svona í tilefni dagsins...
A man scanned the guests at a party and spotted an attractive woman standing
alone.
He approached her and asked her name.
"My name is Carmen," she told him.
"That's beautiful," he said. "Is it a family name?"
"No," she replied, "I gave it to myself. It reflects the things I like most
- cars and men. What's your name?" she asked.
"Beerfuck," he replied.
c",)
föstudagur, maí 26, 2006
þriðjudagur, maí 23, 2006
Úff
langt síðan síðast. Margt er búið að gerast svo hér verður stiklað á stóru. Við erum farin og komin frá Amsterdam. Það var æðislegt veður allan tímann, 25 stiga hiti og sól og ekkert mál að njóta þess með nokkra kalda í hönd. Úbbs, má auddað ekki gleyma því að ég og Sissa hittum Silvíu nótt á flugvellinum kl. 7.15 og hún var sko mætt á svæðið í öllu gervinu og ekkert smá flott á leiðinni til Aþenu í gegnum London. Við fengum að smella myndum af okkur með henni þar sem við vorum trófíin hennar !!
Aftur að Amsterdam. Við nutum þess svo að sitja á hinum og þessum torgunum og torguðum nokkrum bjórum og fleiru og skoðuðum mannlífið. Við eigum okkur uppáhalds pöbb í Neuwmarkt hverfinu sem er alveg í jaðrinum á rauða hverfinu. Þar er hægt að fylgjast með þeim stelpum sem eru að fara á vakt, þeim sem voru að koma af vakt og öllum ógeðslegu köllunum sem streymdu þangað inn í leit að ævintýrum. Við röltum aðeins í gegnum rauða hverfið á föstudeginum og aftur á laugardeginum að loknum góðum málsverðum á steikarhúsi og ítölskum stað. Hverfið er nú soldið spes svo ekki sé meira sagt. En það er ekki hægt að sleppa því að rölta þarna í gegn.
Ferðin var í alla staði mjög vel heppnuð en líka yndislegt að koma heim í gjóluna og bjórleysið. Ég var orðin svo þanin af drykkju svo það var ljúft að eiga nokkra daga án alkóhóls...
Svo var bara vinna og meiri vinna í síðustu viku og bið eftir eurovision. Fanney skellti sér út að berja Silvíu augum í forkeppninni og njóta veðursins þarna suður frá. Alla veganna naut hún varla gestrisni grikkjana því þeir eru bara dónar eins og alþjóð veit. Leiðinlegir leigubílstjórar og fleiri kúkalabbar. Eníveis...allir vita hvernig helv forkeppnin fór, hvort að Silvía hafi fengið það sem hún átti skilið eður ei ætla ég ekkert að segja um, hún stóð sig eins og hetja þarna í púunum og ég var bara svo stolt af henni. Yndisleg... Við fórum svo í partý á laugardagskvöld til Nínu og Snorra í árbænum ásamt fleirum. Nutum þess í ræmur að sjá Finnana taka þetta í nös, nasir, trýni eða hvað sem þeir notuðu til að anda með í öllu latexinu. Algjör snilld, spurning að skella sér til Finnlands á næsta ári í maí ?? Svo skelltum við stelpurnar okkur niður í bæ á NASA í eurovision partý Páls Óskars og ég lofa því að mæta aftur og aftur og aftur... Þvílík gleði og tjútt. Skelli inn mynd ( eða reyni það alla veganna ) af okkur stúlkunum sem sýnir aðeins hvað við skemmtum okkur vel...
Svo var dúllan hún Alicia Ósk skírð um helgina í Norska sjömanskyrkan í Gautaborg. Gísli frændi sendi okkur hérna á klakanum myndir úr veislunni og ég get svarið það að hún er fallegasta barn sem ég veit um. Augun hennar, ég get horft á þau klukkutímunum saman, allt við hana er bara ótrúlega fallegt...hún hefur svo sem ekki langt að sækja sætleikann.....þessi elska...http://barnaland.mbl.is/barn/28630 hér getið þið kíkt á krúttið !!
Svo er bara vinna á morgun og útskriftarveisla annað kvöld hjá Oddu frænku hans Gumma. Við ætlum aðeins að fá okkur í aðra tánna eða upp í hnéskél, fer eftir aðstæðum. Yndislegt þegar vinnuvikurnar eru slitnar svona í sundur, reyndar hef ég alltof mikið að gera þessa dagana en verð bara að halda aftur af mér og reyna að slappa af. Svo bara vinna á föstudaginn og svo kosningar. Hef lítinn áhuga á málunum hérna í sveitinni en er spenntari yfir RVK, vona mjög heitt að Bingi komist ekki inn og þá losnum við bara kannski við ríkisstjórnina líka, ekki lélegur díll það.
Jæja, mér er gefið illt auga hérna fyrir pikkið. Gummi var að skella einhverri strákamynd í tækið sem þarfnast fullrar athygli, bæði hans og mín ( hehehe, sofna bara kannski eftir korter.... )
ciao bellas c",)

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)