miðvikudagur, apríl 19, 2006

Í dag...

eru 22 dagar þangað til ég fer til Amsterdam og bara 11 dagar í að ég láti ferma frumburðinn. Ji, hvað þetta líður hratt. Ég ætti kannski að fara í Bónus í dag og redda mér smá birgðum og henda einhverju í frystikistuna, tilbúnu auðvitað ;) Við ætlum svo að reyna að fara í bæinn á eftir og kaupa rúm handa blessuðum drengnum og þá verð ég væntanlega upptekin í kvöld að koma því fyrir. Æ, ég fer þá bara í Bónus á föstudaginn.

Annars bara luvlí að vera í fríi, nú er ég á 7. degi frís og fer ekki að vinna fyrr en á mánudaginn. Í millitíðinni fer ég í klippingu og brúnkumeðferð ( je beibí...) og á árshátíð og í eina fermingu. Það er nú ekki hægt að segja að ég sitji auðum höndum í fríinu. Tuttlast alveg heilan helling og meira en það ef út í það er farið ;) Svo að þetta líður hraðar en það átti að gera en samt búið að vera alveg yndislegt.

Ég tók mig til um daginn og horfði á einhverja 6 þætti af sex and the city, kom mér aðeins framúr því sem er verið að sýna á skjá einum þessa dagana. Hvað gerir maður svo þegar skjárinn er búinn að sýna 6. og síðustu seríuna ? Byrjar aftur, því það er hægt að horfa á þessar elskur aftur og aftur og aftur. Ég verð örugglega á Hrafnistu eftir nokkra áratugi að horfa á þær ennþá og hlæ jafn mikið að þeim. Reyndar læðast tárin líka inn á milli, best að vera tilbúin með nokkur handklæði áður en kemur að síðasta þættinum til dæmis. Þegar hr. Rumur....segi ekki meir...

Jæja, farin að frítuttlast ! Hafið það gott, gæskurnar og Gleðilegt sumar ( brrrrrrrrr ) á morgun ;)

c",)

Engin ummæli: