Þegar við vorum að koma á leikskólann tilkynnti hún mér að blómin væru byrjuð að koma upp úr jörðinni í garðinum hjá Dídí. Nema hvað að þar vaxa fífl !!! Ójá, fíflin vaxa þar og dafna vel. Ég átti svo erfitt með mig, að springa ekki úr hlátri fyrir framan þessa sætabollu. Ég hélt andlitinu þangað til ég komst út í bíl og þá gat ég varla startað bílnum fyrir hlátrasköllum.
Yndislegt að það sé kominn föstudagur ( flöskudagur ). Var hérna í vinnunni á miðnætti í gær ( jebb, orðin eins og eðalnörd ) svo ég nennti ekki framúr í morgun, snúsaði í klukkutíma.
Svo er bara að vakna snemma á morgun og fara með Þórunni Önnu á hundasýninguna sem hún er búin að vera að æfa sig fyrir. Jei…æðislegt að geta ekki sofið út á morgun. Yndislegt !!!Annars stefnir í rólega helgi, afslöppun og jafnvel fermingaskreytingarúnt. Verð víst að fara að skoða þetta og ákveða hvað ég vilji hafa á borðunum hjá frumburðinum 30.
c",)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli