuttla sofna venjulega í sófanum þegar líða fer á kvöldið og finnst það ekki þægilegt. Hún kom til mín í gær, þessi elska...og tók úr mér saumana frá því að doksi píndi mig um daginn. Fékk einmitt niðurstöður og þetta var allt saman fullkomlega eðlilegt...þrátt fyrir stærð :S

Kannski að ég kíki í föndurbúð á eftir þar sem það er nákvæmlega ekkert á crap one ( stöð eitt ) í kveld og ég svo sem ekki í ýkja miklu imbastuði... alltaf gaman að kíkja og fá nokkrar hugmyndir, verð að nýta þetta föndurdót sem ég á heima, ekki satt ?? hélt það líka...hehehe

Jæja, nenni ekki meiru í bili, er algjörlega andlaus eftir 5 daga í hvítum slopp á fullu að vinna ;)
þannig að ég býð ykkur bara góða helgi og njótið hennar í ræmur, gott plan :)

c",)

fimmtudagur, október 02, 2003

dadaradada...
Well...míns er að komast í jólaskap...ekkert alvarlegt en langar svo að föndra eitthvað lítið eitt. Er með nokkrar hugmyndir sem að þurfa svo bara að komast áfram í puttana. Puttarnir eru nebbla ekkert alltaf að fylgja huganum eftir...sbr. nokkrar peysur sem þarf aðeins að setja saman, setja í hnappa og svona sem liggja hér og þar heima hjá mér og hrella heilann en það nær ekki lengra...skamm, skamm ;) ætla að lifa í voninni um að mér takist nú að afreka svo sem eina jólagjöf svona í október, má ekki vera minna.
Kettirnir mínir eru þurfalingar. Komst nú alveg að því af hverju það er í gær þegar Þórunn laumaði til þeirra smá hakki úr matnum sínum. Það er ekkert skrýtið að þetta sé gjörsamlega öskrandi fyrir neðan matarborðið þegar verið er að venja þá á alls konar sukkfæði okkar mannanna... þeir hafa ekkert gott af þessu, gengur svo sem lítið að segja þeim það þar sem að heilinn er ekki alveg orðinn nógu þroskaður, ef hann verður það einhvern tíma :S
Þorvarður stendur sig enn eins og hetja...lærir og lærir og það er ekkert mál. Marblettirnir á handleggjum mínum eru svona að dofna og ég vona að þeir séu þeir síðustu sem ég fæ vegna heimanáms barnsins míns...hann er nú orðinn svo stór að ég get ekki verið að standa í þessu rugli...hehehe... hann er orðinn fuglabóndi, kom enn einn unginn í útungarstöðinni þarna inni hjá honum og greyið er kominn með fjaðrir og allt og heldur að hann geti flogið...þannig að það er bíó að horfa á þurftalingana og blessaðan ungann að reyna að hefja sig á loft. Mikil skemmtun heima hjá mér, sjáið þið ;) þarf ekki mikið til að gleðja mig, hefur aldrei þurft... bah ( bakföll af hlátri, íslenskun á lol af Ragnheiði von Herz )
jæja, best að fara að puða og púla, stigaskeiðklukkudagur hjá mér í dag, voðalega gaman að hlaupa með reglulegu millibili hérna um hæðirnar með skeiðklukkuna í rassvasanum að merkja þreifara...gerist ekki betra ;)
þangað til næst, hagið ykkur...lærið heima og njótið kertaljósanna :)

þriðjudagur, september 30, 2003

Ég er nautnaseggur...elska mat, vín og að sofa....sofa mikið, meira og mest eiginlega alltaf. Veitti mér þann munað að skríða snemma undir sæng í gær og fann hvernig vellíðanin leið um mig, hjúfraði mér og rotaðist um leið. Var svo náttla að vakna í alla nótt og hélt að ég væri að sofa yfir mig...svo að héðan í frá fer ég seint í ból, sef stutt og stefni á að fara ekkert úr náttfötunum yfir jólin...er þetta ekki fínt plan hjá míns ??
Kettlingarnir mínir eru sætastir...sýni ykkur þá fljótlega. Þeir eru að slást alltaf núna þangað til allt í einu að þeir verða rosa syfjaðir og þá sér maður þegar augnlokin þyngjast og þeir detta niður þar sem þeir eru þá stundina og bara sofa...útflattir á bakinu, algjörlega búnir á því. Svo er það eitt, það má ekki setjast niður við matarborð þá eru þeir mættir og finna á sér að þarna uppi gæti nú leynst eitthvað sem ætti heima í þeirra munni...eitthvað annað en blessað þurrfóðrið sem þeir fá. Og það er ekki mjálmað...það er öskrað þangað til að maður tekur þá og færir þá eitthvað annað svo að það sé hægt að tala saman á meðan á borðhaldinu stendur. Þeir eru alveg ótrúlegir. Er örugglega að særa þá heilmikið en þeir verða að læra að vera ekki að þessu betli endalaust....:S
Þorvarður er hetjan mín þessa dagana. Það er ekki lengra síðan en í síðustu viku að ég var að slást við hann ( í alvörunni ) til að fá hann til að læra. Svo á meðan ég eldaði í gær settist minn maður niður og lærði fyrir alla vikuna og hló og gantaðist allan tímann. Hann er típískur tvíburi, geðsveiflurnar alveg skelfilegar og ég sé fram á náðuga tíma þegar hann verður meiri táningur en hann er í dag...hlakka ekkert sérstaklega til sko...en tek á því þegar þar að kemur.
Þórunn er orðin gelgja og þó yngri en bróðir sinn...er sko að fara í afmæli á morgun og var svona að spá í hvað hún ætti að gefa drengnum og í hverju hún ætti að vera. Ekki nóg með það...eitt fyndið. Þegar ég kem heim í gær er móða á rúðunni á útidyrunum...þegar ég opna dyrnar er ég komin í tyrkneskt gufubað og þegar ég fer að athuga hvað sé í gangi þá sé ég mér til mikillar hrellingar að klósettgólfið hefur breyst í litla sundlaug. Kristín afrekaði þetta um daginn en þá var hún reyndar að þvo sér um hendurnar. Allt um það. Þarna stendur hún Þórunn með handklæði um sig að reyna að þurrka upp alla bleytuna, skömmustuleg á svip. ALDREI fyrr hefur hún tekið upp á því að fara í sturtu um miðjan dag...svo að það er ekki nema von að ég hafi orðið soldið hlessa. Svo við þurrkuðum upp gólfið í sameiningu og ég hló svo mikið á meðan að mig verkjaði í magann...

jæja já...kannski komið að því að gera eitthvað af viti, má alltaf reyna það come on...

c",)

mánudagur, september 29, 2003

og já á meðan ég man...VAX ER BARA FYRIR SADÓ MASÓ EINSTAKLINGA !!!!!!!!
c",)
úff....langt síðan síðast :S
Lífið gæti samt ekki verið betra, er í augnablikinu að tjatta við hana siggu mína í damminu, sakna hennar svo :( en þetta er betra en ekki neitt...verð að komast aftur til hennar fljótlega :)
Kisurnar mínar dafna, fitna og blómstra út í eitt...slást allan sólarhringinn og detta svo út af þess á milli. Halda að þeir séu eitthvað allt annað en þeir eru...veit ekki hvað :S Já...þeir heita mícró og nanó...soldill lókalhúmor en þeir fitta samt vel inn í það . Man ekki hvor það er í augnablikinu en einn af þeim starir á mig eins og það sé eitthvað framan í mér og ætlar svo ítrekað að slást við augun í mér, frekar skerí sko...en ég stend þetta af mér, tek hann barasta og set hann niður á gólf, móðga ef til vill villidýrið en so what ???!!!
Nú helgin var ljúf eins og alltaf, kann svo vel við að hlaða batteríin. Þórunn fór í sveitina með Reyni og Einari og undi sér vel...Þorvarður yfirgaf líka hreiðrið og var að sjúkra pabba sínum þar til hann gafst upp í gær og kom heim til mömmu sinnar, alltaf best þar sko. Kristín var líka í burtu á laugardagskvöldið svo að ég barasta svaf...tek því mjög alvarlega að hlaða batteríin...hehehe
Og svo er núna komið að því að taka saumana úr eftir hryllingsaðgerðina þarna um daginn, get varla beðið að losna við þetta og ætla mér sko að leggjast í bað með kertaljósum og alles og halda upp á þetta...so the phone is off 2næt...hehehe er bara að spá hvern ég eigi að biðja um að gera mér þennan greiða þar sem staðsetningin er soldið skrýtin...fer ekkert nánar út í það !!
Jæja, best að fara að puða og púla....
þangað til næst...hagið ykkur vel og njótið lífsins í ræmur :)

c",)

föstudagur, september 19, 2003

Jibbí jei...loksins að koma helgi og það besta er að það er nákvæmlega ekkert planað :) Fer reyndar í fyrramálið að ná í nýjustu fjölskyldumeðlimina mína...2 loðnir fressar að bætast í hópinn svo að það verður bíóið um helgina að fylgjast með þeim og borða popp og fríhafnarnammi með...gerist varla betra. Skilst að veðrið bjóði hvort eð er ekki upp á mikið annað svo að það er um að gera að njóta þess, kveikja á kertum og gera eitthvað gott úr þessu öllu saman. Dagurinn svo sem búinn að vera eitt kaos frá upphafi til enda og allt það sem hugsanlega gæti sett mig út af sporinu...gerðist náttla allt saman. En ég, þessi litla hetja ( hehehe ) þraukaði, hélt haus og loksins er þessum hremmingum farið að linna...nema eitthvað stórmerkilegt gerist á leiðinni heim...hvað veit ég :S
Kannski um að gera að njóta kvöldsins vel...því að á morgun verðum við orðin fleiri og verður svo sem kómískt að sjá hvernig þetta kemur út...
annars býð ég ykkur bara góða helgi..þ.e. þeim sem að nenna að lesa þetta rugl í mér ( held að það styttist í svefngalsann...hehehe )

c",)

fimmtudagur, september 18, 2003

Jæja...þá get ég staðfest að ég er sadómasókisti !!
Í gær fór ég borubrött beint eftir vinnu til doksa úti í bæ. Hafði farið til hans í ágúst og planað þetta hitterí. Átti að vera saklaust og nokkuð sársaukalaust, þurfti að fjarlægja nokkuð sem mig minnir að hann hafi kallað fibroblastoma á doksamálinu....einhverjir bandvefshnúðar undir húðinni, einhver bandvefsvöxtur í kringum gömul skordýrabit...jaridarida...og allt um það .
Ég leggst á bekkinn, gerði mér fullkomlega grein fyrir því að þetta yrði neyðarlegt hvernig sem á það yrði litið svo að það smáatriði að ég var í g skipti ekki öllu máli þegar á hólminn var komið. Fyrsta stungan af deyfilyfi var svo vond að ég öskraði og blótaði eins og sjötugur sjómaður. Svo sem betur fer fann ég lítið fyrir því sem á eftir kom...þetta var allt í allt 4 blettir sem þurfti að fjarlægja og stungurnar urðu bara verri...hann var barasta farinn að vorkenna mér :S Hann jesúsaði sig í bak og fyrir því að hann hafði aldrei fyrr né síðar séð slíkt af þessari stærð...bogga er nú ekkert lítil svo að soddan noget á ekki að koma á óvart. Í heildina var þetta eitt stórt ái...og mikið blót. Vonandi bara saklaust en ég fæ víst formlegt bréf um niðurstöðurnar...

Svo þegar ég opnaði póstinn minn í morgun sá ég að ég hafði fengið póst og kannaðist ekkert við nafnið. Þeir sem hafa hotmail kannast vel við að það er endalaust verið að reyna að pranga inn á mann tippastækkunum og öðru þess háttar en mig grunaði samt að svo væri ekki í þessu tilfelli. Og guði sé lof fyrir að ég opnaði þetta því að þetta var sko hann boggi bró, loksins búin að fá sér póstfang...bara búið að taka nokkur ár sko :) gladdi mitt litla hjarta á skerinu. Það er náttla ennþá sumar í danmörkinni hjá honum, barasta í kringum 20 stiga hiti...án gríns :S sagði honum í gríni að það hefði nú bara verið 2 stiga hiti hér í höfuðborginni í morgun, smá munur þar á milli...

jæja, styttist í helgina...verður ljúft að gera alls ekki neitt nema mig langi til þess...

miðvikudagur, september 17, 2003

Well...gefst loksins tími fyrir smá blogg :)
komin heim, farin að vinna aftur og finnst það ekki gaman :( hefði viljað vera úti miklu lengur...ekkert smá næs að fá svona 20-25 stiga hita upp á dag, vantaði reyndar ískalda kranavatnið en þraukaði með því að drekka bara meiri bjór :)
Þannig að þetta var bara góð framlenging á sumrinu, ekkert annað. Það er ekkert smá gaman að sitja bara úti við og skoða mannlífið í Amsterdam, reyndar frekar sorglegt að sitja í útjaðri rauða hverfisins og sjá hvaða ógeð eru að rölta þar í gegn og aumingja stelpurnar verða að taka við með brosi á vör. En svona er þetta bara, þær velja þetta flest allar ( vona ég )...
Það eru svona nokkrar manneskjur sem standa upp úr og koma til með að lifa í minningum okkar, þ.e. mín og Siggu...eitthvað til að hlægja að svona eftir nokkur ár. Við eigum svoleiðis minningar frá Bali og getum hlegið endalaust...þetta var bara viðbót í bankann. Eitt er ég búin að ákveða, ef að það kemur nettilboð til Amsterdam verð ég með þeim fyrstu að bóka mig þangað...hreint og beint geðveik borg :)
Svo er bara daglega amstrið tekið við hérna heima, vinnan endalaust puð en gaman inn á milli. Þorvarður minn er búinn að ná í gleraugun sín og er svo miklu sætari núna, eltist um nokkur ár við brillurnar en er bara svo mikil snús. Kristín er alveg hreint að kafna úr mömmuást, má ekki af mér líta þá heldur hún að ég sé búin að stinga hana af. Verður eflaust svona í nokkrar vikur í viðbót :S Þórunn er alltaf sama skonsan, bítur allt af sér en er ljúf sem lamb heima við...nennir reyndar engu en ég er orðin vön því að vera bara ekkert að tuða í henni...
Jæja, best að fara að koma sér heim á leið...alla veganna svona í áttina :)
þangað til næst...

fimmtudagur, september 11, 2003

Hér ríkir mikil sorg í Svíþjóð...utanríkisráðherrann var stunginn til bana við hversdagsleg innkaup í gærdag...um miðjan dag. Enn einu sinni erum við minnt á hvað fólk getur verið ömurlega grimmt og ógeðslegt innræti búið í fáum, sem betur fer. Hér er flaggað í hálfa stöng og allt hálf dapurlegt. Að hugsa sér að maður geti hugsað sér að myrða manneskju, taka hana frá fjölskyldu sinni og komast jafnvel upp með það. Mannlegt eðli er skítlegt...ekkert annað :(
Það var ekki notalegt að heyra þetta svona blákalt í fréttunum í morgun en þeir ætla nú samt sem áður að halda sínu striki og kjósa um evruna á sunnudaginn...eitthvað sem að hún hefði viljað og það á ekkert heldur að láta nei fólkið komast upp með svona nokkuð. Þannig að það eru meiri líkur á að Svíþjóð taki upp evruna í dag en þær voru í gær...

Við frænkurnar máluðum bæinn rauðan í gærkvöldi en ég er eiginlega ekkert í stuði að segja ykkur frá því...ætla frekar að fara og baka kanalboller með Þórunni minni...kemur kannski seinna upp úr dúrnum hvað var gert...:)

Og já..flýg til amsterdam seinni partinn...hitta siggu mína...:) yndislegt...

en þangað til næst...hagið ykkur vel :)

miðvikudagur, september 10, 2003

Hehehe...lífið er yndislegt...finnst ykkur ekki ?? allt í einu er farið að rigna í svíaríki eins og hellt væri úr fötu...utanríkisráðherra svíþjóðar stungin fyrr í dag af einhverjum fávita í stokkhólmi og allt í rugli hérna...næ ekki einu sinni símalínu út úr landinu til að segja góða nótt við börnin blessuðu :)
svona er lífið...yndislegt en stórskrýtið.
annars er dagurinn búinn að vera stórfínn...er svona að undirbúa mig andlega og líkamlega fyrir dammför...það verður nú klikkað stuð !!! ég og Þórunn ætlum aðeins að kíkja niður í bæ á litla laugardaginn...svona eins og helmingurinn af Gautaborg...erum með stuðmenn á fóninum og bara þvílíkt tjill.....


jæja, læt þetta duga í bili...farin að taka mig til :)
þangað til næst..verið hress, ekkert stress og bless c")

þriðjudagur, september 09, 2003

Ég er að stikna hérna í Gautaborginni...þvílík blíða...þarf að forða mér inn af og til bara svona til að átta mig á að ég er ekki i spanien...bara í svíþjóð. En þetta er nú svo ljúft...alveg til í að leggja þetta á mig. Þórunn var að ráðast á fyrstu tásurnar í skólanum í morgun, ætlar að verða fótsnyrtir...blessunin sú. Svo hittumst við seinni partinn og ætlum loksins að elda nautakjötið sem hefur beðið okkar frá því að ég kom hingað...vorum ekki búnar að jafna okkur á Mother India í gærkvöldi...vorum enn saddar :) svo að það var bara jógúrtin, sem er alveg ótrúleg hérna...hvað þeir setja útí hana er bara spurning um dagsformið, eins exótískt og hægt er að hugsa sér. Bara skellt út í og svo verði þér að góðu :)
Jæja, best að fara að fjölga freknunum...reyna það alla veganna :)
þangað til næst hafið það gott :)

mánudagur, september 08, 2003

Jæja þá...þá er farið að kvölda hér í Gautaborg og búinn að vera hreint yndislegur dagur. Svaf aðeins út á meðan Þórunn Kristín og Jóel voru farin út úr húsi eldsnemma og skreið svo bara á fætur seint og um síðir...alla veganna á minn mælikvarða. Dreif mig svo niður í bæ að leita mér að miða yfir til Amsterdam...bara til að koma í veg fyrir allan misskilning heima við að þá er ekkert ódýrara að ferðast hér og allra síst ef að maður er með einhverjar kröfur. Ekki að mínar hafi verið miklar...vildi bara flug yfir til dammsins og til baka. En þá kom í ljós að það er bara ekkert um mörg flug að velja og að lokum fann ég nú eitt stykki flug héðan og til dammsins og svo þaðan og yfir til köben. Mjög hentugt og kemur vel út tímalega séð en hvað það kostaði er alfarið mitt mál og fær að vera það slatti lengi...ÞAÐ ER EKKI ÓDÝRT AÐ FERÐAST SVONA Á SÍÐUSTU STUNDU...OG HANA NÚ !!!
Annars er ég bara fegin að ég er búin að redda þessu, verð komin til siggu um kvöldmat á fimmtudag og verð hjá henni alveg þangað til á mánudagsmorgun...held þá heim á leið mjög svo mygluð býst ég við :) en þetta verður nú vel þess virði :)
Hér í Gautaborg er sko enn sumar að mínu mati...alveg í kringum 20 gráðurnar og í dag skein meira að segja sólin svona til að ylja mér um kroppinn...soldið notalegt sko. Hringdi aðeins heim áðan og var ekkert að spyrja um veðrið...vildi ekkert vera að nudda saltinu í sárin þar sem það var ógó veður þegar ég fór út :)
Er búin að vera svo dugleg að halda í budduna mína...stend mig vel sko en ef að við værum að tala um dropa og haf þá væru þeir orðnir nokkrir við aðrar kringumstæður...soldið lokalt en þetta verður að fljóta hérna með . Og já...við fórum út að borða í hádeginu á veitingastað sem heitir Mother India og hún var sko á staðnum...mjög svo matarleg kona sem réð þar yfir. Maturinn var mjög góður en ég held að eitthvað hefði nú verið sagt heima út af litnum...maturinn var mjög svo rauður og útskilnaður minn næstu daga fær örugglega að bera nokkurn keim af því :) Allt um það :)
jæja ætli það sé ekki komið nóg af þessu rugli í bili...

sunnudagur, september 07, 2003

Jæja vinir og vandamenn... þá er míns komin til Gautaborgar eftir gott en strangt ferðalag. Ég reyndar lengdi líf mitt talsvert á fluginu yfir til Köben þar sem ég las Bridget Jones- á barmi taugaáfalls og grét af hlátri...aumingja fólkinu við hliðina á mér til mikillar gleði, það skildi ekkert hvað var í gangi, ég var sífellt að skella upp úr og þurrka tárin af hvörmum mér...alveg himnesk tuttlan sú :)
Svo þegar ég lenti í köben og rölti fram voru mínir elskulegu ættingjar það fyrsta sem ég sá...knúsaði þau heillengi og svo tókum við okkur til og villtumst aðeins um Köben en fundum svo loks Christianiu...og römbuðum inn á grænmetismarkað þar sem boggi bró stóð og skenkti grænmetisbuff í hungraða dani...og okkur :) fengum okkur aðeins að snæða hjá honum á meðan við biðum eftir að hann kláraði vaktina sína. Svo fórum við á röltið með honum í blíðunni þarna og skemmtum okkur konunglega við að horfa á eftir tíkinni hans rjúka út í vatnið þarna að synda. Þarna var reyndar einn pínulítill hundur á svamli...greyið fann ekki spýtuna sem hann í upphafi ætlaði að ná í svo að hann hringsólaði um vatnið...hvort hann drukknaði eður ei...tja veit ekki :/
Svo sýndi hann okkur leikskólann sem er mjög svo bleikur á litinn...sýndi okkur inn í hann og ég skil hann vel að hann finni sig í þessari vinnu og skil reyndar enn betur núna að hann sé ekkert á leiðinni heim. Reyndar svona fyrir vandamenn að vita að þá er hann vonandi á leiðinni heim um jólin og Míra blessunin ætti nú ekki að koma í veg fyrir það í þetta sinn þar sem það er búið að taka hana úr sambandi...blessaða ( varð að láta þessar gleðifréttir fljóta með fyrir ættingjana sko þar sem allir eru að vonast eftir að fá hann á skerið sem fyrst )
Kveðjustundin var erfið, en ég gerði mitt besta að knúsa hann þar til hann emjaði og þá kysstumst við á kinn og sögðumst sjást fljótlega...sem ég vona að verði raunin.
Við tók ökuferð yfir til Gautaborgar...eitthvað sem ég gerði síðast þegar ég fór til Partille í keppnisferð í mjög svo gömlu góðu dagana. Ekkert að marka þar sem sú ferð var farin í algjöru myrkri og ekkert sást. Á þessari leið rak ég augun í hvítar beljur..eitthvað sem að sést ekki heima og svo náttla ekkert nema tré og aftur tré. Stundum rofaði til og sást svona aðeins út fyrir veginn en alveg hreint ótrúlegt magn af trjám sem er hérna...sakna soldið víðáttunnar heima. Og skítalyktin...guð minn góður ég held að þeir séu að bera mannask.. á túnin hérna, alveg ólýsanlegt. Þórunn tók sig til og ók slatta af leiðinni á meðan við hin í bílnum átum upp á okkur neglurnar í ótta og skelfingu einni saman. Hún er að æfa sig þessa dagana fyrir bílprófið en hún stóð sig alveg með ágætum...þessi elska :)
Við skriðum svo heim um níuleitið í gærkvöld og þá var ég sem sagt búin að vera á ferðinni í rúman hálfan sólarhring. Ekkert skrýtið að ég sofnaði eins og steinn og svaf mjög vel. Við sváfum svo fram eftir í morgun en drifum okkur niður í miðbæinn eftir hádegið, skoðuðum mannlífið og fengum okkur kaffikrús. Búið að vera alveg hreint yndislegt hingað til...hér er heitt miðað við árstíma og ljúft að vera. Á morgun verð ég svo lyklabarn...hehehe
Jæja, best að halda áfram grátinum yfir hörmungum Bridgetar...
Kærlig hilsen til allihoppa...þangað til næst :)
Já..og svona first impression af svíþjóð...
hvítar beljur !!!!!!
tré, tré og aftur tré...
og innflytjendur í lange baner :)

föstudagur, september 05, 2003

Jæja, þá er míns komin í frí og ekki alveg farin að njóta þess þó :S Er búin að vera eins og þeytip... út um allan bæ í dag, fór í klippingu og er hæstánægð eðalblondína núna...þökk sé Alla !! Svo bara redda þessu og hinu en nú kem ég ekki meiru í töskurnar...að ég held og ef ég gleymi einhverju þá bara so what... :) það verður þá bara að hafa það...
Hlakka svo til að hitta vini og vandamenn á morgun, það gæti ekki nokkur lifandi maður trúað því hvað ég er spennt. Heyrði aðeins í Siggu áðan og hún var að tjilla í Amsterdam, hvað er annað hægt að gera ?? Þetta verður svo gaman, súrt...en gaman :) minnir mig á það að ég verð að fá mér svona hangovermedisín í fríhöfninni...þrauka ekki dammið án þess...
jæja best að fara að drífa sig suður í njarðvík...bið að heilsa þangað til næst... :)

fimmtudagur, september 04, 2003

Verð bara að blogga soldið...lífið er svo yndislegt þessa dagana að ég verð að deila því með fleirum en heimilisdýrum...loðnum sem ei :) var nebbla með henni Ragnheiði minni í gær að skoða litla kettlinga og það endaði nú svo að ég er að fara að taka að mér 2 bollur...2 fressa sem eru svooooooooooooo sætir....
Svo loksins er ég að komast af þessu skeri og það í ekkert smá ferðalag...tek sko 3 lönd með trompi á 9 dögum og heimsæki vini og vandamenn...hlakka svo til að knúsa bogga bró... :) fara í liseberg með Þórunni og co og svo á svaka djamm með Siggu í damminu...kvíðir mest fyrir því held ég...Sigga.....engir Black russian á barnum..heyrirðu það ??? þetta verður bara gaman...