Þá er ljúf helgi að baki, matarklúbburinn tókst vel með eindæmum og nautakjötið baulaði mikið og vel enda rétt steikt af undirritaðri. Eftir matinn og súkkulaðikökuna ala Bogga þá plögguðum við singstar í sjónvarpið frammi og sungum hátt og snjallt. Ég var hvað best af okkur stelpunum þó ég segi sjálf frá. Mikið asskoti er þetta gaman þegar öllari er hafður við hönd. Úthald boðsgestanna var nú ekki mikið því að klukkan hálftólf fóru allir og skildu okkur eftir í banastuði með fullt húsið af búsi. Við gengum bara frá og skriðum upp í og nutum þess daginn eftir að vera barnlaus.
Þorvarður stóð sig svo vel um helgina, fór í bæinn með pabba sínum og foreldrum hans og fann sér jakkaföt, skyrtu og bindi fyrir ferminguna í vor. Sá verður nú glæsilegu þann 30. apríl. Verður gaman að sjá hann svona hávaxinn og myndarlegan í jakkafötum.
Og svo þegar við hjónakornin erum farin að skoða bíla ( bara skoða ) þá vill ekki betur til en svo að Gummi lendir í árekstri. Jebb, hann var á gulu ljósi í hádeginu í dag þegar annar bíll kom og klessti aftan á hann. Masdan styttist víst um einhverja 10 cm og það gapir afturhlerinn svo það er ekkert sérlega sniðugt að vera á bílnum í rigningu á næstunni. Það er verið að athuga með verkstæði fyrir hann, greyið. Kannski verðum við bara komin á nýjan bíl fyrr en við ætluðum okkur, hver veit.
Nú vappar Baltasar Kormákur og cast um ganga Decode þessa stundina að ákveða tökustað fyrir Mýrina, kannski enda ég bara í bíó ;) ( NOT )
Svo er bara bakstur framundan í þessari viku, ég á að vera með 2 kökur hérna í vinnunni í þessari viku fyrir utan það að undirrituð á víst afmæli á fimmtudaginn svo ég verð nú að hafa eitthvað djúsí fyrir heimilismeðlimi þann daginn. Aldur er nú svo afstæður en ég nálgast víst fertugsaldurinn ( alla veganna er fólk svo vinsamlegt að benda mér á það ). Ég er nú nær þrítugu ennþá sko !!!!
c",)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli